Morgunblaðið - 03.01.2022, Side 2

Morgunblaðið - 03.01.2022, Side 2
2 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 3. JANÚAR 2022 SKÍÐAFRÍ Á ÍTALÍU ÚRVAL ÚTSÝN HLÍÐASMÁRI 19, 201 KÓPAVOGUR SÍMI 585-4000 WWW.UU.IS MADONNA & PINZOLO Nú er tíminn til að bóka skíðaferðina eftir áramót fyrir fjölskylduna saman! Vikulegt beint flug til Ítalíu þar sem farþegar okkar geta valið úr tveimur frábærum skíðasvæðum, Pinzolo og Madonna. Kláfur tengir skíðasvæðin, svo mögulegt er að nýta bæði svæðin í sömu ferð. INNIFALIÐ Í SKÍÐAPÖKKUM: FLUG, GISTING, MORGUNVERÐUR / HÁLFT FÆÐI, INNRITAÐUR FARANGUR, ÍSLENSK FARARSTJÓRN, AKSTUR TIL & FRÁ FLUGVELLI FERÐATÍMABIL: 22. - 29. JANÚAR 29. JANÚAR - 05. FEBRÚAR 05. - 12. FEBRÚAR 12. - 19. FEBRÚAR 19. - 26. FEBRÚAR Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Winkel Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Inga Þóra Pálsdóttir ingathora@mbl.is Þyrluútköll Landhelgisgæslunnar voru 265 talsins árið 2021 og hafa ein- ungis einu sinni verið fleiri. Það var 2018 þegar áhafnir loftfara Land- helgisgæslunnar sinntu alls 278 út- köllum. Útkalla- fjöldi ársins er meira í líkingu við árin 2016-2019. Þá sinnti deildin rúm- lega 250 útköllum á ári að meðaltali. Árið 2020 fækkaði útköllunum tölu- vert og voru þá 184. Kórónuveiru- faraldurinn, fækk- un ferðamanna og breyttur taktur samfélagsins léku líklega hlutverk í því. „Þegar útköllin eru skoðuð nánar má sjá að í fjörutíu prósentum tilfella var þyrlusveitin kölluð út á mesta forgangi eða í 106 skipti. 134 útköll voru á öðrum forgangi og 24 þriðja forgangi. Langflest útköllin voru vegna slysa eða veikinda á landi en 56 útköll voru tengd sjónum með einum eða öðrum hætti,“ segir Ásgeir Er- lendsson, upplýsingafulltrúi Land- helgisgæslunnar, við Morgunblaðið. Fjöldi útkalla vegna gossins „Fjölgun útkallanna í fyrra frá árinu 2020 er að einhverju leyti hægt að skýra með gosinu í Geldingadöl- um. Þyrlusveitin flaug með vísinda- menn um svæðið, flutti búnað sem notaður var til vísindastarfa og var einnig kölluð út til að bjarga búnaði. Þá var þyrlusveitin kölluð út vegna slysa á fólki sem lagði leið sína á svæðið til að berja gosið augum. Í mörgum tilfellum slasaðist fólk í brattlendi og fyrirséð að burður yrði mikill og erfiður fyrir björgunarfólk. Í slíkum tilfellum var gripið til þess ráðs að kalla þyrlu Landhelgisgæsl- unnar út. Fólk örmagnaðist einnig á svæðinu og týndist og þá var þyrlu- sveitin einnig kölluð til,“ segir Ás- geir. Viðbragðsgetan með besta móti Spennandi ár er fram undan hjá Landhelgisgæslunni þar sem nýtt flugskýli verður reist í vor. „Árið hjá flugdeildinni var einnig tíðindamikið fyrir þær sakir að þá lauk innleiðingu leiguþyrlnanna með komu þriðju og síðustu þyrlunnar af gerðinni Airbus Super Puma H225 til landsins auk þess sem bygging nýs flugskýlis hófst. Viðbragðsgetan hefur jafnframt verið með besta móti þar sem Landhelgisgæslan hefur haft sex þyrluáhöfnum á að skipa allt þetta ár, sem eykur öryggi enn frek- ar. Þetta ár mun marka tímamót hjá flugdeildinni því ráðgert er að nýtt flugskýli verði reist í vor. Aðbúnaður starfsfólks gjörbreytist og færist til betri vegar.“ Annasamt ár hjá Landhelgisgæslunni - Útköllin sjaldan fleiri - 56 útköll tengd sjónum - Aðbúnaður starfsfólks gjörbreytist á þessu ári Útköll flugdeildar Landhelgisgæslunnar Fjöldi útkalla 2009 til 2021* 300 250 200 150 100 2009 2010 2011 2012 2013 2014 2015 2016 2017 2018 2019 2020 2021 H e im ild :L a n d h e lg is gæ sl a n 184 265 220 278 255 194 211 194 145 Ásgeir Erlendsson Morgunblaðið/Árni Sæberg Tilbúin Þyrla Landhelgisgæslunnar við flugskýli hennar á Reykjavíkurvelli. Ari Páll Karlsson ari@mbl.is Katrín Atladóttir mun ekki gefa kost á sér í komandi borgarstjórnarkosn- ingum. Hún ætlar sér úr pólitík í bili og aftur í tæknigeirann. Þetta stað- festir hún í samtali við Morgunblaðið en Katrín er menntaður hugbúnað- arverkfræðingur með bakgrunn í fjármálum og starfaði í tæp níu ár hjá CCP Games við forritun EVE Online. Katrín segist lengi hafa hugsað málið en hafi að mestu tekið ákvörð- unina í sumarfríinu í fyrra. „Ég fer þarna inn í borgarstjórn og fæ svona smá áfall yfir hvað allt er hægt og þunglamalegt. Bara minnstu hlutir geta tekið einhver ár,“ segir Katrín og bendir á að virkir spilarar EVE Online telji fleiri manns en íbúar Reykjavíkur. Það hafi því í raun ver- ið auðveldara að hafa áhrif á líf fólks sem forritari hjá CCP en í borgar- stjórn Reykjavíkur og á mun styttri tíma en í stjórnsýslunni. Hraðinn í tæknigeiranum og skapandi og kvikt umhverfi sé henni meira að skapi. Hún muni því á vormánuðum hefja störf hjá ferðatæknifyrirtæk- inu Dohop. Hún sjái mikil tækifæri í ferðatækni í kjölfar heimsfaraldurs- ins. „Þetta er fyrirtæki sem ég er bú- in að fylgjast með frá stofnun. Hlakka ótrúlega mikið til að koma til starfa þar, fara aftur í þetta kvika og frjóa umhverfi sem ég var í áður og að starfa aftur við það sem ég menntaði mig í og er með bakgrunn í.“ Katrín segir það hafa verið svekkjandi að ná tæpu 31 prósenti í kosningum en enda í minnihluta árið 2018. Þrátt fyrir það hafi henni tek- ist ýmislegt á ferlinum. Hún hafi meðal annars tekið þátt í mótun íþróttastefnu Reykjavíkur og nú standi yfir vinna við atvinnu- og nýsköpunar- stefnu borgarinn- ar. Stoltust sé hún annars vegar af því að hafa fengið samþykkta til- lögu sína um aukna forritunar- kennslu barna í grunnskólum og hins vegar af því að stýra hjólreiðaáætlun borgarinnar. „Það er ánægjulegt að geta haft svona mikil áhrif þrátt fyrir að vera í minnihluta. Það var mjög gefandi og skemmtileg vinna. Ég fann að þar var ég að gera gagn fyrir borgarbúa, sem er ástæðan fyrir að ég fór út í stjórnmál,“ segir Katrín, sem sjálf er mikil hjólreiðamanneskja. Katrín muni því sinna sínum störf- um og skyldum heilshugar út kjör- tímabilið en á vormánuðum fari hún á fullt í tæknigeirann að nýju. Hún haldi þó áfram í innra starfi Sjálf- stæðisflokksins. – Heldurðu að þú munir eiga afturkvæmt í borgarmálin eða póli- tíkina? „Ég gæti mögulega hugsað mér að snúa aftur í stjórnmál síðar á lífsleið- inni, myndi allavega ekki loka á það.“ Komi til þess þá verði það ekki á næstunni. „Ég er bara virkilega spennt að snúa aftur í minn gamla geira.“ Þá styðji hún Hildi Björnsdóttur til góðra verka og bindi miklar vonir við að hún muni leiða Sjálfstæðis- flokkinn þegar gengið verður til kosninga í vor. „Það er auðvitað ekki nóg að vinna kosningarnar. Maður þarf að líka að geta myndað meiri- hluta. Og ég hef fulla trú á að hún geti gert það. Bæði unnið kosning- arnar og komið okkur í meirihluta.“ „Minnstu hlut- ir geta tekið einhver ár“ - Gefur ekki kost á sér og ætlar aftur í tæknigeirann - Vill að Hildur leiði Katrín Atladóttir Steinar Ingi Kolbeins steinar@mbl.is Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu rannsakar nú skot- árás sem gerð var á íbúð í fjölbýli í Kórahverfi að morgni nýársdags. Er þetta sjöunda skotárásin í hverf- inu frá því í byrjun desember. Skúli Jónsson aðstoðaryfirlögregluþjónn segir að tal- ið sé að árásin sé gerð með loftbyssu en það sé þó ekki endanlega komið á hreint, málið sé í rannsókn. Ljóst sé þó að ekki er um að ræða skot úr riffli eða haglabyssu. „Já það er þarna skotið á glugga í fjölbýlishúsi í hverfinu og er ytra glerið á glugganum brotið vegna þessa,“ segir Skúli. Kúlan náði þó ekki inn í íbúðina þar sem hún festist, eins og áður segir, í ytra lagi tvöfaldrar glerrúðunnar. Árásin er þá keimlík þeim sem hafa verið gerðar í hverfinu undanfarinn mánuð. Skúli segir að eitthvert magn sé af slíkum loftbyssum á landinu, sumar hverjar skráðar en aðrar ekki. Segist hann ekki vera með neina haldbæra tölfræði þess efnis og vilji því lítið fullyrða um fjölda slíkra vopna hér á landi. Árásirnar í hverfinu undanfarinn mánuð hafa þá ekki beinst að sama heimilisfanginu en spurður hvort mögulega gæti verið að ungmenni stæðu að baki þess- um árásum vildi hann lítið tjá sig um það. „Þetta er bara í rannsókn og ég get því ekkert meira verið að tjá mig um það eða verið að „fabúlera“ neitt um málið.“ Skotið á glugga í Kórahverfi - Sjöunda árásin sem gerð er í hverfinu á einum mánuði

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.