Morgunblaðið - Sunnudagur - 23.01.2022, Side 8

Morgunblaðið - Sunnudagur - 23.01.2022, Side 8
VIÐTAL 8 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 23.1. 2022 G uðjón Hafsteinn Guðmundsson er í ræktinni þegar ég bjalla í hann á þessum fallega janúar- morgni. „Ég kem hingað fjór- um sinnum í viku,“ útskýrir hann. „Eitthvað verður maður að gera til að halda sér í formi; ég er hættur að vinna og síð- an er orðið svo lítið um kynlíf hjá mér. Ég er orðinn 72 ára.“ Hann skellir upp úr. Ég hef heimildir fyrir því að Guðjón sé með hressari mönnum og þetta fyrsta svar lofar strax góðu. Ég ámálga viðtal fyrir Sunnudags- blað Morgunblaðsins og Guðjón er til í tuskið. Hvenær viltu koma? Daginn eftir sit ég í stofunni hjá honum í Kópavoginum með kaffi í múmínálfabolla fyrir framan mig. „Hvernig er kaffið, vinur?“ spyr Guðjón. „Er það ekki í lagi?“ Jú, fínu lagi. Meira um það síðar. „Þú verður að fyrirgefa mér en ég á ábyggi- lega eftir að vaða úr einu í annað,“ segir hús- ráðandi. „Ég er nefnilega með ADHD og allar þær systur, nema hvað slíkar greiningar voru auðvitað ekki til í gamla daga.“ Það er nú í góðu lagi, góðar sögur þarf ekki endilega að segja í krónólógískri röð. Í því ljósi er við hæfi að við hefjum spjallið á ákveðnum endapunkti; þegar Guðjón hætti á sjónum árið 1998, eftir tæplega 40 ár. Það gerði hann ekki af fúsum og frjálsum vilja. „Ég fékk yfir mig brotsjó sem tók hrygginn á mér í sundur á þremur stöðum,“ byrjar hann. „Ég var á Hoffellinu frá Reyðarfirði og það sem er svo merkilegt er að við vorum ekki úti á rúmsjó, heldur í Víkinni við Ólafsvík. Ald- an kom aftan á skutinn og ég fékk hana á mig, þar sem ég stóð á dekkinu. Ég steinlá og þegar ég ætlaði að standa upp til að halda áfram að vinna áttaði ég mig á því að ég fann ekki fyrir löppunum. Sársaukinn var hins vegar ekki svo mikill enda er ég með háan sársaukaþröskuld, auk þess sem líkaminn hefur dofnað strax upp við áfallið. Strákunum leist ekkert á blikuna og skorðuðu mig af, eins og ber að gera við svona aðstæður. Sem betur fer vorum við skammt frá landi og hringt var á sjúkrabíl á Ólafsvík sem ók í hendingskasti með mig á Akranes. Þaðan var ég sendur beint til Reykjavíkur, þar sem ég gekkst undir aðgerð. Ég var með með- vitund allan þennan tíma.“ Fékk sýkingu í bakið Aðgerðin heppnaðist vel en þrír boltar voru settir í hrygginn á Guðjóni til að halda honum saman. Þar með var hremmingum hans þó hvergi nærri lokið. „Ég fékk sýkingu í bakið, sem var hálfu verra. Það myndaðist stórt kýli við hrygginn nálægt mænunni sem er alls ekki gott. Komist sýking í hana getur maður lam- ast. Læknarnir stungu á kýlið, þannig að gröfturinn vall út. Hún Vallý mín var við það að líða út af,“ rifjar Guðjón upp og á þar við eiginkonu sína, Valgerði Ingu Hauksdóttur, sem nú er látin. Hann lá lengi á spítala en þegar hann komst á fætur ætlaði Guðjón aftur á sjóinn. Engar refjar. En læknirinn stöðvaði hann, sjó- mennskunni væri lokið fyrir fullt og fast. „Ég skil ekkert í því enda fannst mér ég miklu betri en áður – með þrjá bolta í hryggnum.“ Hann glottir. Þar með lýkur ekki frásögum af beinbrotum og almennum óförum Guðjóns. Hann hefur lengi lagt stund á hestamennsku og fyrir um áratug varð hann fyrir alvarlegu slysi þegar hann var í útreiðartúr í Víðidalnum. „Það var alveg dæmalaus óheppni. Ég var bara á fetinu í rólegheitum þegar bíll keyrði framhjá og skaut steini upp í kviðinn á hestinum, sem fældist að vonum og henti mér á steinsteyptan rafmagnskassa. Þar fóru þrettán bein; rifbein, viðbein og hvað þetta nú allt heitir.“ Aftur beið hans spítalavist og endurhæfing. „Það er ekkert sjálfgefið að menn standi upp eftir svona slys en ég hef alltaf verið í góðu formi og líkamlega hraustur og það hjálpaði mér án efa að ná fullri heilsu aftur.“ – Þú ert svolítill hrakfallabálkur? Eru þau fleiri, slysin? „Nei, ekkert í líkingu við þessi tvö. Ég datt að vísu í tvígang niður úr stiga þegar ég var að mála bjálkahúsið sem ég byggði og átti í Brekkuhvarfinu hérna í Kópavogi – og rotaðist í annað skiptið. Það á ekki af manni að ganga.“ Téð hús vakti mikla athygli á sínum tíma enda bjálkahús fá hér um slóðir. Guðjón byggði sumsé einbýlishús, bílskúr og hesthús á sömu lóðinni, allt frístandandi. „Já, blessaður vertu. Þetta dró marga að og suma daga komst ég varla að hús- inu fyrir fólki sem komið var til að skoða.“ Hann glottir. „Það var ótrúlegasta fólk sem sýndi þessu áhuga; Tolli listamaður, Linda Pé, Íþróttaálf- urinn og Örn Árnason leikari. Sá síðastnefndi horfði í augun á mér og spurði hvort ég væri auðkýfingur. Nei, svaraði ég. Ég er bara dug- legur sjómaður. Eins og þú þekkir þá er hægt að bera býsna vel úr býtum á sjó,“ segir Guð- jón sem flutti inn í húsið skömmu áður en hann þurfti að hætta á sjónum eftir slysið. Timbrið flutti Guðjón inn frá Finnlandi, í fjórum gámum. Lóðina hafði hann keypt af Sigurbirni Bárðarsyni hestamanni. „Þetta var allt stimplað timbur enda langaði mig að byggja kántrístæl. Oft er sagt að bjálkahús henti ekki íslenskum aðstæðum og ég byrjaði á því að henda einum og hálfum gámi af bjál- kaull. Sá í hendi mér að hún myndi aldrei halda íslensku veðri og vindum. Í staðinn keypti ég danska þensluborða sem dugað hafa fram á þennan dag – og munu gera áfram. Um- boðsmaðurinn á Íslandi frétti af þessu, sem varð til þess að forstjóri finnska fyrirtækisins kom hingað í helgarferð við annan mann til að kíkja á húsið. Það varð til þess að öll þessi hús eru með þensluborðum í dag.“ – Þannig að þú hafðir varanleg áhrif á fram- leiðslu Finnanna? „Já, já. Það má segja það.“ Hann skellir upp úr. „Ég skipti líka um allar hurðir. Þær komu ekki með einum kíttistaumi og hefðu aldrei haldið.“ Flugvél brotlenti í sjónum Eins ótrúlega og það hljómar þá er slysið á Hoffellinu ekki eftirminnilegasta atvikið sem Guðjón lenti í á sjó; heldur þegar hann bjargaði mannslífi úti fyrir Suðausturlandi árið 1984. Þá var hann háseti á Vigra RE sem var á heimleið eftir að hafa siglt með ferskfisk til Bremerhaven. „Við vorum út af Hornafirði síð- degis á sunnudegi þegar lítil flugvél brotlenti í sjónum fyrir framan okkur. Sjálfur var ég sof- „Ég fer bara og sæki hann!“ Guðjón Hafsteinn Guðmundsson háseti vann frækið björgunarafrek þegar hann dró bandarískan ferjuflugmann upp úr sjónum árið 1984 úti fyrir Hornafirði. 14 árum síðar lauk sjómannsferli Guðjóns þegar alda gekk yfir skip hans og tók hrygginn á honum í sundur á þremur stöðum. Hann komst aftur til heilsu og hefur unað hag sínum vel í landi. Með húmor og léttleika að vopni. Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is ’ Ég steinlá og þegar ég ætl- aði að standa upp til að halda áfram að vinna áttaði ég mig á því að ég fann ekki fyrir löppunum. Guðjón Hafsteinn Guðmunds- son var bara 13 ára þegar hann fór fyrst á sjó, sem messagutti á Gullfossi. Án leyfis að heiman.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.