Morgunblaðið - 28.02.2022, Side 6
6 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 28. FEBRÚAR 2022
Dóra Ósk Halldórsdóttir
doraosk@mbl.is
Theodóra Björk Heimisdóttir, sem
er alltaf kölluð Tedda, er engin
venjuleg amma. Hún er mikil útivist-
armanneskja og helsta áhugamálið
er hjólamennskan, en hún er líka á
gönguskíðum.
Hún þeysist um á
mótorhjóli og tek-
ur þátt í keppnum
bæði hér heima
og erlendis.
„Ég var 39 ára
þegar ég byrjaði í
mótorcross og
ástæðan var sú að
maðurinn minn,
Haukur Þor-
steinsson, byrjaði í þessu árið 2000
og varð alveg forfallinn um leið. Ég
var ekkert að fara í þetta, en á þess-
um tíma vorum við með tvö lítil börn
og mér fannst það ekkert ganga.
Þegar börnin voru orðin 10-12 ára
keypti hann hjól handa krökkunum
og lét mig ekki í friði. Það endaði með
því að ég byrjaði og skráði mig í
keppni á Akureyri sem endaði með
því að ég féll gjörsamlega fyrir þessu
sporti. Ég er mikil keppnismann-
eskja, svo ég datt alveg í gírinn.“
Ögrandi brautir á fjöllum
Tedda og Haukur stofnuðu hjóla-
verslunina Nítró árið 2003 og við tók
mikill hjólatími hjá fjölskyldunni. „Á
þessum tíma erum við aðallega í mót-
orcrossi og kepptum mikið á Íslandi.
Síðan höfum við líka verið að keppa í
enduro og hard enduro, sem er svo-
lítið mikið öðruvísi. Í mótorcrossinu
er maður að fara kannski 2ja km
hring, þar sem er fullt af stökkpöllum
og beygjum og þú sérð alltaf braut-
ina fyrir framan þig. Enduro er
miklu lengra, kannski 8-10 km, og þá
er farið út í náttúruna, oft upp í hlíðar
í brekkur og yfir grjót. Síðan er hard
enduro ennþá meira ögrandi, en þar
er verið að hjóla í miklum brekkum,
yfir drumba og stórgrjót og farið
hægar yfir og maður þarf að ná valdi
á mikilli tækni í þessum brautum.
Það hafa verið haldnar tvær keppnir
hérna heima í því, kallaðar Víkinga
Boló, og þá erum við alveg 3-4 tíma
að fara hringinn og brautirnar eru
mjög erfiðar uppi í fjöllum.“
Tedda hefur tekið þátt í fjölda
keppna, bæði heima og erlendis og
vekur athygli þar sem hún kemur.
„Það verður bara að segjast að það
eru afskaplega fáar konur á mínum
aldri í þessu sporti og oftast eru bara
engar yfir fertugu. Svo eru oft ekki
kvennaflokkar, því við erum svo fáar
í þessu, en ég hugsa að það eigi eftir
að breytast.“
Tedda hefur lent á verðlaunapöll-
um í Bandaríkjunum, en þar eru oft
kvennaflokkar og stundum líka ald-
ursskiptir. „En ég hef líka farið mikið
til Rúmeníu og Tyrklands, og fékk
reyndar mín fyrstu peningaverðlaun
í Tyrklandi, en þar eru ekkert endi-
lega kvennaflokkar og hvað þá ald-
ursskiptir.“ Hún segist þó ekki vera í
þessu til að vinna einhver sæti, þótt
vissulega sé hún mikil keppnismann-
eskja. „Þetta er bara svo skemmti-
legt og að vera með hópi af skemmti-
legu fólki.“
Mæðgurnar saman í Kosta Ríka
Tedda er fædd 1964 og verður því
58 ára á árinu. „Það sem er skemmti-
legast við mótorhjólin er að þetta er
sambland af keppni, útiveru og
áskorunum og það er bara ótrúlega
skemmtilegt að hjóla. Ég er enn að
bæta mig og enn að læra þótt ég sé
orðin þetta gömul, sem mér finnst al-
veg magnað. Ég hef líka gaman af því
að ögra sjálfri mér.
Stundum hef ég verið í tólf tíma úti
í einhverju fáránlega erfiðu dæmi
bara til að klára. Ég þrífst eiginlega
best í svoleiðis aðstæðum.“
Öll fjölskyldan sameinast í hjóla-
mennskunni sem Tedda segir að sé
frábært því hún hjóli mikið með eig-
inmanninum og svo sé dóttir hennar,
Aníta, einn hennar besti hjólafélagi.
„Hún byrjaði tíu ára svo hún á rosa-
lega mikið eftir í sportinu en það
munar um að byrja svona snemma.
Síðan er eldra barnabarnið líka byrj-
að að hjóla, svo það eru margar
samverustundir tengdar áhugamál-
inu.“ Tedda hefur verið virk í því að
reyna að fá fleiri konur í sportið og
segir að þær sem séu virkar í þessu
hafi ótrúlega gaman af því að hjóla.
„Ég er að fara í fjallahjólaferð í Te-
nerife um næstu helgi og svo var ég
að skrá mig í keppni í Kosta Ríka í
janúar á næsta ári og þangað ætlum
við mæðgur að fara saman.“
Tedda er töffarinn á mótorhjólinu
- Theodóra byrjaði 39 ára að keppa á mótorhjóli bæði heima og erlendis og er enn að bæta árangurinn
Saman Þrír ættliðir á hjólum: Tedda, Talía Björk, þá 3ja ára og Aníta. Keppnismanneskja Theodóra Björk í enduro-keppni á Íslandi 2021.
Theodóra Björk
Heimisdóttir
„Það eru mjög spennandi verkefni
hjá okkur hérna í Borgarbyggð núna
og mikil tækifæri fyrir samfélagið,“
segir Þórdís Sif Sigurðardóttir,
sveitarstjóri Borgarbyggðar. „Við
erum búin að setja af stað hönn-
unarkeppni um nýtt 2-3.000 manna
íbúðasvæði sem er hinum megin við
Borgarnes þegar horft er frá brúnni
og gætum því verið að tvöfalda íbúa-
fjölda bæjarfélagsins. Við sjáum fyr-
ir okkur að svæðið verði tengt bæn-
um með göngubrú yfir voginn og að
þarna verði styrkir þjónustuinnviðir,
bæði leikskólar og grunnskóli.“
Mikil eftirspurn eftir húsnæði
Ákveðið var á vinnufundi sveitar-
fundar Borgarbyggðar nýlega að
leita til Arkitektafélags Íslands til að
undirbúa samkeppnina, sem gæti
tekið næstu 6-7 mánuði. „Við viljum
sjá hvaða möguleika við höfum, en
mikil eftirspurn er eftir húsnæði og
lóðum í Borgarnesi og við viljum líka
bregðast við því.“ Sveitarfélagið á
landsvæðið sem verið er að skoða
undir nýja íbúðabyggð og liggur það
í aflíðandi brekku í suður sem býður
upp á skemmtilegar útfærslur og
birtu í hverfinu.
Friðlýsingu Borgarvogs frestað
Borgarvogurinn hefur verið í frið-
lýsingarferli um nokkurt skeið. „Við
ákváðum að fresta friðlýsingunni
þar til samkeppnin er búin. Ég tel að
það sé alveg hægt að vinna þetta
skipulag nýrrar byggðar og vernda
Borgarvoginn samhliða, sem er mik-
ilvægt m.a. út af gulþörungum sem
eru þarna í leirunum. Við skoðum
málið frá öllum hliðum þannig að það
verði besta útkoman fyrir bæði líf-
ríkið og samfélagið hérna í Borgar-
nesi.“
Þórdís bætir við að friðlýsingunni
sé eingöngu frestað á meðan hug-
mynda- og skipulagsvinnan fari
fram við nýtt íbúðasvæði. „Við vilj-
um ekki eyðileggja neina möguleika
svæðisins og göngum fram á ábyrg-
an máta.“
Þórdís Sif segir mikil sóknarfæri
fyrir Borgarbyggð, sem er vel stað-
sett og gæti dregið að sér íbúa af
höfuðborgarsvæðinu og yrði mjög
fjölskylduvænt hverfi. „Við finnum
fyrir miklum áhuga frá bæði ein-
staklingum og framkvæmdaaðilum.“
Nýjar hugmyndir um Brákarey
Þá er ekki allt talið sem er á borði
sveitarstjórnar, því einnig eru uppi
hugmyndir um nýtt skipulag í Brák-
arey, sem er eyjan við enda Borgar-
ness. „Brákarey er svolítil gersemi
hérna í Borgarnesi og býður upp á
ógrynni af möguleikum. Þaðan er
gífurlega fallegt útsýni yfir Hafnar-
fjallið og Mýrarnar og svæðið hefur
mikla menningar- og sögulega skír-
skotun. Við ætlum að leita eftir sam-
starfsaðilum, en við sjáum fyrir okk-
ur blandaða notkun í eyjunni,
einhverja íbúðabyggð, menningar-
tengda starfsemi og léttan iðnað. Við
viljum sjá heildarskipulag og hug-
myndir um fjármögnun og erum
jafnvel að skoða hvort við förum með
þetta í þróunarfélag. Það hefur verið
ótrúlega gaman að vinna að þessu
verkefni og gott faglegt samstarf
milli sveitarstjórnarfulltrúa. Það er
komin ákveðin framtíðarsýn í
Borgarnes.“ doraosk@mbl.is
Ný framtíðarsýn fyrir
Borgarbyggð í sjónmáli
- Hönnunarsamkeppni um skipulagningu nýrrar íbúðabyggðar
Borgarbyggð Þórdís Sif, sveitarstjóri Borgarbyggðar, segir spennandi tíma
fram undan og að íbúafjöldi Borgarness gæti tvöfaldast á næstu árum.
Perluuppboð Foldar uppboðshúss
hófst á laugardaginn og stendur
til mánudagsins 7. mars nk. Mikið
er af dýrgripum á uppboðinu og
má m.a. nefna einstaka mynd af
Þingeyri sem var unnin í sam-
vinnu Muggs og Þórarins B. Þor-
lákssonar og er ekki vitað til þess
að þeir hafi unnið saman að öðr-
um verkum. Einnig eru málverk
eftir Kjarval, geómetrísk mynd
eftir Sverri Haraldsson, landslags-
mynd eftir Svavar Guðnason og
tvö verk eftir naívísku listakonuna
Sigurlaugu Jónsdóttur, sem eru
sjaldgæf.
Gunnlaugur Blöndal, Jón Stef-
ánsson, Ásgrímur Jónsson, Louisa
Matthíasdóttir, Nína Sæmunds-
dóttir, Þorvaldur Skúlason, Karl
Kvaran, Jón Engilberts, Bragi Ás-
geirsson, Kristján Davíðsson, Al-
freð Flóki og Stórval eiga líka
verk á uppboðinu.
Einnig er boðinn upp fjöldi úr-
valsverka samtímalistamanna og
skúlptúrar og bókin Flora Is-
landica, myndskreytt af Eggerti
Péturssyni.
Gömlu meistararnir og samtímalist á
Perluuppboði Foldar uppboðshúss
Þingeyri Málverk eftir Mugg og Þórarin B.
Þorláksson, það eina sem er þekkt.