Morgunblaðið - Sunnudagur - 23.01.2022, Side 14

Morgunblaðið - Sunnudagur - 23.01.2022, Side 14
giftum okkur. Við sjáum sannarlega ekki eftir því.“ Fer ekki auðveldu leiðina Í Þjóðleikhúsinu lék Elma í hverju burðar- hlutverkinu á fætur öðru. „Mér fannst þetta rosalega gaman. Mér þykir alltaf vænst um Harmsögu, sem Mikki skrifaði. Það var fyrsta verkið mitt og fór víða og varð mjög vinsælt, en það fór til Wash- ington og fékk mjög fína dóma í The Wash- ington Post. Við erum enn með í bígerð að gera kvikmyndina Harmsögu. Þar segir af manni sem myrðir konu sína og er það kallað ástríðu- glæpur en hefur ekkert með ástríðu að gera,“ segir Elma og segist einnig geta nefnt hlut- verk sitt sem Ástu Sóllilju í Sjálfstæðu fólki og hlutverk sitt í Konunni við 1000° þegar hún er beðin að segja frá fleiri eftirminnilegum hlut- verkum. Það var því nóg að gera á þessum tíma hjá Elmu sem var þá í mikilli vinnu, gift kona með lítið barn og þrjú stjúpbörn. „Núna þegar ég lít til baka sé ég að ég fór ekki auðveldu leiðina en ég hef aldrei valið hana hvort eð er. Ég ber mikla virðingu fyrir 24 ára mér sem gerði þetta bara ótrúlega vel. Á þessum tíma fannst mér þetta ekkert mál; ég bara óð áfram og okkur leið vel. Maður finnur leiðir.“ Elma segir þau hjón vinna vel saman, en Mikael semur oft verk með Elmu í huga, eins og í Harmsögu. Hún fær þá stundum að leggja orð í belg við handritsskrifin. Tekur hann því vel? „Misvel,“ segir hún og hlær. „Nei, nei, það gengur rosa vel hjá okkur.“ Heilbrigður lífsstíll í fyrsta sæti Hjónin lifa bæði tvö heilbrigðu lífi án áfengis, en Elma hætti að drekka 24 ára gömul. „Ég höndlaði alls ekki áfengi og ég gat ekki hugsað mér að halda áfram að drekka. Ég upp- lifði nokkur augnablik þar sem ég hugsaði: hvað er ég að gera? Ég var í Listaháskólanum og þar var auðvitað mikið djamm, þótt ég hafi kannski ekki mikið stundað djammið með lítið barn. En svo kom svona móment þar sem ég var svo stressuð því ég átti að fara að syngja á tónleikum, en ég hef aldrei þolað að syngja. Þá langaði mig svo að fá mér að drekka til að róa taugarnar. En þá hugsaði ég: nei, ég get það ekki! Ef ég geri það, þá get ég ekki verið leik- kona. Maður þarf að vera svo óhræddur sem leikari,“ segir Elma sem setti þá tappann end- anlega í flöskuna. „Ég hef því alveg haldið mig frá djammlífi. Sem leikari er maður alltaf að fara út á ystu nöf með allar tilfinningar. Þegar maður er í leikhúsi er maður kvöld eftir kvöld að teygja á öllum tilfinningaskalanum. Og auðvitað finnur leikarinn fyrir sársauka þegar hlutverkið er mjög erfitt, en ef þú ert í venjulegra starfi get- urðu sett upp vörn, mörk og grímu. Ég myndi ekki bjóða í það að vera leikari með allt þetta sem fylgir starfinu, og svo drekka ofan í það,“ segir Elma og segist þurfa að hugsa vel um sig líkamlega og andlega til að geta sinnt vinnu sinni sem best. „Ég set heilbrigðan lífsstíl í fyrsta sæti; það er mér nauðsynlegt.“ Byrjaði bara að moka Fyrir nokkrum árum ákvaðu hjónin að freista gæfunnar utan landsteinanna. „Mikki var þá byrjaður að skrifa fyrir þýskt leikhús og við ákváðum að flytja út til Berl- ínar og sjá hvað myndi gerast. Ég byrjaði á að læra þýsku og svo þegar ég hafði lært hana í þrjá mánuði bauðst mér að vinna í Hamborg og Vín,“ segir Elma, sem þurfti þá að velja á milli. „Ég fór í prufu fyrir hlutverk Nóru í Dúkku- heimilinu og í prufunni lék ég á móti leikara sem hafði leikið í 127 sýningum á verkinu. Prufan gekk svo vel að ég fékk samning á staðnum,“ segir Elma og segir fjölskylduna þá hafa flutt til Vínar eftir tæpt ár í Berlín og lék hún þar á sviði hjá hinu virta Burgtheater. Elma segir það vissulega hafa verið mikla áskorun að leika á þýsku og hún hafi fengið sér talþjálfara hjá leikhúsinu. „Þetta var mjög erfitt fyrst. Þegar ég horfi til baka skil ég ekki hvað ég var að pæla en ég gerði þetta bara.“ Þú veður bara í verkin? „Já, ég byrja bara að moka.“ Elma fór út aðeins með menntaskóla- þýskuna í farteskinu en er orðin reiprennandi í málinu. Dóttirin Ída talar þýsku við foreldra sína þó að þau tali íslensku við hana. „Hún svarar á þýsku þannig að Mikki þarf að bæta við sig þýskutímum svo hann skilji hana,“ segir hún og brosir. Tæmdum íbúðina daglega Eftir mörg ár í vinnu tengdri leikhúsi eru hjónin nú búin að stíga skrefinu lengra. „Við erum bæði búin að færa okkur út í kvik- myndabransann. Heimurinn hefur breyst svo mikið í Covid að við gætum í raun búið hvar sem er í heiminum,“ segir Elma. Hvernig komu kvikmyndatækifærin til þín? „Það hefur alltaf verið minn stóri draumur en leikhúsið tók yfir og gekk vel. En svo kom allt í einu Covid og öllu skellt í lás. Og þá fór ég að spyrja mig, eins og svo margir: hvað er það sem mig langar raunverulega að gera? Það kom allt í einu logn, í miðjum heims- faraldri. Ég var þá búin að fá aðalhlutverk í bíómyndum og sjónvarpsþáttum og ég gat aldrei tvinnað það saman við leikhúsið,“ segir Elma og segist hafa þurft að neita mörgum til- boðum. „Ég sagði svo við leikhússtjórann í Vín að ég væri vissulega þakklát að fá að vera þarna en ef ég fengi gott kvikmyndahlutverk myndi ég segja já við því. Orkan mín tengdi ekki lengur við leikhúsið. Ég var bara búin í þessum leik- húsheimi; mig langaði í meira stuð og mig langaði í meira frelsi,“ segir hún og segist hafa hætt hjá Burgtheater en í raun ekki haft neitt í hendi. Í fyrstu kórónuveirubylgju skrifaði Mikael handrit að mynd sem var „sérsniðin“ fyrir fjöl- skylduna í miðjum heimsfaraldri. „Í bylgju númer tvö skutum við myndina. Hún heitir Dimmalimm á íslensku en Return- ing to Lulu á ensku. Hún er um konu sem kem- ur heim eftir tíu ár á geðsjúkrahúsi. Íbúðin hennar er tóm og hún hefur ekki séð barnið sitt lengi. Hún reynir að vinna úr sorginni,“ segir Elma og segist hafa leikið á íslensku, ensku og þýsku. „Myndin gerist í Vín og við tókum hana upp í íbúðinni okkar í tuttugu daga, en við bjuggum í mjög fallegri íbúð í eins konar höll. Við tæmd- um íbúðina á hverjum degi og skutum svo í tómri íbúðinni. Það var mjög mikið vesen; ég skil ekki eftir á hvernig við gerðum þetta,“ segir hún og hlær. „Mikki var tökumaður, leikstjóri og hand- ritshöfundur og ég lék og dætur okkar líka. Myndin er nú í eftirvinnslu og hefur fengið frá- bærar viðtökur, en Elísabet Ronaldsdóttir er að klippa hana núna. Þetta er pínulítið verk- efni sem heldur áfram að stækka og ég get ekki beðið eftir að hún komi út, vonandi í haust.“ Hef farið í dimman dal Elma segir Mikael hafa sótt innblástur á sög- una af Medeu úr grískri goðafræði, en börn Medeu voru tekin af henni og hún endar á að drepa þau. „Aðalpersónan heitir einmitt Eva Medea en innblásturinn kemur líka frá einangrun, inni- lokun, einmanaleika og þunglyndi. Þetta eru mjög þungar og mannlegar tilfinningar. Þetta er tragedía, en við höfum alltaf haft þörf fyrir sögur sem eru tragedíur, því þær sögur sam- eina okkur. Þegar við heyrum slíkar sögur skiljum við betur og getum betur sett okkur í spor annarra. Samkenndin vex. Þess vegna erum við að þessu,“ segir Elma og segir að þetta hafi verið í fyrsta sinn sem eiginmað- urinn leikstýrir henni. „Það getur alveg tekið á en það var samt mjög gott. Ég treysti honum auðvitað full- komlega. Kostirnir eru þeir að hann þekkir mig best af öllum og veit hvað ég get.“ Nú er þetta mjög dramatískt hlutverk, hvernig var að vera inni í höfðinu á Evu Me- deu í tuttugu daga? „Það var virkilega erfitt. Ég varð svo hrædd. Sem móðir er svo erfitt að leika konu sem hefur misst barnið sitt frá sér, og það helltist stundum yfir mig panik. Þetta tók mikið á, en að sama skapi veit ég að þessi saga er merkileg. Þetta var líka mjög erfiður tími fyrir mig persónulega, að vera í miðjum far- aldri, allt lokað og við í ókunnugu landi. Her- „Þótt ég gráti núna þá græt ég ekki á hverjum degi. En nú vil ég vera óhrædd og stíga inn í óttann og segja frá þessu. Fólk á að passa sig að taka utan um alla sem eiga í hlut,“ segir Elma, sem tvítugri að aldri var kennt um sjálfsvíg kærastans. Ljósmynd/Edda Pétursdóttir VIÐTAL 14 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 23.1. 2022

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.