Morgunblaðið - 03.03.2022, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 03.03.2022, Blaðsíða 6
6 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. MARS 2022 V iðskipti með fasteignir í Hafnarfirði að undanförnu hafa verið með líflegu móti: jafnt sérbýli sem eignir í fjölbýlishúsum. Þetta segir Eirík- ur Svanur Sigfússon, lögg. fast- eignasali og eigandi Áss fast- eignasölu. Heilt yfir er salan jöfn og engin ákveðin hverfi skera sig. Þó kemur Skarðshlíðarhverfið mjög sterkt inn nú, bæði nýjar eignir og þær sem eru í endursölu. Þá er mikill áhugi fyrir Hamra- neshverfinu sem nú er í byggingu. „Að undanförnu hefur verið tal- að um að markaðurinn sé að róast vegna færri viðskipta í saman- burði við mánuðina á undan, þó í sögulegu samhengi séu viðskiptin mikil. Ástæðan fyrir fækkun við- skipta er án vafa skortur á fram- boði undanfarið,“ segir Eiríkur Svanur. „Í janúar gengu í gegn og var þinglýst alls 531 kaupsamningi vegna íbúðarhúsnæðis á höfuð- borgarsvæðinu. Slíkt er ágæt sala á flestan mælikvarða enda annar stærsti janúarmánuður frá upphafi mælinga. Sá stærsti var janúar 2021,“ segir Eiríkur. Hann leggur áherslu á mikilvægi þess að fólk fylgist vel með eignum sem koma í sölu og sé vel undirbúið þegar kauptilboð eru gerð. Nú sé al- gengt að eignir séu ekki nema kannski örfáa daga á skrá og séu þá seldar. Við þessar aðstæður eru yfirboð á ásett verð algeng. Heilt yfir, segir Eiríkur, að fast- eignaverð til dæmis í Reykjavík og í Hafnarfirði sé nú orðið jafnara en oft áður, þegar sambærileg hverfi séu borin saman. Fjórðungshækkun í hverfi 221 „Samkvæmt úttekt Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar hækkaði verð eigna í hverfi í 221 Hafnar- firði næstmest á landinu árið 2021 eða rétt um 26%. Þá hækkuðu hverfi í 220 Hafnarfirði um 22% sem er fimmta mesta hækkun á landinu. Á sama tíma voru hverfi í miðbænum í Reykjavík flest að hækka um 15-18%. Slíkt rennir stoðum undir það að verð sé nú jafnara milli staða, það er Reykja- víkur og Hafnarfjarðar,“ segir Ei- ríkur. Morgunblaðið/Sigurður Bogi Horft úr Setbergshverfi til suðvesturs. Hafnarfjörður er eftirsóttur til bú- setu eins og vel sést á fasteignamarkaði um þessar mundir. Morgunblaðið/Sigurður Bogi Ágæta sala, segir Eiríkur Svanur Sigfússon, fasteignasali hjá Ási. Hafnarfjörður hækkar í verði Fasteignamarkaðurinn í bænum er líflegur. Skarðshlíð og Hamra- nes vinsæl svæði. Á pari við Reykjavík. Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is U nnið er um þessar mundir að fyrstu drögum að nýrri bygg- ingu fyrir Tækniskólann, sem til stendur að reisa í Hafn- arfirði. Síðustu ár hefur verið unnið að því að koma Tækniskólanum á einn stað, en nú er starfsemin á fimm stöðum í alls níu byggingum sem telja yfir 27.000 fermetra og eru í Reykjavík og Hafnarfirði. Í und- irbúningsstarfi hafa sérfræðingar verkfræðistofunnar Eflu, KPMG og hollenski arkitektinn Harry Abels komið að málinu. Vendipunktur í málinu var viljayfirlýsing milli Tækniskólans, fjármálaráðuneytis, menntamálaráðuneytis og Hafnar- fjarðarbæjar sem undirrituð var í júní í fyrra. Skólahúsið nýja verður við suður- höfnina í Hafnarfirði, en sá staður varð fyrir valinu eftir ítarlega grein- ingu fjölmargra staða og valkosta. „Núverandi byggingar skólans eru flestar börn síns tíma. Þær eru að mörgu leyti mjög óhentugar þegar kemur að verk- og tækninámi nú- tímans, byggingarnar bjóða upp á takmarkaðan sveigjanleika til breyt- inga og það fylgir því eðlilega óhag- ræði að reka skóla á fimm stöðum,“ segir Hildur Ingvarsdóttir skóla- meistari Tækniskólans. Í dag eru um 3.000 nemendur við Tækiskólann þar sem kenndar eru ýmsar iðn- og verkgreinar – sem og skipstjórn og véltækni. Alls eru um 2.200 nemendur í námi í dagskóla, auk töluverðs fjölda sem er í kvöld- og helgarnámi - eða nemur yfir netið. Gert er ráð fyrir að í Hafnarfirði verði reist um 30.000 fermetra bygg- ing á 3-4 hæðum sem geti hýst allt að 3.000 nemendur í dagskóla. Þá er lagt upp með að hægt verði að byggja við í framtíðinni. Unnið er eftir hug- myndafræði um skólastræti sem er opið og bjart og tengir mismunandi faggreinar og nám saman. Fyrsta flokks aðstaða „Með nýju skólahúsnæði verður hægt að taka á móti fleiri nemendum og bjóða þeim og starfsfólki fyrsta flokks aðstöðu og aðbúnað. Einnig verður hugsað fyrir því að mæta ung- um nemendum sem eru að koma beint úr grunnskóla betur. Þá horf- um við ekki síst til félagslífs og skóla- samfélags,“ segir Hildur Ingvars- dóttir. „Þá verður í húsinu nýja framúrskarandi umhverfi til nýsköp- unar og þróunar í samvinnu við nær- samfélag og bæjarbúa. Stefnt er að því að húsið verði ekki einvörðungu opið nemendum heldur geti nýst samfélaginu og er til dæmis gert ráð fyrir góðum fyrirlestrarsal, góðu bókasafni og fleiru sem verði sam- félaginu í Hafnarfirði aðgengilegt.“ Ný skólabygging nýtist bæjarbúum Tækniskólinn fer í Hafnarfjörð. Nýtt hús í hönnun. 30.000 fermetra bygging á 3-4 hæðum fyrir allt að 3.000 nemendur í dagskóla Morgunblaðið/Sigurður Bogi Umhverfi nýsköpunar, segir Hildur Ingvarsdóttir skólameistari. Svona sjá hönnuðuðir fyrir sér að innra rými nýbyggingar Tækniskólans verði. Hátt verður til lofs, vítt til veggja og tækifærin endalaus. Vegagerðin áformar í ár að bjóða breikkun Reykjanesbrautar, frá Krýsvíkurvegi rétt sunnan við Hafn- arfjörð að enda fjögurra akreina brautarinnar á Hrauni vestan Straumsvíkur. Lengd vegarkaflans er um 5,6 km. Áformað er að breikka veginn í 2+2 aðskildar akreinar, breyta mis- lægum vegamótum við álverið í Straumsvík, útbúa veg að Álhellu og vegtengingu að Straumi. Einnig á að byggja mislæg vegamót við Rauða- mel og útbúa tengingu að dælu- og hreinsistöð austan Straumsvíkur. Þá er áformað að byggja undirgöng fyr- ir gangandi og hjólandi rétt austan við álverið sem og plön fyrir um- ferðareftirlit beggja megin Reykja- nesbrautar austan við Straumsvík. Brautin beikkuð við Straumsvík Fjórar akreinar. Fram- kvæmdir við Reykjanes- brautina hefjast senn. Morgunblaðið/Árni Sæberg Endurbætur á Reykjanesbraut hafa lengi staðið yfir og lýkur senn. Kristinn Andersen forseti bæjarstjórnar áfram í 2.sæti Prófkjör Sjálfstæðisflokksins í Hafnarfirði 3.-5. mars Reynsla og traust -

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.