Morgunblaðið - 03.01.2022, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 03.01.2022, Blaðsíða 4
4 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 3. JANÚAR 2022 Bi rt m eð fy rir va ra um pr en tv ill ur .H ei m sf er ði rá sk ilj a sé rr ét tt il le ið ré tti ng a á sl ík u 595 1000 Alicante u. At h. t 5. janúar, önnur leið Flugsæti til 9.900 Flug aðra leið frá Flugsæti HURÐIR Tunguháls 10, 110 Reykjavík, sími 567 3440, vagnar@vagnar.is, vagnar.is • Stuttur afhendingartími • Hágæða íslensk framleiðsla • Val um fjölda lita í RAL-litakerfinu • Vindstyrktar hurðir Bílskúrs- og iðnaðarhurðir Iðnaðarhurðir Iðnaðarhurðir með gönguhurð Bílskúrshurðir Hurðir í trékarma Tvískiptar hurðir Smíðað eftir máli Fyrsta flokks þjónusta og ráðgjöf Einn af öðrum fóru togarar og bátar fiskiskipaflotans úr höfn í gær og stefndu á miðin. Grindavíkurflotinn var inni yfir jól og áramót og viðlegukantarnir í höfn- inni voru þétt setnir, eins og sést á þessari mynd sem var tekin á gamlársdag. Flest þessara skipa eru nú farin á sjó og gert er ráð fyrir að nú í blábyrjun ársins verði túrarnir stuttir, enda skiptir máli nú að fá hrá- efni sem fyrst svo koma megi starfsemi í fiskvinnslu- húsunum aftur af stað. Raunar var nokkuð um að minni línubátar, sem gerðir eru út frá Grindavík, væru á sjó milli hátíða og þá aflaðist ágætlega á fiski- slóð við suðurströndina og Reykjanesið. Allur er þó varinn góður þar, því á miðvikudag er spáð SA-átt, sem gæti fylgt bræla. Í gær mátti sjá á marinetraffic.com að Akureyr- artogararnir voru nokkrir komnir á miðin djúpt norð- ur af Vestfjörðum, þangað sem fleiri stefndu. Allt fram streymir og með þessu hefst vetrarvertíðin með sínum gulu golþorskum og miklu verðmætum. sbs@mbl.is Fiskiskipaflotinn fer á miðin Morgunblaðið/Sigurður Bogi Tólf Íslendingar voru sæmdir hinni íslensku fálkaorðu á Bessastöðum við hátíðlega athöfn á nýársdag. Á liðnu ári voru 100 ár frá stofnun orð- unnar en hún var fyrst veitt hinn 3. júlí 1921 í Íslandsheimsókn Krist- jáns X. konungs og Alexandrine drottningar. Orðuband óháð kyni Sú breyting var gerð í desember á orðunni að nú verður orðuband við riddarakross og stórriddarakross hið sama, óháð kyni, en fram til þessa hafa konur borið riddarakross í slaufu en karlar í borða. Var þetta því fyrsta orðuveitingin eftir þá breytingu. Allar veittar orður voru í borða og heyrir nú slaufan sögunni til. Orðuna hlutu þau Áslaug Geirs- dóttir prófessor, Bjarni Felixson, fyrrverandi íþróttafréttamaður, Gerður Kristný Guðjónsdóttir rit- höfundur, Haraldur Ingi Þorleifsson frumkvöðull, Jóhanna Guðrún Krist- jánsdóttir menntunarfræðingur, Katrín Fjeldsted heimilislæknir, Kristín Þorkelsdóttir hönnuður, Ólafía Jakobsdóttir, fyrrverandi sveitarstjóri, Sigurður Flosason, hljóðfæraleikari og tónskáld, Sig- urjón Arason, yfirverkfræðingur og prófessor emeritus, Stefán Haukur Jóhannesson sendiherra og Trausti Valsson, prófessor emeritus. - Engin orða í slaufu, sem heyrir nú sögunni til Áslaug Geirsdóttir Sigurður Flosason Kristín Þorkelsdóttir Bjarni Felixson Tólf hlutu fálkaorðuna Urður Egilsdóttir urdur@mbl.is Alls greindust 1.497 einstaklingar smitaðir um helgina. Í gærmorgun lágu 22 inni á Landspítala, átta voru á gjörgæslu og sex þeirra í öndunarvél. Runólfur Pálsson, framkvæmda- stjóri meðferðar- sviðs og yfirmað- ur Covid-göngu- deildar Land- spítalans, segir að sjö af átta séu óbólusettir. „Stóru áskor- anirnar núna eru gjörgæslan ann- ars vegar og svo Covid-göngudeildin hins vegar, sem er að sinna fjölda einstaklinga sem hugsanlega þyrftu innlögn,“ segir Runólfur. 1,5 sinnum meira smitandi Niðurstöður danskrar rannsóknar sýna fram á Ómíkron-afbrigði veir- unnar er ekki eins smitandi og áður var talið. 19 vísindamenn frá háskól- anum í Kaupmannahöfn, hagstof- unni, tækniháskólanum og sóttvarna- stofnun Danmerkur komu að rannsókninni. Nýja rannsóknin gefur til kynna að Ómíkron sé 1,5 sinnum meira smitandi en Delta-afbrigðið. Rannsóknin náði til tæplega 12 þús- und danskra heimila þar sem rúm- lega 2.200 einstaklingar voru smitað- ir af Ómíkron. Þegar rannsókninni lauk höfðu tæplega 6.400 smitast af afbrigðinu á einum til sjö dögum eftir að sá fyrsti á heimilinu greindist. Rannsóknin hefur þó ekki verið ritrýnd og segir Runólfur að fleiri rannsóknir þurfi til að sanna að Ómíkron sé ekki eins smitandi og áð- ur var talið, þetta séu þó mikilvægar upplýsingar. „Upplýsingarnar sem við fáum eru frekar misvísandi en þetta er samt sem áður eitthvað sem vert er að horfa til,“ segir hann og bætir við að rannsóknin virðist ágæt- lega útfærð. Runólfur segir að það sem mestu skipti nú sé hvaða hópar sýkist en flestir eru nú smitaðir í aldurshópn- um 18 til 29 ára eða 2.085. „Ég held að það sem við þurfum að fá góða mynd af sé hvernig hópnum sem er í mestri hættu á alvarlegum veikindum vegn- ar, hversu vel mun bólusetningin og örvunarskammturinn verja þá?“ spyr Runólfur en á gamlárskvöld lést kona á níræðisaldri vegna veirunnar. Smittölurnar hálfmarklausar Inntur eftir því hvort of mikil áhersla sé lögð á að skima einstak- linga, sérstaklega þá sem séu ein- kennalausir, sem geti valdið ótta og hræðslu hjá almenningi, segir Run- ólfur það vissulega rétt að ákveðnu leyti, en að almennur fréttaflutning- ur eigi þar einnig í hlut. „Við nátt- úrlega nýtum okkur þessar upplýs- ingar í heilbrigðisþjónustunni til að geta gert áætlanir. Við reynum að átta okkur á, frá einum tíma til ann- ars, hversu hátt hlutfall smitaðra er líklegt til þess að veikjast alvarlega,“ segir Runólfur og bætir við að það hlutfall hafi breyst með afbrigðunum. „Það er lægra hlutfall fólks, sem er smitað af Ómíkron-afbrigðinu, að veikjast, en við þurfum að gera okkar áætlanir og vera í viðbragðsstöðu.“ Tveir sem liggja nú á Landspítalan- um eru með Ómíkron, 14 með Delta en upplýsingar vantar hjá sex sjúk- lingum. Runólfur segist þó vera sammála því að fyrir samfélaginu séu smittöl- urnar farnar að verða hálfmarklaus- ar. „Við vitum líka að það er fjöldi fólks smitaður út í samfélaginu sem við höfum ekki greint. Sérstaklega á það við í þessum löndum þar sem þetta er orðið mjög útbreitt,“ segir hann og nefnir að áhugavert verði að sjá hvað komi út úr rannsókn Ís- lenskrar erfðagreiningar þar sem tekið verður slembiúrtak úr sam- félaginu í þessum mánuði til að kanna ónæmi þjóðarinnar gegn veirunni með mótefnamælingu. „Ég held að það muni gefa okkur skýrari mynd af útbreiðslunni.“ Gjörgæslan stóra áskorunin - Sjö af átta óbólusettir á gjörgæslu - Ómíkron mögulega ekki eins smitandi og áður var haldið - Smittölur orðnar hálfmarklausar fyrir almenning - Fleiri smitaðir en við gerum okkur grein fyrir Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Landspítali Átta voru á gjörgæslu í gærmorgun, sex þeirra í öndunarvél. Runólfur Pálsson Fjöldi smita um áramót » Á gamlársdag greindust 949 innanlands, 127 á landa- mærunum. » Á nýársdag greindust 548 innanlands, 38 á landamær- unum. » 22 sjúklingar voru á Land- spítala í gær. » Átta voru á gjörgæslu í gær, þar af sex í öndunarvél. » Einn lést á gamlársdag.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.