Morgunblaðið - 03.03.2022, Page 8
8 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. MARS 2022
Margrét Þóra Þórsdóttir
maggath61@simnet.is
Þ
etta var ótrúlega skemmti-
legt, gaman að taka við þess-
ari gjöf og finna hlýhuginn
sem er að baki henni,“ segir
Alma Jónsdóttir móðir Eyþórs Árna
Matthíassonar sem fæddist fyrstur
Hafnfirðinga á þessu ári, það er á
nýársdag. Faðir hans er Matthías
Árni Ingimarsson. Allir nýfæddir
Hafnfirðingar fá nú táknræna gjöf
frá bænum, svonefnda „krúttkörfu“
sem er liður í því að efla Hafnarfjörð
enn frekar sem fjölskylduvænt sam-
félag og bjóða þá nýfæddu velkomna
í heiminn með formlegum hætti.
Hellisgerði og Húbbahóll
Alma og Matthías eru bæði gegn-
heilir Hafnfirðingar, ólust þar upp
og gengu í skóla. „Það kom engum á
óvart að við ákváðum að búa í
Hafnarfirði og við erum ekki neitt á
förum,“ segir Alma, en hún er lög-
fræðingur hjá Seðlabanka Íslands,
Mattías er ljósmyndari og hús-
gagnasmiður og starfar hjá Smíða-
þjónustunni. Alma verður í fæðing-
arorlofi fram á haust. Þau eiga tvö
önnur eldri börn, Jón Inga 5 ára og
Írisi Ylfu 3ja ára. Bæði eru þau á
leikskólanum Hvammi.
Nóg er að gera hjá fjölskyldunni
og segir Alma að gott sé að vera í
Hafnarfirði. Barnafjölskyldur geti
fundið sér margt til skemmtunar.
Þau fara mikið út að leika, Víði-
staðatúnið er vinsælt, Hellisgerði og
Húbbahóll sömuleiðis. Þá eru tveir
ærslabelgir í bænum sem njóta vin-
sælda. „Það er fullt af skemmti-
legum stöðum í Hafnarfirði og við
reynum að njóta þess að fara út með
börnin og eiga góðar stundir hér og
hvar í bænum.“
Heilgalli, húfa og sokkar
Krúttkarfan sem fjölskyldan fékk
í byrjun árs inniheldur fatnað fyrir
barnið, heilgalla, húfu, sokka og
smekk með áletruninni Halló
Hafnarfjörður, krúttbangsa og tvær
bækur, aðra fyrir barnið og hitt fyrir
foreldrana. Við ákvörðun á innihald-
inu voru umhverfissjónarmið höfð að
leiðarljósi, notagildi og kynhlutleysi.
Allir foreldrar nýfæddra Hafnfirð-
inga fá póstkort um að þeir geti
nálgast gjöfina í barnadeild Bóka-
safns Hafnarfjarðar, þar sem fyrir
hendi er góð aðstaða fyrir lestur,
fræðslu, slökun, spjall og samveru
fyrir nýbakaða foreldra. Upplýs-
ingar má einnig finna á QR-kóða á
kortinu um hvað foreldrum og börn-
um stendur til boða í Hafnarfirði,
sem og upplýsingar um gönguleiðir,
leikvelli og áhugaverða staði.
„Þessi gjöf gladdi okkur mikið.
Þetta sýnir fyrst og fremst hlýhug
bæjarins til nýrra Hafnfirðinga og
þau áform að bærinn ætli að standa
sig vel fyrir barnafjölskyldur. Við
erum auðvitað á heimavelli en erum
mjög ánægð með bæinn, það er auð-
vitað alltaf hægt að bæta alla hluti
og mér finnst vilji til þess innan
bæjarfélagsins ef á það er bent hvað
betur má fara,“ segir Alma.
Gaman að finna hlýhuginn
Eyþór Árni fæddist á ný-
ársdag. Krúttkörfur til
nýfæddra Hafnfirðinga.
Gjöfin bíður á bókasafn-
inu.
Ljósmynd/Hafnarfjarðarbær
Hjónin Alma Jónsdóttir og Matthías Árni Ingimarsson með soninn Eyþór
Árna. Rósa Guðbjartsdóttir bæjarstjóri heimsótti fjölskylduna á dögunum.
Á árinu 2021 komu alls 360 nýir
Hafnfirðingar í heiminn sem er
svipuð tala og verið hefur á ári
hverju allt frá aldamótum. Einn
nýr Hafnfirðingur á dag – eða
þar um bil – hlýtur að teljast
ansi gott. Árið 2022 fór vel af
stað með 35 börnum og ef fram
heldur sem horfir munu 420 nýir
Hafnfirðingar fæðast á árinu.
Slíkt gerir 2022 að öðru árinu
frá 1997 til að ná tölunni 420, en
2007 fæddust 440 nýir Hafnfirð-
ingar.
Fjölbreyttar frístundir
Hafnarfjörður er barnvænt
samfélag og fjölskyldubær, segir
Rósa Guðbjartsdóttir bæjar-
stjóri. Útivistarsvæði hafa verið
bætt og að sundlaugum bæjarins
er frítt aðgengi fyrir eldri borg-
ara og börn 17 ára og yngri. Þá
bjóðast möguleikar til fjöl-
breyttra frístunda, frístunda-
styrkur hefur verið hækkaður í
aldri og upphæð og innritunar-
aldur lækkaður í leikskóla.
Systkinaafsláttur er veittur
vegna systkina sem eru sam-
tímis í frístund, á leikskóla og
hjá dagforeldri. Annað barn fær
75% afslátt og þriðja og fleiri
100% afslátt. Einnig geta tekju-
minni foreldrar sótt um tekju-
tengdan afslátt.
„Nýir leik- og grunnskólar
hafa verið reistir samhliða fjölg-
un íbúa í nýjum hverfum. Bæði
skólastigin voru komin af stað í
Skarðshlíð áður en byggð tók að
rísa og mótast í því mæli sem
hún er í dag. Tveir nýir leik-
skólar og grunnskóli verði í
Hamranesi sem er nýjasta
íbúðahverfið okkar og komið á
fullt í uppbyggingu. Vegna þeirr-
ar miklu uppbyggingar sem nú
er í bænum er gert ráð fyrir að
íbúum Hafnarfjarðar fjölgi um
7.500 næstu fjögur árin og slíka
íbúafjölgun þarf að undirbúa
vel,“ segir Rósa.
Stöðug fjölgun í barnabænum
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Fólki fjölgar, bærinn stækkar og
tímar breytast og mennirnir með
Búist við 420
nýburum á árinu
2. sæti
Prófkjör
Sjálfstæðisflokksins
í Hafnarfirði 2022
Orri Björnsson
www.xorri.is