Morgunblaðið - Sunnudagur

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Morgunblaðið - Sunnudagur - 27.02.2022, Qupperneq 17

Morgunblaðið - Sunnudagur - 27.02.2022, Qupperneq 17
er ráðlagt að lesa þessa athyglisverðu grein sem hér var vitnað til. Þar er meðal annars farið yfir að Pútín mun fljótlega hafa mikinn og ómældan hag af ólög- mætri yfirtöku sinni á gæðum og eignum síns illa svikna nágranna. Mun allt það og fleira til bæta margfalt það sem „efnahagslegum refsingunum“ er í orði kveðnu ætlað að gera. Margt er skrítið í kýrhaus og víða Í greininni segir einnig að umræður og deilur bresks þingheims um hvort væri betra að gera aðeins fleiri rússneskum ríkisbubbum óþægindi í refsiaðgerð- unum eða þrengja aðgengi þeirra að „City“ hafi stappað nærri því að hljóma eins og hreinn skrípa- leikur: Bretar setja upp umræðu, hver við annan, í einhvers konar leikhúsi fáránleikans, þar sem magn- þrunginn misskilningur á hráskinnaleik alþjóðlegs fjár- og stjórnmálakerfis og hvaða lögmál gilda þar og hvernig ímyndunarafl þeirra, sem hvorki vita upp né niður, leggur til heimatilbúnar refsingar, í þeirri öruggu vissu sinni að þetta smælkið eða hitt muni næstum örugglega verða til þess að Pútín muni snar- lega hætta við að leggja undir sig Úkraínu. Þeir sem fylgjast með sumum þáttum þingstarfa hér, eins og þau hafa þróast, eru líklegir til að benda á að óþarft sé að draga úr getu Pírata til að leysa þau fjölmörgu mál sem þeir og fleiri hafa minnsta vit á, og er reyndar þar ótæmandi sjóður á ferð og ber að þakka fórnfúst starf þeirra. Galopin spurning En eftir stendur alvarleg spurning til íslenskra stjórnmálamanna: Hvers vegna í ósköpunum hvarf ekki Ísland frá ónýtum refsisýndarskap strax árið 2015 þegar ríkið, sem ræður Evrópusambandinu, hafði tilkynnt í verki að aðgerðunum væri hætt? Ber að skilja það svo að Ísland eitt sé að reyna að toga Krímskaga úr krumlu Pútíns? Það hlýtur að þýða að Ísland hafi fundið upp eilífðarvélina. En ef svo er ekki, hver eru þá tímamörkin? Morgunblaðið/Kristinn Magnússon ’ Á því augnabliki sem Pútín hefur náð fullri stjórn á Úkraínu verður gasleiðslan fræga, „Nord Stream 2“, að hreinu auka- atriði. Skiptir leiðslan eiginlega engu eftir það, segir Pritchard og gerir glögga grein fyr- ir ástæðum þess. 27.2. 2022 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.