Morgunblaðið - 28.02.2022, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 28.02.2022, Blaðsíða 6
6 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 28. FEBRÚAR 2022 Dóra Ósk Halldórsdóttir doraosk@mbl.is Theodóra Björk Heimisdóttir, sem er alltaf kölluð Tedda, er engin venjuleg amma. Hún er mikil útivist- armanneskja og helsta áhugamálið er hjólamennskan, en hún er líka á gönguskíðum. Hún þeysist um á mótorhjóli og tek- ur þátt í keppnum bæði hér heima og erlendis. „Ég var 39 ára þegar ég byrjaði í mótorcross og ástæðan var sú að maðurinn minn, Haukur Þor- steinsson, byrjaði í þessu árið 2000 og varð alveg forfallinn um leið. Ég var ekkert að fara í þetta, en á þess- um tíma vorum við með tvö lítil börn og mér fannst það ekkert ganga. Þegar börnin voru orðin 10-12 ára keypti hann hjól handa krökkunum og lét mig ekki í friði. Það endaði með því að ég byrjaði og skráði mig í keppni á Akureyri sem endaði með því að ég féll gjörsamlega fyrir þessu sporti. Ég er mikil keppnismann- eskja, svo ég datt alveg í gírinn.“ Ögrandi brautir á fjöllum Tedda og Haukur stofnuðu hjóla- verslunina Nítró árið 2003 og við tók mikill hjólatími hjá fjölskyldunni. „Á þessum tíma erum við aðallega í mót- orcrossi og kepptum mikið á Íslandi. Síðan höfum við líka verið að keppa í enduro og hard enduro, sem er svo- lítið mikið öðruvísi. Í mótorcrossinu er maður að fara kannski 2ja km hring, þar sem er fullt af stökkpöllum og beygjum og þú sérð alltaf braut- ina fyrir framan þig. Enduro er miklu lengra, kannski 8-10 km, og þá er farið út í náttúruna, oft upp í hlíðar í brekkur og yfir grjót. Síðan er hard enduro ennþá meira ögrandi, en þar er verið að hjóla í miklum brekkum, yfir drumba og stórgrjót og farið hægar yfir og maður þarf að ná valdi á mikilli tækni í þessum brautum. Það hafa verið haldnar tvær keppnir hérna heima í því, kallaðar Víkinga Boló, og þá erum við alveg 3-4 tíma að fara hringinn og brautirnar eru mjög erfiðar uppi í fjöllum.“ Tedda hefur tekið þátt í fjölda keppna, bæði heima og erlendis og vekur athygli þar sem hún kemur. „Það verður bara að segjast að það eru afskaplega fáar konur á mínum aldri í þessu sporti og oftast eru bara engar yfir fertugu. Svo eru oft ekki kvennaflokkar, því við erum svo fáar í þessu, en ég hugsa að það eigi eftir að breytast.“ Tedda hefur lent á verðlaunapöll- um í Bandaríkjunum, en þar eru oft kvennaflokkar og stundum líka ald- ursskiptir. „En ég hef líka farið mikið til Rúmeníu og Tyrklands, og fékk reyndar mín fyrstu peningaverðlaun í Tyrklandi, en þar eru ekkert endi- lega kvennaflokkar og hvað þá ald- ursskiptir.“ Hún segist þó ekki vera í þessu til að vinna einhver sæti, þótt vissulega sé hún mikil keppnismann- eskja. „Þetta er bara svo skemmti- legt og að vera með hópi af skemmti- legu fólki.“ Mæðgurnar saman í Kosta Ríka Tedda er fædd 1964 og verður því 58 ára á árinu. „Það sem er skemmti- legast við mótorhjólin er að þetta er sambland af keppni, útiveru og áskorunum og það er bara ótrúlega skemmtilegt að hjóla. Ég er enn að bæta mig og enn að læra þótt ég sé orðin þetta gömul, sem mér finnst al- veg magnað. Ég hef líka gaman af því að ögra sjálfri mér. Stundum hef ég verið í tólf tíma úti í einhverju fáránlega erfiðu dæmi bara til að klára. Ég þrífst eiginlega best í svoleiðis aðstæðum.“ Öll fjölskyldan sameinast í hjóla- mennskunni sem Tedda segir að sé frábært því hún hjóli mikið með eig- inmanninum og svo sé dóttir hennar, Aníta, einn hennar besti hjólafélagi. „Hún byrjaði tíu ára svo hún á rosa- lega mikið eftir í sportinu en það munar um að byrja svona snemma. Síðan er eldra barnabarnið líka byrj- að að hjóla, svo það eru margar samverustundir tengdar áhugamál- inu.“ Tedda hefur verið virk í því að reyna að fá fleiri konur í sportið og segir að þær sem séu virkar í þessu hafi ótrúlega gaman af því að hjóla. „Ég er að fara í fjallahjólaferð í Te- nerife um næstu helgi og svo var ég að skrá mig í keppni í Kosta Ríka í janúar á næsta ári og þangað ætlum við mæðgur að fara saman.“ Tedda er töffarinn á mótorhjólinu - Theodóra byrjaði 39 ára að keppa á mótorhjóli bæði heima og erlendis og er enn að bæta árangurinn Saman Þrír ættliðir á hjólum: Tedda, Talía Björk, þá 3ja ára og Aníta. Keppnismanneskja Theodóra Björk í enduro-keppni á Íslandi 2021. Theodóra Björk Heimisdóttir „Það eru mjög spennandi verkefni hjá okkur hérna í Borgarbyggð núna og mikil tækifæri fyrir samfélagið,“ segir Þórdís Sif Sigurðardóttir, sveitarstjóri Borgarbyggðar. „Við erum búin að setja af stað hönn- unarkeppni um nýtt 2-3.000 manna íbúðasvæði sem er hinum megin við Borgarnes þegar horft er frá brúnni og gætum því verið að tvöfalda íbúa- fjölda bæjarfélagsins. Við sjáum fyr- ir okkur að svæðið verði tengt bæn- um með göngubrú yfir voginn og að þarna verði styrkir þjónustuinnviðir, bæði leikskólar og grunnskóli.“ Mikil eftirspurn eftir húsnæði Ákveðið var á vinnufundi sveitar- fundar Borgarbyggðar nýlega að leita til Arkitektafélags Íslands til að undirbúa samkeppnina, sem gæti tekið næstu 6-7 mánuði. „Við viljum sjá hvaða möguleika við höfum, en mikil eftirspurn er eftir húsnæði og lóðum í Borgarnesi og við viljum líka bregðast við því.“ Sveitarfélagið á landsvæðið sem verið er að skoða undir nýja íbúðabyggð og liggur það í aflíðandi brekku í suður sem býður upp á skemmtilegar útfærslur og birtu í hverfinu. Friðlýsingu Borgarvogs frestað Borgarvogurinn hefur verið í frið- lýsingarferli um nokkurt skeið. „Við ákváðum að fresta friðlýsingunni þar til samkeppnin er búin. Ég tel að það sé alveg hægt að vinna þetta skipulag nýrrar byggðar og vernda Borgarvoginn samhliða, sem er mik- ilvægt m.a. út af gulþörungum sem eru þarna í leirunum. Við skoðum málið frá öllum hliðum þannig að það verði besta útkoman fyrir bæði líf- ríkið og samfélagið hérna í Borgar- nesi.“ Þórdís bætir við að friðlýsingunni sé eingöngu frestað á meðan hug- mynda- og skipulagsvinnan fari fram við nýtt íbúðasvæði. „Við vilj- um ekki eyðileggja neina möguleika svæðisins og göngum fram á ábyrg- an máta.“ Þórdís Sif segir mikil sóknarfæri fyrir Borgarbyggð, sem er vel stað- sett og gæti dregið að sér íbúa af höfuðborgarsvæðinu og yrði mjög fjölskylduvænt hverfi. „Við finnum fyrir miklum áhuga frá bæði ein- staklingum og framkvæmdaaðilum.“ Nýjar hugmyndir um Brákarey Þá er ekki allt talið sem er á borði sveitarstjórnar, því einnig eru uppi hugmyndir um nýtt skipulag í Brák- arey, sem er eyjan við enda Borgar- ness. „Brákarey er svolítil gersemi hérna í Borgarnesi og býður upp á ógrynni af möguleikum. Þaðan er gífurlega fallegt útsýni yfir Hafnar- fjallið og Mýrarnar og svæðið hefur mikla menningar- og sögulega skír- skotun. Við ætlum að leita eftir sam- starfsaðilum, en við sjáum fyrir okk- ur blandaða notkun í eyjunni, einhverja íbúðabyggð, menningar- tengda starfsemi og léttan iðnað. Við viljum sjá heildarskipulag og hug- myndir um fjármögnun og erum jafnvel að skoða hvort við förum með þetta í þróunarfélag. Það hefur verið ótrúlega gaman að vinna að þessu verkefni og gott faglegt samstarf milli sveitarstjórnarfulltrúa. Það er komin ákveðin framtíðarsýn í Borgarnes.“ doraosk@mbl.is Ný framtíðarsýn fyrir Borgarbyggð í sjónmáli - Hönnunarsamkeppni um skipulagningu nýrrar íbúðabyggðar Borgarbyggð Þórdís Sif, sveitarstjóri Borgarbyggðar, segir spennandi tíma fram undan og að íbúafjöldi Borgarness gæti tvöfaldast á næstu árum. Perluuppboð Foldar uppboðshúss hófst á laugardaginn og stendur til mánudagsins 7. mars nk. Mikið er af dýrgripum á uppboðinu og má m.a. nefna einstaka mynd af Þingeyri sem var unnin í sam- vinnu Muggs og Þórarins B. Þor- lákssonar og er ekki vitað til þess að þeir hafi unnið saman að öðr- um verkum. Einnig eru málverk eftir Kjarval, geómetrísk mynd eftir Sverri Haraldsson, landslags- mynd eftir Svavar Guðnason og tvö verk eftir naívísku listakonuna Sigurlaugu Jónsdóttur, sem eru sjaldgæf. Gunnlaugur Blöndal, Jón Stef- ánsson, Ásgrímur Jónsson, Louisa Matthíasdóttir, Nína Sæmunds- dóttir, Þorvaldur Skúlason, Karl Kvaran, Jón Engilberts, Bragi Ás- geirsson, Kristján Davíðsson, Al- freð Flóki og Stórval eiga líka verk á uppboðinu. Einnig er boðinn upp fjöldi úr- valsverka samtímalistamanna og skúlptúrar og bókin Flora Is- landica, myndskreytt af Eggerti Péturssyni. Gömlu meistararnir og samtímalist á Perluuppboði Foldar uppboðshúss Þingeyri Málverk eftir Mugg og Þórarin B. Þorláksson, það eina sem er þekkt.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.