Morgunblaðið - 28.02.2022, Side 18
18 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 28. FEBRÚAR 2022
✝
Helga Þórdís
Tryggvadóttir
fæddist á Bjarnar-
stöðum í Garði 28.
mars 1938. Hún
lést á Heilbrigð-
isstofnun Suður-
nesja 19. febrúar
2022.
Helga var dóttir
hjónanna Tryggva
Einarssonar, f.
23.11. 1914, og
Bjargar Guðlaugsdóttur, f.
2.11. 1913, sem bæði voru ætt-
uð úr Garðinum. Hún átti sex
systkini, Einar, Tobías og
Ásta eru látin en Kristín
Bjarnveig, Ólafur og Tryggvi
Björn lifa systur sína.
23. mars 1957 giftist Helga
Þórdís Eyjólfi Gíslasyni, f.
Barnabörnin eru 27 og barna-
barnabörnin eru 58.
Helga var einungis 6 ára
þegar hún byrjaði að passa
börn. Hún var send í vist í
fimm sumur, aðstoðaði við
heimilishald í Móhúsum, þá
vist sagði hún hafa styrkt sig
mikið og þroskað. Helga var
heimavinnandi þegar börnin
voru ung en vann annað slag-
ið í hlutastörfum eins og í
síld, saltfiski, þrifum og
fleiru. Umönnunarstörf heill-
uðu hana þó mest og vann
hún á Garðvangi í 18 ár. Hún
sinnti félagsstörfum ávallt af
alúð og var heiðursfélagi í
bæði kvenfélaginu Gefn og
Knattspyrnufélaginu Víði.
Hún naut sín mikið við hann-
yrðir í Auðarstofu, félagi
eldri borgara í Garði. Útförin
fer fram frá Útskálakirkju í
dag, 28. febrúar 2022, kl. 15.
Sjónvarpað er frá Miðgarði
sal Gerðaskóla.
Hlekkur á streymi:
https://www.mbl.is/andlat
28.4. 1934. Hann
var sonur
hjónanna Gísla
Matthíasar Sig-
urðssonar og Ingi-
bjargar Þorgerð-
ar
Guðmundsdóttur
frá Miðhúsum
Garði. Helga Þór-
dís og Eyjólfur
áttu saman átta
börn. Þau eru:
Gísli Matthías, f. 26. janúar
1955, Magnús, f. 12. janúar
1957, Kristín, f. 27. janúar
1958, Gunnar Björn, f. 1. febr-
úar 1960, Ingibjörg Þorgerð-
ur, f. 3. júlí 1960, Kristbjörg,
f. 17. september 1966, Guð-
rún, f. 20. febrúar 1968, og
Eygló, f. 9. janúar 1971.
Móðir mín Helga Þórdís
Tryggvadóttir lést á Sjúkrahúsi
Keflavíkur (Heilbrigðisstofnun
Suðurnesja) laugardaginn 19.
febrúar kl. 23.45 eftir að hafa
dvalið þar í vikutíma.
Mamma var alveg ótrúleg
kona. Hún var alltaf jákvæð,
mjög trúuð og hugsaði vel um
sig og sína.
Við systkinin erum átta sem
segir manni að oft var fjör í
Laufási þar sem við ólumst upp.
Það má nærri geta að það hefur
verið erfitt að hugsa um þennan
skara en mamma fór létt með
það. Hún notað jákvæðnina til
að komast í gegnum dagana og
alltaf tilbúin fyrir okkur.
Ég man þá daga þegar hún
fór að salta síld á Gauksstöðum
og tók mig með til að hjálpa til.
Ég gleymi þessu aldrei, að fá að
hjálpa mömmu var mér kært og
lærdómsríkt.
Það má segja að mamma
stjanaði við okkur systkinin eins
það væri hin eðlilegasti hlutur.
Sem betur fer höfum við þakkað
fyrir þetta með því að hugsa vel
um hana þegar hún þurfti á því
að halda.
Hún hafði gaman af því að
prjóna og hafa allir meðlimir
stórfjölskyldunnar notið þess,
börn, barnabörn og barnabarna-
börn klæðast peysum, sokkum,
vettlingum, húfum, allt prjónað
af henni. Hún elskaði þetta og
það var ekki það eina sem hún
hafði gaman af að gera. Hún
hafði mjög gaman af að gera
ýmis konar kort, afmæliskort,
fermingarkort, minningakort og
giftingakort.
Ég man eftir þegar mamma
þurfti að fara með mig til lækn-
inga til Reykjavíkur. Við fórum
með SBK-rútunni að morgni og
þurftum stundum að vera næt-
urlangt því það þurfti að smíða á
mig spelkur og skó.
Þetta varð ég að notast við í
rúm tvö ár og mátti ekki taka
spelkuna af mér. Það var mér
erfitt stundum að geta ekki farið
í leiki eða fótbolta á skólalóðinni.
Einn daginn ákvað ég að fara úr
spelkunni til að vera með í fót-
bolta. Mamma hafði verið að
fylgjast með okkur krökkunum
og sá að ég var búinn að henda
spelkunni. Hún hrópaði á mig og
sagði mér að hunskast í spelk-
una. Ég held að þetta hafi verði
eina skiptið í lífinu sem hún
skammaði mig.
Það er öruggt að mamma hef-
ur yfirgefið þetta jarðlíf sátt við
guð og alla þá sem verið hafa
með henni á lífsleiðinni. Ég kveð
elsku mömmu með tárum og
veit að hún er komin í faðm
pabba, ömmu Bjargar, afa
Tryggva, Tobba frænda, Einsa
frænda og allra þeirra sem hafa
fylgt henni á lífsleiðinni.
Við systkinin munum halda
þínu merki uppi og koma saman
laugardags- og sunnudags-
morgna og ylja okkur við minn-
ingar um þig og pabba og
kannski tökum við í spil líka.
Gísli M. Eyjólfsson.
Það er með sorg í hjarta að
ég kveð þig í dag, elsku fallega
góða mamma mín .
Mikið á ég eftir að sakna þín
og allra indælu stundanna sem
við höfum átt saman alla okkar
tíð.
Þú hefur gefið mér svo margt
og kennt mér svo margt sem ég
er og verð ævinlega þakklát fyr-
ir. Þú áttir alltaf góð ráð og svör
við öllu því sem mig vantaði að
vita.
Það er svo margt sem ég gæti
sagt um þig, elsku mamma mín,
að það gæti fyllt heila stóra bók.
Þú varst öllum svo góð og
máttir aldrei neitt aumt sjá,
vildir að öll dýrin í skóginum
væru vinir og að allir væru jafn-
ingjar.
Þú varst með mikið jafnaðar-
geð og varst ekkert að æsa þig
yfir smámunum, reyndir alltaf
að sjá það góða í öllu og öllum.
Fjölskyldan þín var þér allt
og þú elskaðir að fá alla í heim-
sókn í spjall og svo ég tali nú
ekki um í spil, það var oft mikið
fjör við eldhúsborðið í Kríuland-
inu og þér leið best með sem
flesta í kringum þig og auðvitað
var alltaf dekkað borð af alls
konar góðgæti og kræsingum
því ekki mátti neinn fara svang-
ur heim.
Allir dýrkuðu þig og dáðu og
ekki skrítið að við skyldum öll
hafa kallað þig móður Teresu
sem á og átti svo vel við þig, því
þú ert einfaldlega besta og ynd-
islegasta manneskja sem hefur
verið til á þessari jörð.
Ég er þér ævinlega þakklát
fyrir allt og allt.
Fallega brosið þitt verður
mér ávallt í minni sem og hlý-
lega faðmlagið þitt, sem ég á eft-
ir að sakna svo innilega alla
daga, sama segja þau Eyþór
minn og Erna mín.
Hvíl í friði mín fallega sál og
ég veit að elsku fallegi pabbi
hefur tekið vel á móti þér.
Elska þig af öllu mínu hjarta.
Láttu nú ljósið þitt
loga við rúmið mitt.
Hafðu þar sess og sæti,
signaði Jesús mæti.
(Höf. ók.)
Þín dóttir
Ingibjörg Þ Eyjólfsdóttir.
Elsku mamma mín. Hvar á ég
að byrja? Á ég að byrja á að
þakka þér fyrir að þú valdir mig
sem dóttur þína?
Á ég byrja að segja að ég
fékk bestu mömmu í heimi sem
hægt væri að hugsa sér? Á ég að
byrja að segja að ég á bestu
mömmu sem var besta amma
barnanna minna og barnabarna
sem hægt væri að hugsa sér?
Á ég að byrja að segja að ég á
mjög erfitt að trúa því að þú
sért farin frá okkur?
Á ég að byrja að segja þér að
ég kvíði fyrir næstu dögum eftir
jarðarförina, að ég eigi ekki eftir
að koma til þín alla morgna dag-
ana sem ég er í fríi?
Á ég að byrja að segja að þú
varst besta manneskja í öllum
heiminum?
Hvar á ég að byrja elsku
mamma mín?
Nú vantar mig ráð, ráð sem
þú myndir segja mér hvað ég
ætti að gera akkúrat núna.
Elsku mamma mín. Þið pabbi
vissuð alveg hvað þið voruð að
gera með að eignast okkur
systkinin svo við gætum haldið
áfram að sá ykkar fallegu fræj-
um. Og þessi fræ er ég svo
þakklát fyrir að hafa fengið því
þau einkenna allt það besta frá
ykkur pabba.
Þú veist ekki hvað ég á ótrú-
lega erfitt, ég er bara ekki tilbú-
in að sleppa takinu. Ég hrein-
lega get ekki séð hvernig lífið
verður án þess að koma í Kríul-
andið og sjá fallega brosið þitt
og njóta yndislegu nærverunnar
þinnar og þegar ég var í kring-
um þig þá voru allar heimsins
áhyggjur engar. Pabbi kenndi
okkur að mikilvægast var að
bera virðingu fyrir móður okkar.
Mín virðing við þig er staðfest
hér og nú. Það er engin mann-
eskja í öllum heiminum sem ég
hef borið eins mikla virðingu
fyrir. Þú varst móðir Teresa
okkar stórfjölskyldunnar.
Ég veit að þú varst tilbúin,
þinn tími var kominn. Nú ertu
komin til pabba, ég hugga mig
við það elsku mamma.
Ég var að lesa öll skilaboðin
sem við systkinin fengum þegar
andlát þitt bar að og þau voru
svo falleg og einlæg og allir
vissu hversu mögnuð og ynd-
isleg manneskja þú varst. Góð
kona, einlæg brosmild og svo
stolt af samheldna hópnum sem
þú afrekaðir. Ég gæti haldið
endalaust áfram að tala um þig
elsku mamma. Þú varst lífs-
glaðasta manneskja í heimi sem
smitaði svo sannarlega út frá
sér.
Við systkinin og börnin okkar
höldum áfram að hittast í morg-
unkaffi um helgar og heiðra
minningu þína. Þú værir svo
stolt af okkur núna hvað við er-
um búin að vera samheldin í
sorginni og ég er svo þakklát
fyrir að eiga stóran systkinahóp,
þökk sér þér og pabba.
Hvíl í friði elsku besta
mamma mín. Ég elska þig.
Þín
Eygló.
Elsku mamma á Bjarnarstöðum
fæddist
Oft hún á litlu tánum sínum læddist
upp í rúm til elsku Gunnu langömmu
Mig langar hér aðeins að segja frá
elsku mömmu
28. mars 1938 leit hún dagsins ljós
Dökkhærð, falleg eins og útsprungin
rós
Ólst upp með þakklæti á kærleiks-
ríkum bæ
Margt var þar um manninn, sól rann í
sæ
Var svo fljótt hjálpsöm, dugleg og
gætin
Aldrei voru í henni fjörugu lætin
Gaf af sér með kærleik og gleði
Hún annaðist aðra eins og í sínu eigin
blómabeði
Ung hún elsku, fallega Eyja sínum
kynntist
Hún ljómaði þegar hún á hann pabba
minntist
Hjónin voru samhent og hjá þeim var
gaman
Við erum svo heppin, þau áttu vel
saman
Þroskuðust og áttu alls lífleg átta
börn
Þetta hefur verið ágætis, kraftatörn
Kærleikur, jákvæðni og virðing mótaði
okkur öll
Í Laufásinu heyrðust mjög oft hávær
hlátrasköll
Þótti vænt um alla á sínu æviskeiði
Var jákvæð og fáir reittu hana til reiði
Þvílík fyrirmynd sem hún mamma var
Hún og pabbi voru svo yndislegt par
Mamma prjónaði, bakaði og bjó til
falleg kort
Allt var svo fallegt en hún var aldrei
með gort
Af öllu því sem hún hannaði, var lista-
kona mikil
Sé hana fyrir mér prjónandi og pabba
með hnykil
Elsku mamma ég vil þakka elsku þér
Fyrir allt sem þú hefur gert með mér
Þú hugsaðir þvílíkt vel um okkur öll
Ég veit þú býrð nú ásamt pabba í hári
gull höll
Takk fyrir að hafa verið til staðar fyrir
mig
Ég elskaði að geta gert eitthvað fyrir
þig
Mig langar bara að segja, ég elska þig
ofur heitt
Ég má ekki vera eigingjörn, nú færðu
allt greitt
Varst tilbúin að fara heilaga
Sumarlandið í
Nú syngur lóan fagra, dirrendí
Móðir Teresa, sem við teljum mjög
merka
er nú kölluð til æðri, mikilvægra verka
Þakka þér aftur fyrir allt elsku
hjartahlýja mamma
Þú varst heil og góð amma, já líka
langamma
Ég skal segja frá þínum sönnu, fögru
sögum
Spila líka eitthvað af þínum uppá-
haldslögum
Takk fyrir allt og allt, þú
varst stórbrotin Teresa
Kristbjörg Eyjólfsdóttir.
Amma Helga, elsku amma
Helga.
Hjarta mitt er bugað af sorg
eftir að þú kvaddir okkur.
Tómarúmið í hjarta mínu er eitt-
hvað svo stórt. Á sama tíma er
ég glöð að þið afi eruð saman á
ný, heilsuhraust og laus allra
verkja. Ég veit að hann tók
glaður á móti þér enda búinn að
bíða eftir elskunni sinni ásamt
öllum öðrum ástvinum í Sum-
arlandinu.
Amma, þú varst mér allt! Þú
varst fyrirmynd mín, þú varst
kletturinn minn og ég gat leitað
til þín með allt. Ég átti erfitt
með það lengi þegar við mamma
fluttum í burtu að vera ekki
lengur nálægt ykkur öllum og
mér fannst ég missa af svo
miklu. Fjölskyldan er afar náin
og hefur alltaf hist daglega,
hvort sem var í Laufási eða
seinna í Kríulandinu. Þá var allt-
af veisluborð, kaffi á könnunni,
spil til að taka í, en umfram allt
tíminn. Tíminn var alltaf til stað-
ar hjá þér elsku amma, þú hafðir
hann nægan fyrir alla þína nán-
ustu. Það breyttist ekki þó ég
færi því þú hringdir bara í stað-
inn til að athuga með mig.
Þegar ég var lítil stelpa og
spurð hvað ég vildi verða þegar
ég yrði stór þá sagði ég alltaf að
ég vildi verða mamma og eign-
ast tíu börn. Það sagði ég líklega
vegna þess að ég vildi vera eins
og amma Helga, sem átti átta
börn, en gera gott um betur.
Amma átti heilan skara afkom-
enda og aldrei brást henni boga-
listin þegar kom að afmælisdög-
um, hún mundi hvern þeirra
ásamt öðrum áhangendum sem
fylgdu okkur fjölskyldunni. Sím-
tölin urðu því ófá hjá henni í
gegnum tíðina að óska okkur öll-
um til hamingju með daginn.
Henni var svo mikið í mun að
öllum liði sem allra best og að
vita ef svo væri ekki. Hún bað
fyrir okkur öllum á kvöldin og
að allar góðar vættir myndu
vaka yfir okkur. Við skiptum
hana öllu máli!
Þegar ég kveð þig í dag, elsku
amma, langar mig að segja að
lokum við þig:
Takk fyrir að vera mér ein
mikilvægasta manneskja í lífinu
og elska mig jafn heitt og þú
gerðir. Takk fyrir að ráðleggja
mér heilt í hvert skipti sem á
þurfti að halda. Takk fyrir að
hafa ávallt tíma til að hlusta,
hlusta af einlægni og gefa þér
tíma fyrir mig og mína. Takk
fyrir að elda besta ömmumat í
heimi og leggja eins oft á borð
og þú gerðir. Takk fyrir að
kenna mér fallegu gildin þín,
sem þú sannarlega smitaðir yfir
til okkar fjölskyldunnar og við
viljum halda í heiðri. Takk fyrir
að gefa þig alla til allra alltaf,
það var þinn helsti og fallegasti
eiginleiki. Fordómalaus með öllu
og elskaðir einstaklinginn fyrir
hver hann var. Takk fyrir að
sýna stolt þitt á okkur afkom-
endunum og láta okkur vita af
því við hvert tækifæri. Takk fyr-
ir að kenna mér barnatrúna og
halda hana ávallt í heiðri. Takk
fyrir allar gjafirnar sem þú hef-
ur gefið okkur, allar handgerðar
af listakonunni þér. Takk fyrir
að vera mér fyrirmynd í öllu því
sem þú varst, því þú varst mér
svo mikið meira en bara amma.
Viltu kyssa afa frá mér, viljið
þið dansa saman inn í eilífðina,
viltu vaka yfir okkur öllum og
vernda en umfram allt, viltu
koma til mín á kvöldin og eiga
við mig spjall í huganum. Því
það mun ég gera þar til við hitt-
umst á ný.
Ég elska þig að eilífu
Rósin,
Harpa Rós.
Elsku einstaka amma mín.
Þótt ég eigi erfitt með að sleppa
takinu þá veit ég að þú blómstr-
ar á ný í fanginu á afa. Ég sé
fyrir mér fallega brosið hans og
stoltið þegar fegursta og falleg-
asta sálin mætir á svæðið. Ég
geri ráð fyrir því að þú sért nú
þegar með fullt hús af fólki í
morgunkaffi og eflaust nóg til af
amerískum osti, kremkexum,
heimabökuðu brauði og kökum.
Ég ætla rétt að vona að gest-
irnir muni eftir að skrifa í gesta-
bókina. Ég bið innilega að heilsa
afa, hann er áreiðanlega með
munninn fullan af sætindum að
reyta af sér brandarana. Loks-
ins er konan hans komin og get-
ur hlegið að vitleysunni í honum.
Allt eins og það á að vera.
Elsku amma. Takk fyrir alla
hlýjuna og einlægnina. Takk fyr-
ir alla vinnuna og ástina sem þú
lagðir í prjónuðu flíkurnar á mig
og börnin mín. Takk fyrir að
kenna mér að vera fordómalaus
og horfa á fallegu hliðarnar í líf-
inu. Takk fyrir að gefa mér
mömmu mína, hún er allt sem
þú ert. Takk fyrir að sýna hverj-
um einasta fjölskyldumeðlimi að
við skiptum máli og veita okkur
skilyrðislausa ást. Minning þín
mun lifa að eilífu. Núverandi og
komandi kynslóðir munu fá að
heyra ótrúlegar sögur af góð-
mennsku Helgu Þórdísar
Tryggvadóttur sem átti stærsta
faðminn og tók öllum eins og
þau voru. Elska þig. Þín
Nana Kristjana.
Elsku amma mín.
Þú kvaddir heiminn í frið-
sæld, rétt eins og þú vildir hafa
hann. Þú varst fordómalaus með
öllu og faðmur þinn stærri en
allt annað. Manngæska þín var
einstök og brosið þitt sérstakt.
Líf þitt sannar að góðmennska
er til og að öll eru við jöfn, í það
minnsta í þínum glampandi aug-
um.
Amma ég þakka þér fyrir að
trúa á mig í öllu því sem ég hef
tekið mér fyrir hendur í lífinu.
Stuðningur þinn var mér ómet-
anlegur og gott veganesti í að
halda ótrauður áfram. Þú sagðir
mér að gefast aldrei upp og
muna hvað byggi innra með
mér. Við áttum ófáar stundirnar
þar sem við sátum í trúnaði og
fórum yfir líðandi stundir. Þú
gafst mér ráð, þú sýndir mér
skilning og þú hjálpaðir mér.
Allar þessar stundir eru mér í
dag gulls ígildi. Þú orðaðir hlut-
ina í fegurð, sama um hvað við
ræddum. Það var hæfileiki sem
þú bjóst yfir, að geta breytt
ásýnd hlutanna og sett fram
með hlýju. Stundum er það
nefnilega svo með lífið að þegar
allt virðist blása á móti þá þarf
að minna sig á að upp úr erf-
iðum aðstæðum getur fengist
mikill lærdómur sem hægt er að
nýta til frambúðar. Þú kenndir
mér að ekkert er óyfirstíganlegt.
Þú sagðir okkur sögurnar, af
hinum og þessum, sem fylltu
okkur af gleði en þó sérstaklega
þegar þú hlóst sjálf svo dátt yfir
þeim. Gleðin sem þú barst með
þér hreif okkur hin og ekki ann-
að hægt en að vera í góðu skapi
í návist þinni. Ég mun halda fast
í minningarnar um utanlands-
ferðirnar sem við fórum í saman,
ferðalögin á Íslandi en umfram
allt annað þær óteljandi gæða-
stundir sem við áttum í Laufási
og síðar Kríulandi með þér og
afa. Morgunkaffið er betra hjá
þér, amma, en alltaf varstu
tilbúin að taka á móti fjölskyld-
unni þinni og minntir fólk reglu-
lega á ef það hafði ekki komið
lengi. Þessar gæðastundir end-
uðu oftar en ekki með spili en þá
kom fram í þér eitt skemmtileg-
asta keppnisskap sem ég man
Helga Þórdís
Tryggvadóttir
Móðir okkar, systir mín, amma okkar og
langamma,
HULDA ÓSK ÁGÚSTSDÓTTIR,
Fálkagötu 2,
lést á hjúkrunarheimilinu Grund við
Hringbraut miðvikudaginn 23. febrúar.
Útförin fer fram frá Neskirkju fimmtudaginn
3. mars kl. 13.
Ragna Rögnvaldsdóttir
Gunnlaugur Rögnvaldsson
María Eyþórsdóttir
Ragnar Þórarinsson
Harpa Ósk Valgeirsdóttir
Ragnheiður Ásta Valgeirsdóttir
Hulda María Valgeirsdóttir
og langömmubörn