Morgunblaðið - 28.02.2022, Side 21
var hægt að fylgjast með ömmu
búa til dýrindis skerma eins og
henni einni var lagið á meðan við
föndruðum við hliðina á henni,
undir hennar handleiðslu auðvit-
að. Síðan var farið í kaffi þar sem
það var undantekningarlaust
ömmubland, brauð með heimalög-
uðu marmelaði og Sæmundur í
sparifötunum.
Í skermagerðinni var mjög
gaman að fylgjast með ömmu og
afa vinna, því þau voru svo sam-
taka og unnu vel saman og einnig
voru þau alltaf svo ástfangin.
Amma kallaði afa alltaf Johnny
minn og okkur krökkunum fannst
það frekar skrýtið, þegar við
spurðum hana að því af hverju
hún kallaði afa Johnny þá stóð
ekki á svari. Hún sagði að hún
kynntist afa fyrir seinna stríð, áð-
ur en hermennirnir komu til Ís-
lands og hún hafi því ekki getað
tekið þátt í hinu svokallaða
ástandi og var þetta því hennar
leið til að taka þátt í því. Svona var
stutt í húmorinn hjá henni og okk-
ur fannst þetta mjög fyndið.
Amma var svo glæsileg kona.
Við systurnar elskuðum að dressa
okkur upp í fallegu kjólana og
skóna hennar. Það var ávallt
kapphlaup inn í fataherbergið.
Þetta er aðeins brot af yndis-
legum minningum sem við eigum
af elsku ömmu sem munu aldrei
gleymast.
Elsku amma okkar, það er svo
sárt að þurfa kveðja þig en það er
huggun í því að loksins ertu komin
til elsku afa og Þorvalds. Við elsk-
um þig. Kveðja,
Bertha María, Þórir, Viktor,
Telma og Selma.
Elsku amma Bertha.
Amma með brosið bjarta, stóra
hjartað, með hlýja faðminn sem
ætíð var opinn, alltaf pláss fyrir
alla. Horft til baka koma upp dýr-
mætar minningar. Fá að vinna
með þér í skermagerðinni sem
drengur þar sem amma var lista-
konan meðan afi sá um að sníða.
Kaffistundir í Holtsbúðinni, sög-
urnar af lífinu úr Eyjum, bakarí-
inu, bestu kransakökunni, ömmu
sem hringdi heim og spurði um
lottótölurnar. Amma sem alveg
var til í að leyfa okkur krökkunum
að ýta sér á heimasmíðum kassa-
bíl á fleygiferð í fjölskylduveislu,
skellihlæjandi. Amma sem alltaf
stóð í dyrunum eftir heimsóknir í
Holtsbúðina og vinkaði okkur
krökkunum bless þar til við hurf-
um sjónum. Amma sem alltaf var
skvísa, glæsileg fram í fingur-
góma. Amma sem lét sér annt um
okkur fjölskyldu sína, okkur öll.
Ég kveð þig að sinni amma mín
með þakklæti, stoltur af því að
vera frá þér kominn, sterkri konu,
fyrirmynd sem aldrei tók til
greina að gefast upp þó lífið hafi
oft minnt á sig, á langri lífsleið.
Hver nótt á sér morgun,
hver vetur á vor.
(Einar Benediktsson)
Hjörleifur og fjölskylda.
Langri viðburðaríkri ævi er lok-
ið. Hún sagðist vera tilbúin að
kveðja hún Bertha, þessi merki-
lega, gáfaða og skemmtilega kona.
Með henni fækkar þeim sem lifðu
hörmungartíma berklaveikinnar á
Íslandi. Aðeins fjögurra ára veikt-
ist hún og var inni á stofnunum til
12 ára aldurs. Fór hún því á mis við
eðlilegt heimilislíf og heimsóknir
voru afar takmarkaðar. Hún var
næstyngst af sex systkinum og sú
eina sem veiktist af berklum og
enginn hafði hugmynd um hvar
hún hafði smitast. Var hún flutt fár-
veik í Farsóttarhúsið sem stóð í
Þingholtstræti 25. Í heilt ár var hún
svo veik að hún steig ekki fram úr
rúminu. Dvölin var dapurleg, hún
var eina barnið á þessum spítala og
það litla sem hún sá út um glugga
voru húsin í kring. Á Farsótt lá hún
í fimm ár. Níu ára var hún lögð inn
á Vífilsstaði. Þar lá hún fyrstu árin
með fullorðnu, berklaveiku fólki.
Það var henni mjög gott en margir
létust og þá var talað um að þeir
væru farnir, ekki að þeir væru dán-
ir. Þarna lærði hún að tefla og
seinna þegar hún var flutt á barna-
deild Vífilsstaða fékk hún kennslu.
Hún varð fljótt fluglæs og las þær
bækur sem í boði voru, fræðibækur
og Íslendingasögurnar. Sagðist
hún halda mest upp á Grettissögu.
En þetta voru dapurleg æskuár.
Dauðinn var sífellt nálægur og sjálf
var hún sannfærð um að hún
myndi deyja eins og svo margir í
kringum hana. Bað hún móður sína
um að sjá til þess að tiltekinn sálm-
ur yrði sunginn við útförina. En
hún læknaðist og lifði öll sín systk-
ini.
Bertha var glæsileg svo eftir var
tekið. Hún giftist og bjó lengi í
Vestmannaeyjum þar sem þau
hjónin ráku Félagsbakaríið. Þrátt
fyrir álit læknis um að henni væri
ekki óhætt að ganga með og ala
börn eignaðist hún sex.
Ég á æskuminningu um að hafa
þegið vínarbrauðsenda í bakaríinu
eftir sundlaugarferð hjá þessari fal-
legu konu. Hún hallaði sér brosandi
fram á afgreiðsluborðið og spjallaði
við okkur krakkana meðan við
smjöttuðum á sætindunum.
Árin liðu og eftir gosið 1973 sett-
ust þau hjón að í Garðabæ þar sem
Bertha starfrækti skermagerð en
þá iðn hafði hún lært sem ung kona
eftir að hún náði sér af berklunum.
Hafði hún margar stúlkur í vinnu
og annaði varla eftirspurn.
Bertha var glaðvær og fé-
lagslynd og var meðal annars í
Kvenfélaginu Heimaey þar sem ég
átti því láni að fagna að endurnýja
kynnin. Fékk ég að heimsækja
hana og skrá atriði úr ævisögu
hennar sem birt voru nýlega í
blaðinu Fylki í Vestmannaeyjum.
Bertha var minnug og bæði for-
vitnilegt og fróðlegt að hlusta á frá-
sagnir hennar af langri ævi og
löngu liðnum tíma. Er ég þakklát
fyrir þær samverustundir sem ég
naut með henni. Minning hennar
mun lifa og votta ég ættingjum
hennar og aðstandendum samúð
mína.
Gunnhildur Hrólfsdóttir.
MINNINGAR 21
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 28. FEBRÚAR 2022
Elsku Fúsi hvíldu í friði.
Minningarnar um þig munu lifa
með okkur.
Brynja Áslaug.
Elsku besti Fúsi okkar.
Það er ofboðslega skrýtið fyr-
ir okkur að kveðja þig í dag,
mann sem okkur fannst einhvern
veginn hálf ósigrandi. Við vitum
að þú varst tilbúinn að fá að
sofna og við erum þakklát fyrir
að þú fékkst að gera það á þínum
forsendum. Það var þó þér líkt
að bíða eftir að yngsta barna-
barnið hennar ömmu Siggu væri
búið að fá að fagna háskólagráð-
unni sinni, sem sýnir hversu
mikið þér var alltaf umhugað um
aðra.
Við krakkarnir úr Skólatröð-
inni ólumst upp við það að við
gætum gert allt ef viljinn væri
fyrir hendi – enda ekki annað
hægt með fyrirmynd eins og
Fúsa. Við fáum enn í dag gjarn-
an að heyra frá mömmu þegar
hún er að kenna okkur nýja hluti
„svona gerir Fúsi þetta“. Þegar
við upplifum að við getum ekki
gert eitthvað þá erum við fljót að
hugsa til þín Fúsi, mannsins sem
lét „ekkert“ stöðva sig.
Það var alltaf gaman að fá þig
í heimsókn eða fara til þín í
Skeiðarvoginn. Þú varst venju-
lega varla sestur þegar við grip-
um hækjurnar þínar til að leika
okkur með, en aldrei sagðir þú
neitt við því. Þér fannst fátt
skemmtilegra en að æsa okkur
krakkana í rökræður með furðu-
legum staðhæfingum og hlóst
manna hæst þegar við bitum á
agnið. Það var t.d. hefð hver jól
þegar við vorum að borða að þú
stakkst upp á að sleppa því að
opna gjafirnar þetta árið. Það
sem þú og amma Sigga hlóguð
alltaf yfir viðbrögðunum hjá okk-
ur systkinunum þannig að það
ómaði um húsið. Enda vita það
allir að það hlær enginn jafn hátt
og þið systkinin úr Mýrdalnum.
Þú og amma Sigga voruð náin
systkini og í raun og veru varst
þú eins og afi fyrir okkur krakk-
ana. Þér fannst jafn gaman að
stríða henni og okkur og áttir
það til að setja út á rúsínufjöld-
ann í jólakökunni eða stærðina á
kleinunum hjá henni. Við systk-
inin vorum því fljót að læra að
stórar kleinur sem gerðu mann
kjaftstopp hétu Fúsakleinur.
Við eigum margar yndislegar
minningar með þér. Ein sem
stendur upp úr er þegar við fór-
um með ömmu Siggu og fjöl-
skyldunni úr Laxárdalnum í bú-
staðinn hans Didda í
Reynishverfinu, í tilefni af 70 ára
afmælinu þínu. Við fórum út að
borða á veitingastað við Höfða-
brekku og þú ákvaðst að fleyta
kerlingar með okkur krökkun-
um. Þú fullyrtir að þú gætir
fleytt einni alla leið upp að bú-
stað. Við tókum þessu nú með
fyrirvara enda með góða reynslu
af sögum frá Fúsa. Þegar við
komum um kvöldið að bústaðn-
um tókst þú upp alveg eins stein
og fullyrtir að hann hefði farið
frá Höfðabrekku, skoppað yfir
Reynisfjall og lent fyrir framan
bústaðinn. Það var ekkert sem
við gátum sagt til að sanna ann-
að.
Við gætum hæglega skrifað
lengri texta um sögurnar sem þú
sagðir okkur, frá leigubílstjóra-
árunum, fýlaveislurnar, tímanum
þar sem við montuðum okkur að
því að eiga frænda í „mafíunni“
og fleira. Það sem situr þó eftir
er lífsgleðin, smitandi hláturinn
og þrautseigjan sem einkenndi
þig og það er eitthvað sem við
tökum með okkur út í lífið.
Elsku Fúsi, takk fyrir allt sem
þú hefur gefið okkur og við vit-
um að þú munt hvíla í friði, hlæj-
andi með systkinunum.
Krakkarnir þínir úr Tröðinni,
Jóhann Heiðar, Sigríður El-
ísabet og Hilmar Smári.
Þeim fækkar óðum hinum
bjartsýnu og baráttuglöðum
frumherjum sem stofnuðu
Sjálfsbjörg. Við fráfall Sigfúss
okkar, koma margar mætar
minningar upp í huga okkar. Við
kveðjum einarðan og heilsteypt-
an félaga sem var löngum í fylk-
ingarbrjósti, átti mikinn trúnað
félaga og gegndi margvíslegum
störfum fyrir félagið, allt frá fjöl-
breyttu nefndarstarfi yfir mark-
víslag stjórnarstörf. Sigfús var
mikil baráttumaður og barðist
hann fyrir bílamálum öryrkja
strax og Sjálfsbjörg var stofnuð.
Hann átti heita sannfæringu fyr-
ir réttlæti og jöfnuði og var trúr
í því sem hann tók sér fyrir
hendur. Hann var farsæll í starfi
sem leigubílstjóri og einnig í
hans óeigingjarna starfi fyrir
Sjálfbjörgu á höfuðborgarsvæð-
inu.
Hann Sigfús skipaði sér þar í
sveit þeirra er hvað eindregnast
börðust fyrir réttindum og kjör-
um þeirra sem erfiðasta eiga lífs-
gönguna og naut þar trúnaðar
félaga sinna. Hann var þeirrar
einlægu skoðunar að almenn
virkni í samfélagsmálum ætti að
vera liður í baráttunni fyrir rétt-
læti fötluðum til handa.
Hann Sigfús var hógvær mað-
ur en glettinn, en umfram allt
með vermandi hlýju. Þessara
eðliskosta nutum við félagar
hans ríkulega. Hann lét fötlun
sína aldrei ráða för.
Sigfús var heiðraður æðsta
merki Sjálfsbjargar á höfuð-
borgarsvæðinu árið 2018.
Við hjá Sjálfbjörgu á höfuð-
borgarsvæðinu þökkum gefandi
samskipti áranna og alveg sér-
staklega allt hans fórnfúsa starf
fyrir félagið.
Blessuð er minning Sigfúsar
Brynjólfssonar.
Fyrir hönd Sjálfsbjargar á
höfuðborgarsvæðinu,
Grétar Pétur Geirsson
formaður.
✝
Gísli Þórir Vic-
torsson fæddist
í Reykjavík 11.
október 1934.
Hann lést 15. febr-
úar 2022 á
Heilbrigðisstofnun
Vestfjarða, Pat-
reksfirði.
Foreldrar hans
voru Victor Krist-
inn Helgason,
veggfóðrarameist-
ari, f. 1897, d. 1955, og Pálína
Eygló Gísladóttir, f. 1890, d.
1966. Systkini hans eru Ingvi
Jóhannes, f. 1925, d. 2001, Anna
Hulda, f. 1926, d. 1985, Eygló, f.
1927 d. 1990 og Helgi, f. 1931.
Þann 23. nóvember 1957
kvæntist Gísli Sigurósk Eyland
Jónsdóttur (Nanný), f. 8. maí
1937, d. 6. júlí 2020, frá Pat-
reksfirði. Þau skildu árið 2003.
Foreldrar hennar voru Jón
Bjarni Ólafsson og Sigríður
Kristjana Sigurðardóttir. Gísli
og Nanný eignuðust fimm börn;
1) Eygló, f. 1958, maki Olle
Bergh, f. 1953. Börn Eyglóar
eru Eva Lotta Forsström, maki
Arne Forsström, b) Gísli Patrik
Stanleysson, maki Anna Fernq-
vist. 2) Kristín, f. 1960, maki
Gunnlaugur Úlfar Gunn-
með 4. flokki og gekk í Mela-
skóla, en einnig var hann tvo
vetur í Reykjaskóla í Hrútafirði.
Á æskuheimilinu var mikið tón-
listarlíf, hann lærði á ýmis hljóð-
færi sem barn og söng í drengja-
kór. Hann vann sem ungur
maður í veggfóðursverslun föð-
ur síns en var einnig á sjó þar til
hann komst á samning hjá
múrarameistara. Hann fékk
sveinspróf árið 1956 frá Iðnskóla
Reykjavíkur og síðan meist-
araréttindi 1963. Gísli og Nanný
hófu búskap í Reykjavík árið
1957 en fluttust síðan til Pat-
reksfjarðar árið 1963 þar sem
Gísli starfaði æ síðan sem múr-
ari ásamt ýmsum tilfallandi
störfum. Tónlist skipaði stóran
sess í lífi Gísla, hann var stofn-
félagi í Karlakór Patreksfjarðar
og Karlakórnum Vestra og söng
einnig með fleiri kórum. Hann
var söngvari í hljómsveit á Pat-
reksfirði sem kallaði sig Neistar
og Gísli og þá söng hann bassa í
Kirkjukór Patrekskirkju fram á
níræðisaldur. Gísli var einn af
stofnendum Tónlistarskóla Pat-
reksfjarðar og var þar stjórnar-
formaður í nokkur ár. Hann
starfaði í nokkur ár sem for-
stöðumaður Félagsheimilis Pat-
reksfjarðar og einnig nokkur ár
sem húsvörður í Grunnskóla
Patreksfjarðar. Þá var hann fé-
lagi í Lionsklúbbi Patreksfjarðar
til dauðadags.
Útför Gísla fer fram frá Ás-
kirkju í Reykjavík í dag, 28.
febrúar 2022, klukkan 13.
laugsson, f. 1958, d.
2019. Dóttir Krist-
ínar er Sunna Sig-
urósk Gísladóttir,
maki Gylfi Gígja
Geirsson. Börn
Gunnlaugs Úlfars
eru a) Eva Rut,
maki Þorbjörn Sig-
fússon, b) Gunný, c)
Þorfinnur, maki
Ágústa Jóna Heið-
dal. 3) Gerður, f.
1964, maki Sigurður Borgar
Guðmundsson, f. 1965. Börn
þeirra eru a) Karitas, b) Guð-
mundur Gauti. 4) Victor Krist-
inn, f. 1966, sjómaður, maki
Julia Anna Kubowic, f. 1991.
Börn Victors eru a) Monika D.
Eyland, b) Tinna Holt, maki
Guðmundur Orri Arnarson. 5)
Jóhanna, f. 1970, maki Geir
Gestsson, f. 1967. Börn a) Vic-
toría Kristín, maki Berglind
Muller. b) Gabríel Már, maki
Jenný Jónsdóttir. Dóttir Geirs
er Guðríður Hlín. Langafabörn-
in eru sjö, Embla Alexandra,
Freyja Cecelia, Victor Emil,
Ville Gísli, Baldur Marinó, Eric
Ás og óskírð Tinnudóttir.
Gísli ólst upp á Seljavegi 9 í
Vesturbæ Reykjavíkur. Hann
var KR-ingur, spilaði fótbolta
Elskulegur faðir okkar, Gísli
Þórir Victorsson, lést þann 15.
febrúar eftir stutta sjúkrahús-
legu. Við systkinin minnumst
pabba með mikilli hlýju. Pabbi
var alltaf til staðar, hann var
múrarameistari og vann mest á
Patreksfirði þótt hann tæki
stundum að sér verkefni annars
staðar. Við áttum góða æsku og
fengum ástríkt uppeldi. Foreldr-
ar okkar voru ekki ströng en það
var ætlast til þess af okkur að við
stæðum okkur í vinnu og námi.
Tónlist skipaði stóran sess á
heimili okkar. Söngurinn var líf
og yndi pabba, hann var mjög
góður söngvari, söng í hljóm-
sveitinni Neistar og Gísli og í
ýmsum kórum, lengst var hann í
kirkjukór Patreksfjarðar þar
sem hann söng bassa fram á ní-
ræðisaldur. Pabbi fékk píanó í af-
mælisgjöf frá mömmu þegar
hann var fertugur og eigum við
systkinin góðar minningar um
hann að spila á píanóið. Hann
lagði mikla áherslu á að við systk-
inin lærðum á hljóðfæri og iðk-
uðum söng. Pabbi var forstöðu-
maður Félagsheimilis
Patreksfjarðar í nokkur ár eftir
að það var byggt 1975 og það var
oft skemmtilegt fyrir okkur
krakkana þegar helstu skemmti-
kraftar og hljómsveitir að sunnan
voru í mat og gistingu heima hjá
okkur. Pabbi var mikill hagleiks-
maður, það var sama á hvaða
sviði það var, hann gat allt og var
mikill listamaður. Hann föndraði
oft afmælis- og jólagjafir og er
okkur krökkunum afar minnis-
stæðir mósaíköskubakkar og síg-
arettukrúsir sem hann gerði ein
jólin fyrir ættingjana. Pabbi var
mikill matmaður, hann var samt
ekki mikið að elda sjálfur eða
baka en hann skreytti oft tert-
urnar fyrir mömmu sem voru þá
algjör listaverk. Pabbi og
mamma voru miklir dýravinir og
ólu okkur upp við það að elska
dýr og bera virðingu fyrir þeim.
Pabbi var afskaplega bóngóður
og nutum við systkinin góðs af
því þegar við fórum að byggja
okkar eigin heimili. Alltaf var
hann tilbúinn að koma og hjálpa
okkur með hvað sem var og hann
flísalagði, parketlagði, smíðaði
eða múraði eitthvað fyrir okkur
öll. Pabbi hlustaði mikið á útvarp-
ið og fylgdist vel með nýjustu
straumum og stefnum í músík,
hann var alæta á tónlist þótt hann
væri ekki hrifinn af þungarokki,
honum fannst það nú bara öskur
og læti. Pabbi var mikill barna-
karl og var mjög hreykinn af
barnabörnum sínum og minnast
þau afa síns með mikilli væntum-
þykju. Pabbi og mamma skildu
árið 2003 eftir 45 ára hjónaband
og hún flutti til Reykjavíkur. Þau
héldu samt mjög góðu sambandi
alla tíð og var það honum mjög
þungbært þegar hún lést fyrir
einu og hálfu ári síðan. Að þeirra
ósk verður hann lagður til hinstu
hvílu við hlið hennar í Gufunes-
kirkjugarði.
Elsku pabbi, við systkinin og
fjölskyldur þökkum þér sam-
fylgdina og minnumst þín með
söknuð í hjarta. Jóhönnu, Geir og
börnum þeirra þökkum við hin
systkinin alla þá hjálp og um-
hyggju sem þau hafa sýnt pabba,
hann kom til þeirra á hverjum
degi og þau voru kletturinn í líf
hans síðustu 20 árin.
Hvíldu í friði elsku pabbi, við
elskum þig.
Þín börn
Eygló, Kristín, Gerður,
Victor og Jóhanna.
Gísli Þórir
Victorsson
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
SVANHVÍT RAGNARSDÓTTIR,
Smáraflöt 20, Garðabæ,
lést á heimili sínu laugardaginn 19. febrúar.
Jarðarförin fer fram frá Garðakirkju
þriðjudaginn 1. mars klukkan 13.
Þeim sem vilja minnast hennar er bent á Alzheimersamtökin.
Aðalheiður Ófeigsdóttir
Guðbjörg Ófeigsdóttir
Margrét Ófeigsdóttir
Jakob Viðar Ófeigsson
og fjölskyldur þeirra
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og
bróðir,
HAUKUR EMIL VERNHARÐSSON
vélvirki,
Kuummiit, Tasiilaq, Grænlandi,
lést á Sygehus Tasiilaq 20. febrúar
síðastliðinn. Minningarathöfn verður auglýst
síðar.
Magnús F. Hauksson
Arndís Andersen
Marina Andersen Svavar E. Kjærnested
barnabörn og systkini
Kær frændi okkar,
OSVALD KRATSCH
hárgreiðslumeistari, Hönefoss, Noregi,
áður í Stigahlíð 20, Reykjavík,
lést á hjúkrunarheimilinu í Hönefoss 23.
febrúar sl. Minningarathöfn verður í
Hönefoss, en útför hans á Íslandi verður
auglýst síðar.
Systkinabörn hins látna