Morgunblaðið - Sunnudagur - 27.02.2022, Side 4
FRÉTTIR VIKUNNAR
4 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 27.2. 2022
VIÐ ERUMSÉRFRÆÐINGAR Í
MALBIKUN
Við tökum að okkur malbikun á bílastæðum, stígum,
götum og vegum hvar sem þarf að malbika.
tilbod@malbikstodin.is | s. 864 1220 | www.malbikstodin.is
V
ikan hófst með viðeigandi
hætti á appelsínugulri við-
vörun, sem fyrr en varði
breyttist í rauða viðvörun. Slíkar
bárust víðar í heiminum síðar í vik-
unni.
Það var þó ekki eins og borgarbúar
mættu við frekari vetrarveðrum, því
enn var ekki búið að ryðja burtu
snjóum frá veðrinu vikunni áður.
Starfsmenn Vetrarþjónustu Reykja-
víkurborgar kenndu lélegri yfir-
stjórn um að ekkert gengi við snjó-
moksturinn.
Áhyggjurnar beindust þó ekki síður
að auknum hita í alþjóðasam-
skiptum, einkum vegna þróunar
mála í Úkraínu, þar sem óvígur her
Rússa beið við landamærin.
Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfa-
dóttir utanríkisráðherra hélt utan
til öryggisráðstefnu, sem auðvitað
var haldin í München. Það var því
við hæfi að Zelenskíj Úkraínuforseti
sakaði Vesturlönd þar um árangurs-
lausa friðkaupastefnu.
Sumir íslenskir ráðamenn bundu þó
áfram vonir um diplómatíska úr-
lausn deilunnar. Utanríkismála-
nefnd Alþingis fór sér að engu óðs-
lega og efndi til fundar um málið á
miðvikudag, sem var einkar tím-
anlegt og tilgangslaust í senn.
Boðuðum yfirheyrslum lögreglu yfir
fjórum blaðamönnum með stöðu
sakborninga var frestað þar sem
einn þeirra kærði boðunina til hér-
aðsdóms.
Snjóhengja féll úr Hamrinum í
Hveragerði þar sem börn léku á
sleðum, en tíu ára drengur, Bjarki
Þór Davíðsson, varð undir henni.
Arnór Ingi, 14 ára bróðir hans,
sýndi snarræði og bjargaði lífi hans.
. . .
Pútín Rússlandsforseti blés áfram í
glæður ófriðarelda við landamæri
Úkraínu með „viðurkenningu“ á
tveimur héruðum aðskilnaðarsinna,
en Biden Bandaríkjaforseti hótaði
þeim báðum, báðum þessum hér-
uðum í austurhluta Úkraínu sem
sagt, viðskiptaþvingunum. Þar var
vart um annað talað fyrir hádegi.
Á Íslandi dundi hins vegar yfir enn
eitt vont vetrarveðrið, sem setti
samgöngur úr skorðum og olli tjóni
á mannvirkjum og bilunum í raf-
orkudreifingu.
Sveitarfélög á Íslandi verða samtals
rekin með 6,4 milljarða króna halla í
ár, á kosningaári. Tæplega helm-
ingur sveitarfélaga landsins er rek-
inn með halla og skuldahlutfallið í
heildina um 117%.
Blásið var í sönglúðra þegar Jafn-
réttisstofa veitti embætti umboðs-
manns skuldara jafnlaunastaðfest-
ingu, fyrst fyrirtækja og stofnana
hér á landi. Það spillti þó ögn fyrir
að lítið er að marka útreikninginn,
þar sem einungis konur eru að störf-
um hjá embættinu.
Blásið var í bílflautur þegar stjórn-
arfrumvarp um aukið frelsi á leigu-
bílamarkaði var lagt fram þriðja
sinni. Það hefur dagað uppi í nefnd
tvisvar.
Kórónuveirusmit héldu áfram að
greinast í þúsundavís, rétt eins og
þau væru að fara úr tísku, sem síðan
reyndist raunin. Var þó hægagangur
í greiningum Landsspítalans vegna
bilunar.
. . .
Rússar hófu árásir á Úkraínu, en
Katrín Jakobsdóttir forsætisráð-
herra tók af skarið um að Ísland yrði
þátttakandi í þvingunaraðgerðum
Evrópuríkja gagnvart Rússlandi af
þeim völdum. Mikið minna gat það
víst ekki verið.
Mikil óvissa er að öðru leyti um bein
áhrif stríðsins á íslenska atvinnu-
vegi. Úkraína er mikilvægur mark-
aður fyrir sjávarafurðir, en mjög
hefur dregið úr vægi Rússlands eftir
viðskiptaerjur landanna eftir að
Rússland hernam Krímskaga 2014.
Stéttarfélagið Framsýn kvartar
undan því að fjármálaeftirlit Seðla-
bankans hafi hert hæfisskilyrði
stjórnarmanna lífeyrissjóða svo að
þar komi varla nema háskólaborg-
arar til greina óháð reynslu og þekk-
ingu.
Veðrið hélt áfram að hafa áhrif á lífið
í landinu bláa, en það hefur víða haft
áhrif. Þannig hefur það truflað
sjúkraflug, sem er mikilvægur þátt-
ur heilbrigðiskerfisins.
Ríkisendurskoðun telur að fækkun
og samruni ríkisstofnana hafi gefist
vel og kom með ábendingu um að
óhætt ætti að vera að háskólar færu
sömu leið.
Byggðastofnun (sem enn er til!)
ákvað að Íslandspóstur fengi 563
m.kr. í endurgjald vegna alþjónustu
sinnar. Þar er nú mest um að ræða
hin sívinsælu gluggaumslög, sem þó
hefur mikið fækkað.
. . .
Í sama mund og stríðsspennan
magnaðist í Úkraínu nálgaðist
spennufallið á Íslandi þegar sam-
þykkt var af ríkisstjórn að aflétta
öllum sóttvarnaaðgerðum innan-
lands, þar með talið við komuna til
landsins. Hið eina sem aftraði sví-
virðilegu svalli af því tilefni var
fremur nöturlegt veður.
Af því tilefni opnaði ferðaþjónustan
kampavín og vonast til þess að snúa
aflvélar sínar í gang á ný. Um það
kann hins vegar að ríkja meiri óvissa
en ella vegna ófriðarins í Evrópu.
Sömuleiðis fagnaði þingheimur því
að geta loks komið allur saman í
þingsal Alþingis aftur. Hvort þing-
störfin ganga betur fyrir sig á eftir
að koma í ljós.
Norður í landi hófst kærumeðferð
vegna boðunar blaðamanna í yfir-
heyrslur hjá lögreglu. Þá kom á dag-
inn að sakarefnin voru vægast sagt
önnur en þeir höfðu haldið fram.
Dagur B. Eggertsson borgarstjóri
ákvað mjög óvænt að ráðast heiftar-
lega á sjálfstæðismenn fyrir að hafa
tekið algerlega fáránlega ákvörðun
um sölu á hlut borgarinnar í Lands-
virkjun í fyrndinni. Hann hljóðnaði
þegar minnt var á að hann hefði
sjálfur barist ákaft fyrir sölunni.
Lægðagangurinn að undanförnu
hefur verið mikill eins og sést á því
að heildartjón af hans völdum er
talinn nema hundruðum milljóna
króna úr kistum tryggingafélaga.
Sorpa og Góði hirðirinn eiga að
flytjast í hús Kassagerðarinnar við
Köllunarklettsveg, en þar á víst
einnig að spretta upp sjálfbærni-
klasi.
Fregnir af annarri endurnýtingu
skutu vafalaust einhverjum skelk í
bringu, þegar sagt var frá áformum
um byggingu bálstofu „fyrir alla
landsmenn“. Þar mun þó ekki
standa til að brenna þá alla í einu.
Það hljóp á snærið hjá loðnusjó-
mönnum, því Norðmenn náðu ekki
að veiða um 50 þúsund tonn af sín-
um loðnukvóta, sem því fellur Ís-
lendingum í skaut. En hann er
óveiddur enn.
Hallgrímur Jónsson, fv. yfirlög-
regluþjónn og íþróttakappi, lést 94
ára að aldri.
. . .
Mikillar ánægju gætti með afnám
samkomutakmarkana og tók
miðasala á alls kyns viðburði þegar
við sér og skemmtistaðir bíða
gljáfægðir eftir galeiðuþrælum
sínum.
Minni ánægju gætti með að Rússar
hófu ólöglega innrás sína í Úkraínu
af fullum þunga og var henni and-
æft af flestu málsmetandi fólki.
Ekki þó alveg öllu.
Ekki stóð á viðbrögðum Vestur-
landa, sem virtust um hríð ætla að
gersigra Rússa á Twitter en brugðu
síðan mörg á það ráð að lýsa upp
ýmsar stjórnarbyggingar í höfuð-
borgum sínum í úkraínsku fánalit-
unum, en við því átti Pútín ekkert
svar.
Rothöggið á Rússa kom skömmu
síðar þegar ákveðið var að vísa
Rússlandi úr söngvakeppni Evró-
sjón í ár. Hernám Úkraínu gengur
að vísu áfram næsta óhindrað fyrir
sig, en Pútín hlýtur að taka þessi
„nul points“ nærri sér.
Á Íslandi hélt veðrið áfram að vera
ömurlegt og veirusmit áfram í
hæstu hæðum.
Fyrsti framboðslistinn fyrir sveitar-
stjórnarkosningarnar í vor var
kynntur, en það gerðu sjálfstæðis-
menn í Norðurþingi. Hann leiðir
Hafrún Olgeirsdóttir, en hún og
félagar hennar úr E-listanum gengu
til liðs við D-lista sjálfstæðismanna.
Það var þó árangursrík friðar-
viðleitni vikunnar.
Það er
stríð
Harmi lostinn maður grúfir sig yfir lík ættingja, sem féll þegar rússneskar hersveitir gerðu árás á blokk í Chuguiv, bæ á
stærð við Hafnarfjörð skammt frá héraðshöfuðborginni Kharkiv, um klukkustundar leið frá rússnesku landamærunum.
AFP
20.2.-25.2.
Andrés Magnússon
andres@mbl.is