Morgunblaðið - Sunnudagur

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Morgunblaðið - Sunnudagur - 27.02.2022, Qupperneq 2

Morgunblaðið - Sunnudagur - 27.02.2022, Qupperneq 2
Hvað er á döfinni? Við vinirnir, ég og Jón Arnór, verðum með tónleika næstu fimm sunnudaga alveg út mars. Hvernig tónlist spilið þið? Við munum spila frumsamin lög í bland við lög eft- ir aðra og svo verðum við með eitthvað skemmtilegt á milli laga. Ég vil ekki segja of mikið en mögulega kemur litli krúttlegi Jón Arnór töframaður aftur á svið, en hann lenti í öðru sæti í Ísland got talent þegar hann var lít- ill. Hvað eru þið gamlir? Ég er fjórtán og Jón Arnór fimmtán. Við kynntumst í Sönglist fyrir mörgum árum. Ég var þá níu ára og bað hann um að vera vin minn, en við vorum þá mjög feimnir báðir. Við urðum þá vinir og höfum bara átt góðar stundir eftir það. Syngið þið báðir og spilið á hljóðfæri? Við syngjum báðir og Jón Arnór er æðislegur á gít- ar. Ég spila smávegis á munnhörpu. Hljómsveitin okkar varð til síðasta sumar og heitir bara Jón Arnór og Baldur því það var vesen að finna nafn. Voruð þið ekki líka báðir í leiklist? Jú, Jón Arnór var í Kardemommubænum og ég í Níu lífum. Svo vorum við báðir í Matthildi. En nú erum við að einbeita okkur að tónlistinni. Stefnið þið langt í tónlist? Já, við stefnum hátt. Við viljum verða frægir tónlistarmenn sem spila bæði hér á landi og erlendis. Morgunblaðið/Árni Sæberg BALDUR BJÖRN ARNARSSON SITUR FYRIR SVÖRUM Stefnum hátt í tónlist Í FÓKUS 2 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 27.2. 2022 Sími 555 2992 og 698 7999 • Við hárlosi • Mýkir liðina • Betri næringar- upptaka Náttúruolía sem hundar elska Við höfum notað Dog Nikita hundaolíu fyrir hundana okkar í 3 ár og við erum ekkert á því að hætta. Feldurinn á þeim er mjúkur, fallegur og hárlosið á þeim gengur fyrr yfir. Þófarnir eru mjúkir og sléttir en ekki harðir og grófir eins og þeir verða oft.Við mælum með Dog Nikita hundaolíu. Páll Ingi Haraldsson EldurÍs hundar Við mælum með Dog NIKITA hundaolíu NIKITA hundaolía - Selaolía fyrir hunda • Gott við exemi • Betri og sterkari fætur Þ að vefst fyrir sumum hvort tala beri um ríki eða fylki þegar Bandaríkin eru annars vegar. Maður sér alltof oft ranglega farið með þetta í ræðu og riti. Sem sætir tíðindum í ljósi þess að lausnin er alveg ofboðslega nærtæk – felst raunar í nafninu á landinu sjálfu. Kölluðum við þetta fylki á ís- lensku myndi landið væntanlega heita Bandafylkin en ekki Bandaríkin. Þetta er svo sem ekki alvarleg villa, alltént miðað við margt sem maður heyrir og les, jafnvel í fjölmiðlum. Eitthvað segir mér til dæmis að skólar þessa lands þurfi að skerpa á kennslu sinni þegar kemur að notkun orða- tiltækja. Maður er stöðugt að heyra nýjar útgáfur af þeim og fær oftar en ekki hland fyrir nýrun þegar æska þessa lands byrjar að láta vaða á lúðum. Sumir eru iðnari við lopann en aðrir og ættu líklega að herða sultarróluna í stað þess að fara sam- förum enda kjaftar á þeim hver taska. Allra verst er þó að láta etja sér á folaldið. Enda kemur alltaf að sultardögum. Fyrr eða síðar. Um daginn var ég að fletta sjötíu ára gömlum Mogga, eins og menn gera, og rakst þar á frásögn af for- vitnilegum eldhúsdegi Stúdenta- félagsins. Þar voru menningarmál í brennidepli, ekki síst hið ástkæra ylhýra. Hendrik J.S. Ottósson steig meðal annarra í pontu og sagði að menn yrðu að gera sér ljósa grein fyrir því að þróun íslenskrar tungu virtist á vegamótum. Skellti hann skuldinni ekki síst á „klúðursljóð“ þau sem kölluðust atómljóð og varpaði fram þeirri spurningu hvort Egill Skallagrímsson myndi hafa leyst höfuð sitt úr höndum Eiríks konungs, ef kveðið hefði hann atómljóð sér til lífs og lausnar, eins og rifjað var upp á baksíðu Sunnudagsblaðsins fyrir viku. Tóku fleiri undir orð hans. Aðrir andmæltu. Fáir amast við tilvist atóm- ljóðsins í dag. Að því kemur þó sjálfsagt að það fer að þykja gamaldags. Tómas Guðmundsson tók seinastur til máls á téðum fundi og skaut föstum skotum að skólakerfinu: „Það er nefnilega á allra vitorði, að málfræðistaglið og stafsetningarfarganið, sem leyst hefur af hólmi móðurmálskennsluna í skólunum, miðar að því einu að gera æsku landsins ekki aðeins orðlausa og málsljóa, heldur blátt áfram fjandsamlega móðurmálinu.“ Já, lengi hefur verið gengið í skrokk á íslenskunni. Hvar liggja þolmörkin? Hefurðu komið til Bandafylkjanna? Pistill Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is ’ Sumir eru iðnari við lopann en aðrir og ættu líklega að herða sultarróluna í stað þess að fara samförum enda kjaftar á þeim hver taska. Veronika Smáradóttir Já. Ég vel mér einhverja góða, vatnsdeigs. SPURNING DAGSINS Ætlar þú að fá þér bollu um helgina? Úlfar Viktor Björnsson Já, ætli maður borði ekki nokkrar af þessum klassísku gömlu góðu. Sólveig Lilja Gunnarsdóttir Já. Ég ætla að fá mér klassíska vatnsdeigs með súkkulaði, rjóma og sultu. Dagur Axelsson Nei. Mér finnst þær ekki góðar. Ritstjóri Davíð Oddsson Ritstjóri og framkvæmdastjóri Haraldur Johannessen Aðstoðarritstjóri og umsjón Karl Blöndal kbl@mbl.is Prentun Landsprent ehf. Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Útgáfufélag Árvakur hf., Reykjavík. Forsíðumyndina tók Ásdís Ásgeirsdóttir Jón Arnór Pétursson og Baldur Björn Arnarsson halda tónleika í húsi Máls og menn- ingar á Laugavegi á sunnudag klukkan 16 og alla sunnudaga í mars. Miðar fást á tix.is.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.