Morgunblaðið - Sunnudagur - 27.02.2022, Page 28
28 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 27.2. 2022
LESBÓK
FRUMLEIKI Leikkonan Isla Fisher segir ferska vinda blása í
nýju sjónvarpsþáttunum sem hún leikur í, Wolf Like Me, eða
Úlfur eins og ég. „Við erum vön að sjá gamanmyndir, þar sem
aðeins er fjallað um það jákvæða sem gerist þegar fólk er að
bindast böndum. Þess vegna er þetta frumlegt. Ástin er
ógnvekjandi! Um leið og maður gefur einhverjum hjarta
sitt og öfugt stendur maður auðvitað á berangri. Í þess-
um þáttum er sjónum meira beint að ást sem lituð er
skömm og ótta,“ segir Fisher við breska blaðið Indep-
endent. Hún kveðst hafa haft yndi af því að leika hlut-
verk sitt í þáttunum, Mary, enda séu þær algjörar and-
stæður. „Ég elska fólk og blanda geði hvenær sem færi
gefst til. Mary er á hinum enda skalans, henni finnst
hún óörugg innan um fólk.“
Ástin er ógnvekjandi!
Isla Fisher
er félagslynd
að upplagi. AFP
HEILSA Jeff Waters, gítarleikari og söngv-
ari kanadíska þrassbandsins Annihilator,
hefur ekki átt sjö dagana sæla undanfarið. Í
apríl 2020 fárveiktist hann af Covid-19, var
lagður inn á sjúkrahús en rétt slapp við önd-
unarvél, að því er hann upplýsir í viðtali við
Belgian Jasper. „Það tók mig sex mánuði að
endurheimta lungun,“ segir hann. Waters
var rétt að ná sér aftur þegar hann kvið-
slitnaði og þurfti í uppskurð. Hann var varla
orðinn góður af því meini þegar nýrnasteinar
skutu upp kollinum. Svæsið tilvik. Hann hef-
ur nú loks endurheimt fyrri styrk gegnum
heilsubótargöngur og bætt mataræði.
Sex mánuði að endurheimta lungun
Jeff Waters er á besta aldri, nýorðinn 56 ára.
Wikimedia
Dua Lipa er margt til lista lagt.
Hlaðvarp Lipa
mælist vel fyrir
HÆFILEIKAR Bresku söngkon-
unni og fyrirsætunni Dua Lipa virð-
ist margt til lista lagt en nýtt hlað-
varp hennar, At Your Service, fær
lofsamlega umsögn í breska
blaðinu The Guardian. „Þurfum við
virkilega enn eitt hlaðvarpið frá
fræga fólkinu?“ spyr gagnrýnandi
blaðsins og svarar sjálfum sér: „Já,
ef við erum að tala um Dua Lipa.“
Gagnrýnandinn segir Lipa fara á
dýptina og spyrja áleitinna spurn-
inga í stað þess að blaðra út í eitt
um sjálfa sig og ekki neitt, eins og
svo margar starfssystur hennar og
-bræður gera í slíkum þáttum.
„Þarna fáum við úthugsuð viðtöl og
Lipa hefur ósvikna hæfileika sem
spyrill,“ segir gagnrýnandinn.
F
yrir fáeinum vikum hafði ég
aldrei heyrt nafnið Hamish
Linklater – sem er eftir á að
hyggja klár skerðing á lífsgæðum
mínum enda nafnið alveg ofboðslega
hljómmikið og gott. Þetta er sumsé
bandarískur kvikmynda- og sjón-
varpsleikari sem skaut upp kollinum
á skjánum hjá mér í dramaþáttunum
Tell Me Your Secrets frá árinu 2021
sem ég nálgaðist á einhverri efnis-
veitunni.
Þar fór Linklater með hlutverk
sérlundaðs raðnauðgara sem var
laus úr fangelsi til reynslu eftir að
hafa sannfært þar til bær yfirvöld
um að sér væri „batnað“. Líklega
best að hafa ekki fleiri orð um það ef
þið eruð ekki þegar búin að horfa á
þessa þætti og ætlið ykkur að gera
það í náinni framtíð. En okkar mað-
ur stendur sig prýðilega þarna. Svo
mikið dirfist ég að upplýsa.
Ég var ekki fyrr búinn að klára
Tell Me Your Secrets þegar Link-
later birtist mér í öðru verki í sjón-
varpi; kvikmyndinni Paper Year.
Þar leikur hann sjálfumglaðan hand-
rits- og textahöfund (og vonnabí
leikskáld) sem daðrar/reynir við
flest sem hreyfist og snýr tilveru
aðalsöguhetjunnar á hvolf. Best að
hafa ekki mörg orð um það heldur
enda hægur vandi að horfa á kvik-
myndir í sjónvarpinu löngu eftir að
þær hafa verið sýndar og þið eigið
mögulega eftir að nýta ykkur það.
Ekki er upp á hana logið, tæknina
sem við búum við í þessum heimi.
Í Tell Me Your Secrets leikur
Linklater á móti bandarísku leik-
konunni Lily Rabe en svo skemmti-
lega vill til að þau eru í raun og veru
hjón og hafa verið í heil níu ár. Eiga
saman tvær ungar dætur en fyrir
átti Linklater þriðju dótturina.
Hvernig í ósköpunum veit maðurinn
þetta? hugsar þú nú með þér, les-
andi góður, og klórar þér í höfðinu.
Wikipedia maður, Wikipedia.
Er það bara ég, eða heita allar
ungar leikkonur í dag Lily? Við er-
um með Lily James, sem bregður
sér í bolinn hennar Pamelu And-
erson í Pam & Tommy, og Lily
Collins. Sú síðarnefnda er dóttir
Phils Collins, söngvara og trymbils.
Staðreynd sem hún er mér ábyggi-
lega ekki þakklát fyrir að draga
fram enda vill ungt listafólk upp til
hópa ólmt meika’ða á sínum for-
sendum – ekki vegna þess að það er
dóttir eða sonur hins eða þessa. En
Lily mín, þú verður að fyrirgefa
mér! Ég er nefnilega kominn á
þann aldur að margfalt líklegra er
að ég þekki til foreldra fólks sem er
í umræðunni eða hreinlega langfor-
eldra þeirra. Það er bara þannig,
eins og þeir segja á öldum ljósvak-
ans.
Þess má geta að Lily James heitir
alls ekki Lily James, heldur Lily
Chloe Ninette Thomson. Hún
breytti eftirnafni sínu þegar hún
komst að því sér til armæðu að þeg-
ar var til leikkona að nafni Lily
Thomson. Hversu margir þekkja
Hamish og
Liljurnar
Bandaríski leikarinn Hamish Linklater kom
skyndilega inn í líf mitt á dögunum. Ekki seinna
vænna enda maðurinn kominn á miðjan aldur og
búinn að vera í bransanum frá aldamótum. Hér
skal hermt af ævi hans og störfum. Eða ekki.
Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is
AFP
Eve Hewson er á upp-
leið enda þótt hún
heiti ekki Lily. Hver er
pabbi hennar?
Það geta allir fundið eitthvað
girnilegt við sitt hæfi
Freistaðu
bragðlaukanna
... stærsti uppskriftarvefur landsins!