Morgunblaðið - Sunnudagur - 27.02.2022, Síða 29
hana? James er ekki út í loftið en
það var skírnarnafn föður hennar
sem lést úr krabbameini árið 2008,
þegar Lily var aðeins 19 ára. James
Thomson var tónlistarmaður en ekki
heimsfrægur né heldur móðir Lilyj-
ar, leikkonan Ninette Mantle.
Amma Lilyjar var hins vegar
bærilega þekkt á sama starfsvett-
vangi, Helen Horton hét hún. Hún
vann einkum í leikhúsi og tók til að
mynda við af Vivien Leigh sem
Blanche í Sporvagninum Girnd eftir
Tennessee Williams þegar sýn-
ingum lauk í Lundúnum og skónum
var stefnt út á land. Þegar Leigh var
einhverju sinni spurð um þetta svar-
aði hún lítið eitt undrandi: „Það tek-
ur enginn við af mér, vinan. Þegar
ég hætti í sýningu er henni lokið.“
Rosaleg kona, Vivien Leigh. Og
hún var sannarlega bresk enda þótt
flestir tengi hana við bandarískar
bíómyndir, á Hverfanda hveli og téð-
an Sporvagninn Girnd.
Dóttir hvers?
En aftur til nútíðar. Ein leikkona
sem heitir alls ekki Lily er Eve
Hewson sem leikur á móti Linklater
í Paper Year. Ekki einu sinni að
millinafni en hún var vatni ausin á
Írlandi fyrir þremur áratugum og
nefnd Memphis Eve Sunny Day
Hewson. Sem er reyndar stóreflis
nafn og velgir Hamish Linklater
jafnvel undir uggum. Og hver skyldi
eiga hana? Nú rétta ugglaust margir
lesendur upp hönd og hrópa Bob
Geldof! Bob Geldof! Það er gott gisk
hjá ykkur, hann er Íri og á ofboðs-
lega margar dætur sem heita of-
boðslega undarlegum nöfnum, en
samt ekki nægilega rökrétt. Eftir-
nafn Evunnar okkar er nefnilega
ekki Geldof. Heldur Hewson. Það
hefur þegar komið fram og ekki ætla
mér það vit að bjóða ykkur upp á
einhverjar brelluspurningar.
Hver er þetta þá? Hann er
sannarlega kollegi Geldofs, sumsé
tónlistarmaður og söngvari. Hew-
son? hugsið þið nú. Hvaða írski
söngvari er Hewson? Hér er vís-
bending: Hann hefur ekki notað það
nafn né heldur skírnarnafn sitt síðan
hann var unglingur, alltént ekki
opinberlega, og er í hljómsveit sem á
margfalt fleiri smelli en Boomtown
Rats. Þar erum við eiginlega bara að
tala um I Don’t Like Mondays. Sem
er reyndar algjör negla.
En aftur að getrauninni okkar og
haldiði að það sé ekki bara komið
bingó í sal! Bono. Bono. Bono. Eve
Hewson er að sönnu dóttir Bonos
eða Pauls Davids Hewsons, eins og
móðir hans vildi láta kalla hann.
Fyrst við erum svona létt á því verð-
ur hér gefið aukastig ef þið vitið
hvað félagi Bonos í U2, The Edge,
var skírður. O, sei, sei, já. David Ho-
well Evans. Þeir félagar eru því í
reynd nafnar, heita báðir Davíð.
Hvet ykkur til að slá um ykkur með
þeirri vitneskju við fyrsta tækifæri,
til dæmis í páskaboðinu hjá Stínu
frænku. „Hvað segirðu, Stína mín?
Ertu búin að heyra nýja lagið frá
þeim nöfnum Bono og The Edge?“
Hafið símann endilega á lofti til að
ljósmynda svipinn á Stínu!
En jæja, er þetta nú ekki orðið
gott af ADHD? Við erum jú að fjalla
hér um Hamish Linklater í þessari
grein, ekki satt? Hver veit hins veg-
ar nema hann sé grjótharður U2-
aðdáandi, tilbiðji Vivien Leigh og
hafi hreint ekkert á móti þessum út-
úrdúrum öllum.
Við því fáum við ekki svar, alltént
ekki hér enda er plássið víst á þrot-
um. Dálksentimetrar í blöðum vaxa
því miður ekki á trjánum. Nánari
greining á ævi og störfum Hamish
Linklaters bíður því betri tíma. En
við erum alla vega búin að lilja okkur
hressilega upp. Það dugar í bili.
Lily James er ein af Liljum
skjásins. Því miður var
ekki pláss fyrir mynd af
Hamish Linklater.
AFP
Vivien Leigh
með Óskarinn
fyrir Á hverf-
anda hveli.
AFP
27.2. 2022 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29
HEILSA Gítarleikarinn Nasty Sui-
cide, eða Gróft Sjálfsvíg, sem
þekktastur er fyrir veru sína í
rokkbandinu Hanoi Rocks, upplýsir
í samtali við finnska miðilinn Cha-
oszine að barátta sín við krabba-
mein í blöðruhálskirtli gangi vel.
Suicide hefur nú lokið lyfjameðferð
og verður í geislum út mars til að
freista þess að vinna á meininu.
„Mér líður bara vel,“ segir Suicide
en von er á fyrstu plötu nýs bands
sem hann stofnaði og ber upp-
runalegt eftirnafn hans, Stenfors.
Gróft Sjálfsvíg með krabbamein
Nasty Suicide (t.h.) ásamt Michael
Monroe úr Hanoi Rocks.
Facebook
BÓKSALA 16.-22. FEBRÚAR
Listinn er tekinn saman af Eymundsson
1
Bara móðir
Roy Jacobsen
2
Vargar í véum
Hans Rosenfeldt
3
Föli skúrkurinn
Philip Kerr
4
Þetta gæti breytt öllu
Jill Mansell
5
Tsjernobyl-bænin
Svetlana Aleksíevítsj
6
Merking
Fríða Ísberg
7
Akam, ég og Annika
Þórunn Rakel Gylfadóttir
8
Goðheimar 11 – ráðgátan
um skáldamöðinn
Peter Madsen
9
Lengsta nóttin
Ann Cleeves
10
Salka – tölvuheimurinn
Bjarni Fritzson
1
Goðheimar 11 – ráðgátan
um skáldamöðinn
Peter Madsen
2
Salka – tölvuheimurinn
Bjarni Fritzson
3
Fagurt galaði fuglinn sá
Helgi Jónsson/Anna Margrét
Marinósdóttir
4
Spiderman – þrautabók
Walt Disney
5 Skarði er ekki syfjaður
6 Raya og síðasti drekinn
7
Orri óstöðvandi – kapp-
hlaupið um silfur Egils
Bjarni Fritzson
8
Dagbók Kidda klaufa 15
Á bólakafi
Jeff Kinney
9 Sveitahljóð – bók með hljóði
10
Hjartað mitt
Jo Witek/Christine Roussey
Allar bækur
Barnabækur
Að stinga niður penna um nokkra
bókatitla er nánast ómögulegt
verkefni fyrir bókaorma. Mér fall-
ast hendur. Ég er bókaormur, í
fjölskyldu bókaorma og ég var
alltaf með nefið ofan í bók. Góðu
fréttirnar fyrir þennan pistil eru
að efnið takmarkar sig sjálft við
það að í dag les ég vandræðalega
lítið. Já, það komst upp um mig.
Tíminn til lestrar virðist fara
minnkandi með hverju árinu
vegna vinnu, barneigna og öllu því
sem manns eigin söguþráður hef-
ur upp á að bjóða.
Það eru nú samt alltaf ein-
hverjar bækur í lestri á náttborð-
inu. Náttborð fólks geta nefn-
inlega verið hin
skemmtilegasta
skyndimynd af lífi
þeirra. Hjá mér
liggja nokkrar ný-
lega kláraðar bæk-
ur, allt of margar
hálfnaðar bækur,
bækur til að glugga
í, vinnutengt efni, barnabækur,
snuð og Airpods. Airpods standa
fyrir hljóðbækur og hlaðvörp.
Hljóðbækur eru ákveðið svar
við tímaleysinu og ég kann alltaf
betur og betur að meta þann
möguleika að geta stillt hraðann
eftir áhuga, efni og athygli. Ég
mæli t.d. eindregið með því að
hlusta á mjög áhugaverða ævisögu
Arnolds Schwarzeneggers lesna af
höfundi á tvöföldum hraða. Ann-
ars var ég að byrja á Putin’s
People: How the KGB Took Back
Russia and Then eftir Catherine
Belton og hún er frábær.
Í nýlega kláraða bunkanum eru
bækurnar Invisible Women, Ex-
posing data bias in a world design-
ed for men eftir Caroline Criado
Perez sem vekur umhugsun og
Rauði þráðurinn eftir Ögmund
Jónasson sem ég hafði ótrúlega
gaman af. The pandemic century,
a history of global contagion from
the Spanish flu to Covid-19 eftir
Mark Honigsbaum er í vinnslu en
mér til varnar er letrið mjög
smátt.
Meðal barnabókanna má finna
klassíkina Gagn og gaman sem
óþreyjufullt og greinilega afskipt
þriðja barn er að
nota til að kenna
sjálfu sér að lesa,
Palla Playstation
eftir Gunnar
Helgason og nokkr-
ar vel valdar úr hin-
um skemmtilega
Ljósaseríuklúbbi.
Að lokum er við hæfi að nefna
nokkrar bækur sem hafa haft
djúpstæð áhrif á mig á einhverjum
tímapunkti. Uppvöxtur Litla trés
eftir Forrest Carter í þýðingu
Gyrðis Elíassonar, sjálfsævisaga
Helen Keller The story of my life,
The old man and the sea eftir
Ernest Hemingway og Úr dag-
bókum skurðlæknis eftir James
Harpole sem var gefin út árið
1941 í íslenskri þýðingu Gunn-
laugs Claessen.
Þessi síðasta ásamt öðrum
gömlum lækningabókum átti þátt
í því að ég ætlaði að verða líkkryfj-
ari þegar ég yrði stór. Það hefur
vafalaust valdið einhverjum
áhyggjum en líkkryfjaradraum-
urinn tók við af því að vilja verða
töfralæknir frumbyggja í N-
Ameríku svo kannski varð ein-
hverjum létt. Ég endaði á því að
verða bara læknir.
GUÐRÚN ÁSA BJÖRNSDÓTTIR ER AÐ LESA
Skyndimynd af lífinu
Guðrún Ása
Björnsdóttir
er læknir og
bókaormur.
DUXIANA Reykjavik | Ármuli 10 | Reykjavik | +354 5 68 99 50 | www.duxiana.is
GÆÐI OG ÞÆGINDI
SÍÐAN 1926
DUX 8008 – UNDRAVERÐUR SVEIGJANLEIKI
Háþróuð tækni, alvöru handverk, strangar prófanir og vandlega valin efni tryggja góðan nætursvefn
og passa upp á að líkaminn fái góða hvíld þegar þú þarf mest á því að halda.