Morgunblaðið - 03.01.2022, Page 13
FRÉTTIR 13Erlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 3. JANÚAR 2022
Nánari upplýsingar og aðstoð má fá með því að senda fyrirspurn
á netfangið upplysingar@reykjavik.is eða í síma 411 1111. www.reykjavik.is
Á vef Reykjavíkurborgar undir „mínar síður“ geta fasteignaeigendur:
• skoðað álagningarseðil fasteignagjalda (eftir 24. janúar 2022) og alla breytingarseðla
þar á eftir
• skráð sig í boðgreiðslu fasteignagjalda
• gefið upp reikningsnúmer ef til endurgreiðslu kemur
• óskað eftir að fá senda greiðsluseðla fyrir fasteignagjöldum, þar sem þeir verða
líkt og áður ekki sendir út til greiðenda, 18-79 ára
• sent inn erindi vegna fasteignagjalda
Fasteignagjöld ársins 2022, yfir 25.000 kr., greiðast með ellefu jöfnum greiðslum á
gjalddögum: 30. janúar, 2. mars, 2. apríl, 2. maí, 1. júní, 3. júlí, 2. ágúst, 3. september,
2. október, 1. nóvember og 4. desember
Gjalddagi fasteignagjalda undir 25.000 kr. er 30. janúar.
Fasteignagjöld í Reykjavík verða innheimt í netbönkum. Fasteignaeigendum er jafnframt
bent á beingreiðslur hjá öllum bankastofnunum og boðgreiðslur af greiðslukortum.
Álagningar- og breytingarseðlar fasteignagjalda í Reykjavík 2022 verða aðeins
birtir á vefsíðunni island.is og á Rafrænni Reykjavik á árinu 2022.
Álagningar- og breytingarseðlarnir verða ekki sendir í pósti í samræmi við breytingu sem
gerð var á lögum nr. 4/1995 sem tók gildi 1. janúar 2019, en þá er sveitarstjórn heimilt að
senda tilkynningu um álagningu fasteignaskatts rafrænt.
ww.r vik.
Logi Sigurðarson
logis@mbl.is
Þingsalur þjóðþingsins í Höfðaborg í Suður-Afr-
íku, varð eldi að bráð í gær. Miklar skemmdir urðu
á öðrum hlutum þinghússins en um er að ræða
nokkrar byggingar sem standa saman.
Ekki hafa borist fréttir af manntjóni vegna elds-
ins og er orsök óþekkt en lögregluyfirvöld hófu
rannsókn á málinu í gær. Cyril Ramaphosa, for-
seti Suður-Afríku, sagði við blaðamenn að einn
hefði verið handtekinn vegna málsins. Maðurinn
sem var handtekinn er 49 ára gamall og hefur ver-
ið ákærður fyrir íkveikju, innbrot og þjófnað.
Þinghúsið er merk bygging sem hýsir safn forn-
bóka og einnig upprunalega eintakið af hinum
gamla þjóðsöng Suður-Afríku sem var sunginn á
tímum aðskilnaðar; „Die Stem Suid Afrika“ sem
mætti þýða sem „rödd Suður-Afríku“ en handritið
var nú þegar í fremur slæmu ásigkomulagi.
Viðbragðsaðilar höfðu snemma miklar áhyggjur
af því að eldurinn myndi breiðast hratt út um hús-
ið og í nýju byggingarnar, sem varð raunin.
Eldsupptök voru í elstu byggingu þinghússins,
en byggingu hennar lauk árið 1884 og er stór hluti
hússins skreyttur með viði, stórum teppum og
þykkum gardínum. Eldurinn breiddist hratt út og
náði til nýrri hluta hússins. Húsinu er skipt í þrjár
byggingar, en þær nýrri voru byggðar árin 1920
og 1980.
Lið slökkviliðsmanna sem var fyrst á vettvang
barðist við eldinn í nokkra klukkutíma áður en
slökkviliðsmennirnir neyddust til að hörfa og kalla
á liðsauka.
Um 70 slökkviliðsmenn voru kallaðir út til þess
að hjálpa þeim sem voru fyrir á vettvangi.
Þinghús Suður-Afríku hefur verið í Höfðaborg
frá árinu 1910 en ríkisstjórnin hefur starfað í
borginni Pretoríu.
Í gær fór fram jarðarför Desmunds Tutus erki-
biskups í St. George-dómkirkjunni, sem er rétt við
þinghúsið, og hafði Ramaphosa á orði að Tutu
hefði sjálfsagt orðið niðurbrotinn hefði hann orðið
vitni að brunanum.
Það var í þinghúsinu sem FW de Klerk tilkynnti
þau áform sín að afnema aðskilnaðarstefnuna árið
1990 og þar með enda ógnarstjórn hvíta minni-
hlutans í landinu.
Í mars hafði eldur brotist út í elstu álmu hússins
en fljótt náðust tök á honum.
Annar stór bruni átti sér stað í Höfðaborg í apríl
þegar gróðureldar frá fjallinu Table, sem gnæfir
yfir borgina, breiddust út og brann þá bókasafn
háskólans í borginni.
AFP
Stórbruni 49 ára gamall maður er grunaður um að hafa kveikt í og kemur fyrir dóm á þriðjudag.
Þinghúsið í Höfðaborg
varð eldi að bráð í gær
- Einn handtekinn fyrir íkveikju og þjófnað - Eldsupptök í elstu byggingunni
Ísraelsmenn vörpuðu sprengjum á
herstöðvar og eldflaugaframleiðslu
Hamas á Suður-Gaza á laugardag-
inn. Árasin kom í kjölfar misheppn-
aðra eldflaugaárása Hamas á Tel
Aviv, en flaugarnar höfnuðu í Mið-
jarðarhafinu. Herþotur, þyrlur og
skriðdrekar sprengdu í loft upp eld-
flaugaframleiðslu Hamas, segir í til-
kynningu frá ísraelska hernum.
Einnig réðst stórskotalið Ísraels á
herstöð Hamas á Norður-Gaza.
Hamas hefur fordæmt árásir Ísra-
ela og talsmaður samtakanna lofaði
því að Hamas myndi halda áfram að
vernda Palestínumenn og frelsa land
þeirra úr höndum Ísraela. Ísraelska
eldflaugavarnakerfið, Járnhvelfing-
in, fór ekki í gang við árás Hamas.
Talsmaður Hamas sagði við AFP að
eldflaugunum hefði verið skotið á
loft fyrir slysni vegna tæknilegra
vandamála sem stöfuðu af vondu
veðri. Naftali Bennet, forsætisráð-
herra Ísraels, segir útskýringu
Hamas á árásinni ekki hafa neitt að
segja þar sem ár eftir ár kenni þeir
veðri og tæknilegum vandamálum
um eldflaugaárásir sínar. Hann
bætti við að hver sem beindi vopnum
sínum í átt að Ísrael myndi þurfa að
taka afleiðingunum.
Gaza í herkví frá 2007
Ísraelar hafa haldið Gaza í herkví
frá árinu 2007, þegar Hamas tók þar
völd. Á síðasta ári skaut Hamas
fjölda eldflauga í átt að Ísrael og
brutust út ellefu daga átök vegna
spennu um Jerúsalem. Brothættu
vopnahléi var komið á seint í maí.
Síðan þá hefur aðeins fimm eldflaug-
um og sprengjum verið varpað frá
Gaza að Ísrael, að undanskildum
árásunum á laugardaginn.
logis@mbl.is
Sprengdu her-
stöðvar Hamas
- Misheppnuð eldflaugaárás Hamas
AFP
Átök Deilur Ísraelsmanna og Palestínumanna hafa nú staðið yfir í um 70 ár.
Fimm eru látnir
og 21 slasaður
eftir rútuslys í
Moskvu í gær.
Rússneska um-
ferðareftirlitið
telur líklegt að
rútubílstjórinn
hafi sofnað við
stýrið, en bíl-
stjórinn lést í
slysinu.
Alls voru 49 farþegar í rútunni
sem var á leið frá Astrakhan til
Moskvu. Lögregluyfirvöld hófu
rannsókn á málinu í gær, en þau
telja að bílstjórinn hafi gerst sekur
um brot á umferðarlögum.
logis@mbl.is
BÍLSLYS Í RÚSSLANDI
Fimm látnir eftir
rútuslys í Moskvu
Moskva Bílslys
eru algeng þar.
Yfirvöld í Frakk-
landi hafa ákveð-
ið að stytta ein-
angrunartíma
Covid-smitaðra í
sjö daga til þess
að draga úr
áhrifum veir-
unnar á sam-
félagið og efna-
hagslífið. Þeir
sem eru full-
bólusettir og greinast með veiruna
þurfa aðeins að sæta einangrun í
sjö daga, en geta sloppið fyrr, eftir
fimm daga, ef veiran greinist ekki í
hrað- eða PCR-prófi. Þeir sem eru
fullbólusettir þurfa ekki lengur að
sæta sóttkví. logis@mbl.is
FRAKKAR STYTTA EINANGRUN
Engin sóttkví fyrir
fullbólusetta
Mannþröng París
á gamlárskvöld.