Morgunblaðið - 03.01.2022, Side 26
26 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 3. JANÚAR 2022
England
Leeds – Burnley....................................... 3:1
- Jóhann Berg Guðmundsson lék fyrri
hálfleikinn með Burnley.
Arsenal – Manchester City ..................... 1:2
Watford – Tottenham .............................. 0:1
Crystal Palace – West Ham .................... 2:3
Brentford – Aston Villa ........................... 2:1
Everton – Brighton.................................. 2:3
Chelsea – Liverpool ................................. 2:2
Staðan:
Manch. City 21 17 2 2 53:13 53
Chelsea 21 12 7 2 45:16 43
Liverpool 20 12 6 2 52:18 42
Arsenal 20 11 2 7 33:25 35
West Ham 20 10 4 6 37:27 34
Tottenham 18 10 3 5 23:20 33
Manch. Utd 18 9 4 5 30:26 31
Brighton 19 6 9 4 20:20 27
Wolves 18 7 4 7 13:14 25
Leicester 18 7 4 7 31:33 25
Crystal Palace 20 5 8 7 29:30 23
Brentford 19 6 5 8 23:26 23
Aston Villa 19 7 1 11 25:30 22
Southampton 19 4 9 6 20:29 21
Everton 18 5 4 9 23:32 19
Leeds 19 4 7 8 21:37 19
Watford 18 4 1 13 22:36 13
Burnley 17 1 8 8 16:27 11
Newcastle 19 1 8 10 19:42 11
Norwich City 19 2 4 13 8:42 10
B-deild:
Bristol City – Millwall ............................. 3:2
- Jón Daði Böðvarsson var ekki í hópnum
hjá Millwall.
Blackpool – Hull ...................................... 1:0
- Daníel Leó Grétarsson kom inn á hjá
Blackpool á 90. mínútu.
Birmingham – QPR.................................. 1:2
Blackburn – Huddersfield....................... 0:0
WBA – Cardiff .......................................... 1:1
Staðan:
Bournemouth 25 14 7 4 41:20 49
Blackburn 25 13 7 5 43:28 46
Fulham 23 13 6 4 51:19 45
WBA 25 11 9 5 31:19 42
QPR 24 12 5 7 37:30 41
Huddersfield 26 11 7 8 32:29 40
Middlesbrough 25 11 6 8 29:24 39
Stoke City 23 10 5 8 27:23 35
Nottingham F. 25 9 7 9 32:28 34
Coventry 23 9 7 7 29:27 34
Millwall 24 8 9 7 27:27 33
Blackpool 26 9 6 11 27:32 33
Sheffield Utd 22 9 5 8 29:28 32
Derby 24 7 10 7 21:22 31
Bristol City 25 8 6 11 30:39 30
Luton 22 7 8 7 31:27 29
Preston 22 7 7 8 24:28 28
Swansea 22 7 6 9 26:31 27
Reading 22 8 3 11 27:34 27
Birmingham 24 7 6 11 23:32 27
Hull City 24 6 5 13 20:29 23
Cardiff 24 6 5 13 26:43 23
Peterborough 23 5 4 14 20:44 19
Barnsley 24 2 8 14 16:36 14
C-deild:
Morecambe – Doncaster......................... 4:3
- Jökull Andrésson var ónotaður varamað-
ur hjá Morecambe.
Spánn
Getafe – Real Madrid............................... 1:0
Mallorca – Barcelona ............................... 0:1
Staðan:
eal Madrid 20 14 4 2 41:17 46
Sevilla 18 11 5 2 29:13 38
Real Betis 19 10 3 6 32:23 33
Atlético Madrid 19 9 5 5 31:22 32
Barcelona 19 8 7 4 30:22 31
Rayo Vallecano 19 9 3 7 26:20 30
Real Sociedad 19 8 6 5 21:21 30
Valencia 19 7 7 5 31:28 28
Espanyol 19 7 5 7 22:22 26
Villarreal 18 6 7 5 26:20 25
Athletic Bilbao 19 5 9 5 17:16 24
Celta Vigo 19 6 5 8 22:22 23
Granada 19 5 8 6 23:26 23
Osasuna 18 5 7 6 17:22 22
Mallorca 19 4 8 7 17:28 20
Getafe 19 4 6 9 13:20 18
Elche 19 3 7 9 18:27 16
Alavés 19 4 4 11 16:30 16
Cádiz 18 2 8 8 15:31 14
Levante 18 0 8 10 19:36 8
>;(//24)3;(
Belgía/Holland
Hague Royals – Leiden....................... 27:88
- Snorri Vignisson skoraði eitt stig og tók
eitt frákast fyrir Hague og lék í átta mín-
útur.
NBA-deildin
Milwaukee – New Orleans............... 136:113
Detroit – San Antonio ...................... 117:116
Washington – Chicago ..................... 119:120
Brooklyn – LA Clippers................... 116:120
Houston – Denver ............................ 111:124
Utah – Golden State......................... 116:123
>73G,&:=/D
KÖRFUKNATTLEIKUR
Úrvalsdeild karla, Subway-deildin:
MG-höllin: Stjarnan – Njarðvík .......... 19.15
Í KVÖLD!
HANDBOLTI
Gunnar Egill Daníelsson
gunnaregill@mbl.is
Í gær kom íslenska karlalandsliðið í
handknattleik saman þar sem undir-
búningur fyrir Evrópumeistara-
mótið í Ungverjalandi og Slóvakíu
er að hefjast. Undirbúningurinn er
ýmsum erfiðleikum háður þar sem
kórónuveirufaraldurinn herjar nú á
Ísland líkt og aðrar þjóðir. Þrjú smit
greindust hjá leikmönnum íslenska
liðsins fyrir áramót og hafa ekki
fleiri smit greinst innan hópsins
þegar þetta er ritað.
„Við byrjum að æfa á morgun [í
dag], við ákváðum að vera ekki með
æfingu í dag [í gær]. Þeir sem eru
að fara inn í sóttvarnabúbbluna okk-
ar í dag fóru sumir í bæði hraðpróf
og PCR-próf í dag og halda sér ein-
angruðum frá því að þeir fóru í
PCR-prófið og þangað til niðurstaða
berst, sem við gerum okkur vonir
um að verði núna um kvöldmat-
arleytið.
Þegar þeir eru komnir með nei-
kvætt úr prófunum mæta þeir á hót-
elið. Þá hefst formleg dagskrá í raun
og veru hjá okkur. Svo er fyrsta æf-
ing hjá okkur á morgun, við
ákváðum að breyta aðeins um kúrs
vegna ástandsins í landinu og þeirra
fjölda smita sem hafa greinst nálægt
okkur öllum,“ sagði Róbert Geir
Gíslason, framkvæmdastjóri Hand-
knattleikssambands Íslands, HSÍ,
þegar Morgunblaðið ræddi við hann
í gær.
Vonandi allir klárir í vikunni
Spurður um stöðuna á leikmanna-
hópnum sagði Róbert: „Af leik-
mannahópnum eru eins og staðan er
núna tveir í sóttkví og einn í ein-
angrun. Við bindum vonir við að þeir
losni allir í byrjun vikunnar. Fyrir
áramót voru þrír úr leikmannahópn-
um orðnir smitaðir á tímabili. Það er
einn af þeim sem stendur eftir, hann
er ekki enn laus úr einangrun.“
Hann sagði ekkert um alvarleg
meiðsli í hópnum þótt vitanlega
væru alltaf einhverjir að glíma við
eitthvað smávægilegt.
„Við fáum væntanlega betri sýn á
meiðslastöðuna þegar við komum
saman á fyrstu æfingunni á morgun
[í dag]. Það er alltaf eitthvert hnjask
enda eru menn búnir að vera undir
miklu álagi en það eru engin meiðsli
sem ég veit af á þessari stundu, ég
hef allavega ekki heyrt af neinu al-
varlegu. Sumir hafa fengið ágætis
hvíld núna yfir hátíðarnar en aðrir
voru að spila og ég vona að allir
komi bara nokkuð ferskir til leiks.
Ég bind miklar vonir við að allur
hópurinn verði kominn saman, fyrir
utan þá í starfsliðinu sem eru í ein-
angrun, núna um miðja vikuna. Svo
vonumst við til þess að við náum að
halda hópnum hreinum, um það
snýst þetta núna. Það verður mesta
áskorunin í þessu umhverfi sem við
búum við núna; að forða öllum frá
smitum,“ sagði Róbert.
Líklega engir áhorfendur
Landsliðið verður í sóttvarna-
búbblu á Grand hóteli og mun æfa í
Víkinni. Sem hluti af undirbúningi
liðsins fyrir EM mun Ísland spila
tvo vináttulandsleiki við Litháen,
sem báðir fara fram á Ásvöllum um
næstu helgi. Áætlað er að halda sig
við að liðið spili þá báða. „Já þeir eru
á áætlun. Ég get nefnt að það komu
upp smit í kringum skrifstofu HSÍ
núna fyrir helgi þannig að hluti af
starfsliðinu í kringum landsliðið er
bæði í sóttkví og einangrun, en þeir
sem eru í sóttkví ættu að losna núna
í byrjun vikunnar og þeir sem eru í
einangrun um næstu helgi,“ sagði
hann.
Róbert sagði ólíklegt að áhorf-
endur yrðu leyfðir á leikjunum
tveimur. „Nei, ef svo færi yrði það í
mjög takmörkuðum mæli. Við höf-
um heimild fyrir 200 manna
sóttvarnahólfum ef áhorfendur
framvísa neikvæðu hraðprófi en ég
geri ekki ráð fyrir að við verðum
með áhorfendur eins og staðan er
núna. Það er bara það mikið af smit-
um og það er það mikið undir að ég
hugsa að við gerum það ekki. Ekki
út frá þeim takmörkunum sem eru
við lýði núna.“
Fjöldi Íslendinga til Búdapest
Blaðamanni lék forvitni á að vita
hvort Róberti hefði borist það til
eyrna að eitthvað hefði verið um að
stuðningsfólk íslenska liðsins, sem
er á leið til Búdapest, þar sem allir
leikir riðils Íslands fara fram, hefði
hætt við ferðina. „Nei ekki svo við
vitum. Mér vitandi hefur ekki verið
mikið um afbókanir.
Við erum ekki einu aðilarnir sem
eru að útvega miða en bara í gegn-
um okkur eru þetta sirka 360
manns. Svo veit ég um annan hóp og
þá er talan komin upp í 420. Ég
myndi halda að þetta væru tæplega
500 manns á Íslandi sem eiga miða á
mótið, ég held að það sé nærri lagi,“
sagði hann að lokum í samtali við
Morgunblaðið.
Mesta áskorunin að
forða öllum frá smitum
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Landsliðsmenn Elvar Örn Jónsson, Ýmir Örn Gíslason, Ómar Ingi Magnússon og Sveinn Jóhannsson á æfingu.
- Karlalandsliðið í handknattleik kom saman í gær - Vináttuleikir á áætlun
Skíðagöngumaðurinn Snorri Ein-
arsson náði sínum besta árangri á
tímabilinu er hann hafnaði í 28.
sæti í þriðju keppni af sex í Tour de
Ski-keppninni en keppt er í Oberst-
dorf í Þýskalandi. Snorri hefur ver-
ið fremsti skíðagöngumaður lands-
ins síðustu árin.
Snorri var 55 sekúndum á eftir
Johannes Klæbo sem kom fyrstur í
mark en sá norski er fremsti skíða-
göngumaður heims. Í Tour de Ski
er sex keppnisgreinum dreift á átta
daga og samanlagður sigurvegari
fær 400 heimsbikarstig.
Snorri öflugur í
Þýskalandi
AFP
Skíðaganga Snorri Einarsson er á
fullri ferð í göngunni þessa dagana.
Landsliðskonan Hallbera Guðný
Gísladóttir er formlega gengin í
raðir Kalmars, sem er nýliði í
sænsku úrvalsdeildinni í knatt-
spyrnu á komandi tímabili.
Hallbera lék með AIK, sem var
einnig nýliði í deildinni á síðasta
tímabili. Hallberu og liðinu gekk
vel en samningurinn við AIK var
aðeins til eins árs.
„Þetta verður erfitt tímabil en ef
við leggjum hart að okkur getur
þetta einnig verið árangursríkt
tímabil,“ er meðal annars haft eftir
Hallberu á vefsíðu Kalmars.
Hallbera gengin í
raðir nýliðanna
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Svíþjóð Hallbera Guðný Gísladóttir
fann sér annað lið í Svíþjóð.
Íslensku landsliðsmennirnir Ómar
Ingi Magnússon og Bjarki Már Elís-
son eru á meðal tíu leikmanna sem
koma til greina sem leikmaður árs-
ins í þýska handboltanum. Þá er Al-
freð Gíslason, landsliðsþjálfari
Þýskalands, tilnefndur sem per-
sónuleiki ársins.
Handball-world stendur fyrir
kosningunni. Þeir Sander Sagosen,
Niklas Weller, Johannes Golla,
Marcel Schiller, Dominik Mappes,
Niklas Landin, Jim Gottfridsson og
Hans Lindberg koma einnig til
greina sem handboltamaður ársins.
Ómar, sem var kjörinn íþrótta-
maður ársins af Samtökum íþrótta-
fréttamanna á síðasta ári, var
markahæsti leikmaður þýsku 1.
deildarinnar á síðustu leiktíð og hef-
ur verið í lykilhlutverki hjá Magde-
burg, toppliði deildarinnar, á þessari
leiktíð. Magdeburg vann einnig Evr-
ópubikarinn og HM félagsliða á ný-
liðnu ári.
Bjarki er helsti markaskorari
Lemgo og hefur verið á meðal
markahæstu leikmanna þýsku deild-
arinnar undanfarin ár. Lemgo varð
þýskur bikarmeistari á árinu.
Alfreð tók við þjálfun þýska lands-
liðsins árið 2020 og er á leið með liðið
á EM síðar í mánuðinum. Hann
missti eiginkonu sína, Köru Guð-
rúnu Melsted, á síðasta ári eftir erfið
veikindi og tjáði sig opinskátt um
fráfall hennar í samtali við Bild.
Kosningin stendur yfir allan jan-
úarmánuð og er hægt að greiða at-
kvæði á netinu á hinum kunna hand-
boltavef handballworld.de.
https://www.handball-world.news/
Þrír íslenskir tilfnefndir í Þýskalandi
AFP
Landsliðsþjálfari Alfreð Gíslason
er í krefjandi starfi í Þýskalandi.