Morgunblaðið - Sunnudagur - 23.01.2022, Side 20

Morgunblaðið - Sunnudagur - 23.01.2022, Side 20
20 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 23.1. 2022 MINNING Æ tli breski leikarinn Steph- en Fry hafi ekki hitt nagl- ann á höfuðið þegar hann minntist Meat Loafs vinar síns á samfélagsmiðlum: „Hann hafði þann einstaka hæfileika að vera í senn ógnvekjandi og dúllulegur, sem er sjaldgæft og frekar dásamlegt.“ Þeir félagar léku saman í skets í hinum vinsæla gamanþætti Satur- day Night Live í Bandaríkjunum á níunda áratugnum og Fry vissi víst ekki hvort hann átti að faðma Meat Loaf að sér eða renna af hólmi. Gestir á tónleikum kappans hafa ábyggilega sveiflast milli viðlíka til- finninga. Gefum Árna Matthíassyni, blaðamanni Morgunblaðsins, orðið en hann sótti tónleika Meat Loafs í Reiðhöllinni í Víðidal haustið 1987: „Sviðsframkoma Meat Loafs var greinilega vel til þess fallin að ná til áheyrenda og það gekk eftir. Þó fólst hún ekki í öðru en að strunsa fram og aftur á sviðinu og glenna sig framan í hljóðfæraleikara og áheyr- endur. Einna mesta hrifningu vakti þegar hann hristi sig og skók og var hann í svitabaði áður en langt um leið.“ Síðar í umsögn sinni sagði Árni: „Meat Loaf sjálfur var lengi í gang hvað sönginn varðar, en sýndi þó að hann hefur nokkuð sterka rödd, þótt ekki sé hún að sama skapi þýð eða fögur. Áheyrendum stóð þó nokkurn veginn á sama um það hvað fram fór á sviðinu, þeim var nóg að geta greint lögin og litið Meat Loaf.“ Með þessum fáu orðum tekst Árna ágætlega að umfaðma kons- eptið um Meat Loaf – hann var fyrst og síðast skemmtikraftur og stemn- ingskarl sem kveikti bál með nær- veru sinni einni saman. Röddin var að sönnu óvenjuleg og ekki síður söngstíllinn. „Skjóti Bruce Springsteen yfir markið þá fer Meat Loaf fimm hæðum ofar,“ sagði upptökustjórinn Todd Rund- gren. Sem frægt var. Í samtali við breska ríkisútvarpið, BBC, árið 2010 upplýsti Meat Loaf sjálfur að honum hefði staðið til boða að læra óperusöng og græða mikla peninga, „en það var ekkert fyrir mig – ég er of uppreisnargjarn, of galinn“. Plötur hans seldust glettilega vel; sér í lagi sú fyrsta, Bat Out of Hell, sem er ein söluhæsta rokkplata sög- unnar, hefur selst í 43 milljónum ein- taka. Hún kom út 1977 og tónlistin er eftir Jim Steinman. Þar er að finna lög á borð við titillagið, You Took the Words Right Out of My Mouth (Hot Summer Night), Two Out of Three Ain’t Bad og erkismell Meat Loafs, Paradise by the Dash- board Light. Ópusinn sá er hálf ní- unda mínúta að lengd, sem er alls ekki ávísun á mikla útvarpsspilun. Önnur varð þó raunin og lagið heyr- ist enn reglulega í útvarpi út um all- an heim. Raunar virðist platan og lagið alltaf vera að vaxa en umsagnir voru blendnar í upphafi. Í dag efast enginn um áhrif Bat Out of Hell. Hún er rokkklassík. Hver kannast ekki við að iða í skinninu og hækka í viðtækinu þeg- ar Kjöthleifur, eins og plötusnúðar hér við nyrstu voga kalla hann gjarnan, telur í Paradise By the Dashboard Light eða annan smell? Bat Out of Hell er í raun þríleikur en Back into Hell kom út 1993 og The Monster Is Loose 2006. Hvorki þær né aðrar plötur Meat Loafs komast nálægt frumburðinum að vinsældum. Seinast hlóð hann í breiðskífu árið 2016, Braver Than We Are. Uppstytta varð í vinskap Meat Loafs og Steinmans um tíma og skylmdust þeir meðal annars í dóm- sölum. Um síðir greri þó um heilt og Steinman var kominn á sinn stað á Back Into Hell. Þar er að finna eina lag Meat Loafs sem öslaði alla leið á topp Billboard-listans í Bandaríkj- unum, I’d Do Anything for Love (But I Won’t Do That). Þeir félagar eru nú sameinaðir á ný en Steinman lést á síðasta ári. Gospelsöngur og drykkja Meat Loaf fæddist í Dallas, Texas, 27. september 1947 og var skírður Marvin Lee Aday. Skipti Marvin seinna út fyrir Michael. Hann var einkabarn foreldra sinna. Móðirin var kennari og gospelsöngkona en faðirinn fyrrverandi lögreglumaður sem þróaði með sér alkóhólisma eft- ir að hafa verið leystur undan her- skyldu af heilsufarsástæðum í seinna stríði. Michael var bústið barn og ung- lingur og það var ruðningsþjálfari sem gaf honum viðurnefnið Meat Loaf. Ábyggilega af umhyggju og hlýju. Okkar maður lét það ekki buga sig og hélt nafninu þegar hann setti saman sína fyrstu hljómsveit í Los Angeles, Meat Loaf Soul. Eftir það varð ekki aftur snúið. Hann var líka í söngleikjum á sviði en frægð og frami létu þó bíða eftir sér. Vatnaskil urðu þegar Meat Loaf fékk hlutverk sendisveinsins Eddies í Rocky Horror Picture Show árið 1975. Þá var hann orðinn 28 ára. Meat Loaf lék í yfir 50 kvikmynd- um og sjónvarpsþáttum um dagana, þeirra á meðal Fight Club, Wayne’s World og Spiceworld the Movie. Í fyrra var kunngjört að hann myndi koma að þróun veruleikaþáttarins I’d Do Anything for Love (But I Won’t Do That), þar sem freista átti þess að para ungt og huggulegt fólk saman fyrir augum áhorfenda. Fer ekki vel á því að leyfa Stephen Fry að ramma þetta inn fyrir okkur? Hann kveður vin sinn með þessum orðum: „Ég vona að Paradís sé eins og þú minnist hennar frá mælaborð- inu, Meat Loaf.“ Ljósið í mælaborðinu mun loga Meat Loaf á tónleikunum góðu í Reiðhöllinni í Víðidal haustið 1987. Meat Loaf, goðsögn í rokkheimum, féll frá á fimmtudaginn, 74 ára að aldri. Hans er minnst sem skemmti- krafts af Guðs náð sem skildi alltaf allt eftir á sviðinu. Meat Loaf tróð upp í Reiðhöllinni 1987. Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is Tónleikar með Meat Loaf voru ekki síður sjónræn en tónræn veisla. Hér er hann á sviði í Zwolle árið 2013. AFP

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.