Morgunblaðið - 26.01.2022, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 26.01.2022, Blaðsíða 10
10 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 26. JANÚAR 2022FRÉTTIR Netöryggi NÁNARI UPPLÝSINGAR: Erling Adolf Ágústsson Sími 569 1221, erling@mbl.is Sigrún Sigurðardóttir Sími 569 1378, sigruns@mbl.is SÉRBLAÐ Aldrei hefur verið brýnna að hafa netöryggið á hreinu Auglýsendur athugið –– Meira fyrir lesendur fylgir Morgunblaðinu miðvikudaginn 2. febrúar Ef mannkynssagan er skoðuð í gegn- um linsu þróunarlíffræði þá kemur ekki á óvart að hjá flestum menning- arsamfélögum megi finna goðsagnir sem minna fólk á að vera viðbúið skelfilegum náttúruhamförum. Ham- farirnar verða nefnilega með reglu- legu millibili og þeir þjóðflokkar og samfélög sem sögðu börnunum sín- um sögur sem innrættu þeim hæfi- lega varkárni og fyrirhyggjusemi voru þau sömu og áttu auðveldast með að lifa af flóð, jarðskjálfta, eld- gos og innrásir– og þess vegna eru það þeirra sögur sem lifa enn. Þjóðflokkarnir sem kenndu börn- um sínum ekki að reisa háa virkis- veggi eða eiga nægar birgðir af mat hurfu einfaldlega af yfirborði jarðar þegar veturinn var óvenju langur eða óvinurinn birtist við túngarðinn. Óútreiknanlegur fiskur Ein af mínum uppáhalds hamfara- goðsögnum kemur frá Japan. Þar er börnunum kennt að djúpt ofan í jörðu búi risvaxin leirgedda, Namazu að nafni, og er hún svo stór og kröftug að þegar hún skekur sig þá skelfur jörðin. Guðinn Kashima hefur það hlutverk að hafa gætur á fiskinum og halda föstum með stórum steini, en Kashima á það til að þreytast og losa um takið svo að Namazu nær að sveifla sporðinum og leikur þá allt á reiðiskjálfi. Á lítilli eyju þar sem alltaf er von á jarðskjálftum, fljóðbylgjum og eld- gosum minnir þessi saga landsmenn á að þeir þurfa að vera við öllu búnir. Enda er engin þjóð jafn vel búin und- ir náttúruhamfarir og Japan og í hvert skipti sem jörðin skelfur eða spúir upp hrauni er reynt að læra af því til að geta ráðið enn betur við næsta áfall. Hefur reynslan m.a. kennt japönskum heimilum að eiga til birgðir af mat og allan helsta neyðar- búnað en vinnustaðir eru skyldugir til að eiga þriggja daga matarbirgðir enda hefur þeim tilmælum verið beint til almennings að halda kyrru fyrir (jafnvel svo dögum skiptir) ef stór skjálfti verður á vinnutíma. Í næstu heimsókn til Tókýó ættu lesendur að reyna að finna skilti við suma vegi sem tilgreina að aðeins við- bragðsaðilar megi nota þessar um- ferðaræðar eftir jarðskjálfta. Skiltið er skreytt með mynd af stórum bláum fiski sem allir Japanir þekkja. Flagan sem velti hlassinu Er svolítið skrítið, fyrst Japanir eru einstaklega varkár þjóð, að það voru japönsk fyrirtæki sem ruddu brautina í straumlínustjórnun. Þekkt er hvernig Toyota kom sér upp kerfi á fjórða áratugnum sem miðaði að því að leita í sífellu leiða til að hámarka skilvirkni og fínstilla aðfanga- og framleiðslukeðjuna þannig að allt sem berst í hús sé notað jafnóðum frekar en að safnast upp á lager – „just in time“ eins og það er kallað í fræðunum. Stjórnendur um allan heim kolféllu fyrir Toyota-aðferðinni enda kjörin leið til að draga úr sóun og hámarka nýtingu aðfanga og vinnuafls. En gallinn er að straumlínu- stjórnun er línudans, og ef meirihátt- ar röskun verður á aðfangakeðjunni situr allt stopp. Toyota og flestir aðr- ir bílaframleiðendur ráku sig einmitt á þetta í kórónuveirufaraldrinum þegar óvæntur skortur varð á tölvu- kubbum. Toyota þurfti á tímabili að draga úr bílaframleiðslu sinni um 40%, General Motors lokaði heilu verksmiðjunum svo vikum skipti og fyrr í þessum mánuði var Opel loks- ins að hefja aftur starfsemi í Eisen- ach eftir að hafa skellt verksmiðjunni þar í lás í september. Svigrúm og sveigjanleiki Markus Brunnermeier, hagfræði- prófessor við Princetonháskóla, sendi nýlega frá sér bók þar sem hann fjallar um hvernig þær raskanir sem urðu í kórónuveirufaraldrinum sýna hvernig fyrirtæki, einstaklingar og stjórnvöld þurfa að gæta þess að ganga ekki of langt í skilvirkni og hagkvæmni. Hann spáir því að „just in time“-hugsunarhátturinn muni víkja fyrir „just in case“-nálgun, þar sem meira svigrúm gefst til að takast á við óvænt áföll. Segir Brunner- meier að rétt eins og bankar þurfi að þreyta álagspróf ættu fyrirtæki að gera álagspróf á sínum eigin aðfangakeðjum. Bókin heitir The Resilient Society og lenti á lista FT yfir áhugaverðustu viðskiptabækur ársins 2021. Greining Brunnermeiers minnir um margt á skrif Nassims Talebs um „antifragile“ kerfi og fjallar Brunnermeier með nokkuð sannfær- andi hætti um að seigla sé það sem hjálpi hagkerfum að komast í gegn- um hvers kyns skakkaföll. Brunner- meier notar seiglu-hugtakið til að lýsa því að takast jafnharðan á við vandamálin (frekar en að forðast þau) og rétta svo hratt úr kútnum. Ekki er að sjá að Brunnermeier hafi rannsakað Ísland sérstaklega, en það er margt við niðurstöður hans sem smellpassar við íslenskt sam- félag. Sýnir t.d. reynslan úr banka- hruninu og kórónuveirukreppunni að íslenskt atvinnulíf og stjórnvöld búa yfir töluverðri aðlögunarhæfni. Sömu sögu er ekki að segja um lönd eins og Grikkland, Ítalíu, Spán og Portúgal sem hafa ekki enn náð sér á strik eft- ir fjármálakreppuna 2008, eða jap- anska hagkerfið sem tók stórt stökk á áttunda og níunda áratugnum en hefur staðið í stað í þrjá áratugi eftir að fasteigna- og verðbréfabólan mikla sprakk með látum árið 1992. Í Tyrklandi hefur hagkerfið verið á niðurleið í nærri áratug eftir að þrótturinn fór úr efnahagsstefnu Er- dogans og ekki von á umskiptum í bráð. Byrgi fyrir alla Svisslendinga Reyndar má deila um að hve miklu leyti það er að þakka gjörvileik frek- ar en gæfu að Íslandi hefur farnast tiltölulega vel eftir meiriháttar áföll. Oft virðist heppnin hafa verið með eyríkinu sem hefur „þetta reddast“ sem sitt óformlega þjóðarmottó. Seiglan virðist hér um bil hafa orðið til af sjálfu sér, frekar en af ásettu ráði. Öðru máli gegnir um lönd eins og Sviss. Ef heimurinn ferst þá munu nefnilega Svisslendingarnir lifa af, lit- lausir og leiðinlegir sem þeir eru. Til marks um hugsunarhátt Sviss- lendinga þá ver engin þjóð í heim- inum hærra hlutfalli ráðstöfunar- tekna sinn í að kaupa tryggingar. Þá er sú krafa gerð í byggingarreglu- gerð að í öllum svissneskum húsum sé rammbyggt sprengjubyrgi með fullkomnum lofthreinsibúnaði. Hefur það verið skylda frá árinu 1963 þegar stjórnvöld óttuðust að sovéskar kjarnorkusprengjur gætu lent á Evr- ópu hvenær sem er. „Hlutleysi veitir enga vörn gegn geislun“ – var eitt af þeim slagorðum sem notuð voru í svissneskum stjórnmálum á þeim tíma. Er nú svo komið að pláss er fyrir 114% landsmanna í svissneskum sprengjubyrgjum. Voldugir hlerar geta t.d. lokað Sonnenberg- göngunum við Luzern og breytast þau þá í byrgi sem rúmar 20.000 manns! Ekki nóg með það heldur er innan við áratugur síðan svissneski herinn lauk því verki að fjarlægja sprengju- hleðslur sem komið hafði verið fyrir undir vegum, brúm og flugbrautum og í göngum ef ske kynni að hægja þyrfti á för innrásarhers – eins og jóðlið og harmoníkuleikurinn væru ekki nóg til að fæla óvinaheri í burtu. Umgjörð fyrir aðlögunarhæfni Íslendingar ættu ekki að láta kór- ónuveirufaraldurinn breyta sér í taugatrekkta og ofurvarkára Sviss- lendinga, en það sakar ekki að svipast um eftir hættunum og vinna hæfilega markvisst að því að vera undirbúin fyrir höggið þegar það kemur. Und- irbúningurinn ætti ekki bara að snú- ast um að fylla gömlu kartöflu- geymslurnar af Ora-fiskbollum, Nóa-konfekti og Krónu-klósettpappír til vonar og vara ef aðfangakeðjur heimsins skyldu raskast, heldur líka að skapa hagkerfinu ramma sem styður við aðlögunarhæfnina frekar en að draga úr henni: stilla þarf sköttum í hóf, einfalda reglur, auka dreifstýringu, fækka hindrunum af öllu tagi og tryggja greiða leið að sem flestum mörkuðum. Aðlögunarhæfnin er meiri eftir því sem íslensk fyrirtæki renna fleiri stoðum undir reksturinn og finna kaupendur og seljendur í fleiri lönd- um. Aðlögunarhæfnin er meiri ef við löðum til okkar hæfileikafólk með ólíkan bakgrunn frá öllum heims- hornum og leyfum öllum sjónar- miðum að heyrast í samfélagsumræð- unni. Ekkert fær okkur grandað ef íslenskir námsmenn halda áfram að sækja sér menntun við heimsins bestu háskóla og ýmist landa störfum hjá virtum erlendum risafyrirtækjum eða spreyta sig á eigin rekstri hvort heldur í Ríó, Múmbaí, Kaíró eða Tókýó. Ef Namazu og aðrir hamfarafiskar þora þá að láta sjá sig tökum við þá með hælkrók. Þeir varkáru lifa af áföllin Ásgeir Ingvarsson skrifar frá Playa del Carmen ai@mbl.is Fyrirtæki og stjórnvöld ættu að læra það af faraldrinum að hagkerfið má ekki skorta aðlögunarhæfni. AFP Sápa skorin með gamla laginu í Sýrlandi. Þar má finna rótgrónar sápuverksmiðjur sem starfa með allt öðrum hætti en stóru alþjóðafyrirtækin. Hráefnið er fengið úr nærsveitum og vélvæðingin í lágmarki. Þrátt fyrir róstur og stríð hafa sápugerðirnar sýnt næga seiglu til að geta haldið rekstrinum gangandi í margar kynslóðir.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.