Morgunblaðið - 03.01.2022, Page 2
2 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 3. JANÚAR 2022
SKÍÐAFRÍ Á ÍTALÍU
ÚRVAL ÚTSÝN HLÍÐASMÁRI 19, 201 KÓPAVOGUR SÍMI 585-4000 WWW.UU.IS
MADONNA & PINZOLO
Nú er tíminn til að bóka skíðaferðina eftir áramót
fyrir fjölskylduna saman!
Vikulegt beint flug til Ítalíu þar sem farþegar okkar
geta valið úr tveimur frábærum skíðasvæðum,
Pinzolo og Madonna. Kláfur tengir skíðasvæðin,
svo mögulegt er að nýta bæði
svæðin í sömu ferð.
INNIFALIÐ Í SKÍÐAPÖKKUM: FLUG, GISTING, MORGUNVERÐUR / HÁLFT FÆÐI, INNRITAÐUR
FARANGUR, ÍSLENSK FARARSTJÓRN, AKSTUR TIL & FRÁ FLUGVELLI
FERÐATÍMABIL:
22. - 29. JANÚAR
29. JANÚAR - 05. FEBRÚAR
05. - 12. FEBRÚAR
12. - 19. FEBRÚAR
19. - 26. FEBRÚAR
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Winkel Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Inga Þóra Pálsdóttir
ingathora@mbl.is
Þyrluútköll Landhelgisgæslunnar
voru 265 talsins árið 2021 og hafa ein-
ungis einu sinni verið fleiri. Það var
2018 þegar áhafnir loftfara Land-
helgisgæslunnar sinntu alls 278 út-
köllum. Útkalla-
fjöldi ársins er
meira í líkingu við
árin 2016-2019. Þá
sinnti deildin rúm-
lega 250 útköllum
á ári að meðaltali.
Árið 2020 fækkaði
útköllunum tölu-
vert og voru þá
184. Kórónuveiru-
faraldurinn, fækk-
un ferðamanna og
breyttur taktur samfélagsins léku
líklega hlutverk í því.
„Þegar útköllin eru skoðuð nánar
má sjá að í fjörutíu prósentum tilfella
var þyrlusveitin kölluð út á mesta
forgangi eða í 106 skipti. 134 útköll
voru á öðrum forgangi og 24 þriðja
forgangi. Langflest útköllin voru
vegna slysa eða veikinda á landi en 56
útköll voru tengd sjónum með einum
eða öðrum hætti,“ segir Ásgeir Er-
lendsson, upplýsingafulltrúi Land-
helgisgæslunnar, við Morgunblaðið.
Fjöldi útkalla vegna gossins
„Fjölgun útkallanna í fyrra frá
árinu 2020 er að einhverju leyti hægt
að skýra með gosinu í Geldingadöl-
um. Þyrlusveitin flaug með vísinda-
menn um svæðið, flutti búnað sem
notaður var til vísindastarfa og var
einnig kölluð út til að bjarga búnaði.
Þá var þyrlusveitin kölluð út vegna
slysa á fólki sem lagði leið sína á
svæðið til að berja gosið augum. Í
mörgum tilfellum slasaðist fólk í
brattlendi og fyrirséð að burður yrði
mikill og erfiður fyrir björgunarfólk.
Í slíkum tilfellum var gripið til þess
ráðs að kalla þyrlu Landhelgisgæsl-
unnar út. Fólk örmagnaðist einnig á
svæðinu og týndist og þá var þyrlu-
sveitin einnig kölluð til,“ segir Ás-
geir.
Viðbragðsgetan með besta móti
Spennandi ár er fram undan hjá
Landhelgisgæslunni þar sem nýtt
flugskýli verður reist í vor.
„Árið hjá flugdeildinni var einnig
tíðindamikið fyrir þær sakir að þá
lauk innleiðingu leiguþyrlnanna með
komu þriðju og síðustu þyrlunnar af
gerðinni Airbus Super Puma H225
til landsins auk þess sem bygging
nýs flugskýlis hófst. Viðbragðsgetan
hefur jafnframt verið með besta móti
þar sem Landhelgisgæslan hefur
haft sex þyrluáhöfnum á að skipa allt
þetta ár, sem eykur öryggi enn frek-
ar. Þetta ár mun marka tímamót hjá
flugdeildinni því ráðgert er að nýtt
flugskýli verði reist í vor. Aðbúnaður
starfsfólks gjörbreytist og færist til
betri vegar.“
Annasamt ár hjá Landhelgisgæslunni
- Útköllin sjaldan fleiri - 56 útköll tengd sjónum - Aðbúnaður starfsfólks gjörbreytist á þessu ári
Útköll flugdeildar Landhelgisgæslunnar
Fjöldi útkalla 2009 til 2021*
300
250
200
150
100
2009 2010 2011 2012 2013 2014 2015 2016 2017 2018 2019 2020 2021 H
e
im
ild
:L
a
n
d
h
e
lg
is
gæ
sl
a
n
184
265
220
278
255
194
211
194
145
Ásgeir
Erlendsson
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Tilbúin Þyrla Landhelgisgæslunnar við flugskýli hennar á Reykjavíkurvelli.
Ari Páll Karlsson
ari@mbl.is
Katrín Atladóttir mun ekki gefa kost
á sér í komandi borgarstjórnarkosn-
ingum. Hún ætlar sér úr pólitík í bili
og aftur í tæknigeirann. Þetta stað-
festir hún í samtali við Morgunblaðið
en Katrín er menntaður hugbúnað-
arverkfræðingur með bakgrunn í
fjármálum og starfaði í tæp níu ár
hjá CCP Games við forritun EVE
Online.
Katrín segist lengi hafa hugsað
málið en hafi að mestu tekið ákvörð-
unina í sumarfríinu í fyrra. „Ég fer
þarna inn í borgarstjórn og fæ svona
smá áfall yfir hvað allt er hægt og
þunglamalegt. Bara minnstu hlutir
geta tekið einhver ár,“ segir Katrín
og bendir á að virkir spilarar EVE
Online telji fleiri manns en íbúar
Reykjavíkur. Það hafi því í raun ver-
ið auðveldara að hafa áhrif á líf fólks
sem forritari hjá CCP en í borgar-
stjórn Reykjavíkur og á mun styttri
tíma en í stjórnsýslunni. Hraðinn í
tæknigeiranum og skapandi og kvikt
umhverfi sé henni meira að skapi.
Hún muni því á vormánuðum
hefja störf hjá ferðatæknifyrirtæk-
inu Dohop. Hún sjái mikil tækifæri í
ferðatækni í kjölfar heimsfaraldurs-
ins. „Þetta er fyrirtæki sem ég er bú-
in að fylgjast með frá stofnun.
Hlakka ótrúlega mikið til að koma til
starfa þar, fara aftur í þetta kvika og
frjóa umhverfi sem ég var í áður og
að starfa aftur við það sem ég
menntaði mig í og er með bakgrunn
í.“
Katrín segir það hafa verið
svekkjandi að ná tæpu 31 prósenti í
kosningum en enda í minnihluta árið
2018. Þrátt fyrir það hafi henni tek-
ist ýmislegt á ferlinum. Hún hafi
meðal annars tekið þátt í mótun
íþróttastefnu Reykjavíkur og nú
standi yfir vinna
við atvinnu- og
nýsköpunar-
stefnu borgarinn-
ar.
Stoltust sé hún
annars vegar af
því að hafa fengið
samþykkta til-
lögu sína um
aukna forritunar-
kennslu barna í
grunnskólum og hins vegar af því að
stýra hjólreiðaáætlun borgarinnar.
„Það er ánægjulegt að geta haft
svona mikil áhrif þrátt fyrir að vera í
minnihluta. Það var mjög gefandi og
skemmtileg vinna. Ég fann að þar
var ég að gera gagn fyrir borgarbúa,
sem er ástæðan fyrir að ég fór út í
stjórnmál,“ segir Katrín, sem sjálf er
mikil hjólreiðamanneskja.
Katrín muni því sinna sínum störf-
um og skyldum heilshugar út kjör-
tímabilið en á vormánuðum fari hún
á fullt í tæknigeirann að nýju. Hún
haldi þó áfram í innra starfi Sjálf-
stæðisflokksins.
– Heldurðu að þú munir eiga
afturkvæmt í borgarmálin eða póli-
tíkina?
„Ég gæti mögulega hugsað mér að
snúa aftur í stjórnmál síðar á lífsleið-
inni, myndi allavega ekki loka á það.“
Komi til þess þá verði það ekki á
næstunni. „Ég er bara virkilega
spennt að snúa aftur í minn gamla
geira.“
Þá styðji hún Hildi Björnsdóttur
til góðra verka og bindi miklar vonir
við að hún muni leiða Sjálfstæðis-
flokkinn þegar gengið verður til
kosninga í vor. „Það er auðvitað ekki
nóg að vinna kosningarnar. Maður
þarf að líka að geta myndað meiri-
hluta. Og ég hef fulla trú á að hún
geti gert það. Bæði unnið kosning-
arnar og komið okkur í meirihluta.“
„Minnstu hlut-
ir geta tekið
einhver ár“
- Gefur ekki kost á sér og ætlar aftur í
tæknigeirann - Vill að Hildur leiði
Katrín
Atladóttir
Steinar Ingi Kolbeins
steinar@mbl.is
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu rannsakar nú skot-
árás sem gerð var á íbúð í fjölbýli í Kórahverfi að
morgni nýársdags. Er þetta sjöunda skotárásin í hverf-
inu frá því í byrjun desember.
Skúli Jónsson aðstoðaryfirlögregluþjónn segir að tal-
ið sé að árásin sé gerð með loftbyssu en það sé þó ekki
endanlega komið á hreint, málið sé í rannsókn. Ljóst sé
þó að ekki er um að ræða skot úr riffli eða haglabyssu.
„Já það er þarna skotið á glugga í fjölbýlishúsi í
hverfinu og er ytra glerið á glugganum brotið vegna
þessa,“ segir Skúli.
Kúlan náði þó ekki inn í íbúðina þar sem hún festist,
eins og áður segir, í ytra lagi tvöfaldrar glerrúðunnar.
Árásin er þá keimlík þeim sem hafa verið gerðar í
hverfinu undanfarinn mánuð.
Skúli segir að eitthvert magn sé af slíkum loftbyssum
á landinu, sumar hverjar skráðar en aðrar ekki. Segist
hann ekki vera með neina haldbæra tölfræði þess efnis
og vilji því lítið fullyrða um fjölda slíkra vopna hér á
landi.
Árásirnar í hverfinu undanfarinn mánuð hafa þá
ekki beinst að sama heimilisfanginu en spurður hvort
mögulega gæti verið að ungmenni stæðu að baki þess-
um árásum vildi hann lítið tjá sig um það.
„Þetta er bara í rannsókn og ég get því ekkert meira
verið að tjá mig um það eða verið að „fabúlera“ neitt
um málið.“
Skotið á glugga í Kórahverfi
- Sjöunda árásin sem gerð er í hverfinu á einum mánuði