Morgunblaðið - Sunnudagur - 23.01.2022, Qupperneq 4
FRÉTTIR VIKUNNAR
4 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 23.1. 2022
Venjulega hækkar kólesterólgildi í blóði
með aldrinum.
Það er hægt að vinna g
breyttu mataræði og hr
Lipinorm A-800 er tilv
fyrir aðrar lífsílsbreytin
Lipinorm A-800 inniheldur
mónakólín K úr rauðum ger
hrísgrjónum (RYR),
ólífur og þíamín (B1 vítamín
Saman stuðlar þessi innihal
að eðlilegri hjartastarfsemi.
Stuðlar að viðhaldi eðlilegra
2 töflur á dag með vatnsg
90 töflur í pakka
Normalt fedtindhold i
blode og hjertefunktion
Kombination af artiskok*
röd gær-ris, oliven og thiamin**
*Bidrager til at vedligeholde er normalt
fedtindhold i blodet.
**Bidrager til normal hjertefunktion.
Fæst í verslun Lyfjavers og öðrum betri apótekum.
LIPINORM A 800
V
ikan hófst vel þegar Íslend-
ingar fögnuðu því að hand-
boltalandslið karla hefði
unnið tvo leiki á Evrópumeist-
aramótinu í Búdapest og með fullt
hús stiga.
Háskóli Íslands ákvað að verða við
óskum stjórnvalda um að fleiri
hjúkrunarfræðinemum á fyrsta ári
yrði hleypt í gegnum samkeppn-
ispróf í deildinni. Fimm fleiri komast
þannig í gegnum klásus þar.
Bólusetningar barna héldu áfram í
vikunni, en jafnframt kom loksins að
örvunarskammti fyrir þá sem hlutu
bóluefnið Janssen.
Fjármálaráðherra boðaði frumvarp
um breytingu á lögum um stað-
greiðslu opinberra gjalda, trygginga-
gjald og viðspyrnustyrki, sem mið-
ast við að styðja við fyrirtæki, sem
orðið hafa fyrir barðinu á sótt-
varnaaðgerðum.
Að sögn ferðaskrifstofa er Íslend-
inga farið að þyrsta í utanferðir og
sérstaklega sólina, eins og skilj-
anlegt má vera í svartasta skamm-
deginu. Mikið er um bókanir og þá
fyrst og fremst um páskana.
Fleiri þyrstir ef marka má deilu á
Akureyri um hvort leyfa skuli áfeng-
issölu í Hlíðarfjalli. Markmiðið er að
skapa meiri stemmningu í brekk-
unum og höfða frekar til ferðamanna
með après-ski en áheyrnarfulltrúi
vinstri grænna í bæjarstjórn telur
það stríða gegn forvarnastefnu.
Nóg fiskast af loðnu, sem nú er út af
Langanesi, svo mikið raunar að
vandræði hafa skapast við löndun.
Alþingi kom saman á ný og hófst
þinghaldið á sýnatöku og ámóta ritú-
ölum.
. . .
Fundist hefur verndandi arfgerð
gegn riðuveiki í sauðfé. Hún fannst í
hrútnum Gimsteini frá Þernunesi við
Reyðarfjörð, í fyrsta sinn hér á landi.
Þetta mun koma í veg fyrir að skera
þurfi niður allan bústofninn vegna
riðu.
Sóttvarnalæknir játaði að forsendur
fyrir frekari afléttingum með hlið-
sjón af sérstöðu Ómíkron-afbrigð-
isins væru til skoðunar.
Ármann Ólafsson, bæjarstjóri í
Kópavogi, tilkynnti að hann leitaði
ekki endurkjörs í vor.
Ekki stendur til að halda samræmd
próf í grunnskólum í vor, en þau
gengu brösuglega í fyrra.
Sjálfstæðismenn vilja falla formlega
frá þéttingu við Bústaðaveg og við
Miklubraut og Háaleitisbraut. Borg-
aryfirvöld lögðu áform við Bústaða-
veg „til hliðar“ en sitja föst við sinn
keip við Miklubraut.
Festi reif skyggnið við bensínstöð
sína við Ægisíðu, en til stendur að
leggja hana niður og nýta lóðina und-
ir fjölbýlishús.
Guðmundur Ragnarsson, fv. for-
maður VM – félags vélstjóra og
málmtæknimanna, ætlar að bjóða sig
fram gegn núverandi formanni,
Guðmundi Helga Þórarinssyni, á
aðalfundi í vor. Guðmundur segir
fjárreiður félagsins í ólestri.
Mikill vöxtur hefur orðið í netversl-
un í faraldrinum og hefur sú þróun
teygst til æ fleiri gerða verslunar. Ís-
land hefur til þessa verið nokkur eft-
irbátur nágrannalanda að þessu
leyti, þar sem heimsendingar og
póstverslun eru mun algengari.
Met halda áfram að falla á fast-
eignamarkaði, bæði hvað varðar
fjölda kaupsamninga og verð. Veru-
leg umframeftirspurn birtist í því að
43,6% fasteigna fara á meira en ásett
verð.
Yfirskattanefnd komst að því að
söluhagnaður af rafmyntinni bitcoin
væri skattskyldur.
Bjarni Haraldsson, kaupmaður á
Sauðárkróki, lést 91 árs að aldri.
. . .
Íslendingar sigruðu heimamenn á
Evrópumeistaramótinu í handbolta
karla í Ungverjalandi.
Meirihlutinn í borgarstjórn Reykja-
víkur hafnaði því að taka fyrir tillögu
sjálfstæðismanna um að formlega
yrði fallið frá þéttingaráformum við
Bústaðaveg, sem meirihlutinn segist
þó sammála.
Skógræktarhugsjón undanfarinnar
aldar hefur náð þeim árangri að vax-
andi áhugi er á skógarhöggi á Ís-
landi. Það merkja menn af ásókn í
námskeið þar sem kennt er á keðju-
sagir og hvoru megin trésins sé rétt
að standa þegar það er fellt.
Staðan í leikskólum borgarinnar er
sögð mjög alvarleg, en lítið hefur
gengið að ráða fólk til starfa í þeim
síðan í haust.
Í fræðigrein um íslenska refinn kom
fram að veiði á honum ræður litlu um
fjölgun og fækkun í stofninum.
Kristján Þór Magnússon, sveit-
arstjóri í Norðurþingi, sækist ekki
eftir endurkjöri.
Heilbrigðisráðherra hefur lagt fram
drög að lögum, þar sem aldurs-
takmörk eru sett á kaup á nikótín-
vöru.
Magnús Guðmundsson, marg-
faldur Íslandsmeistari á skíðum og í
golfi, lést í Bandaríkjunum 88 ára að
aldri.
. . .
Orkuskortur vofir yfir Íslendingum,
en mikil og vaxandi eftirspurn er eft-
ir raforku, en vatnsstaða í miðl-
unarlónum með minna móti og fram-
leiðslugeta orkuvera skert af ýmsum
ástæðum. Orkuskortur hefur verið
frá því í haust og kann að hafa áhrif á
orkuafhendingu til heimila áður en
yfir lýkur.
Það sló á gleði yfir velgengni íslenska
karlalandsliðsins í handbolta að þrjú
smit greindust í hópnum.
Ný reglugerð heilbrigðisráðherra fól
í sér tilslakanir, svo sem að fólki í
einangrun er nú leyft að fara úr húsi
með takmörkunum þó.
Reykjavíkurborg samdi við Festi,
sem rekur N1, um að fyrirtækið
fengi byggingarétt á bensínstöðv-
arlóð við Ægisíðu, sem talinn er afar
mikils virði. Lóðarleigan þar á að
renna út eftir fimm ár. Dagur B.
Eggertsson borgarstjóri hafnaði því
að þar ræddi um hátt í tvo milljarða
króna, en verktakar eru á öðru máli.
Framleidd voru 46.500 tonn af laxi á
nýliðnu ári, sem er liðlega þriðj-
ungsaukning frá árinu áður. Talið er
að framleiðslan í ár verði enn meiri.
Bæði fjárhagsstöðu og andlegri
heilsu launafólks í ASÍ og BSRB
hrakaði á liðnu ári. Um helmingurinn
hafði neitað sér um einhvers konar
heilbrigðisþjónustu vegna vanefna.
. . .
Orkumálastjóri sagði of djúpt í árinni
tekið að tala um yfirvofandi orku-
skort, en samt hefur Landsvirkjun
hækkað verð á skammtímamarkaði
um helming og bæði Orkubú Vest-
fjarða og RARIK búa sig undir að
brenna milljónum lítra af olíu til raf-
orkuframleiðslu.
Íslendingar urðu að lúta í lægra haldi
fyrir Dönum á handboltamótinu í
Búdapest, enda sex liðsmenn úr leik
með veirupest.
Bankasýsla ríkisins hefur lagt til að
öll hlutabréf ríkisins í Íslandsbanka
sem eftir eru verði seld í áföngum á
komandi tveimur árum.
Mikil útbreiðsla kórónuveirusmita
er í yngri aldurshópum, en á móti
kemur að hlutfallslega þurfa miklu
færri að leggjast á sjúkrahús. Það
telur sóttvarnalæknir tilefni til þess
að endurskoða aðgerðir.
Blöndulínu 3 á að leggja um Kiða-
skarð og áfram yfir Öxnadalsheiði.
Ekki er gert ráð fyrir að hún verði að
nokkru leyti lögð í jörð, en gamla lín-
an verður rifin.
Tónlistarskólakennarar samþykktu
kjarasamning við sveitarfélögin með
72,5% atkvæða, sem er þveröfug nið-
urstaða við það sem gerðist hjá
grunnskólakennurum.
Brotist var inn í bíl Reynis Trausta-
sonar, ritstjóra Mannlífs, og flestu
fémætu stolið auk lykla hans, sem
síðan voru notaðir til þess að fara inn
á ritstjórnarskrifstofurnar, þar sem
ritstjórnarefni var eytt og móð-
urtölvunni stolið. Með afriti tókst
skjótt að koma vefnum í loftið aftur
og aðsóknin sem aldrei fyrr.
Orkuskortur
og barátta
Ekki vantaði spennuna og orkuna meðal Íslendinga á Evrópumeistaramótinu í handbolta í Ungverjalandi, en á hinn bóg-
inn vofir orkuskortur yfir heima á landinu eina, lítið vatn í lónum, aukin eftirspurn og raforkuverð í hraðaupphlaupi.
Morgunblaðið/Sonja
16.1.-21.1.
Andrés Magnússon
andres@mbl.is