Fréttablaðið - 24.03.2022, Blaðsíða 28
Á ráðstefnunni
verður meðal
annars horft til nýrra
krafna og sjónarmiða
sem allir sem koma að
mannvirkjagerð verða
að tileinka sér.
starri@frettabladid.is
Samtök iðnaðarins (SI) standa
fyrir ráðstefnu um tækifærin í
vistvænni mannvirkjagerð í til-
efni af opnun stórsýningarinnar
Verks og vits. Ráðstefnan ber heit-
ið Mannvirkjagerð á tímamótum
– grípum tækifærin í vistvænni
uppbyggingu og stendur yfir milli
klukkan 14 og 16, fimmtudaginn
24. mars.
Á ráðstefnunni verður meðal
annars horft til nýrra krafna og
sjónarmiða sem allir sem koma að
mannvirkjagerð verða að tileinka
sér. Einnig verður leitast við að
svara því hvaða hindrunum þarf
að ryðja úr vegi til að f lýta fyrir
árangri.
Fjöldi fyrirlesara úr einka-
geiranum og opinbera geir-
anum heldur erindi, þar á meðal
Sigurður Brynjar Pálsson, forstjóri
BYKO, Sylgja Dögg Sigurjóns-
dóttir, sérfræðingur á byggingar-
sviði Eflu og meðlimur í fagráðinu
Betri byggingar, Rósa Guðbjarts-
dóttir, bæjarstjóri Hafnarfjarðar,
og Sigurður Ingi Jóhannsson inn-
viðaráðherra.
Ráðstefnustjóri er Jóhanna
Klara Stefánsdóttir, sviðsstjóri
mannvirkjasviðs SI.
Verk og vit sýningin hefst form-
lega að ráðstefnunni lokinni. n
Skráning fer fram á si.is þar sem
einnig má finna nánari upp-
lýsingar.
Áhugaverð ráðstefna
Ráðstefnan Mannvirkjagerð á tímamótum verður haldin í dag mili kl. 14 og 16.
MYND/AÐSENDVið erum á Verk & vit
& tökum vel á móti
ykkur í bás C–13
Komið & prófið
hljóðvistina
HLJÓÐVISTAR- & NÆÐISKLEFAR
Falleg hönnun & notendavæn upplifun
WWW.A4.IS // HUSGOGN@A4.IS // SÍMI 580-0085
A4 HÚSÖGN SKEIFUNNI 17 // OPIÐ VIRKA DAGA FRÁ 9 – 17
12 kynningarblað 24. mars 2022 FIMMTUDAGURVERK OG VIT
Sýningarsvæði Tækni-
skólans vekur alltaf mikla
athygli gesta á Verki og viti
en skólinn hefur tekið þátt
nánast frá upphafi.
starri@frettabladid.is
Tækniskólinn hefur tekið þátt í
Verki og viti nánast frá upphafi
og hafa sýningarsvæði skólans
iðulega vakið mikla athygli gesta
að sögn Ólafs Sveins Jóhannes-
sonar, deildarstjóri markaðs- og
kynningardeildar Tækniskólans.
„Helsta markmiðið með þátt-
töku Tækniskólans í sýningunni
er fyrst og fremst að minna á
skólann okkar, Tækniskólann,
skóla atvinnulífsins.
Margt af því fólki sem er í
forsvari fyrir þau fyrirtæki sem
kynna á Verki og viti er fólk
sem lokið hefur námi í Tækni-
skólanum, eða sambærilegum
iðn- og tæknimenntaskólum. Við
viljum mennta framúrskarandi
fagfólk fyrir atvinnulífið og til
þess að það sé mögulegt þurfum
við að vera í góðum tengslum við
atvinnulífið.“
Frábær vettvangur
Öflugur hópur frá Tækniskólanum
stendur vaktina um helgina að
sögn Ólafs. „Á sýn ing unni mun
glæsi legur hópur nem enda í húsa-
smíði standa vaktina fyrir hönd
skólans og í sam starfi við BYKO og
Hilti reisa nem end urnir 9 fermetra
smá hýsi. Hrafn kell Marinósson,
kennari í húsasmíði, heldur utan
um hópinn sem samanstendur af
fimmtán nemendum. Utan þessa
hóps koma margir starfsmenn
skólans að skipulagi og undir-
búningi. Við vonumst til þess að
gestir og fagfólk á sýningunni gefi
þessu flotta verkefni gaum. Von-
andi mæta foreldrar á sýninguna
með börnum sínum, því þetta
er frábær vettvangur til þess að
sjá tækifærin sem felast í iðn- og
tæknimenntun.“
Sýnileiki mikilvægur
Hann segir afar mikilvægt fyrir
skóla eins og Tækniskólann að vera
sýnilegur á sýningum á borð við
Verk og vit.
„Slagorð Tækniskólans er
„Byrjaðu hjá okkur og breyttu
heiminum“ og við viljum geta
staðið undir eins kröftugu slagorði.
Það er því okkar mat að sýni-
leiki á stærstu fagsýningu bygg-
ingariðnaðarins hér á landi sé ekki
aðeins mikilvægur heldur sé það
okkar hlutverk að vera sýnileg
fyrir okkar helstu fagaðila.“
Nýtt og spennandi nám
Það eru alltaf einhverjar spenn-
andi nýjungar fyrirhugaðar hjá
Tækniskólanum, að sögn Ólafs.
„Það er mjög gaman frá því að
segja að Tækniskólinn er að byrja
með nýja námsbraut í haust, sem
tengist byggingariðnaðinum á
stóran máta, en það er nám í jarð-
virkjun. Miðað er við að námið
taki tvö ár og er almennur kjarni
(íslenska, stærðfræði, enska,
lífsleikni, íþróttir) hluti af því.
Tækniskólinn hefur fest kaup á
sérstökum vélahermum og von-
umst við til þess að einn þeirra
verði kominn til landsins og inn
í kennslustofu í húsnæði skólans
í Hafnarfirði, fyrir opið hús sem
er dagsett 31. mars næstkomandi.
Nánari upplýsingar um nýtt nám
í jarðvirkjun er að finna á vefsíðu
skólans, tskoli.is.“ n
Mennta framúrskarandi fagfólk
Þorkell Sigurðsson (t.v.) og Kristján Vilhelm Gunnarsson verða á sýningarsvæði Tækniskólans á
Verki og viti. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
Hluti nemenda og starfsmanna Tækniskólans sem tók
þátt í Verki og viti árið 2018. MYND/AÐSEND