Morgunblaðið - Sunnudagur - 23.01.2022, Síða 32
SUNNUDAGUR 23. JANÚAR 2022
AVANA model 2570
L 224 cm Leður ct. 15 Verð 539.000,-
L 244 cm Leður ct. 15 Verð 559.000,-
LEUCA model 3186
L 167 cm Leður ct. 15 Verð 389.000,-
L 207 cm Leður ct. 15 Verð 439.000,-
STAN model 3035
L 170 cm Leður ct. 15 Verð 429.000,-
L 206 cm Leður ct. 15 Verð 479.000,-
ESTRO model 3042
L 164cm Leður ct. 25 Verð 439.000,-
L 198 cm Leður ct. 25 Verð 489.000,-
ítölsk hönnun – ítölsk framleiðsla
LEVANTE model 3187
L 204 cm Leður ct. 25 Verð 489.000,-
L 224 cm Leður ct. 25 Verð 509.000,-
CASA býður upp á vaxtalausar raðgreiðslur
(Visa / Euro) í allt að 6 mánuði.
Skeifunni 8 | Sími 588 0640 | casa.is
Opið virka daga 10-18, laugardaga 11-15
„Þetta var eftirminnileg nótt hjá okkur Halestorm-
liðum,“ skrifaði Joe Hottinger, gítarleikari bandsins á
Instagram að morgni fimmtudags. „Við vorum öll á hót-
elherbergjum okkar þegar við vöknuðum við það að rút-
an okkar var að brenna til kaldra kola kl. 3 að nóttu.
Gaman, gaman. En engan sakaði.“
Atvikið átti sér stað í Worcester, Massachusetts, og
Hottinger ber lof á framgöngu slökkviliðs borgarinnar
sem slökkti eldinn með hraði. Þá hafi „hinn óttalausi“ ör-
yggisvörður bandsins, Steve, bjargað því sem bjargað
varð með því að draga hljóðfæri og annað út úr rútunni.
„Við misstum samt dót, en það var bara dót.“
Lzzy Hale, söngkona Halestorm, þakkaði fyrir hlýjar
kveðjur í færslu á Twitter. „Til allrar hamingju svaf eng-
inn í rútunni í nótt. Mér er enn þá brugðið og tilfinning-
arnar flæða í dag. En svo virðist sem veröldin sé ekki bú-
in að fá nóg af okkur enn þá!“
Eldsupptök eru ókunn.
Halestorm-liðar
sluppu með
skrekkinn.
AFP
Rútan ykkar er að brenna!
Engan sakaði þegar eldur kom upp í túrrútu bandarísku rokksveit-
arinnar Halestorm aðfaranótt fimmtudags. Allir gistu á hóteli.
Til átaka kom milli lögreglu og
hóps kommúnista eftir að þeir
síðarnefndu höfðu varnað bæj-
arfulltrúum útgöngu úr Templ-
arahúsinu eftir fund bæjar-
stjórnar Reykjavíkur í janúar
1932. Hafði hópurinn ráðist inn í
fordyri hússins með „ærslum og
gauragangi“, að því er fram kom
í frétt Morgunblaðsins.
„En þeir sem þarna voru, og
fastast fylgja Guðjóni Benedikts-
syni og Brynjólfi Bjarnasyni og
slíkum, tóku saman höndum
þarna í fordyrinu og mynduðu
„bendu“. Er lögreglan bað þá að
fara út, svöruðu kommúnistar
þeirri málaleitun með því að
ráðast á lögregluþjónana.“
Tók lögregla þá fram kylfur
sínar og rak kommúnistana út
úr húsinu. Þegar út var komið
svöruðu kommúnistarnir með
því að henda klakastykkjum inn
um dyrnar og í lögreglu. Mun
einn lögreglumaður hafa fengið
óþyrmilegt högg í höfuðið af
klakastykki og nokkrir komm-
únistar óþægileg kylfuhögg í bak
og brjóst svo þeir voru dasaðir
eftir, kom fram í fréttinni.
Eftir að forstofan hafði verið
rudd gengu bæjarfulltrúar
óhindrað heim en undir fúk-
yrðaflaumi kommúnistanna sem
spöruðu víst ekki gífuryrðin.
GAMLA FRÉTTIN
Kylfur og
klakastykki
Kommúnistum varð klakinn að vopni á ársbyrjun 1942 í glímu við lögreglu.
Morgunblaðið/RAX
ÞRÍFARAR VIKUNNAR
Christy Turlington
módel
Svala Björgvins
söngkona
Alyssa Milano
leikkona og metoo-frömuður