Morgunblaðið - 26.01.2022, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 26. JANÚAR 2022 11VIÐTAL
STOFNAÐ 1956
Glæsileg íslensk
hönnun og smíði
á skrifstofuna
Bæjarlind 8–10
201 Kópavogur
Sími 510 7300
www.ag.is
ag@ag.is
Fyrir Á. Guðmundsson starfa íslenskir, vel menntaðir
arkitektar sem hafa þróað húsgögn og hönnunargripi
sem skapa notalegt andrúmsloft. Hver hlutur ber einkenni
klassískrar hönnunar en er einnig fallegur smíðisgripur sem
er þægilegt að nota og sómir sér vel á skrifstofunni.
Eltak sérhæfir sig í sölu
og þjónustu á vogum
Bjóðum MESTA úrval
á Íslandi af smáum
og stórum vogum
Kristín Vala segir spennandi tíma
fram undan hjá Bluebird Nordic. Á
næstunni bætast þrjár burðar-
meiri, sparneytnari og langdrægari
B737-NG-þotur við flota félagsins
og síðar á árinu koma að auki þrjár
B777-breiðþotur. Munu þessar
flugvélar skapa grundvöll fyrir
sókn á ný markaðssvæði, en hingað
til hefur félagið einkum starfað á
Íslandi, meginlandi Evrópu og
vesturströnd Bandaríkjanna.
Hverjar eru helstu áskoranirnar
í rekstrinum þessi misserin?
Þó að kórónuveirufaraldurinn
hafi haft gríðarleg áhrif á flug-
rekstur í heiminum þá hafa frakt-
flutningar haldið sínu striki og jafn-
vel sótt í sig veðrið. Hjá Bluebird
vinnur gríðarlega hæft fólk sem
hefur verið duglegt að leita uppi
tækifæri, sækja nýja kúnna og
herja á nýja markaði. Við flögrum
því keik út úr kórónuveiruþokunni
og horfum með eftirvæntingu fram
á við. Okkar helstu áskoranir í dag
eru að laða til okkar hæfileikaríkt
fólk til að taka þátt í vextinum með
okkur.
Hver var síðasta ráðstefnan
sem þú sóttir?
Því miður hefur ekki farið mikið
fyrir fyrirlestrum og ráðstefnum
undanfarin tvö ár, sem hefur gert
innkomu mína í nýjan iðnað að ein-
hverju leyti meiri áskorun en ella.
Tengslamyndun hefur mestmegnis
farið fram í gegnum forrit á borð
við Teams og Zoom.
Sem betur fer hafa íslensk hags-
munasamtök og ýmis félagasamtök
verið dugleg að streyma frá við-
burðum sem ég hef getað fylgst
með. Hins vegar gafst okkur,
nokkrum stjórnendum Bluebird,
kostur á að sækja viðburð í Litháen
sem haldinn var af móðurfélaginu
Avia Solutions Group í desember
síðastliðnum. Um var að ræða ár-
legan leiðtogafund samstæðunnar
þar sem systurfélög okkar kynntu
áform sín fyrir næstu misseri. Við-
burðurinn var hinn glæsilegasti og
gafst okkur loksins tækifæri til að
hitta og ræða við kollega.
Hvaða bók hefur haft mest
áhrif á hvernig þú starfar?
Það sem kemur fyrst upp í hug-
ann er bók sem ég las nýverið og
heitir Um þrot – frá áföllum til
fíknar eftir Björn Ó. Vernharðsson.
Þetta er bók sem fékk mig til að
staldra við, líta inn á við og hugsa.
Þó bókin fjalli um þrot út frá mjög
breiðu sviði þá er þar að finna ýmis-
legt sem stjórnendur geta tekið inn
og nýtt sér. Hraðinn í atvinnulífinu
er mikill og álagið oft á tíðum
gríðarlegt, tíðni starfsþrota (e.
burnout) fer hækkandi og er gott
að þekkja einkennin og leiðir til úr-
bóta. Það er lítið gagn að góðum
starfsmanni sem hefur verið undir
langvarandi álagi sem atvinnurek-
andinn skapaði jafnvel sjálfur.
Hvernig heldurðu
þekkingu þinni við?
Með lestri á ýmiskonar greinum,
auk þess að hlusta á fyrirlestra og
hlaðvörp og lesa bækur.
Hugsarðu vel um líkamann?
Já, ég reyni að hugsa vel um lík-
amann. Undanfarin ár hef ég æft
og keppt í þríþraut. Þessari íþrótt
geta oft fylgt miklar æfingar þó
þær séu yfirleitt á lágu álagi. Þegar
maður æfir mikið er mikilvægt að
hafa æfingarnar fjölbreyttar og
skemmtilegar, t.d. skella sér á
fjallahjól, skíði, gönguskíði eða
fjallgöngu með góðum vinum. Góð
útivist er svo alltaf toppuð með góð-
um mat og góðu víni.
Hvað myndirðu læra ef þú fengir
að bæta við þig nýrri gráðu?
Mig hefur lengi langað að lesa
lögfræði. Ekki af því að ég myndi
vilja starfa við það, heldur af því að
það myndi nýtast mér mikið í mín-
um störfum að hafa enn betri inn-
sýn í heim lögfræðinnar.
Hvað gerirðu til að fá orku
og innblástur í starfi?
Alla tíð hef ég fengið mínar bestu
hugmyndir, og fundið lausnir á
verkefnum eða aðstæðum á æfingu
þar sem ég er ein með sjálfri mér,
hvort sem það er í lauginni, á
hlaupum í náttúrunni eða í löngum
hjólatúr. Hvort það tengist ís-
lenskri náttúru, súrefninu eða en-
dorfíninu veit ég ekki – sennilega
sambland af þessu öllu.
Hvaða lögum myndirðu breyta
ef þú værir einráð í einn dag?
Í dag yrðu það afléttingar á
hömlum tengdum kórónuveirunni.
Það er mín skoðun að kerfið sé far-
ið að vinna á móti sjálfu sér og
halda atvinnulífinu í spennitreyju.
SVIPMYND Kristín Vala Matthíasdóttir
Nýjar vélar opna ný markaðssvæði
Morgunblaðið/Eggert
NÁM: Útskrifaðist frá náttúrufræðibraut Menntaskólans í Kópa-
vogi 2001; BSc í efnaverkfræði frá Háskóla Íslands 2004; MSc í
efnaverkfræði frá Lunds Universitet 2007.
STÖRF: Verkfræðingur á umhverfissviði hjá VSÓ Ráðgjöf 2006 til
2007; verkfræðingur í tæknideild hjá Geysir Green Energy/Enex
2007 til 2010; verkfræðingur í tæknideild hjá Magma á Íslandi
2010 til 2011; verkfræðingur í tæknideild hjá HS Orku frá 2011 og
tók sæti í framkvæmdastjórn árið 2016. Sinnti nokkrum fram-
kvæmdastjórnarstöðum á árunum 2016 til 2021 hjá auðlinda-
garði, auðlindasviði og síðast framleiðslu- og auðlindasviði.
Rekstrarstjóri (COO) hjá Bluebird Nordic frá 2021.
ÁHUGAMÁL: Við fjölskyldan stundum öll skipulagt íþróttastarf.
Drengirnir æfa handbolta og fótbolta af krafti. Við hjónin höfum
stundað hjólreiðar og síðastliðin ár hef ég jafnframt lagt stund á
þríþraut. Við höfum gaman af því að ferðast bæði innanlands og
utan og stunda hvers konar útivist.
FJÖLSKYLDUHAGIR: Gift Sindra Sveinssyni viðskiptafræðingi
og eigum við saman drengina Viktor Má, 16 ára, Bjarka Frey, 12
ára, og Aron Rafn, 10 ára.
HIN HLIÐIN
FERÐAÞJÓNUSTA
Icelandair og bandaríska flugfélagið
JetBlue hafa aukið enn frekar sam-
starf sitt um tengingar á milli leiða-
kerfa félaganna í Evrópu og Norður-
Ameríku.
Í fréttatilkynningu segir að hing-
að til hafi félögin boðið upp á sam-
merkt flug milli Íslands og Banda-
ríkjanna, til New York, Newark og
Boston og þaðan áfram til fjöl-
margra áfangastaða JetBlue.
Fjöldi áfangastaða í Evrópu bætt-
ist við í nóvember sl. og nú hafa bæst
við Frankfurt, München, Berlín,
Hamborg, París, London, Heathrow
London, Gatwick, Dublin og Bergen.
AFP
Samstarf flugfélaganna JetBlue og
Icelandair hófst fyrst árið 2011.
Aukið
samstarf
við JetBlue
Kristín Vala segir hömlur tengdar
kórónuveirunni farnar að halda
atvinnulífinu í spennitreyju.