Morgunblaðið - 26.01.2022, Síða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 26. JANÚAR 2022FRÉTTIR
Snjöll öryggislausn fyrir
nútímaheimili
Nánar á securitas.is/heimavorn
Sími 580 7000 www.securitas.is
VIKAN Á MÖRKUÐUM
AÐALMARKAÐUR
Mesta hækkun
EIM
+1,88%
489,00
S&P 500 NASDAQ
-4,08%
13.576,605
-3,09%
4.344,18
-2,75%
7.376,35
FTSE 100 NIKKEI 225
Unnið í samstarfi við IFS.Hreyfingar frá upphafi viku til kl. 16 í gær.
-2,31%
27.131,34
90
70
50
BRENT OLÍUVERÐ ($/tunnu)GULLVERÐ ($/únsu)
26.7.'21
1.500
2.000
1.798,7
26.7.'21
87,45
25.1.'22
74,5
25.1.'22
1.843,1Mesta lækkun
MAREL
-5,00%
798,00
„Það snarstoppaði allt í upphafi kór-
ónuveirufaraldursins en við höfðum
þá fengið pantanir sem entust okkur
í tvo mánuði,“ segir Örn Thomsen,
framkvæmdastjóri Arctic Trucks
Norge, um stöðuna í mars 2020. Það
hafi því verið orðið lítið að gera í maí
2020, samhliða því sem nýir bílar
fengust ekki afhentir og hafi fyrir-
tækið því ákveðið að leggja áherslu
á að þjónusta notaða bíla.
„Við lukum við nýja heimasíðu í
maí [2020] og þótt bílasalan hafi
verið lítil náðum við að auka netsölu
beint til einkaaðila. Fyrir vikið jókst
sala aukahluta um næstum 30%
milli ára. Árið 2021 var þetta farið
að snúast við en í desember 2020
komu inn nýir bílar frá Isuzu sem
seldust mjög vel. Þá kom nýr mótor
hjá Toyota Hilux og Land Cruiser
með nýjum módelum og þeir bílar
seldust líka vel. Þannig að árið 2021
verður afskaplega gott ár í rekstr-
inum.
Byggði upp lagerinn
Ég ákvað að taka áhættu árið
2020 og byggði upp mikinn lager af
íhlutum og aukahlutum enda hafði
verið svo erfitt að fá vörur. Það tók
langan tíma og fraktin var dýr.
Þannig að við byggðum upp ansi
góðan lager til að eiga í árslok 2020
og í byrjun árs 2021 og það marg-
borgaði sig. Við höfum aldrei átt
jafn stóran lager. Á svona tímum,
þegar erfitt er að fá hluti, koma
viðskiptavinir til þín, ef þú átt lager.
Þannig að við náðum að auka söluna
[á aukahlutum og íhlutum] verulega
árið 2021. Við breyttum 275 bílum á
árinu sem var 50 bílum yfir fyrra
meti í breytingum. Þá jókst netsalan
um 30% frá fyrra ári annað árið í
röð í fyrra og höfum við nú tvö
stöðugildi í netsölunni,“ segir Örn.
Nýir viðskiptavinir
Spurður hvort Arctic Trucks
Norge hafi náð til nýrra hópa með
netsölunni segir Örn fyrirtækið hafa
aukið mikið söluna á ferðavörum,
þar með talið þaktjöldum og felli-
hýsum, í kringum jeppaferða-
mennsku. „Þá höfum við aukið sölu
á alls kyns vörum sem tengjast
jeppum og fyrir vikið höfum við
fengið inn nýja
hópa af við-
skiptavinum.
Netsalan hefur
kynnt Arctic
Trucks Norge
fyrir nýjum hópi,
ekki síst fólki
sem er farið að
ferðast innan-
lands. Það birtist í stóraukinni sölu
á viðlegubúnaði, hjólhýsum, bátum
og húsbílum. Jafnframt hefur net-
salan aukið áhuga fólks á breyttum
bílum og aukahlutum í kringum þá
en hver bíll sem við afhentum í fyrra
var með meiri búnaði en verið hefur,
sem var ánægjulegt,“ segir Örn. Ein
til tvær kynslóðir Norðmanna hafi
nær eingöngu ferðast erlendis þegar
faraldurinn hófst en hafi nú upp-
götvað eigið land.
„Þetta mun ganga til baka að
hluta en þó held ég að aukin ferða-
lög innanlands séu komin til að vera
í Noregi,“ segir Örn.
Spurður hvernig fyrirtækið standi
eftir faraldurinn segir Örn að ef árin
2020 og 2021 séu lögð saman og deilt
með tveimur sé útkoman á við
meðalár. Fyrra árið breytti fyrir-
tækið um 100 bílum en síðara árið
um 275 bílum en til samanburðar er
um 170-180 bílum breytt í meðalári.
Héldu tryggð við fyrirtækið
Fyrirtækið hafi ekki misst við-
skiptavini árið 2020 heldur hafi þeir
haldið tryggð við fyrirtækið og
keypt vörur og þjónustu árið 2021.
Síðustu vikur hafi Ómíkron-afbrigði
veirunnar hins vegar sett strik í
reikninginn. Toyota hafi ekki náð að
afhenda fjölda bíla sem seldust af
Hilux og Land Cruiser í fyrra og
áttu að koma til afhendingar á tíma-
bilinu frá september til nóvember.
Þeir bílar séu að koma í hús en þá sé
komin upp sú staða að annar hver
starfsmaður á verkstæðinu sé fjar-
verandi vegna faraldursins. Því þurfi
að seinka afhendingu fram á vorið.
Breytt eftir óskum
Arctic Trucks Norge hefur fyrst
og fremst selt á Noregsmarkað.
Nánar tiltekið breytir fyrirtækið
Toyota, Isuzu, Nissan, Volkswagen
og Jeep-jeppum sem keyptir eru hjá
umboðunum. Þau afhenda Arctic
Trucks Norge bílana sem breytir
þeim eftir óskum viðskiptavina.
Örn segir fyrirtækið hafa verið
með vel heppnaða sölukynningu í
Svíþjóð í desember en sú kynning
hafi tafist vegna tíðra lokana á
landamærunum. Til að byrja með
muni fyrirtækið selja breytta Isuzu-
bíla í Svíþjóð en næsta skref sé að
bjóða breyttar Toyotur líka.
Eftirspurn í Svíþjóð
„Salan til umboðanna í Svíþjóð fór
vel af stað en á fyrstu kynningunni
seldust tíu Isuzu-bílar á 35 tommu
dekkjum og 10 Isuzu-bílar á 33
tommu dekkjum. Öll umboðin voru
með fulltrúa á fundinum, sem er
magnað,“ segir Örn um kynninguna
í Svíþjóð. Þá standi til að setja upp
lager og netverslun í Svíþjóð.
Örn vill að gefnu tilefni benda á
að Arctic Trucks Norge hafi orðið
sjálfstæð eining í apríl 2020. Félagið
hafi fengið fjármagn til að komast í
gegnum árið 2020 og svo hafi 2021
verið einstaklega gott rekstrarár.
Félagið hafi fengið pantanir fyrir
breytingar á hundrað bílum í ár sem
teljist vera magnað svo snemma
ársins. Þar af hafi um 40 pantanir
borist síðastliðið haust en bílarnir
þá ekki fengist afhentir frá umboð-
unum.
Metár hjá Arctic Trucks í Noregi
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Örn Thomsen, fram-
kvæmdastjóri Arctic
Trucks Norge, segir fyrir-
tækið hafa breytt 275
bílum í fyrra sem sé met.
Ljósmynd/Arctic Trucks Norge
Höfuðstöðvarnar í Solbergsmoen, skammt frá Drammen. Um 40 mínútur tekur að fara frá Ósló til Drammen í lest.
Örn
Thomsen
ÞJÓÐHAGSSPÁ
Í nýrri þjóðhagsspá Íslandsbanka
sem kynnt er í dag gerir bankinn ráð
fyrir að hægi talsvert á hækkun fast-
eignaverðs á komandi misserum.
Bent er á að raunverð íbúðar-
húsnæðis hafi hækkað um ríflega
10% á nýliðnu ári, langt umfram
kaupmátt launa. Enn er gert ráð fyr-
ir að hækkanir verði umfram kaup-
máttarþróun og að raunverð íbúðar-
húsnæðis hækki um 4,5% á þessu ári.
Hins vegar kólni mjög á markaðnum
2023 og þá nemi raunhækkunin að-
eins 1,1% og dragi enn frekar úr 2024
með 0,2% hækkun.
Jón Bjarki Bentsson, aðalhagfræð-
ingur Íslandsbanka, segir í samtali
við ViðskiptaMoggann að tveir
meginkraftar séu að verki á mark-
aðnum og verði á komandi mánuðum.
„Við gerum ráð fyrir að framboð á
markaðnum muni aukast talsvert og
að það komi fram strax þegar líður á
þetta ár. Það eru fleiri íbúðir á fyrri
stigum byggingar en verið hefur. Þá
göngum við líka út frá því að þeir
sem hafi aðkomu að þessum markaði,
sveitarfélögin, verktakar og fjár-
málageirinn, muni í sameiningu
leggja áherslu á að liðka fyrir frekari
uppbyggingu.“
Þá segir Jón Bjarki að aðgerðir
Seðlabankans muni bíta. Bankinn
telur að stýrivextir verði komnir í 4%
eftir tvö ár og að þá hafi þak á
greiðslubyrði fólks einnig vaxandi
áhrif á eftirspurnarhlið markaðarins
þegar fram í sækir. ses@mbl.is
Kólni nokkuð hratt
2018-21 og spá fyrir 2022-24
%-breyting yfir árið
Raunverð íbúða og kaupmáttur launa
8%
6%
4%
2%
0%
2018 2019 2020 2021 2022 2023 2024
Heimild: Hagstofa Íslands
og Greining Íslandsbanka
Kaupmáttur launa
Raunverð íbúða
3,6
1,1
1,9
3,3
4,5
0,2