Morgunblaðið - Sunnudagur - 27.02.2022, Síða 30

Morgunblaðið - Sunnudagur - 27.02.2022, Síða 30
30 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 27.2. 2022 08.25 Danspartý með Skoppu og Skrítlu 08.40 Gus, the Itsy Bitsy Knight 08.50 Monsurnar 09.05 Mæja býfluga 09.15 Tappi mús 09.25 Adda klóka 09.45 Lína langsokkur 10.10 Denver síðasta risaeðl- an 10.25 It’s Pony 10.45 Mörgæsirnar frá Mada- gaskar 11.10 K3 11.20 Are You Afraid of the Dark? 12.05 Simpson-fjölskyldan 12.25 Nágrannar 14.15 Um land allt 14.50 Grand Designs 15.35 American Dad 16.00 The Masked Singer 17.05 Krakkakviss 17.45 60 Minutes 18.26 Veður 18.30 Fréttir Stöðvar 2 18.45 Sportpakkinn 18.55 Ísland í dag 19.10 Blindur bakstur 19.45 Fires 20.40 Hollington Drive 21.30 Leonardo 22.25 Dröm 22.55 Heimilisofbeldi 23.30 Euphoria 00.25 Tell Me Your Secrets ÚTVARP OG SJÓNVARP Sjónvarp Símans RÚV Rás 1 92,4 . 93,5 Omega N4 Stöð 2 Hringbraut 20.00 Himinlifandi – Reykt súpa 20.00 Himinlifandi (e) – Reykt súpa 20.30 Bakvið tjöldin 20.30 Bakvið tjöldin (e) Endurt. allan sólarhr. 16.00 Trúarlíf 17.00 Times Square Church 18.00 Tónlist 18.30 Ísrael í dag 19.30 Jesús Kristur er svarið 20.00 Blönduð dagskrá 18.30 Mannamál (e) 19.00 Suðurnesja-magasín Víkurfrétta (e) 19.30 Bókahornið (e) 20.00 Matur og heimili (e) Endurt. allan sólarhr. 13.20 Top Chef 14.05 The Bachelor 15.35 Survivor 16.20 Black-ish 16.55 The King of Queens 17.15 Everybody Loves Raymond 17.40 Gordon Ramsay’s 24 Hours to Hell and Back 18.25 Morð í norðri 19.10 The Block 20.30 Venjulegt fólk 21.05 Law and Order: Org- anized Crime 21.55 Godfather of Harlem 22.55 Spy City 23.40 Dexter 00.30 FBI: International 01.20 Looking for Alaska 02.10 Mayans M.C. 03.10 Tónlist 06.55 Morgunbæn og orð dagsins. 07.00 Fréttir. 07.03 Hringsól. 08.00 Morgunfréttir. 08.03 Á tónsviðinu. 09.00 Fréttir. 09.03 Svona er þetta. 10.00 Fréttir. 10.05 Veðurfregnir. 10.15 Bók vikunnar. 11.00 Guðsþjónusta í Sel- tjarnarneskirkju. 12.00 Hádegisútvarp. 12.20 Hádegisfréttir. 13.00 Sögur af landi. 14.00 Víðsjá. 15.00 Lestin. 16.00 Síðdegisfréttir. 16.05 Úr tónlistarlífinu: Skál- holt V. 17.25 Orð af orði. 18.00 Kvöldfréttir. 18.10 Á verkstæði bókmennt- anna. 18.50 Veðurfregnir. 18.53 Dánarfregnir. 19.00 Óskastundin. 19.40 Rimbaud og sýnd- arveruleikinn. 20.50 Heimskviður. 21.30 Áður fyrr á árum. 22.00 Fréttir. 22.05 Veðurfregnir. 22.10 Á reki með KK. 23.10 Frjálsar hendur. 07.15 KrakkaRÚV 07.16 Tölukubbar 07.21 Kúlugúbbarnir 07.44 Robbi og Skrímsli 08.06 Hvolpasveitin 08.28 Ronja ræningjadóttir 08.52 Skotti og Fló 08.59 Unnar og vinur 09.22 Múmínálfarnir 09.44 Grettir 09.56 Eldhugar – Delia Akeley – landkönnuður 10.00 Reikningur 10.15 Ferðastiklur 11.00 Silfrið 12.10 Söngvakeppnin 2022 13.30 Hundalíf 13.40 Okkar á milli 14.10 Matur með Kiru 14.40 Leiðangur til nýrrar jarðar – Fyrri hluti 15.30 Á móti straumnum – Mathias er ljótur 16.00 Bikarmót í hópfim- leikum 17.45 Grænmeti í sviðsljósinu 18.00 KrakkaRÚV 18.01 Stundin okkar 18.25 Menningarvikan 19.00 Fréttir 19.25 Íþróttir 19.35 Veður 19.45 Landinn 20.15 Hljómskálinn 20.50 5 konur – 400 ár 21.40 Konunglegt leyndarmál 22.30 Gómorra 23.25 Kvíðakast 01.00 Dagskrárlok 9 til 13 100% helgi með Stefáni Valmundar Stefán spilar góða tónlist og fer yfir valið efni úr morgun- og síðdegisþáttum K100. 13 til 16 100% helgi með Þór Bæring Þór Bæring og besta tónlistin á sunnudegi. Þór er góður að þefa uppi það sem fjölskyldan getur gert sér til skemmt- unar á sunnudögum. 16 til 18 Tónlistinn Topp40 Ásgeir Páll Ásgeirsson fer yfir 40 vinsælustu lög landsins á eina opinbera vinsældalista Íslands sem er unninn í samstarfi við félag hljómplötuframleiðenda. Nýgifti faðirinn Björn Grétar segir töluvert létt- ara að starfa sem flug- umferðarstjóri og stýra flugumferð yfir Akureyri en að ala upp börn. Hann ræddi um erfiðleikana sem fylgja því krefjandi hlutverki að vera foreldri í Ísland vaknar á K100 en hann heldur úti instagramsíðunni Pabbalífið og færir hlustendum vikuleg „pabbaráð“ á K100. „Elsku vinir, við fengum Covid og njálg á heimilið á sama tíma. Það var Bingó!“ sagði Björn en hægt er að hlusta á viðtalið við hann í heild á K100.is. Njálgur og Covid á sama tíma: „Þetta er það sem ég kalla smáa letrið“ Þ að eru alveg til betri hug- myndir en að horfa á mynd um flugslys um borð í flugvél. Það gerði undirrituð í vikunni þegar flogið var frá Barcelona til Keflavíkur í mikilli ókyrrð og svo miklum mót- vindi að flugið lengdist um einn og hálfan tíma. Þar sem ég sat þarna klesst úti í horni, nánar tiltekið í gluggasæti, reyndi ég að stytta mér stundirnar í hristingnum við að horfa á Netflix-þætti sem ég hafði áður hlaðið niður. Einn þeirra var heimild- armyndin Downfall: The case against Boeing, stórmerkileg mynd um Bo- eing MAX-vélarnar og hvað olli tveimur flugslysum með aðeins fimm mánaða millibili. Vélarnar voru báðar glænýjar en í slysunum fórust alls 346 manns. Fyrra slysið varð 29. október, 2018 en þá fórst flug 610 hjá Lion Air stuttu eftir flugtak frá Jakarta í Indónesíu. Vélin steyptist í sjóinn og með henni 189 manns. Fljótlega fór að bera á efasemdum um flugöryggi flugfélagsins og hæfni flugmannanna hjá þessu indónesíska lágfjargjalda- flugfélagi. Fáum datt í hug að skella skuldinni á hina glænýju Boeing 737 MAX. Boeing var jú virt fyrirtæki með óflekkað „mannorð“ og þekkt fyrir að setja öryggið á oddinn. Nokk- uð sem skiptir okkur öll máli sem fljúgum! Fimm mánuðum síðar, 10. mars ár- ið 2019, féll önnur Max-vél til jarðar, nú í Eþíópíu. Í því slysi fórust 157 sál- ir. Nú fóru að renna tvær grímur á fólk og ljóst var að þetta gat ekki ver- ið tilviljunin ein. Boeing MAx-vélar voru nú kyrrsettar þar til rannsókn yrði lokið, en efasemdarmenn höfðu strax farið fram á kyrrsetningu vél- anna eftir fyrra slysið. Boeing- fyrirtækið hélt því statt og stöðugt fram að ekkert væri að vélunum, en annað átti eftir að koma á daginn. Er það rakið í heimildamyndinni en þar er einnig rætt við fjölskyldur fórnar- lamba slysanna; eiginkonu flugmanns fyrri vélarinnar og föður ungrar konu sem lést í seinna slysinu. Það kom svo í ljós að ástæða slysanna var gölluð hönnun nýs kerfis sem kallast MCAS. Í stuttu máli átti kerfið að koma í veg fyrir ofris með því að beina nefi vélarinnar niður ef slík hætta virtist steðja að. Var þá í raun valdið tekið af flugmanninum; vélin rétti sig af ef hætta var fyrir hendi. Það sem gerist í þessum tveimur tilvikum var að það kom villumelding og vélin steypti sér niður þótt engin hætta hafi verið á ofrisi. Flugmenn beggja véla reyndu í of- boði að rífa vélina upp, án árangurs. Þeir höfðu ekki fengið neina þjálfun í að bregðast við í slíkum aðstæðum því fyrirtækið tímdi ekki að senda alla flugmenn í þjálfun eftir að nýju MAX-vélarnar fóru á markað. Í til- vikum þar sem kerfið sendi slíkar falsmeldingar höfðu flugmennirnir tíu sekúndur til að bregðast við og slökkva á kerfinu. Tíu sekúndur til að slökkva á kerfi sem þeir vissu varla að væri til staðar, hvað þá að þeir kynnu á það. Því fór sem fór; græðgi stórfyrir- tækis sem spara vildi þjálfunar- kostnað flugmanna kostaði 346 manns lífið; konur, menn og börn. Blaðamaður var afar feginn að lenda í Keflavík þrátt fyrir aftaka- veður, slyddu og hífandi rok. Sólin á Spáni varð fljótt fjarlæg minning en heimildarmyndin sat í mér. Mæli al- gjörlega með að horfa. En kannski betra að gera það á jörðu niðri. Flugmenn réðu ekki við neitt þegar villumelding tók af þeim öll völd. Ljósmynd/Netflix FALL FLUGVELDIS Tíu sekúndur til dauða Líkkistur fórnarlamba fluglyssins í Eþíópíu voru til sýnis í athöfn í Addis Ababa eftir að Boeing 737 MAX steyptist til jarðar með 157 manns um borð. AFP Flugslysum Boeing 737 MAX-véla hefði mátt af- stýra. Heimildarmynd varpar ljósi á harmleikinn. Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.