Fréttablaðið - 24.03.2022, Blaðsíða 46
AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Guðmundur Örn Jóhannsson gudmundur@torg.is, ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050:
Andrés Bertelsen andres@frettabladid.is, Auður Húnfjörð audur@frettabladid.is, Reynir Elís Þorvaldsson reynir@frettabladid.is, Örn Geirsson orn@frettabladid.is FÓLK/
SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5078: Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jóhann Waage johannwaage@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@frettabladid.is, Ruth Bergsdóttir
ruth@frettabladid.is FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 550 5056: Hrannar Helgason hrannar@frettabladid.is,
TÍMAMÓTA- OG ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 550-5055: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@frettabladid.is
Framlag landsmanna til Eurovision er kántrískotið popplag. Kór
á vegum Listaháskólans heldur kántrítónleika fyrir fullu húsi og
Margrét Eir sendir frá sér kántríplötu á meðan Bríet biður kúrek-
ann að halda sér rólegum. Fréttablaðið leitaði til Andreu Jóns-
dóttur, Eyþórs Inga Gunnlaugssonar, Krumma Björgvinssonar
og Einars Bárðarsonar í leit að svörum við því hvort kántríið sé
að ná festu í meginstraumi popptónlistar á Íslandi.
ninarichter@frettabladid.is
Kántrískotin poppsveifla
í kjölfar kófsins
Hjálpar fólki í gegnum daginn
Krummi Björgvinsson
tónlistarmaður
Krummi segir kántríið hafa tilheyrt meginstraumn-
um á Íslandi þegar Brimkló var og hét. „Fleiri hljóm-
sveitir voru að spila minna á rafmögnuð hljóðfæri
og færa sig yfir í akústík. En þessi tónlist finnur sér
alltaf áheyrendur. Þetta er einlæg músík sem að
mínu mati fer aldrei úr tísku en fólk grefur hana upp
og uppgötvar hana reglulega,“ segir Krummi. „Núna
er hún mjög vinsæl á Íslandi, en ég myndi ekki segja að það sé mikið
um hreina sveitatónlist. Þetta er svona söng- og lagahöfundamúsík
í bland við þjóðlagatónlist og smá blús sem flækist þarna á milli.“
Hann segir að vinsældirnar megi ef til vill skýra út frá einlægri
textasmíði. „Þetta hjálpar fólki kannski að komast í gegnum daginn.
Gefur fólki vellíðunartilfinningu.“
Sjarmi og töffaragangur ræður ríkjum
Andrea Jónsdóttir
plötusnúður og dagskrárgerðarmaður
„Kántrí var miklu sérhæfðara hér áður fyrr. Nú er
farið að kalla ýmislegt kántrí, sem hefði ekki leyfst
í þeim ramma. Þeir voru svo strangtrúaðir í gamla
daga að nú er alls konar kallað kántrí,“ segir Andrea.
Aðspurð hvort hún sjái fyrir sér að kántrískotin tón-
list komi til með að leysa af hólmi hipphoppið, sem
mest selda tónlistarstefna Íslands, svarar And rea:
„Það er verið að setja hipphopp inn í kántríið. Hipphoppið og rappið
er aðeins að hverfa. En einu sinni réði rokkið öllu og þar á undan
Bítlatíminn. Þetta er alltaf allt til en fer í bakgrunninn. Oft eru þetta
peningar og sölumennska en það sem ég held að ráði þessu líka er
sjarminn og töffaragangurinn í flytjendunum,“ segir hún.
Kassagítarsáhrif úr kóvidinu
Eyþór Ingi Gunnlaugsson
tónlistarmaður og fyrrverandi Euoruvision-fari
Eyþór Ingi segist ekki vera mikill kántrímaður. „Nú
hefur verið mikil pródúsering í gangi, í svolítið
langan tíma,“ segir hann. „Kannski kemur þannig
löngun í að hlusta á akústísk hljóðfæri. Mögulega
er það raunin.“ Eyþór Ingi nefnir að hugsanlega sé
fólk að snúa sér aftur í grunninn. „Ef til vill gerðist
þetta í kóvidinu. Þá sátu menn með kassagítarinn
og hugsuðu: Vá, hvað það er gott að hlusta á kassagítar. Þetta gæti
verið eitthvað svoleiðis.“
Hann segir að vissulega sé kántrísveifla í gangi í poppinu í dag.
„En það fer eftir því hvar maður er staddur. Það er eins og það sé
löngun í einhvern hljómsveitargír almennt. Eins og það sé rokk á
leiðinni. Og svo er einhver næntís-nostalgía að fara af stað, þetta sé
ég hjá unglingunum.“
Einum „slædgítar“
frá kúrekanum
Einar
Bárðarson
athafna-
maður
Það lifnar
yfir Einari
Bárðarsyni
þegar hann
heyrir minnst
á kántrítónlist, enda að eigin
sögn mikill kántrímaður.
„Kántrítónlist eins og hefðin
er, bæði í nútíð og fortíð í
Bandaríkjunum, er ósköp
einfaldlega það sama og við
köllum íslenska dægurtón-
list á Íslandi. Við erum einum
„slædgítar“ frá því að vera kú-
rekar í poppinu hérna heima,“
segir hann.
„Inni í kántríinu eru til 15-
20 málsmetandi straumar.
Krummi í Mínus er kántrí,
pabbi hans er kántrí og
Eyþórsdætur eru kántrí.
Helgi Björns er kántrí. Kaleó
er argandi kántrí. Ef þú tekur
saxófóninn úr Sálarlögunum
ertu kominn með kántrí,“
segir Einar.
Aðspurður um komandi
strauma og stefnur í íslenskri
tónlist, svarar hann: „Ég held
að það sé tvennt í þessu. Það
verður svona meira urban-
kántrí, og meiri framlegð þar.
Svo held ég að við séum að
fara að horfa á svona, síð-90’s
snemm-aldamóta dans-
húkka-popp,“ segir Einar.
„Ég fæ svona sans fyrir því í
nýju sömplunum í erlendu
músíkinni. Þar er verið að vísa
í gamla sampla.
Tónlistarlega og markaðs-
fræðilega og í öllu samhengi
hefur forgangsröðun fólks
aðeins breyst, eftir kóvid.
Það er svona grunnstefs-
breyting hjá mörgum en það
þarf að átta sig á því núna
hvort það sé varanlegt eða
hvort það breytist aftur,“
segir Einar.
Beta, Elín og Sigga Eyþórsdætur keppa fyrir Íslands hönd í Eurovision á Ítalíu í maí, með kántrískotið popplag.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Boðun til aðalfundar 2022
ORF Líftækni hf.
Kópavogi, 24. mars 2022,
Stjórn ORF Líftækni hf.
Stjórn ORF Líftækni hf., kt. 420201-3540, boðar til aðalfundar í höfuðstöðvum
félagsins að Víkurhvarfi 7, föstudaginn 8. apríl 2022 kl. 11:00. Rafræn
þátttaka verður einnig aðgengileg hluthöfum.
Dagskrá fundarins:
1. Skýrsla stjórnar
2. Kynning forstjóra og framkvæmdastjóra viðskiptarþóunar og vísinda
á ORF Líftækni og Bioeffect
3. Stjórn leggur fram til afgreiðslu endurskoðaðan ársreikning félagsins
4. Ákvörðun um meðferð rekstrarhagnaðar eða taps
5. Kosning stjórnar
6. Kosning endurskoðunarfélags
7. Ákvörðun um þóknun til stjórnar og endurskoðanda
8. Tillaga stjórnar um starfskjarastefnu félagsins
9. Tillaga stjórnar um skiptingu félagsins
10. Tillaga stjórnar um gerð birgja- og þjónustusamnings milli ORF Líftækni
og Bioeffect
11. Tillaga stjórnar um heimild til útgáfu breytanlegra skuldabréfa allt að
kr. 500.000.000
12. Tillaga stjórnar um breytingar á samþykktum félagsins
13. Önnur mál
Verði tillögur stjórnar um skiptingu félagsins og heimild til útgáfu
breytanlegra skuldabréfa samþykktar eru lagðar til nauðsynlegar breytingar
á 4. gr. samþykkta félagsins, ásamt öðrum minniháttar breytingum. Við
skiptingu félagsins renna tilteknar eignir og skuldbindingar til nýstofnaðs
félags, Bioeffect Holding ehf. Stofnfundur hins nýja félags verður haldinn í
kjölfar aðalfundarins í þeim tilgangi að samþykkja stofngögn og kjósa stjórn
og endurskoðanda.
Nánari upplýsingar um hluthafafundinn og tillögur stjórnar má nálgast á
heimasíðu félagsins orfgenetics.com.
Fyrirkomulag fundarins og réttindi hluthafa
Fundurinn verður haldinn í höfuðstöðvum félagsins að Víkurhvarfi 7. Gefinn
er kostur á þátttöku á fundinum með rafrænum hætti með veflausn Lumi
AGM. Beint vefstreymi frá fundinum verður aðgengilegt auk þess sem að
hluthafar geta borið upp skriflegar spurningar. Rafræn þátttaka jafngildir
mætingu á fundinn og veitir rétt til þátttöku á honum að öðru leyti.
Atkvæðagreiðsla mun alfarið fara fram rafrænt í gegnum veflausn Lumi AGM
án tillits til þess hvort hluthafar mæta á fundarstað eða taka þátt rafrænt.
Ekki verður gefinn kostur á rafrænni atkvæðagreiðslu fyrir auglýstan tíma
aðalfundar.
Hluthafar eða umboðsmenn hluthafa sem hafa hug á því að sækja fundinn,
hvort sem er rafrænt eða með mætingu, eru beðnir um að skrá sig á
vefsíðunni www.lumiconnect.com/meeting/orfgenetics eigi síðar en kl. 11.00
þann 7. apríl 2022, eða degi fyrir fundardag. Með innskráningu þarf að fylgja
mynd af skilríkjum og umboð, ef við á.
Hver hluthafi á rétt á því að fá ákveðin mál tekin til meðferðar á aðalfundi ef
hann gerir um það skriflega kröfu til stjórnar félagsins eigi síðar en 7 dögum
fyrir fundinn, þ.e. fyrir kl. 11:00 föstudaginn 1. apríl 2022. Hægt er að senda
tillögur fyrir fundinn á netfangið ir@orf.is.
Hver hlutur er ein króna að nafnvirði og allir hlutir hafa jafnan rétt. Eitt
atkvæði fylgir hverri krónu í hlutafé. Hluthafafundur telst lögmætur ef hann er
löglega boðaður og hann sækja hluthafar eða umboðsmenn þeirra sem hafa
yfir að ráða helmingi hlutafjár í félaginu að minnsta kosti.
Endanleg dagskrá, tillögur stjórnar, ársreikningur félagsins fyrir 2021 og
önnur skjöl sem lögð verða fyrir aðalfundinn eru hluthöfum tiltæk á skrifstofu
félagsins. Skiptingaráætlun og önnur gögn vegna skiptingarinnar hafa verið
aðgengileg hluthöfum síðan 7. mars 2022.
Aðalfundur ORF Líftækni 2021
Stjórn ORF Líftækni hf., kt. 420201-3540, boðar til aðalfundar félagsins
miðvikudaginn 28. apríl 2021 kl. 16:00 í höfuðstöðvum félagsins að Víkurhvar
7, 203 Kópavogi. Fundinum verður streymt til hluthafa.
Dagskrá fundarins:
1. Skýrsla stjórnar um starfsemi félagsins 2020
2. Staðfesting ársreiknings fyrir árið 2020
3. Stjórn leggur fram til afgreiðslu uppfærða ársreikninga félagsins 2018 og 2019
4. Ákvörðun um meðferð rekstrarhagnaðar/taps ársins 2020
5. Kosning stjórnar
6. Kosning endurskoðunarfélags
7. Ákvörðun um þóknun til stjórnar og endurskoðanda
8. Tillaga stjórnar að starfskjarastefnu
9. Önnur mál
10. Kynning forstjóra og framkvæmdastjóra vísinda- og viðskiptaþróunar
Fyrirkomulag fundarins
Tilhögun fundarins verður í samræmi við þær sóttvarnarreglur sem í gildi
verða á fundardegi. Fundinum verður streymt og eru hluthafar beðnir um
að send tölvupóst á netfang ð ir@orf.is, fy ir lok da s 26. apríl, til ð fá
aðgangsupplýsingar.
Réttur hluthafa til að fá mál tekin fyrir á aðalfundi og atkvæðisréttur
Hver hlutha á rétt á því að fá ákveðin mál tekin til meðferðar á aðalfundi ef
hann gerir um það skriega kröfu til stjórnar félagsins eigi síðar en 7 dögum fyrir
fundinn, þ.e. fyrir kl. 16:00 miðv kudaginn 21. apríl. Hægt er að senda tillögur
fyrir fundinn á netfangið ir@orf.is.
Hver hlut r er ein króna að nafnvirði og allir hlutir hafa jafna rétt. Eitt atkvæ i fylgir
hverri krónu í hlutafé. Hluthafar geta með skriegu umboði veitt umboðsmönnum
heimild til að sækja hluthafafund og fara með atkvæðisrétt sinn.
Aðrar upplýsingar
Endanleg dagskrá svo og öll skjöl sem lögð verða fyrir aðalfundinn, þ.m.t.
ársreikningur félagsins og allar tillögur, verða hluthöfum tiltæk á skrifstofu
félagsins tveimur vikum fyrir aðalfund. Hluthöfum er bent á að skv. 63. gr. a.
hlutafélagalaga skal tilkynna skriega, minnst mm dögum fyrir hluthafafund,
um framboð til stjórnar.
Kópavogi, 12. apríl 2021
Stjórn ORF Líftækni hf.
Aðalfundur ORF Líftækni 2021
Stjórn ORF Líftækni hf., kt. 420201-3540, boðar til aðalfundar félagsins
miðvikudaginn 28. apríl 2021 kl. 16:00 í höfuðstöðvum félagsins að Víkurhvar
7, 203 Kópavogi. Fundinum verður streymt til hluthafa.
Dagskrá fundarins:
1. Skýrsla stjórnar um starfsemi félagsins 2020
2. Staðfesting ársreiknings fyrir árið 2020
3. Stjórn leggur fram til afgreiðslu uppfærða ársreikninga félagsins 2018 og 2019
4. Ákvörðun um meðferð rekstrarhagnaðar/taps ársins 2020
5. Kosning stjórnar
6. Kosning endurskoðunarfélags
7. Ákvörðun um þóknun til stjórnar og endurskoðanda
8. Tillaga stjórnar að starfskjarastefnu
9. Önnur mál
10. Kynning forstjóra og framkvæmdastjóra vísinda- og viðskiptaþróunar
Fyrirkomulag fundarins
Tilhögun fundarins verður í samræmi við þær sóttvarnarreglur sem í gildi
verða á fundardegi. Fundinum verður streymt og eru hluthafar beðnir um
að senda tölvupóst á netfangið ir@orf.is, fyrir lok dags 26. apríl, til að fá
aðgangsupplýsingar.
Réttur hluthafa til að fá mál tekin fyrir á aðalfundi og atkvæðisréttur
Hver hlutha á rétt á því að fá ákveðin mál tekin til meðferðar á aðalfundi ef
hann gerir um það skriega kröfu til stjórnar félagsins eigi síðar en 7 dögum fyrir
fundinn, þ.e. fyrir kl. 16:00 miðvikudaginn 21. apríl. Hægt er að senda tillögur
fyrir fundinn á netfangið ir@orf.is.
Hver hlutur er ein króna að nafnvirði og allir hlutir hafa jafnan rétt. Eitt atkvæði fylgir
hverri krónu í hlutafé. Hluthafar geta með skriegu umboði veitt umboðsmönnum
heimild til að sækja hluthafafund og fara með atkvæðisrétt sinn.
Aðrar upplýsingar
Endanleg dagskrá svo og öll skjöl sem lögð verða fyrir aðalfundinn, þ.m.t.
ársreikningur félagsins og allar tillögur, verða hluthöfum tiltæk á skrifstofu
félagsins tveimur vikum fyrir aðalfund. Hluthöfum er bent á að skv. 63. gr. a.
hlutafélagalaga skal tilkynna skriega, minnst mm dögum fyrir hluthafafund,
um framboð til stjórnar.
Kópavogi, 12. apríl 2021
Stjórn ORF Líftækni hf.
Blaðið í dag og safn eldri blaða á frettabladid.is
22 Lífið 24. mars 2022 FIMMTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ