Morgunblaðið - 03.01.2022, Side 13

Morgunblaðið - 03.01.2022, Side 13
FRÉTTIR 13Erlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 3. JANÚAR 2022 Nánari upplýsingar og aðstoð má fá með því að senda fyrirspurn á netfangið upplysingar@reykjavik.is eða í síma 411 1111. www.reykjavik.is Á vef Reykjavíkurborgar undir „mínar síður“ geta fasteignaeigendur: • skoðað álagningarseðil fasteignagjalda (eftir 24. janúar 2022) og alla breytingarseðla þar á eftir • skráð sig í boðgreiðslu fasteignagjalda • gefið upp reikningsnúmer ef til endurgreiðslu kemur • óskað eftir að fá senda greiðsluseðla fyrir fasteignagjöldum, þar sem þeir verða líkt og áður ekki sendir út til greiðenda, 18-79 ára • sent inn erindi vegna fasteignagjalda Fasteignagjöld ársins 2022, yfir 25.000 kr., greiðast með ellefu jöfnum greiðslum á gjalddögum: 30. janúar, 2. mars, 2. apríl, 2. maí, 1. júní, 3. júlí, 2. ágúst, 3. september, 2. október, 1. nóvember og 4. desember Gjalddagi fasteignagjalda undir 25.000 kr. er 30. janúar. Fasteignagjöld í Reykjavík verða innheimt í netbönkum. Fasteignaeigendum er jafnframt bent á beingreiðslur hjá öllum bankastofnunum og boðgreiðslur af greiðslukortum. Álagningar- og breytingarseðlar fasteignagjalda í Reykjavík 2022 verða aðeins birtir á vefsíðunni island.is og á Rafrænni Reykjavik á árinu 2022. Álagningar- og breytingarseðlarnir verða ekki sendir í pósti í samræmi við breytingu sem gerð var á lögum nr. 4/1995 sem tók gildi 1. janúar 2019, en þá er sveitarstjórn heimilt að senda tilkynningu um álagningu fasteignaskatts rafrænt. ww.r vik. Logi Sigurðarson logis@mbl.is Þingsalur þjóðþingsins í Höfðaborg í Suður-Afr- íku, varð eldi að bráð í gær. Miklar skemmdir urðu á öðrum hlutum þinghússins en um er að ræða nokkrar byggingar sem standa saman. Ekki hafa borist fréttir af manntjóni vegna elds- ins og er orsök óþekkt en lögregluyfirvöld hófu rannsókn á málinu í gær. Cyril Ramaphosa, for- seti Suður-Afríku, sagði við blaðamenn að einn hefði verið handtekinn vegna málsins. Maðurinn sem var handtekinn er 49 ára gamall og hefur ver- ið ákærður fyrir íkveikju, innbrot og þjófnað. Þinghúsið er merk bygging sem hýsir safn forn- bóka og einnig upprunalega eintakið af hinum gamla þjóðsöng Suður-Afríku sem var sunginn á tímum aðskilnaðar; „Die Stem Suid Afrika“ sem mætti þýða sem „rödd Suður-Afríku“ en handritið var nú þegar í fremur slæmu ásigkomulagi. Viðbragðsaðilar höfðu snemma miklar áhyggjur af því að eldurinn myndi breiðast hratt út um hús- ið og í nýju byggingarnar, sem varð raunin. Eldsupptök voru í elstu byggingu þinghússins, en byggingu hennar lauk árið 1884 og er stór hluti hússins skreyttur með viði, stórum teppum og þykkum gardínum. Eldurinn breiddist hratt út og náði til nýrri hluta hússins. Húsinu er skipt í þrjár byggingar, en þær nýrri voru byggðar árin 1920 og 1980. Lið slökkviliðsmanna sem var fyrst á vettvang barðist við eldinn í nokkra klukkutíma áður en slökkviliðsmennirnir neyddust til að hörfa og kalla á liðsauka. Um 70 slökkviliðsmenn voru kallaðir út til þess að hjálpa þeim sem voru fyrir á vettvangi. Þinghús Suður-Afríku hefur verið í Höfðaborg frá árinu 1910 en ríkisstjórnin hefur starfað í borginni Pretoríu. Í gær fór fram jarðarför Desmunds Tutus erki- biskups í St. George-dómkirkjunni, sem er rétt við þinghúsið, og hafði Ramaphosa á orði að Tutu hefði sjálfsagt orðið niðurbrotinn hefði hann orðið vitni að brunanum. Það var í þinghúsinu sem FW de Klerk tilkynnti þau áform sín að afnema aðskilnaðarstefnuna árið 1990 og þar með enda ógnarstjórn hvíta minni- hlutans í landinu. Í mars hafði eldur brotist út í elstu álmu hússins en fljótt náðust tök á honum. Annar stór bruni átti sér stað í Höfðaborg í apríl þegar gróðureldar frá fjallinu Table, sem gnæfir yfir borgina, breiddust út og brann þá bókasafn háskólans í borginni. AFP Stórbruni 49 ára gamall maður er grunaður um að hafa kveikt í og kemur fyrir dóm á þriðjudag. Þinghúsið í Höfðaborg varð eldi að bráð í gær - Einn handtekinn fyrir íkveikju og þjófnað - Eldsupptök í elstu byggingunni Ísraelsmenn vörpuðu sprengjum á herstöðvar og eldflaugaframleiðslu Hamas á Suður-Gaza á laugardag- inn. Árasin kom í kjölfar misheppn- aðra eldflaugaárása Hamas á Tel Aviv, en flaugarnar höfnuðu í Mið- jarðarhafinu. Herþotur, þyrlur og skriðdrekar sprengdu í loft upp eld- flaugaframleiðslu Hamas, segir í til- kynningu frá ísraelska hernum. Einnig réðst stórskotalið Ísraels á herstöð Hamas á Norður-Gaza. Hamas hefur fordæmt árásir Ísra- ela og talsmaður samtakanna lofaði því að Hamas myndi halda áfram að vernda Palestínumenn og frelsa land þeirra úr höndum Ísraela. Ísraelska eldflaugavarnakerfið, Járnhvelfing- in, fór ekki í gang við árás Hamas. Talsmaður Hamas sagði við AFP að eldflaugunum hefði verið skotið á loft fyrir slysni vegna tæknilegra vandamála sem stöfuðu af vondu veðri. Naftali Bennet, forsætisráð- herra Ísraels, segir útskýringu Hamas á árásinni ekki hafa neitt að segja þar sem ár eftir ár kenni þeir veðri og tæknilegum vandamálum um eldflaugaárásir sínar. Hann bætti við að hver sem beindi vopnum sínum í átt að Ísrael myndi þurfa að taka afleiðingunum. Gaza í herkví frá 2007 Ísraelar hafa haldið Gaza í herkví frá árinu 2007, þegar Hamas tók þar völd. Á síðasta ári skaut Hamas fjölda eldflauga í átt að Ísrael og brutust út ellefu daga átök vegna spennu um Jerúsalem. Brothættu vopnahléi var komið á seint í maí. Síðan þá hefur aðeins fimm eldflaug- um og sprengjum verið varpað frá Gaza að Ísrael, að undanskildum árásunum á laugardaginn. logis@mbl.is Sprengdu her- stöðvar Hamas - Misheppnuð eldflaugaárás Hamas AFP Átök Deilur Ísraelsmanna og Palestínumanna hafa nú staðið yfir í um 70 ár. Fimm eru látnir og 21 slasaður eftir rútuslys í Moskvu í gær. Rússneska um- ferðareftirlitið telur líklegt að rútubílstjórinn hafi sofnað við stýrið, en bíl- stjórinn lést í slysinu. Alls voru 49 farþegar í rútunni sem var á leið frá Astrakhan til Moskvu. Lögregluyfirvöld hófu rannsókn á málinu í gær, en þau telja að bílstjórinn hafi gerst sekur um brot á umferðarlögum. logis@mbl.is BÍLSLYS Í RÚSSLANDI Fimm látnir eftir rútuslys í Moskvu Moskva Bílslys eru algeng þar. Yfirvöld í Frakk- landi hafa ákveð- ið að stytta ein- angrunartíma Covid-smitaðra í sjö daga til þess að draga úr áhrifum veir- unnar á sam- félagið og efna- hagslífið. Þeir sem eru full- bólusettir og greinast með veiruna þurfa aðeins að sæta einangrun í sjö daga, en geta sloppið fyrr, eftir fimm daga, ef veiran greinist ekki í hrað- eða PCR-prófi. Þeir sem eru fullbólusettir þurfa ekki lengur að sæta sóttkví. logis@mbl.is FRAKKAR STYTTA EINANGRUN Engin sóttkví fyrir fullbólusetta Mannþröng París á gamlárskvöld.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.