Morgunblaðið - 28.02.2022, Side 13

Morgunblaðið - 28.02.2022, Side 13
FRÉTTIR 13Erlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 28. FEBRÚAR 2022 IB ehf | Fossnes A | 800 Selfoss | ib.is Nánari upplýsingar ib.is Ábyrgð og þjónusta fylgir öllum nýjum bílum frá IB Sími 4 80 80 80 25 ára reynsla JEPPABREYTINGAR VERKSTÆÐI VARAHLUTIR SÉRPANTANIR RYÐVÖRN Josep Borrel tilkynnti í gær að ríki Evrópusambandsins ætluðu að bregðast við ákalli Úkraínumanna um að veita þeim aðstoð í flughern- aði þeirra við Rússa. „Þetta verða mikilvæg vopn fyrir Úkraínu til að bregðast við árásum Rússa og við erum að tala um jafnvel orrustu- þotur.“ Talið er að þoturnar komi frá Búlgaríu, Slóvakíu og Póllandi og hafi verið framleiddar í Rússlandi. Í gær var haft eftir Dmytro Ku- leba, utanríkisráðherra Úkraínu, að stærstu flugvél heims, hinni úkra- ínsku Antonov AN-225, sem kölluð hefur verið Mriya, eða Draumurinn, hefði verið grandað af innrásarher Rússa í gær. Eftir að Boris Johnson, forsætis- ráðherra Breta, reið á vaðið með að banna rússneska flugrisanum Aero- flot að lenda í Bretlandi fylgdi Evr- ópusambandið í kjölfarið og lokaði sinni lofthelgi fyrir allri rússneskri flugumferð, bæði farþegaflugi og einkaflugi, sem refsiaðgerð eftir inn- rás Rússa í Úkraínu. Rússar hafa svarað í sömu mynt og hafa bannað alla flugumferð frá mörgum Evrópulöndum, eins og Bretlandi, Lettlandi, Litháen, Eist- landi, Slóveníu, Búlgaríu, Póllandi og Tékklandi. Þeir hafa einnig aflýst öllu flugi til Evrópu á heimasíðu Aeroflot frá og með deginum í dag þar til annað verður tilkynnt. AP Draumurinn ANTONOV AN-225 var grandað í gær af innrásarher Rússa. Von á orrustuflug- vélum til Úkraínu - Vélarnar koma frá ESB-löndunum Urður Egilsdóttir urdur@mbl.is Yfirvöld í Úkraínu samþykktu í gær, á fjórða degi átaka í landinu, að hefja viðræður við Rússa á landamærum Hvíta-Rússlands, ná- lægt Tsjernobyl-kjarnorkuverinu. Þetta var ákveðið í kjölfar þess að Vladimír Pútín Rússlandsforseti fyrirskipaði hersveitum Rússa sem sjá um fælingarvopn að vera í við- bragðsstöðu. Undir slík vopn flokk- ast meðal annars kjarnorkuvopn. „Vestræn ríki hafa ekki aðeins tek- ið óvinsamleg efnahagsleg skref gegn landinu okkar heldur hafa leiðtogar mikilvægra NATO-ríkja verið árásargjarnir í yfirlýsingum sínum gegn okkur. Þess vegna hef ég virkjað kjarnorkusveitir lands- ins,“ sagði Pútín í ávarpi sem hann flutti í gær. Nú þegar hafa tugir látið lífið í átökunum og hundruð þúsunda hafa lagt á flótta frá Úkraínu. Barist um næststærstu borgina Volodimír Zelenskí, forseti Úkra- ínu, ræddi við Alexander Lúka- sjenkó, forseta Hvíta-Rússlands, símleiðis í gær og samþykkti að senda úkraínska sendinefnd til við- ræðna við rússneska sendinefnd á landamærum Hvíta-Rússlands. Hingað til hefur Lúkasjenkó leyft rússneskum hermönnum að fara yf- ir landamæri landsins til þess að komast til Úkraínu. Þá hefur eld- flaugum einnig verið skotið frá Hvíta-Rússlandi á Úkraínu. Rússar hafa náð á sitt vald hér- uðum í norður-, austur- og suður- hluta landsins sem eiga landamæri að Rússlandi og Hvíta-Rússlandi eða liggja að Krímskaga. Í gær var meðal annars hart bar- ist um næststærstu borg Úkraínu, Kharkiv. Rússar náðu henni á vald sitt í gærmorgun en síðar um dag- inn var greint frá því að úkraínskar hersveitir hefðu náð borginni aftur á sitt vald. Borgin var höfuðborg úkraínska sovétlýðveldisins frá árinu 1919 til 1934. Sögulegir vopnaflutningar Fjöldi ríkja hefur lýst yfir stuðn- ingi við Úkraínu og gripið til refsi- aðgerða, þar er einna helst að nefna að rússneskir bankar hafa verið úti- lokaðir frá alþjóðagreiðslumiðlunar- kerfinu SWIFT. Eftir að það var tilkynnt á laugardagskvöld hefur aðsókn í hraðbanka í Rússlandi ekki verið meiri frá því í mars 2020, í upphafi kórónuveirufaraldursins. Ursula von der Leyen, forseti framkvæmdastjórnar Evrópusam- bandsins, tilkynnti að sambandið hygðist hefja vopnaflutninga til Úkraínu. Þetta er í fyrsta sinn í sögu sambandsins sem slík ákvörð- un er tekin. Ríki Evrópusambands- ins munu einnig senda orrustuþotur til Úkraínu, að beiðni stjórnvalda í Kænugarði, til að hrinda á bak aft- ur innrás rússneska hersins bæði í lofti og á láði. Þá tilkynnti Magdalena Anders- son, forsætisráðherra Svíþjóðar, að sænska ríkistjórnin myndi senda herbúnað og vopn til landsins. Þetta er í fyrsta sinn frá árinu 1939 sem Svíþjóð sendir vopn til lands sem er í stríði. Síðast voru send vopn til Finnlands þegar grannríkið varðist innrás Sovétríkjanna. And- ersson sagði að sendingin myndi innihalda 5.000 sprengjuvörpur gegn skriðdrekum, 5.000 herbrynj- ur, 5.000 hjálma og 135.000 matar- pakka. Sjaldgæfur neyðarfundur Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna samþykkti í gærkvöldi að allsherj- arþing samtakanna kæmi saman til sjaldgæfs neyðarfundar í dag til að ræða ástandið. Á honum munu allar 193 aðildarþjóðir samtakanna fá tækifæri til að lýsa skoðun sinni á innrásinni. Rússland kaus gegn því að kalla saman allsherjarþingið, en sam- kvæmt reglum Sameinuðu þjóðanna hefur landið ekki völd til þess að koma í veg fyrir að allsherjarþingið komi saman og ræði stríðsástand í heiminum. Kínverjar, Indverjar og Sameinuðu arabísku furstadæmin sátu hjá við atkvæðagreiðsluna. Öll önnur aðildarríki öryggisráðsins greiddu atkvæði með því að boða til neyðarfundarins. Mannúðarkrísa Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna telur að meira en 368.000 manns hafi flúið til nágrannaríkja Úkraínu. Þá er talið að meira en 160.000 manns séu á vergangi innan landsins. Janez Lenarcic, sem fer með mannúðarmálefni í framkvæmda- stjórn Evrópusambandsins, varaði við því í gær að Evrópa gæti staðið frammi fyrir mestu mannúðarkrísu í heimsálfunni í langan tíma. Hann sagði að allt að átján milljónir Úkraínumanna gætu orðið fyrir beinum áhrifum af mannúðarkrís- unni og að líklegt væri að fjórar milljónir myndu flýja landið. Í gærkvöldi samþykktu aðildar- ríki Evrópusambandsins því að taka á móti flóttamönnum frá Úkraínu til allt að þriggja ára án þess að fólk þyrfti að sækja um al- þjóðlega vernd. Þá býður Deutsche Bahn, rekstr- araðili járnbrauta í Þýskalandi, nú úkraínskum flóttamönnum sem ferðast til landsins frá Póllandi ókeypis lestarferðir. Kjarnorkusveitir í viðbragðsstöðu - Rússar og Úkraínumenn samþykkja friðarviðræður AFP Innrás Rússar hafa náð á sitt vald héruðum í norður-, austur- og suðurhluta Úkraínu. AFP Mannúðarkrísa Talið er að hátt í 400 þúsund manns hafi lagt á flótta frá Úkraínu. Líklegt er að sá fjöldi geti orðið að fjórum milljónum.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.