Morgunblaðið - 03.01.2022, Qupperneq 26

Morgunblaðið - 03.01.2022, Qupperneq 26
26 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 3. JANÚAR 2022 England Leeds – Burnley....................................... 3:1 - Jóhann Berg Guðmundsson lék fyrri hálfleikinn með Burnley. Arsenal – Manchester City ..................... 1:2 Watford – Tottenham .............................. 0:1 Crystal Palace – West Ham .................... 2:3 Brentford – Aston Villa ........................... 2:1 Everton – Brighton.................................. 2:3 Chelsea – Liverpool ................................. 2:2 Staðan: Manch. City 21 17 2 2 53:13 53 Chelsea 21 12 7 2 45:16 43 Liverpool 20 12 6 2 52:18 42 Arsenal 20 11 2 7 33:25 35 West Ham 20 10 4 6 37:27 34 Tottenham 18 10 3 5 23:20 33 Manch. Utd 18 9 4 5 30:26 31 Brighton 19 6 9 4 20:20 27 Wolves 18 7 4 7 13:14 25 Leicester 18 7 4 7 31:33 25 Crystal Palace 20 5 8 7 29:30 23 Brentford 19 6 5 8 23:26 23 Aston Villa 19 7 1 11 25:30 22 Southampton 19 4 9 6 20:29 21 Everton 18 5 4 9 23:32 19 Leeds 19 4 7 8 21:37 19 Watford 18 4 1 13 22:36 13 Burnley 17 1 8 8 16:27 11 Newcastle 19 1 8 10 19:42 11 Norwich City 19 2 4 13 8:42 10 B-deild: Bristol City – Millwall ............................. 3:2 - Jón Daði Böðvarsson var ekki í hópnum hjá Millwall. Blackpool – Hull ...................................... 1:0 - Daníel Leó Grétarsson kom inn á hjá Blackpool á 90. mínútu. Birmingham – QPR.................................. 1:2 Blackburn – Huddersfield....................... 0:0 WBA – Cardiff .......................................... 1:1 Staðan: Bournemouth 25 14 7 4 41:20 49 Blackburn 25 13 7 5 43:28 46 Fulham 23 13 6 4 51:19 45 WBA 25 11 9 5 31:19 42 QPR 24 12 5 7 37:30 41 Huddersfield 26 11 7 8 32:29 40 Middlesbrough 25 11 6 8 29:24 39 Stoke City 23 10 5 8 27:23 35 Nottingham F. 25 9 7 9 32:28 34 Coventry 23 9 7 7 29:27 34 Millwall 24 8 9 7 27:27 33 Blackpool 26 9 6 11 27:32 33 Sheffield Utd 22 9 5 8 29:28 32 Derby 24 7 10 7 21:22 31 Bristol City 25 8 6 11 30:39 30 Luton 22 7 8 7 31:27 29 Preston 22 7 7 8 24:28 28 Swansea 22 7 6 9 26:31 27 Reading 22 8 3 11 27:34 27 Birmingham 24 7 6 11 23:32 27 Hull City 24 6 5 13 20:29 23 Cardiff 24 6 5 13 26:43 23 Peterborough 23 5 4 14 20:44 19 Barnsley 24 2 8 14 16:36 14 C-deild: Morecambe – Doncaster......................... 4:3 - Jökull Andrésson var ónotaður varamað- ur hjá Morecambe. Spánn Getafe – Real Madrid............................... 1:0 Mallorca – Barcelona ............................... 0:1 Staðan: eal Madrid 20 14 4 2 41:17 46 Sevilla 18 11 5 2 29:13 38 Real Betis 19 10 3 6 32:23 33 Atlético Madrid 19 9 5 5 31:22 32 Barcelona 19 8 7 4 30:22 31 Rayo Vallecano 19 9 3 7 26:20 30 Real Sociedad 19 8 6 5 21:21 30 Valencia 19 7 7 5 31:28 28 Espanyol 19 7 5 7 22:22 26 Villarreal 18 6 7 5 26:20 25 Athletic Bilbao 19 5 9 5 17:16 24 Celta Vigo 19 6 5 8 22:22 23 Granada 19 5 8 6 23:26 23 Osasuna 18 5 7 6 17:22 22 Mallorca 19 4 8 7 17:28 20 Getafe 19 4 6 9 13:20 18 Elche 19 3 7 9 18:27 16 Alavés 19 4 4 11 16:30 16 Cádiz 18 2 8 8 15:31 14 Levante 18 0 8 10 19:36 8 >;(//24)3;( Belgía/Holland Hague Royals – Leiden....................... 27:88 - Snorri Vignisson skoraði eitt stig og tók eitt frákast fyrir Hague og lék í átta mín- útur. NBA-deildin Milwaukee – New Orleans............... 136:113 Detroit – San Antonio ...................... 117:116 Washington – Chicago ..................... 119:120 Brooklyn – LA Clippers................... 116:120 Houston – Denver ............................ 111:124 Utah – Golden State......................... 116:123 >73G,&:=/D KÖRFUKNATTLEIKUR Úrvalsdeild karla, Subway-deildin: MG-höllin: Stjarnan – Njarðvík .......... 19.15 Í KVÖLD! HANDBOLTI Gunnar Egill Daníelsson gunnaregill@mbl.is Í gær kom íslenska karlalandsliðið í handknattleik saman þar sem undir- búningur fyrir Evrópumeistara- mótið í Ungverjalandi og Slóvakíu er að hefjast. Undirbúningurinn er ýmsum erfiðleikum háður þar sem kórónuveirufaraldurinn herjar nú á Ísland líkt og aðrar þjóðir. Þrjú smit greindust hjá leikmönnum íslenska liðsins fyrir áramót og hafa ekki fleiri smit greinst innan hópsins þegar þetta er ritað. „Við byrjum að æfa á morgun [í dag], við ákváðum að vera ekki með æfingu í dag [í gær]. Þeir sem eru að fara inn í sóttvarnabúbbluna okk- ar í dag fóru sumir í bæði hraðpróf og PCR-próf í dag og halda sér ein- angruðum frá því að þeir fóru í PCR-prófið og þangað til niðurstaða berst, sem við gerum okkur vonir um að verði núna um kvöldmat- arleytið. Þegar þeir eru komnir með nei- kvætt úr prófunum mæta þeir á hót- elið. Þá hefst formleg dagskrá í raun og veru hjá okkur. Svo er fyrsta æf- ing hjá okkur á morgun, við ákváðum að breyta aðeins um kúrs vegna ástandsins í landinu og þeirra fjölda smita sem hafa greinst nálægt okkur öllum,“ sagði Róbert Geir Gíslason, framkvæmdastjóri Hand- knattleikssambands Íslands, HSÍ, þegar Morgunblaðið ræddi við hann í gær. Vonandi allir klárir í vikunni Spurður um stöðuna á leikmanna- hópnum sagði Róbert: „Af leik- mannahópnum eru eins og staðan er núna tveir í sóttkví og einn í ein- angrun. Við bindum vonir við að þeir losni allir í byrjun vikunnar. Fyrir áramót voru þrír úr leikmannahópn- um orðnir smitaðir á tímabili. Það er einn af þeim sem stendur eftir, hann er ekki enn laus úr einangrun.“ Hann sagði ekkert um alvarleg meiðsli í hópnum þótt vitanlega væru alltaf einhverjir að glíma við eitthvað smávægilegt. „Við fáum væntanlega betri sýn á meiðslastöðuna þegar við komum saman á fyrstu æfingunni á morgun [í dag]. Það er alltaf eitthvert hnjask enda eru menn búnir að vera undir miklu álagi en það eru engin meiðsli sem ég veit af á þessari stundu, ég hef allavega ekki heyrt af neinu al- varlegu. Sumir hafa fengið ágætis hvíld núna yfir hátíðarnar en aðrir voru að spila og ég vona að allir komi bara nokkuð ferskir til leiks. Ég bind miklar vonir við að allur hópurinn verði kominn saman, fyrir utan þá í starfsliðinu sem eru í ein- angrun, núna um miðja vikuna. Svo vonumst við til þess að við náum að halda hópnum hreinum, um það snýst þetta núna. Það verður mesta áskorunin í þessu umhverfi sem við búum við núna; að forða öllum frá smitum,“ sagði Róbert. Líklega engir áhorfendur Landsliðið verður í sóttvarna- búbblu á Grand hóteli og mun æfa í Víkinni. Sem hluti af undirbúningi liðsins fyrir EM mun Ísland spila tvo vináttulandsleiki við Litháen, sem báðir fara fram á Ásvöllum um næstu helgi. Áætlað er að halda sig við að liðið spili þá báða. „Já þeir eru á áætlun. Ég get nefnt að það komu upp smit í kringum skrifstofu HSÍ núna fyrir helgi þannig að hluti af starfsliðinu í kringum landsliðið er bæði í sóttkví og einangrun, en þeir sem eru í sóttkví ættu að losna núna í byrjun vikunnar og þeir sem eru í einangrun um næstu helgi,“ sagði hann. Róbert sagði ólíklegt að áhorf- endur yrðu leyfðir á leikjunum tveimur. „Nei, ef svo færi yrði það í mjög takmörkuðum mæli. Við höf- um heimild fyrir 200 manna sóttvarnahólfum ef áhorfendur framvísa neikvæðu hraðprófi en ég geri ekki ráð fyrir að við verðum með áhorfendur eins og staðan er núna. Það er bara það mikið af smit- um og það er það mikið undir að ég hugsa að við gerum það ekki. Ekki út frá þeim takmörkunum sem eru við lýði núna.“ Fjöldi Íslendinga til Búdapest Blaðamanni lék forvitni á að vita hvort Róberti hefði borist það til eyrna að eitthvað hefði verið um að stuðningsfólk íslenska liðsins, sem er á leið til Búdapest, þar sem allir leikir riðils Íslands fara fram, hefði hætt við ferðina. „Nei ekki svo við vitum. Mér vitandi hefur ekki verið mikið um afbókanir. Við erum ekki einu aðilarnir sem eru að útvega miða en bara í gegn- um okkur eru þetta sirka 360 manns. Svo veit ég um annan hóp og þá er talan komin upp í 420. Ég myndi halda að þetta væru tæplega 500 manns á Íslandi sem eiga miða á mótið, ég held að það sé nærri lagi,“ sagði hann að lokum í samtali við Morgunblaðið. Mesta áskorunin að forða öllum frá smitum Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Landsliðsmenn Elvar Örn Jónsson, Ýmir Örn Gíslason, Ómar Ingi Magnússon og Sveinn Jóhannsson á æfingu. - Karlalandsliðið í handknattleik kom saman í gær - Vináttuleikir á áætlun Skíðagöngumaðurinn Snorri Ein- arsson náði sínum besta árangri á tímabilinu er hann hafnaði í 28. sæti í þriðju keppni af sex í Tour de Ski-keppninni en keppt er í Oberst- dorf í Þýskalandi. Snorri hefur ver- ið fremsti skíðagöngumaður lands- ins síðustu árin. Snorri var 55 sekúndum á eftir Johannes Klæbo sem kom fyrstur í mark en sá norski er fremsti skíða- göngumaður heims. Í Tour de Ski er sex keppnisgreinum dreift á átta daga og samanlagður sigurvegari fær 400 heimsbikarstig. Snorri öflugur í Þýskalandi AFP Skíðaganga Snorri Einarsson er á fullri ferð í göngunni þessa dagana. Landsliðskonan Hallbera Guðný Gísladóttir er formlega gengin í raðir Kalmars, sem er nýliði í sænsku úrvalsdeildinni í knatt- spyrnu á komandi tímabili. Hallbera lék með AIK, sem var einnig nýliði í deildinni á síðasta tímabili. Hallberu og liðinu gekk vel en samningurinn við AIK var aðeins til eins árs. „Þetta verður erfitt tímabil en ef við leggjum hart að okkur getur þetta einnig verið árangursríkt tímabil,“ er meðal annars haft eftir Hallberu á vefsíðu Kalmars. Hallbera gengin í raðir nýliðanna Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Svíþjóð Hallbera Guðný Gísladóttir fann sér annað lið í Svíþjóð. Íslensku landsliðsmennirnir Ómar Ingi Magnússon og Bjarki Már Elís- son eru á meðal tíu leikmanna sem koma til greina sem leikmaður árs- ins í þýska handboltanum. Þá er Al- freð Gíslason, landsliðsþjálfari Þýskalands, tilnefndur sem per- sónuleiki ársins. Handball-world stendur fyrir kosningunni. Þeir Sander Sagosen, Niklas Weller, Johannes Golla, Marcel Schiller, Dominik Mappes, Niklas Landin, Jim Gottfridsson og Hans Lindberg koma einnig til greina sem handboltamaður ársins. Ómar, sem var kjörinn íþrótta- maður ársins af Samtökum íþrótta- fréttamanna á síðasta ári, var markahæsti leikmaður þýsku 1. deildarinnar á síðustu leiktíð og hef- ur verið í lykilhlutverki hjá Magde- burg, toppliði deildarinnar, á þessari leiktíð. Magdeburg vann einnig Evr- ópubikarinn og HM félagsliða á ný- liðnu ári. Bjarki er helsti markaskorari Lemgo og hefur verið á meðal markahæstu leikmanna þýsku deild- arinnar undanfarin ár. Lemgo varð þýskur bikarmeistari á árinu. Alfreð tók við þjálfun þýska lands- liðsins árið 2020 og er á leið með liðið á EM síðar í mánuðinum. Hann missti eiginkonu sína, Köru Guð- rúnu Melsted, á síðasta ári eftir erfið veikindi og tjáði sig opinskátt um fráfall hennar í samtali við Bild. Kosningin stendur yfir allan jan- úarmánuð og er hægt að greiða at- kvæði á netinu á hinum kunna hand- boltavef handballworld.de. https://www.handball-world.news/ Þrír íslenskir tilfnefndir í Þýskalandi AFP Landsliðsþjálfari Alfreð Gíslason er í krefjandi starfi í Þýskalandi.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.