Morgunblaðið - 28.02.2022, Side 24

Morgunblaðið - 28.02.2022, Side 24
24 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 28. FEBRÚAR 2022 DUXIANA Reykjavik | Ármuli 10 | Reykjavik | +354 5 68 99 50 | www.duxiana.is GÆÐI OG ÞÆGINDI SÍÐAN 1926 DUX 1001 - VÍÐÞEKKT ÞÆGINDI Byggt á fyrsta DUX rúminu sem var framleitt árið 1926, þetta er sannarlega það sem draumar eru byggðir á. 40 ÁRA Siggi Hannes er Reykvíkingur, ólst upp í Hólunum í Efra-Breiðholti en býr í Álfheimum. Hann er menntaður í kvikmyndagerð frá New York Film Aca- demy og vinnur við markaðssetningu og myndbandsgerð hjá Icepharma en er í fæðingarorlofi. „Áhugamál mín eru þetta týpíska, hreyfing áður en börnin vakna, hlaðvörp í einu eyra á meðan börnin vaka og matur er eldaður, bíómyndir/þættir eftir að börnin sofna og svo les ég stund- um eina til tvær blaðsíður fyrir svefninn. Annars eru bækurnar á náttborðinu fyrst og fremst minnisvarði um brostin heit.“ FJÖLSKYLDA Sambýliskona Sigga er Sylvía Clothier Rúdolfsdóttir, f. 1985, skrifstofustjóri hjá Microsoft á Íslandi. Dætur þeirra eru Álfrún Vala, f. 2016 og Ylfa Margaret, f. 2021. Stjúpsonur Sigga er Theodór Guðlaugsson, f. 2006. Foreldrar Sigga eru Ásgeir Hannes Eiríks- son, f. 1947, d. 2015, þingmaður og pylsusali, og Valgerður Hjartardóttir, f. 1951, starfaði hjá Icelandair. Hún er búsett í Reykjavík. Sigurður Hannes Ásgeirsson Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl , Hrútur Það er ástæða til þess að fagna í dag því þú hefur þrátt fyrir mótlæti staðið þig vel. Dekraðu við sjálfa/n þig í kvöld. 20. apríl - 20. maí + Naut Löngun þín til skipulagningar er aðdá- unarverð. Þolinmæði þín við að ná tiltekinni færni skilar þér árangri að lokum. 21. maí - 20. júní 6 Tvíburar Það gengur ekki í sambandi við annan aðila að annar hafi allt eftir sínu höfði. Leitaðu þér hjálpar svo þú megir kom- ast aftur á þinn stað í lífinu. 21. júní - 22. júlí 4 Krabbi Taktu ekki að þér aukaverkefni nema þú sért undir það búin/n að vera und- ir álagi í einhvern tíma. Sinntu fólkinu í kringum þig. 23. júlí - 22. ágúst Z Ljón Þú ert bjartsýn/n, opin/n og kapp- söm/samur í dag og það fær fólkið í kring- um þig til að brosa. Auðveldaðu vinum og fjölskyldu að koma með tillögur og bjóða þér aðstoð. 23. ágúst - 22. sept. l Meyja Þú verður að sníða þér stakk eftir vexti því það kostar bara vandræði að láta óskhyggju ráða för. Þú kýst heilsteypt og ná- in samskipti. 23. sept. - 22. okt. k Vog Settu þér það að markmiði að taka til í kringum þig og losa þig við allan óþarfa. Ein- hver sem þú átt ekki von á lítur kannski við á heimili þínu í dag. 23. okt. - 21. nóv. j Sporðdreki Þú ert upp á þitt besta og hefur jákvæð áhrif á umhverfi þitt með léttleika þínum. Reyndu að koma eins mikilli afþrey- ingu fyrir á einum degi og þú getur. 22. nóv. - 21. des. h Bogmaður Þú ættir að viðra hugmyndir þínar við vinnufélagana og sjá hvaða við- brögð þær fá. Það er hægt að gera sér daga- mun án þess að setja sig í miklar skuldir. 22. des. - 19. janúar @ Steingeit Leitaðu leiða til að bæta heimilis- aðstæður þínar. Kannski þarftu að ræða verkaskiptingu við makann? Sýndu vænt- umþykju á nýja vegu. 20. jan. - 18. febr. ? Vatnsberi Þú þarft að berjast fyrir sjálf- stæði þínu bæði heima fyrir og í vinnunni. Láttu það ekki koma þér á óvart og stattu fast á þínu. 19. feb. - 20. mars = Fiskar Þú eignast öflugan bandamann, sem mun gera þér kleift að koma í höfn verkefni, sem þú hefur lengi barist fyrir að fá að klára. Mats var meðal annars í samvinnu við Ósvald Knudsen og sýndi kvik- myndirnar hans Sveitin milli sanda (úr Öræfum) og Surtur fer sunnan (um Surtseyjargosið) við góðar undirtektir. Stofnaði ljósmyndaþjónustu Eftir komuna til Íslands hélt Mats áfram að vera fréttaritari er- lendra dagblaða og vikublaða, en ljósmyndunin tók ávallt meiri tíma þannig að hann stofnaði Ljós- myndaþjónustuna. „Þar var þunga- miðjan landslagsljósmyndun og kynningar- og auglýsingaverkefni fyrir atvinnulífið. Fyrirtækið var fyrst til húsa í Lágmúla en síðan á Laugavegi 178, þar sem ég opnaði fyrstu fagverslun sinnar tegundar á M ats Wibe Lund fædd- ist 28 febrúar 1937 í Ósló, Noregi, en æskuheimili hans var í skógi vöxnum hlíðum norðan við höfuðborgina þar sem heitir Holmenkollen. Staðurinn er einna helst þekktur fyrir árleg stórmót í Holmenkoll-bakken þar sem haldnir voru vetrarólympíu- leikar 1952. „Hér voru allir á skíð- um, svigi, stökki og göngu og úr göt- unni komu meðal annars fjórir keppendur á Ólympíuleikunum. Á sumrum var haldið til fjalla í bústað fjölskyldunnar á Geilo, en þar kynntist ég gömlum búskapar- háttum á næstu bújörð.“ Mats stundaði grunnskóla- og menntaskólanám í heimabænum en á þessum árum fór hann til Íslands og tók meðal annars þátt í forn- minjagrefti í Skálholti. Hann var tvö ár í herþjónustu í Kongunglega norska flughernum, m.a. við þjálfun í herskóla í Versölum í Frakklandi og síðan á herstöðinni á Bodö- flugvelli. Eftir nám í blaðamennsku og viðskiptum fór hann í tveggja ára meistaranám í ljósmyndaskólann Staatliche Höhere Fachschule für Photographie í Köln. „Fram að þessum tímamótum hafði ég oft far- ið til Íslands til að afla mér efnis í fjölda myndskreyttra greina fyrir dagblöð og tímarit víðsvegar um Evrópu. Einnig var ég með fyrir- lestra bæði í Þýskalandi og Noregi.“ Að loknu náminu í Þýskalandi fór Mats aftur til Íslands og vann þá ýmis ljósmyndaverkefni, meðal ann- ars í Þjóðminjasafninu. Hann vann mikið fyrir erlenda fjölmiðla og telja greinar hans á annað þúsund. „Um haustið 1962 lá leiðin heim til föður- landsins og stuttu fyrir jól hitti ég Arndísi sem þá var við hjúkrunar- fræðinám á Ullevål-sjúkrahúsinu í Ósló. Næsta vor ákváðum við að fara saman til Íslands og trúlofuðum við okkur í leiðinni í Kaupmanna- höfn, en árið eftir giftum við okkur í gömlu torfkirkjunni á Árbæjarsafn- inu. Við bjuggum svo í Ósló fram á vor 1966 svo hún gæti klárað námið og ég fór þá í fyrirlestra- og kvik- myndasýningarferðir um Noreg.“ Íslandi. Ég bætti svo við heildsölu, litmyndavinnslu, myndabanka og innrömmunarþjónusta, svo að starfsmannafjöldinn var orðinn 16. Vinnuálagið var orðið mikið og því seldi ég deildirnar þangað til ég sat einn eftir með myndasafnið, lit- myndavinnsluna og átthagamynda- tökurnar úr lofti.“ Mats eignaðist sína eigin flugvél, Cessna Skyhawk TF-IDA, og flaug þvers og kruss yfir landið með góð- um flugmönnum. „Svo fullvann ég stórar myndir í römmum og lagði land undir fót til að freista gæf- unnar. Nú er svo komið að ég þarf að endurvinna margar myndir sem hafa upplitast vegna sólarbirtu. Myndirnar eiga að vera stolt mitt og því geri ég þetta án þess að taka aftur höfundarþóknun.“ Haustið 2011 var Mats boðið að heimsækja Íslendingabyggðir vest- anhafs og sýndi þá myndir af átt- högum þaðan sem forfeðurnir höfðu flutt. „Alls voru haldnar 11 sýningar við góðar undirtektir. Í framhaldinu þegar heim var komið sýndi ég vist- mönnum á dvalarheimilum myndir frá átthögum þeirra. Oft vöknuðu alzheimersjúklingar þegar þeir sáu allt í einu gömlu heimahagana. Að geta glatt svo marga með þessari iðju minni er í reynd einn af há- punktum ævistarfsins.“ Mats hefur tekið þátt í bæði ljós- myndasamsýningum hér heima og erlendis og á sýningu í Norræna húsinu 1968 kynnti hann líka bókina Frjáls eins og fuglinn með minn- ingabrotum og rúmlega 200 mynd- um. Haustið 1970 var Mats aðal- hvatamaður að því að koma á fót Round Table, félagi ungra manna. „Upphaflega var félagið stofnað á Englandi á millistríðsárunum af Rotary-félögum sem fannst and- rúmsloftið of settlegt hjá sér. Með tímanum hafa verið stofnaðir 15 RT- klúbbar hér. Menn eru félagar frá 18 til 45 ára og eftir það fara menn gjarnan í Old Table. Samtals hafa um 2.000 manns komið við sögu Round Table hér á landi.“ Fjölskylda Eiginkona Mats var Arndís Mats Wibe Lund, ljósmyndari og blaðamaður – 85 ára Ljósmyndarinn Mats heillaðist snemma af Íslandi og kom margoft til lands- ins að taka myndir og skrifa greinar áður en hann settist hér að vorið 1966. Frjáls eins og fuglinn Hjónin Arndís og Mats. Til hamingju með daginn Reykjavík Ylfa Margaret Sigurðardóttir Clothier fæddist 7. mars 2021 kl. 13.09 í Reykjavík. Hún vó 3.700 g og var 52 cm löng. Foreldrar hennar eru Sigurður Hannes Ásgeirs- son og Sylvía Clothier Rudolfsdóttir. Nýr borgari

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.