Morgunblaðið - Sunnudagur - 27.02.2022, Síða 14

Morgunblaðið - Sunnudagur - 27.02.2022, Síða 14
VIÐTAL 14 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 27.2. 2022 Þ eir voru ansi háværir litlu sætu hundarnir hennar Gerðar Huldar Arinbjarnardóttur þegar blaða- mann bar að garði. Tveir hvítir hrokkinhærðir smáhundar, annar með gosbrunn í hárinu, vildu taka gestinn út áður en þeir sættu sig við þessa innrás. Eftir að hafa gengið úr skugga um að þarna væri ekki óvinur á ferð datt allt í dúnalogn. Út um gluggann blasti við snjóhvítt og friðsælt lands- lag svo langt sem augað eygði. Vel sást út á Vífilsstaðavatn og mun lengra; alla leið út á Reykjanesið. Keilir blasti við og það stirndi á hvítan fjallstoppinn. Áður en við byrjum spjall um lífið og við- skiptin dáumst við saman að útsýninu á þess- um fagra vetrardegi. Gerður hefur komið sér vel fyrir í grænum sófa. Hún er í þægilegum fötum, ómáluð með hárið í hnút. Við höfum nóg að tala um, en Gerður, sem kennd er við fyrir- tækið sitt Blush, var valin markaðsmanneskja ársins 2021, yngst kvenna til að hljóta þann tit- il. Hún segist vera hissa, ánægð og þakklát. Að hafa fyrir hlutunum Í húsinu hennar Gerðar er afar smekklegt; allt á sínum stað og greinilegt að nostrað hefur verið við hvert horn. Gerður hefur búið nánast á sama bletti alla sína ævi. „Ég er alin upp í Kópavogi, reyndar í þessu húsi! Mamma og pabbi byggðu húsið, en höfðu áður byggt annað hús hér í götunni. Ég keypti svo hluta þess fyrir fjórum árum og pabbi býr á neðri hæðinni og mamma hér rétt hjá,“ segir Gerður og segir það afar þægilegt að hafa for- eldrana svona nálægt. „Ég er langyngst af þremur systrum en mamma og pabbi voru bara sextán og sautján ára þegar þau eignuðust systur mínar,“ segir Gerður en hún er tíu og ellefu árum yngri en þær og tekur fram hlæjandi að hún sé sú eina sem hafi verið plönuð. Gerður segist alltaf hafa verið dugleg, allt frá æsku. „Ég byrjaði fjórtán ára að vinna í matvöru- versluninni Spar og man að ég bað pabba að tala við eigandann, sem hann þekkti eitthvað, til að biðja um vinnu fyrir mig. Pabbi sagði mér bara að sækja sjálf um sem ég gerði. Ég fékk vinnuna og það var vegna þess að ég sótti sjálf um en sendi ekki pabba. Þetta kenndi mér strax að ég gæti staðið á eigin fótum. Ég hef alltaf þurft að hafa fyrir hlutunum, þó ég hafi góðan stuðning frá foreldrum mínum,“ segir Gerður, en faðir hennar, Arinbjörn Snorrason, er lögreglumaður og pípari og móðir hennar, Friðný Möller, er sjúkraliði aldraðra. „Ég þekki fáa sem vinna jafn mikið og for- eldrar mínir, sérstaklega pabbi. Mér fannst sjálfri svo skrítið þegar ég fór „bara“ að vinna við Blush, sitjandi heima allan daginn við tölvu,“ segir Gerður sem hefur aldrei hlíft sér við vinnu. Mér leiðist aldrei Gerði gekk alltaf illa í skóla enda segir hún alveg ljóst að hún sé mjög lesblind. „Ég fékk fimm á öllum samræmdu próf- unum, reyndar 4,5 í ensku. Ég er rosalega les- blind og var komin á fermingaraldur þegar ég gat skrifað Arinbjarnardóttir. Enn í dag á ég erfitt með að skrifa einfalda hluti en er ótrú- lega heppin að maðurinn minn er sleipur í ís- lensku og hjálpar mér mikið. Ég rugla öllum stöfum saman og les oft eitthvað allt annað en það sem stendur. Um daginn las ég frétt um að Icelandair væri að fara að fljúga til Norður- Kóreu og var alveg steinhissa. Ég kallaði í manninn minn og sagði honum þetta alveg í sjokki. Ég var margbúin að lesa þetta til að vera viss. En þarna stóð víst að þeir væru að fljúga til Norður-Karólínu,“ segir hún og hlær. „Þetta háir mér mjög mikið. Ég fór aldrei í neina greiningu sem barn en var alltaf í sér- kennslu og var í C-bekk, sem var bekkur sem fór hægferð,“ segir Gerður og segist hafa byrj- að í menntaskóla en hætt, enda gekk henni ekki vel. Þaðan lá leiðin í hárgreiðslunám. „Ég fór að vinna við það en hafði ekki alveg nógu mikinn áhuga. Nítján ára fór ég í Hrað- braut og gekk furðuvel en varð svo ólétt og hætti,“ segir Gerður, en sonur hennar, Hektor Elí, er tólf ára. „Ég og barnsfaðir minn skildum frekar fljótt og var ég því einstæð móðir 21 árs með tveggja ára barn. Það var mjög erfitt, ekki síst fjárhagslega,“ segir Gerður en núverandi mað- ur hennar er Jakob Fannar Hansen, flug- maður að mennt, en vinnur nú við hlið Gerðar í fyrirtækinu. „Hann var að vinna hjá Wow en missti svo vinnuna og við ákváðum að prófa að hann kæmi að vinna hjá Blush þar til flugið færi aft- ur í gang. En svo langar engan að hann fari og hann ekki heldur,“ segir Gerður og brosir. Hún segir ekki erfitt að vinna með maka sín- um. „Alls ekki. Þetta er besta ákvörðun sem við höfum tekið. Hann er einstakt eintak, rólegur og þægilegur. Svo erum við alveg sitt á hvor- um enda fyrirtækisins þannig að oft hittumst við ekkert allan daginn. Hann er mikið að vinna á lager og á ferðinni á meðan ég er alltaf heima að vinna,“ segir Gerður sem segist njóta þess að vinna heima. „Það kannski kemur mörgum á óvart en ég er mikill „introvert“. Ég elska að eiga rólegt heimili,“ segir Gerður. „Ég nærist á því að vera ein og mér leiðist aldrei. Ég er mjög skapandi í hugsun og elska að horfa hér út um gluggann og fá nýjar hug- myndir.“ Við stundum jú öll kynlíf Fyrirtækið Blush var stofnað 2011 og gengur nú afar vel en Gerður lætur ekki staðar numið við innflutning hjálpartækja ástarlífsins því hún er sjálf að hanna sína eigin línu undir nafninu Reset. „Ég elska að hanna nýjar vörur og hafa fjór- ar þeirra komið út nýlega og von er á þremur næsta sumar. Línan er hugsuð fyrir Evrópu- markað en við erum byrjuð að selja hérlendis og hefur það gengið alveg fáránlega vel. Pæl- ingin með Reset er sú að þú ert að endurstilla orkuna þína þegar þú stundar kynlíf eða sjálfsfróun,“ segir Gerður og nefnir að nýju Reset-vörurnar séu í dag þær vinsælustu í versluninni. Hvernig byrjaði þetta allt saman? „Ég byrjaði rúmlega tvítug að hugsa um að mig langaði að stofna mitt eigið fyrirtæki. Ég var ekki með neina hugmynd en langaði að flytja eitthvað inn. Einn daginn kemur til mín vinkona sem segist vilja sýna mér dálítið sem hún hafði verið að kaupa sér. Hún hleypur inn í herbergi og kemur til baka með eitthvað í hendinni og sýnir mér. Ég spyr hvað þetta sé og hún svarar að þetta sé egg. Ég sagði: „Ertu að sýna mér kynlífstækið þitt?“ Mér fannst þetta bara ógeðslegt. Hver gerir svona? En á sama tíma sá ég hvað þetta var fallegt; þetta var egg sem var með gyllingu og allt annað en þetta snúruegg sem ég átti,“ segir Gerður og segist hafa orðið forvitin. „Ég fór í verslun hér á höfuðborgarsvæðinu til að kaupa svona og á móti mér tekur fullorð- inn karlmaður og ég man hvað mér fannst það óþægilegt. Þarna voru klámmyndir út um allt og vörur þarna með myndum af klám- stjörnum. Ég tengdi ekkert við þetta og fannst ég smá skítug að hafa farið þarna inn,“ segir hún og segist hafa farið þaðan út með það í huga að panta þessa vöru frekar á netinu. „Nema hvað, þá sendu þeir ekki til Íslands. Ég fór neðst á síðuna og fann þar sem stóð „shipping“, klikkaði á það og valdi Ísland. Þá stóð að hér væri enginn með umboðið og svo var spurt hvort maður vildi gerast umboðs- maður vörunnar. Ég og vinkona mín horfðum hvor á aðra og bara, já já! Við byrjuðum því tvær, ég og Rakel Ósk Orradóttir, með Blush. Ég fékk tvö hundruð þúsund krónur lánaðar hjá pabba til að kaupa kynlífstæki og boltinn fór að rúlla.“ Hvað sagði pabbi þinn þegar þú baðst um lán fyrir kynlífstækjum? „Hann sagði já, ótrúlegt en satt. Ég sagði honum að ég vildi stofna fyrirtæki og á þessum tíma hafði pabbi smá áhyggjur af mér. Ég var atvinnulaus, nýbúin að eignast barn og búin að flosna upp úr skóla. Hann spurði mig hvernig fyrirtæki ég vildi stofna og ég man að það var ekki auðvelt að koma orðunum út úr mér. Ég muldraði: „kynlífstækjafyrirtæki“. Hann sagði margt vitlausara en það; við stundum jú öll kynlíf,“ segir Gerður sem fékk lánið. „Mamma var svo fyrsti viðskiptavinur minn. Þannig að mamma og pabbi sýndu mér strax mikinn stuðning.“ Skortur á sjálfstrausti Gerður og Rakel byrjuðu með heimakynn- ingar þar sem þær kynntu vörur sínar. „Þetta var mikið hark. Við vorum að auglýsa á Facebook og „múta“ vinkonum okkar til að halda kynningar. Þetta var eins og dýrt áhuga- mál; við gátum ekkert borgað okkur laun. Rakel fór svo út úr fyrirtækinu eftir eitt, eitt og hálft ár,“ segir Gerður og segist hafa verið í öðrum störfum til að afla sér tekna. „Ég var lengi hjá Hópkaup og svo hjá K100 í sölumálum og var þar í fullu starfi. Svo var ég að selja Saladmaster-potta á virkum kvöldum og með heimakynningar Blush um helgar. Svo vann ég líka við það að elda allar máltíðir fyrir einn mann, hádegis- og kvöldmat. Og ég var með lítið barn. Ég vildi svo mikið láta þetta ganga,“ segir Gerður og átti að vonum ekki mikinn frítíma. „Blush varð ekki til óvart eða fyrir heppni. Ég þurfti að hafa mikið fyrir þessu og þetta hefur verið blóð, sviti og tár. Og mikil fórn. Ég var allar helgar að vinna í staðinn fyrir að geta verið með barninu mínu,“ segir Gerður og seg- ir að fyrstu tvö, þrjú árin hafi gróðinn verið enginn. Hafðir þú strax einhverja sýn? „Já, ég var með mjög skýra stefnu og sýn fyrir Blush og vissi að hugmyndin væri frá- bær. Ég vissi að hugmyndin gæti breytt við- horfi Íslendinga til kynlífstækja. Það hafði enginn gert þetta eins og ég. En vandamálið var að ég hafði kannski ekki nógu mikla trú á sjálfri mér; að ég væri rétta manneskjan til að leysa þetta verkefni,“ segir Gerður. „Skortur á sjálfstrausti til að vera nógu hug- rökk var vandamálið og síðustu árin hef ég unnið mikið í sjálfri mér til að öðlast sjálfs- traust, hugrekki og þolinmæði.“ Ekki eitthvað dónalegt Hver var þín sýn og hvernig átti búðin þín að vera öðruvísi? „Markmið mitt var að færa kynlífstæki frá klámi yfir í kynheilbrigði. Ég vildi opna um- ræðuna um að þetta sé ekki eitthvað dónalegt. Það eiga allir rétt á því að upplifa fullnægjandi kynlíf. Því miður er það þannig að margar kon- ur, eða einstaklingar með píku, eiga ofboðslega erfitt með að fá fullnægingu, í samanburði við karlmenn eða einstaklinga með typpi. Við er- um ekki að spila sama leikinn. Meðalkona er fimmtán til tuttugu mínútur að fá fullnægingu en karlmenn tvær til þrjár mínútur. Þetta er eins og að annar sé að keppa í handbolta en hinn í fótbolta,“ segir Gerður og segist oft fá í búðina konur sem segjast aldrei hafa fengið fullnægingu. „Það gerist nánast daglega. Starfsfólkið í versluninni fær oft að vita mikið um við- skiptavinina og við bjóðum upp á faglega þjón- ustu og ráðgjöf,“ segir Gerður og segir þrettán manns vinna í fyrirtækinu í fullu starfi. „Búðin er aldrei tóm nema þegar það er vont veður,“ segir hún og brosir. „Ertu að sýna mér kynlífstækið þitt?“ Gerður Huld Arinbjarnardóttir hefur selt landanum kynlífstæki fyrir marga milljarða. Hún rekur Blush, vinsælustu kynlífstækjaverslun landins, sem vex með hverju ári. Gerður var valin markaðs- manneskja ársins 2021 og hyggst halda ótrauð áfram enda uppfull af nýjum hugmyndum. Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is „Ég vissi að hugmyndin gæti breytt viðhorfi Íslendinga til kynlífstækja. Það hafði enginn gert þetta eins og ég. En vandamálið var að ég hafði kannski ekki nógu mikla trú á sjálfri mér,“ segir Gerður í Blush.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.