Morgunblaðið - Sunnudagur - 23.01.2022, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - Sunnudagur - 23.01.2022, Blaðsíða 16
16 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 23.1. 2022 T alsmenn stjórnarandstöðu fundu að því á dögunum að fjármálaráðherr- ann hafi verið í fríi þegar mál sem undir hann heyrðu voru tekin til um- ræðu. Varð ekki betur séð en að þau lægju ljós fyrir. Reyndu fyrrnefndir að gera nokkurt mál úr þessum söknuði, sem bendir til að þeir hafi ekki úr miklu öðru að moða. Alþekkt verklag Frá tíð bréfritara í forsætisráðherrastóli minnist hann þess að fjármálaráðherrar hafi iðulega reynt að finna sér smugu í fáeinar vikur til að taka sér frí í jan- úar. Aðrir ráðherrar sóttust sjaldnast eftir fríi á þeim tíma, ætluðu þeir og áttu inni að hvíla sig með fjöl- skyldu heima eða erlendis. Þeir vildu, eins og flestir, fá að skjótast úr hinu daglega puði þegar veður var haganlegra hannað fyrir stuttbuxur og bol, hvort sem það var heima eða erlendis. En ástæða þessarar sérvisku fjármálaráðherranna var skiljanleg þegar horft var út frá þeirra sjón- arhorni á hverjum tíma. Enginn einn ráðherra hefur verið með annað eins starfsefni mánuðina á undan. Þeir eru á sinni vertíð, og í mokstri. Fyrst við undir- búning fjárlaga, síðan við kynningu þeirra inn á við og tryggja samstöðu og sátt og síðan út á við fyrir al- menning, hagsmunaaðila og stjórnarandstöðu. Og við þau kaflaskil er iðulega farið í þrefalt maraþonþref við að „koma þeim í gegn“. Fjármálaráðherrann, hver sem hann var, á hverjum tíma, komst ekki hjá því að vera nánast orðinn alfræðirit um allt sem að frumvarpinu laut og gat að auki lýst þeim áhrifum sem það myndi hafa eða kynni að hafa, á þróun efna- hagsmála þjóðarbúsins, fjármál heimila og ein- staklinga, stöðu fyrirtækja í landinu og stöðugleika gjaldmiðilsins. Þegar ráðherra víkur frá, og þá ekki síst verði hann staddur erlendis um hríð, er það væntanlega skeið bókað í ríkisstjórn og eins hitt hver samráðherra hans skuli fara með forræði mála hans. Þess er jafnan gætt við þetta mikilvæga formsatriði, að fjarvera af þessu tagi fari ekki á skjön við pólitískt valda- jafnvægi í ríkisstjórn. Þess vegna er reynt að tryggja að flokksbróður eða -systur sé falið að gegna starf- anum meðan á fjarvist stendur. Það gera sér allir þingmenn fulla grein fyrir því, að varaskeifan, þótt góð væri, mun ekki vera með fing- urgómana á öllum fróðleik úr fjármálaráðuneytinu. Geri menn sér leik að því að krefjast umræðu um til- tekið efni, þá verður sá sem gegnir að heyja sér við- bótarfróðleiks. Það er ekki vísbending um að sá sé ekki starfi sínu vaxinn. Þingmenn leitast því við að geyma sér andófið, þar til skipaður ráðherrann er kominn á ný á staðinn og getur staðið fyrir vandaðri umræðu af sinni hálfu. Fordæmin sýna reglu en ekki vanrækslu Í tilvikinu sem hér var undir lágu allar forsendur ljósar fyrir og mátti því lýsa afstöðu sinni til málsins þó að fjármálaráðherra væri aðeins viðstaddur að formi til. Það uppfyllti öll skilyrði. Bréfritari gegndi iðulega starfi fjármálaráðherra fleiri eða færri vikur í janúar. Það var ekki mikil byrði af því, af framangreindum ástæðum. Staðgeng- illinn sást ekki meira en vant er í fjármálaráðuneyt- inu á þeim tíma, en þaðan komu ráðuneytisstjóri eða aðrir lykilstarfsmenn yfir í forsætisráðuneytið ef þurfti, sem var ekki oft, hvort sem það var til að svara fyrir eitthvert mál í þinginu, sem sjaldnast var stórmál, eða undirrita skjöl, bréf eða önnur erindi sem máttu síður eða ekki bíða heimkomu ráðherrans sjálfs. Tilraun til upphlaups á þingi á dögunum vegna nánast hefðbundinnar fjarveru fjármálaráðherra á þessum vikum ársins, fór því fyrir lítið. Og þess má geta í framhjáhlaupi að fjármálaráðherrann var auð- vitað áfram fjármálaráðherra, þótt samráðherra gegndi fyrir hann á heimaslóð, og hann gat því átt það til að svara spurningum fjölmiðlamanna eða ann- arra úr fríi sínu, margverðskulduðu, þótt flestir sæmilegir menn forðuðust að vera með ónot að óþörfu. Varð 130 ára í vikunni Ólafur Thors, forsætisráðherra og formaður Sjálf- stæðisflokksins um langt árabil, var fæddur 19. jan- úar 1892 og hefði því orðið 130 ára í vikunni sem er að líða. Og það gefur gott tilefni til að hugsa til Ólafs, svo merkur þátttakandi sem hann var í íslenskri tilveru, og lét rækilega til sín taka og hafði meiri áhrif en margir ef ekki flestir samferðamenn hans. Ólafur var forsætisráðherra í 9 ár og rúma 8 mánuði á 21 árs timabili. Tvær stjórna hans voru minnihlutastjórnir sem eðli máls samkvæmt stóðu stutt við. Tvær stóðu í annars vegar tæp tvö og hálft ár og hins vegar rúm- lega það. Ólafur stýrði Viðreisnarstjórninni sem hann stofnaði til í rétt fjögur ár, en sú stjórn sat leng- ur en aðrar stjórnir fram að því eða í tólf ár, undir stjórn þriggja formanna Sjálfstæðisflokksins, lengst Bjarna Benediktssonar. Flokkur Ólafs Thors hafði mikið fylgi í tíð hans sem formanns, en brengluð kjördæmaskipan hafði löngum þau áhrif að aflið sem flokkurinn fékk frá kjósendum dugði honum ekki til réttmætra áhrifa á þingi. Elskaður flokksforingi Þótt Ólafur sæti svo lengi sem formaður flokks síns, eða í 27 ár, voru aldrei efasemdir um innan hans að best væri fyrir flokkinn að njóta forystu hans eins lengi og mætti. Ólafur mundi tímana tvenna í ís- lenskri pólitík. Hann var 12 ára gamall þegar Hannes Hafstein varð ráðherra í upphafi heimastjórnar. Hann naut dugandi foreldra og öflugs systkinahóps og samhentra ættmenna. Faðir hans óx af eigin afli og varð fjársterkasti maður landsins um skeið þótt á ýmsu gengi í upphafi þess tímabils. Ólafur tók, ásamt bræðrum sínum, virkan þátt í þeim mikla rekstri, uns stjórnmálin kröfðust allra krafta hans. Í tilefni af aldarafmæli heimastjórnar á Íslandi árið 2004 var gefin út bókin Forsætisráðherrar Íslands í 100 ár og þar, eins og sjálfsögð venja stendur til, er „ráðherrann,“ á meðan hann var einn, talinn til þess hóps. Þar dregur Jakob Ásgeirsson, á þeim fáu síðum sem höfundum hlaut að vera ætlað, upp prýðilega mynd af Ólafi Thors, manneskjunni og stjórnmála- manninum. Þá hófst þingræði á Íslandi, segir Jakob, Það getur stundum verið langt út í næsta hús, en svo gerist eitthvað óvænt ’ Ólafur kom röltandi niður stiga sinn, hnarreistur og brattur, með vindil í hendi í sínu myndarlega húsi og bauð strák inn og tók við bréfinu. Reykjavíkurbréf21.01.22

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.