Morgunblaðið - 28.02.2022, Qupperneq 24
24 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 28. FEBRÚAR 2022
DUXIANA Reykjavik | Ármuli 10 | Reykjavik | +354 5 68 99 50 | www.duxiana.is
GÆÐI OG ÞÆGINDI
SÍÐAN 1926
DUX 1001 - VÍÐÞEKKT ÞÆGINDI
Byggt á fyrsta DUX rúminu sem var framleitt árið 1926, þetta er sannarlega það sem draumar eru byggðir á.
40 ÁRA Siggi Hannes er Reykvíkingur,
ólst upp í Hólunum í Efra-Breiðholti en
býr í Álfheimum. Hann er menntaður í
kvikmyndagerð frá New York Film Aca-
demy og vinnur við markaðssetningu og
myndbandsgerð hjá Icepharma en er í
fæðingarorlofi. „Áhugamál mín eru þetta
týpíska, hreyfing áður en börnin vakna,
hlaðvörp í einu eyra á meðan börnin vaka
og matur er eldaður, bíómyndir/þættir
eftir að börnin sofna og svo les ég stund-
um eina til tvær blaðsíður fyrir svefninn.
Annars eru bækurnar á náttborðinu fyrst
og fremst minnisvarði um brostin heit.“
FJÖLSKYLDA Sambýliskona Sigga er
Sylvía Clothier Rúdolfsdóttir, f. 1985,
skrifstofustjóri hjá Microsoft á Íslandi.
Dætur þeirra eru Álfrún Vala, f. 2016 og
Ylfa Margaret, f. 2021. Stjúpsonur Sigga
er Theodór Guðlaugsson, f. 2006. Foreldrar Sigga eru Ásgeir Hannes Eiríks-
son, f. 1947, d. 2015, þingmaður og pylsusali, og Valgerður Hjartardóttir, f.
1951, starfaði hjá Icelandair. Hún er búsett í Reykjavík.
Sigurður Hannes Ásgeirsson
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl ,
Hrútur Það er ástæða til þess að fagna í
dag því þú hefur þrátt fyrir mótlæti staðið
þig vel. Dekraðu við sjálfa/n þig í kvöld.
20. apríl - 20. maí +
Naut Löngun þín til skipulagningar er aðdá-
unarverð. Þolinmæði þín við að ná tiltekinni
færni skilar þér árangri að lokum.
21. maí - 20. júní 6
Tvíburar Það gengur ekki í sambandi við
annan aðila að annar hafi allt eftir sínu
höfði. Leitaðu þér hjálpar svo þú megir kom-
ast aftur á þinn stað í lífinu.
21. júní - 22. júlí 4
Krabbi Taktu ekki að þér aukaverkefni
nema þú sért undir það búin/n að vera und-
ir álagi í einhvern tíma. Sinntu fólkinu í
kringum þig.
23. júlí - 22. ágúst Z
Ljón Þú ert bjartsýn/n, opin/n og kapp-
söm/samur í dag og það fær fólkið í kring-
um þig til að brosa. Auðveldaðu vinum og
fjölskyldu að koma með tillögur og bjóða þér
aðstoð.
23. ágúst - 22. sept. l
Meyja Þú verður að sníða þér stakk eftir
vexti því það kostar bara vandræði að láta
óskhyggju ráða för. Þú kýst heilsteypt og ná-
in samskipti.
23. sept. - 22. okt. k
Vog Settu þér það að markmiði að taka til í
kringum þig og losa þig við allan óþarfa. Ein-
hver sem þú átt ekki von á lítur kannski við á
heimili þínu í dag.
23. okt. - 21. nóv. j
Sporðdreki Þú ert upp á þitt besta og hefur
jákvæð áhrif á umhverfi þitt með léttleika
þínum. Reyndu að koma eins mikilli afþrey-
ingu fyrir á einum degi og þú getur.
22. nóv. - 21. des. h
Bogmaður Þú ættir að viðra hugmyndir
þínar við vinnufélagana og sjá hvaða við-
brögð þær fá. Það er hægt að gera sér daga-
mun án þess að setja sig í miklar skuldir.
22. des. - 19. janúar @
Steingeit Leitaðu leiða til að bæta heimilis-
aðstæður þínar. Kannski þarftu að ræða
verkaskiptingu við makann? Sýndu vænt-
umþykju á nýja vegu.
20. jan. - 18. febr. ?
Vatnsberi Þú þarft að berjast fyrir sjálf-
stæði þínu bæði heima fyrir og í vinnunni.
Láttu það ekki koma þér á óvart og stattu
fast á þínu.
19. feb. - 20. mars =
Fiskar Þú eignast öflugan bandamann, sem
mun gera þér kleift að koma í höfn verkefni,
sem þú hefur lengi barist fyrir að fá að klára.
Mats var meðal annars í samvinnu
við Ósvald Knudsen og sýndi kvik-
myndirnar hans Sveitin milli sanda
(úr Öræfum) og Surtur fer sunnan
(um Surtseyjargosið) við góðar
undirtektir.
Stofnaði ljósmyndaþjónustu
Eftir komuna til Íslands hélt
Mats áfram að vera fréttaritari er-
lendra dagblaða og vikublaða, en
ljósmyndunin tók ávallt meiri tíma
þannig að hann stofnaði Ljós-
myndaþjónustuna. „Þar var þunga-
miðjan landslagsljósmyndun og
kynningar- og auglýsingaverkefni
fyrir atvinnulífið. Fyrirtækið var
fyrst til húsa í Lágmúla en síðan á
Laugavegi 178, þar sem ég opnaði
fyrstu fagverslun sinnar tegundar á
M
ats Wibe Lund fædd-
ist 28 febrúar 1937 í
Ósló, Noregi, en
æskuheimili hans
var í skógi vöxnum
hlíðum norðan við höfuðborgina þar
sem heitir Holmenkollen. Staðurinn
er einna helst þekktur fyrir árleg
stórmót í Holmenkoll-bakken þar
sem haldnir voru vetrarólympíu-
leikar 1952. „Hér voru allir á skíð-
um, svigi, stökki og göngu og úr göt-
unni komu meðal annars fjórir
keppendur á Ólympíuleikunum. Á
sumrum var haldið til fjalla í bústað
fjölskyldunnar á Geilo, en þar
kynntist ég gömlum búskapar-
háttum á næstu bújörð.“
Mats stundaði grunnskóla- og
menntaskólanám í heimabænum en
á þessum árum fór hann til Íslands
og tók meðal annars þátt í forn-
minjagrefti í Skálholti. Hann var tvö
ár í herþjónustu í Kongunglega
norska flughernum, m.a. við þjálfun
í herskóla í Versölum í Frakklandi
og síðan á herstöðinni á Bodö-
flugvelli. Eftir nám í blaðamennsku
og viðskiptum fór hann í tveggja ára
meistaranám í ljósmyndaskólann
Staatliche Höhere Fachschule für
Photographie í Köln. „Fram að
þessum tímamótum hafði ég oft far-
ið til Íslands til að afla mér efnis í
fjölda myndskreyttra greina fyrir
dagblöð og tímarit víðsvegar um
Evrópu. Einnig var ég með fyrir-
lestra bæði í Þýskalandi og Noregi.“
Að loknu náminu í Þýskalandi fór
Mats aftur til Íslands og vann þá
ýmis ljósmyndaverkefni, meðal ann-
ars í Þjóðminjasafninu. Hann vann
mikið fyrir erlenda fjölmiðla og telja
greinar hans á annað þúsund. „Um
haustið 1962 lá leiðin heim til föður-
landsins og stuttu fyrir jól hitti ég
Arndísi sem þá var við hjúkrunar-
fræðinám á Ullevål-sjúkrahúsinu í
Ósló. Næsta vor ákváðum við að
fara saman til Íslands og trúlofuðum
við okkur í leiðinni í Kaupmanna-
höfn, en árið eftir giftum við okkur í
gömlu torfkirkjunni á Árbæjarsafn-
inu. Við bjuggum svo í Ósló fram á
vor 1966 svo hún gæti klárað námið
og ég fór þá í fyrirlestra- og kvik-
myndasýningarferðir um Noreg.“
Íslandi. Ég bætti svo við heildsölu,
litmyndavinnslu, myndabanka og
innrömmunarþjónusta, svo að
starfsmannafjöldinn var orðinn 16.
Vinnuálagið var orðið mikið og því
seldi ég deildirnar þangað til ég sat
einn eftir með myndasafnið, lit-
myndavinnsluna og átthagamynda-
tökurnar úr lofti.“
Mats eignaðist sína eigin flugvél,
Cessna Skyhawk TF-IDA, og flaug
þvers og kruss yfir landið með góð-
um flugmönnum. „Svo fullvann ég
stórar myndir í römmum og lagði
land undir fót til að freista gæf-
unnar. Nú er svo komið að ég þarf
að endurvinna margar myndir sem
hafa upplitast vegna sólarbirtu.
Myndirnar eiga að vera stolt mitt og
því geri ég þetta án þess að taka
aftur höfundarþóknun.“
Haustið 2011 var Mats boðið að
heimsækja Íslendingabyggðir vest-
anhafs og sýndi þá myndir af átt-
högum þaðan sem forfeðurnir höfðu
flutt. „Alls voru haldnar 11 sýningar
við góðar undirtektir. Í framhaldinu
þegar heim var komið sýndi ég vist-
mönnum á dvalarheimilum myndir
frá átthögum þeirra. Oft vöknuðu
alzheimersjúklingar þegar þeir sáu
allt í einu gömlu heimahagana. Að
geta glatt svo marga með þessari
iðju minni er í reynd einn af há-
punktum ævistarfsins.“
Mats hefur tekið þátt í bæði ljós-
myndasamsýningum hér heima og
erlendis og á sýningu í Norræna
húsinu 1968 kynnti hann líka bókina
Frjáls eins og fuglinn með minn-
ingabrotum og rúmlega 200 mynd-
um. Haustið 1970 var Mats aðal-
hvatamaður að því að koma á fót
Round Table, félagi ungra manna.
„Upphaflega var félagið stofnað á
Englandi á millistríðsárunum af
Rotary-félögum sem fannst and-
rúmsloftið of settlegt hjá sér. Með
tímanum hafa verið stofnaðir 15 RT-
klúbbar hér. Menn eru félagar frá
18 til 45 ára og eftir það fara menn
gjarnan í Old Table. Samtals hafa
um 2.000 manns komið við sögu
Round Table hér á landi.“
Fjölskylda
Eiginkona Mats var Arndís
Mats Wibe Lund, ljósmyndari og blaðamaður – 85 ára
Ljósmyndarinn Mats heillaðist snemma af Íslandi og kom margoft til lands-
ins að taka myndir og skrifa greinar áður en hann settist hér að vorið 1966.
Frjáls eins og fuglinn
Hjónin Arndís og Mats.
Til hamingju með daginn
Reykjavík Ylfa Margaret
Sigurðardóttir Clothier
fæddist 7. mars 2021 kl.
13.09 í Reykjavík. Hún vó
3.700 g og var 52 cm löng.
Foreldrar hennar eru
Sigurður Hannes Ásgeirs-
son og Sylvía Clothier
Rudolfsdóttir.
Nýr borgari