Morgunblaðið - Sunnudagur - 23.01.2022, Side 18

Morgunblaðið - Sunnudagur - 23.01.2022, Side 18
Á róra Elí Vigdísardóttir mætti í höfuðstöðvar Morgunblaðsins einn eftirmiðdag í vikunni til að segja blaðamanni frá einstakri upplifun á menntaskólaárunum, en spjallið má einnig finna í Dagmálaþætti sem birtist á mánudag á mbl.is. Í ferðamenntaskóla fór Áróra víða um heim en nemendur stunduðu óhefðbundið nám í Bótsvana, Indlandi, Kína, Japan, Spáni, Óman og Panama. Opin og forvitin „Skólinn er fyrsti ferðamenntaskóli í heimi og er hverju ári skipt í fjórar annir og hver önn er í mismunandi landi. Á meðan við vorum að læra ferðuðumst við á milli landa,“ segir Áróra og segist hafa fyrst heyrt af skólanum þegar hún var níu ára og strax heillast af hugmynd- inni. Þegar hún hafði loks aldur til sótti hún um en afar erfitt er að komast inn í þennan ævintýralega skóla. „Tvö þúsund sóttu um þrjátíu pláss. Það var frekar erfitt að komast inn en það snýst meira um persónuleika en námsárangur. Ég held að það hafi hjálpað mér að hafa áður búið í öðrum löndum og kynnst annarri menningu. Ég var mjög opin og forvitin og það er það sem þau leita að,“ segir hún og nefnir að þótt skólinn sé dýr borgi nemendur eftir fjárhag og getu for- eldranna. „Þetta var kannski dýrt en ekki miðað við það sem við fengum að upplifa.“ Heil vika í náttúru Afríku Áróra hélt af stað út í hinn stóra heim aðeins fimmtán ára gömul, því hún var ári á undan í skóla. „Fyrsta landið sem við fórum til var Bóts- vana og var það smá sjokk því ég hafði aldrei áður ferðast neitt utan Evrópu, og aldrei án mömmu. Maður er alltaf með ákveðna mynd í huga af löndum sem maður heyrir um en ég get viðurkennt að ég hafði ekki einu sinni heyrt um Bótsvana áður. Svo að margt kom á óvart,“ segir Áróra og segir að fyrsta önnin hafi farið í að kynnast bæði nemendum og kennurum og átta sig á hvernig námið var uppbyggt. Litirnir, hljóðið, lyktin Áróra Elí Vigdísardóttir fór heldur betur ótroðnar slóðir þegar kom að vali á menntaskóla. Hún var fyrsti íslenski nemandinn í Think Global School, en þar ferðast nemendur saman um allan heiminn. Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is Í Mumbai á Indlandi fékk Áróra menningarsjokk, enda aldrei séð annan eins mannfjölda. Áróra Elí Vigdísardóttir fór til Kína, Japans, Indlands, Panama, Spánar, Bótsvana og Ómans á menntaskólaárunum. Áróra sést hér með bekkjarsystrum sínum á götum Sjanghaí, en Kína var eitt af löndunum sjö. Morgunblaðið/Eggert „Það eru engin próf heldur bara verkefni og áhersla lögð á að læra með því að gera. Við vorum að læra um dýr á meðan við vorum í saf- arí. Við lærðum að sjá um náttúruna og hvaða tækni er notuð til að telja og skrásetja dýrin. Í heila viku vorum við úti í náttúrunni og þá fengum við ekki að vera með símana okkar. Við vorum í litlum hópum og þetta var mikið ævintýri. Ég kynnist þarna krökkum frá lönd- um sem ég hafði varla heyrt um,“ segir hún og útskýrir að í bekknum hafi verið 30 unglingar frá 27 löndum. „Ég hafði aldrei heyrt um Bahamaeyjar nema í laginu. Ég verð að viðurkenna að ég vissi ekki að það væri alvöruland,“ segir hún og hlær. Kúltúrsjokk á Indlandi Með hópnum ferðuðust tíu kennarar og einn hjúkrunarfræðingur. „Kennararnir kenndu oft meira en þeirra fag og það var þannig að einn kennari var með fjóra nemendur, sem er mjög mikið. Það þarf ákveðið öryggi þegar krakkar eru svona langt frá foreldrum sínum,“ segir Áróra og segist ekki hafa fengið heimþrá í fyrsta landinu. „Það var allt svo nýtt, skemmtilegt og spennandi,“ segir Áróra og útskýrir að nem- endur séu erlendis í tvo mánuði og fari þá heim í fimm vikur áður en næsta ævintýri hefst í nýju landi. „Næst á eftir Bótsvana var Indland. Ég upplifði þá meira kúltúrsjokk en í Bótsvana. Við vorum í Mumbai, þar sem er mjög mikið af fólki. Ég hef aldrei verið á svona fjölmennum stað og við vorum ekki í ríka hluta borgar- innar. Litirnir, hljóðið, lyktin, það var svo yfir- þyrmandi. Þarna byrjaði námið af alvöru,“ segir Áróra og segist hafa bragðað þar á steiktum lirfum. „Það var ekki minn uppáhaldsmatur, mikið kryddaðar lirfur og skrítin áferð. Ég fæ mér þetta ekki aftur, en maður er alltaf að prófa!“ segir Áróra. „Eftir Indland fórum við til Japans, sem var alveg öfugt við allt sem við höfðum upp- lifað í Bótsvana og Indlandi. Við vorum í Hiroshima og allt þarna er svo hljóðlátt, rólegt og loftið gott,“ segir Áróra og segir 18 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 23.1. 2022 HEIMSHORNAFLAKK

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.