Morgunblaðið - Sunnudagur - 27.02.2022, Síða 18

Morgunblaðið - Sunnudagur - 27.02.2022, Síða 18
Þ að er aldrei of seint að láta drauma sína rætast eða taka nýja stefnu í lífinu á miðjum aldri. Það hefur lögreglufulltrúinn Ragnar Jóns- son sannarlega gert undanfarin ár en hann hefur verið að færa sig hægt og rólega út á braut kvikmynda, heimildarmynda og glæpasería sem ráðgjafi, framleiðandi eða handritshöfundur. Jafnvel má sjá honum bregða fyrir á skjánum í minni hlutverkum. Ragnar er þó langt frá því hættur að sinna vinnu sinni sem lögreglufulltrúi en hann er einn tveggja blóðferlasérfræðinga landsins og þarf oft að fara á vettvang morða, sjálfsvíga og slysa. Önnur hlið mannlífsins Ragnar byrjaði í lögreglunni árið 1990 og í tæknideildinni árið 2001 og á því að baki yfir þriggja áratuga feril hjá lögreglunni en hann fetaði „óvart“ í fótspor föður síns, lögreglu- mannsins Jóns Péturssonar í Stykkishólmi, nokkuð sem hafði ekki verið á dagskrá. „Ég held að pabba hafi þótt nóg um en þeg- ar ég var í Versló gerði ég margt annað en að kíkja í námsbækur og hann vildi skóla strákinn aðeins til og sýna honum að lífið væri ekki bara dans á rósum,“ segir Ragnar sem fékk þá sum- arstarf í lögreglunni. „Þá kynntist ég annarri hlið mannlífsins. Ég vann svo hjá herrafataverslun þann vetur en fann að hitt togaði í mig, þetta ákveðna frelsi að vera í bíl að keyra um og að vita aldrei hvað dagurinn byði upp á. Maður var líka ungur og spennusækinn á þeim tíma, en þetta var hörku skóli,“ segir Ragnar en um aldamótin kviknaði áhuginn á blóðferlafræðum. „Ég var þá í Bandaríkjunum að stúdera dauða- og sálarrannsóknir og í einum tímanum talaði kennarinn um „blood stain pattern ana- lysis“ og sagði að blóð gæti sagt okkur hvað gerðist, hvernig það gerðist og hvað gerðist ekki. Mér fannst þetta svo mikil áskorun og ólíkt því sem ég hafði kynnst þegar ég var að yfirheyra fólk. Þarna voru ummerkin að tala við mig. Ég fór svo aftur til Bandaríkjanna í grunnnám í þessu og seinna til Norður- landanna og Hollands,“ segir hann og segist hafa í leiðinni kynnst mörgum erlendum blóð- ferlasérfræðingum sem komið hafa að stórum málum. Ragnar hefur setið í stjórn norrænna blóðferlasérfræðinga frá árinu 2005. Hjá tæknideild lögreglunnar er rannsókn- arstofa þar sem unnið er úr gögnum af vett- vangi afbrota og slysa. „Við skoðum öll andlát utan spítala, þar á meðal sjálfsvíg. Svo förum við í vettvangsrann- sóknir. Þegar alvarleg slys verða erum við kvaddir til og skoðum þá allt, tökum ljós- myndir og söfnum sýnum. Við störfum fyrir allt landið,“ segir Ragnar og segir ekki alla daga vera spennandi. „Dagsdaglega erum við að vinna í skýrslum, að skrifa um rannsóknir okkar,“ segir hann og nefnir að sá hluti vinnunnar sjáist aldrei í bíó- myndunum. „Það er ekkert sérstaklega sexí að sýna langar senur um löggur í skýrslugerð,“ segir hann og hlær. Mál sem halda fyrir manni vöku Líkist starf þitt því sem sést í þáttum á borð við CSI, Dexter og NCIS? „Að einhverju leyti má segja það. Við förum að safna upplýsingum en í þessum amerísku þáttum lenda þau alltaf í einhverjum svaka hasar líka. Þegar við komum á staðina eru lög- reglumenn komnir á undan og búnir að tryggja vettvanginn,“ segir Ragnar og nefnir að mikil þróun hafi átt sér stað í notkun DNA- sýna sem eru í dag mjög nákvæm. „Vettvangur þarf alltaf að vera tryggilega öruggur og ef enginn hefur gengið þar um get- um við fundið ýmislegt,“ segir Ragnar og segir þau hjá tæknideildinni nota ákveðin tæki og vökva sem nefnist lúminol til að sjá blóðbletti sem hafa verið þvegnir í burtu. „Lúminol er sjálflýsandi þegar það kemst í snertingu við blóð. Þetta hefur nýst okkur í al- varlegustu málunum, eins og morðmálum síð- ustu tuttugu ára. Tæknideildin á alltaf aðkomu að slíku og ef við komumst ekki á vettvang söfnum við sýnum í krufningu,“ segir hann og segir að í þeim málum þar sem sakborningar séu ekki samstarfsfúsir, reyni mikið á sönn- unargögnin af vettvangi. Ragnar segir að mörg málanna taki á sig andlega, enda sér hann oft afleiðingar harm- leikja eða skelfilegra voðaverka. „Vissulega eru mál sem sitja í kollinum og maður vildi vera laus við þær myndir. En styrkur deildarinnar er mikill og við ræðum mikið saman. Ef maður veit að maður hefur gert sitt besta, getur maður farið sáttur að Ég er kominn á bragðið Ragnar Jónsson, lögreglufulltrúi hjá tæknideild lögreglunnar, blóðferlasérfræðingur og nú handritshöfundur glæpaþátta hefur lært að fresta aldrei hlutum því enginn veit hvað morgundagurinn ber í skauti sér. Hann er einn handrits- höfunda Svörtu sanda sem nú eru að gera það gott úti í heimi. Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is „Ég held ég hætti ekkert að skrifa hvað sem svo verður úr því. Það er alla vega hugarró fyrir mig að skrifa og ég er með helling af hugmyndum í kollinum. Ég er kominn á bragðið,“ segir Ragnar Jónsson lögreglufulltrúi og handritshöfundur. Morgunblaðið/Ásdís 18 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 27.2. 2022 SAKAMÁL

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.