Morgunblaðið - Sunnudagur - 27.02.2022, Síða 22
E
ins og svo margt annað þá á ást-
in sér ártal. Og árstíð. Sumarið
1967. Á að giska eitt hundrað
þúsund manns, mestmegnist ungir
hippar, lögðu þá Haight-Ashbury-
hverfið í San Francisco undir sig;
nutu frjálsra ásta, böðuðu sig í blóm-
um, neyttu hugbreytandi efna, and-
æfðu stríði og umfram allt – hlustuðu í
andakt á framsækna tónlist. Aldan
breiddi úr sér með hraði á vestur-
strönd Bandaríkjanna og á endanum
alla leið til New York í austri og víðar
um heim. Þetta var sumar sem enginn
sem upplifði gleymdi eða mun nokk-
urn tíma gleyma og við hin erum enn
að tala um – 55 árum síðar.
Margir voru kallaðir á sviði tón-
listarinnar enda gróskan í sýrurokk-
inu mikil og mönnum lá meira en
nokkru sinni á hjarta. Á engan er þó
líklega hallað þó fullyrt sé að eitt lag
standi upp úr – A Whiter Shade of
Pale með breska proggbandinu Pro-
col Harum. Það var sem talað inn í
þennan tíðaranda og smaug á
leifturhraða inn að beini. Allt í lagi,
Bítlavinir, St. Pepper’s var plata
þessa árs en A Whiter Shade of Pale
lagið. Við ættum að geta sæst á það!
Lagið kom út 12. maí 1967 og varð
langvinsælasta lag Procol Harum og
raunar eitt vinælasta lag sögunnar;
A Whiter Shade of Pale hefur selst í
yfir tíu milljónum eintaka á heims-
vísu og verið endurgert af yfir eitt
þúsund öðrum listamönnum, svo vit-
að sé. Árið 2004 hlaut lagið viður-
kenningu sem mest spilaða lagið í
bresku útvarpi næstu sjö áratugina
á undan. Já, við erum að tala um
réttnefnda rokkklassík.
Söngvarinn sem flutti lagið og
samdi það ásamt öðrum, Gary
Brooker, lést á dögunum, 76 ára að
aldri eftir snerru við krabbamein.
Kannski ekki þekktasta nafnið í
bransanum enda var víða talað um
„söngvara Procol Harum“ í andláts-
fréttum en áhrif og arfleifð Brookers
eru eigi að síður ótvíræð í rokksög-
unni. Þó ekki nema væri fyrir þenn-
an risasmell sem hver kynslóðin af
annarri tekur opnum örmum.
Blúsuð og seiðandi röddin og trega-
fullur og melankólískur söngstíll
Brookers féllu eins og flís við rass að
A Whiter Shade of Pale sem annars
var borið uppi af áleitnu orgelstefi.
Brooker sagði á sinni tíð að hann hefði
samið lagið undir sterkum áhrifum frá
meistara Jóhanni Sebastian Bach,
nánar tiltekið túlkun Jacques Lous-
siers á Air sem finna má í svítu nr. 3 í
D-dúr BWV 1069. Brooker hafði
heyrt verkið leikið undir vindlaauglýs-
ingu í sjónvarpinu og þótti mikið til
þess koma þegar roskinn píanókenn-
ari kveikir sér í voldugum vindli og
blæs reyknum tignarlega frá sér. „Þá
varð allt eitursvalt,“ hefur breska
blaðið The Guardian eftir honum.
Tapaði dómsmáli
Upphaflega kom fram að Brooker
hefði samið lagið einn og óstuddur við
texta Keiths Reids en hammond-
orgelleikari Procol Harum, Matthew
Fisher, höfðaði mál tæpum 40 árum
síðar og krafðist þess að vera skráður
meðhöfundur. Hann hafði erindi sem
erfiði og var dæmd 40% hlutdeild í
stefgjöldunum en þó aðeins frá og með
árinu 2006.
A Whiter Shade of Pale kom sér
makindalega fyrir á toppi ástralska,
kanadíska og breska vinsældalistans,
þar sem það sat í sex vikur, og náði
hæst í fimmta sæti í Bandaríkjunum,
þrátt fyrir lágmarkslobbíisma. Það
var langstærsti smellur Procol Har-
um og eina topplag bandsins.
Brooker var hrærður yfir vinsæld-
um lagsins. „Því fer víðsfjarri að ég
hafi ímyndað mér þetta þegar ég
samdi lagið og gerði þessa goðsagna-
kenndu upptöku með Procol Harum
fyrir öllum þessum árum,“ hefur AFP-
fréttaveitan eftir honum. „Alla tónlist-
armenn og söngvara dreymir um að
teygja sig út til fjöldans, þannig að það
hefur djúpstæða merkingu fyrir mig
að lagið hafi náð þessum vinsældum og
höfði enn þá sterkt til fólks í dag.“
Textinn þykir um margt óræður og
hafa margir sökkt sér niður í hann
gegnum árin. Fyrir liggur að Reid
fékk hugmyndina í samkvæmi þar
sem sagt við konu nokkra: „You’ve
turned a whiter shade of pale“. Í bók
sinni Procol Harum: Beyond the Pale
heldur rithöfundurinn Claes Johan-
sen því fram að textinn fjalli um sam-
skipti karls og konu sem ljúki með
kynferðislegri athöfn. Fleiri hafa tek-
ið undir þetta og bætt við að víma og
jafnvel einhver bolabrögð komi við
sögu. Sjálfur hafnaði Reid því í viðtali
við tímaritið Uncut árið 2008. Hann
hafi aðeins verið að draga upp mynd
af sambandi karls og konu. „Vera má
að senan sem ég lýsi virðist smánar-
leg. En ég var of ungur til að hafa
upplifað neitt slíkt á þessum tíma. Ég
gæti hafa verið að reykja þegar ég
fékk hugmyndina en ekki þegar ég
skrifaði textann. Ég var undir áhrif-
um bóka en ekki fíkniefna.“
Fyrsta breiðskífa Procol Harum
kom út haustið 1967 og A Whiter
Shade of Pale var hvergi að finna á
bresku útgáfunni en hins vegar þeirri
sem gerð var fyrir Bandaríkjamarkað.
Procol Harum lagði upp laupana
1977 en kom aftur saman 1991. Sein-
ustu tónleikar bandsins fóru fram
rétt áður en heimsfaraldurinn brast
á. Brooker var alla tíð þungamiðja
bandsins sem gekk gegnum miklar
mannabreytingar um tíðina.
Missti föður sinn ungur
Gary Brooker fæddist í Lundúnum
29. maí 1945. Faðir hans var tónlist-
armaður og lærði Brooker ungur að
leika á píanó og fleiri hljóðfæri.
Hann ólst upp við gott atlæti fyrstu
árin en þegar hann var aðeins 11 ára
dró ský fyrir sólu; faðir hans varð
bráðkvaddur. Það þýddi að móðir
hans þurfti að leggja meira á sig til
að ná endum saman og Brooker
sjálfur að taka að sér blaðburð.
Hann hóf háskólanám í dýra- og
grasafræði en lauk ekki prófi, heldur
sneri sér alfarið að tónlistinni. Brook-
er lét fyrst að sér kveða með bítband-
inu The Paramounts snemma á sjö-
unda áratugnum sem meðal annars
kom fram með The Rolling Stones.
Procol Harum varð til árið 1966 en
Brooker stofnaði bandið ásamt félaga
sínum, fyrrnefndum Keith Reid.
Síðar starfaði Brooker með mörg-
um málsmetandi tónlistarmönnum.
Hann lék, söng og samdi fyrir hljóm-
sveit Erics Claptons og vann með
Bill Wyman úr The Rolling Stones.
Þá túraði hann með bandinu hans
Ringos Starrs og lagði bæði Paul
McCartney og George Harrison lið í
einherjaverkefnum þeirra.
Eiginkona Brookers til áratuga
var hin svissneska Françoise Riedo
en þau kynntust meðan hún var au
pair í Bretlandi. Þeim varð ekki
barna auðið.
… að skugga skaltu aftur verða
Gary Brooker, söngvari
breska proggbandsins
Procol Harum, lést á
dögunum, 76 ára að
aldri. Hans er fyrst og
síðast minnst fyrir einn
af erkismellum rokk-
sögunnar, A Whiter
Shade of Pale.
Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is
Smáskífa A Whiter Shade of Pale.
’
Því fer víðsfjarri að ég
hafi ímyndað mér
þetta þegar ég samdi lag-
ið og gerði þessa goð-
sagnakenndu upptöku
með Procol Harum fyrir
öllum þessum árum.
AFP
Gary Brooker naut virð-
ingar í bransanum og vann
með mörgum goðsögnum.
22 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 27.2. 2022
MINNING
Miklu meira, en bara ódýrt
Hálkubroddar
895
Snjósköfur
Verð frá
kr. 1.495
Bílrúðu-
sköfur
Verð frá
kr. 395
Rassaþotur
495
Dráttartóg
2tonn 4m
2.485
Rúðuvökvi
995
Smáratorgi 1, 201 Kóp., s. 588 6090, vl@verkfaeralagerinn.is
Verkfæralagerinn
4(,#$!-# /.# 6$;7% 1&*# /.# 6$;759"% .2)# /.# ;"$;7% *),# /.# ;:$;8
Startkaplar
frá2.985
3,0'*/'<)+
Verð frá
kr. 1.985