Fréttablaðið - 30.04.2022, Síða 32
Ég þurfti
að hætta
að ferðast í
smá tíma.
Ég nýtti
þann tíma
sem mér
var gefinn,
mjög vel.
Til að
einbeita
mér að
dýpri
verkefnum.
Tónlistarmaðurinn Rufus
Wainwright heldur tónleika
á Íslandi í lok maí. Þetta er í
annað sinn sem hann kemur
til landsins. Á litríkum og
fjölbreyttum ferli hefur hann
sent frá sér níu plötur og eftir
hann liggja meðal annars
óperur og aðlaganir á sonn-
ettum Shakespeares. Nýjasta
verkefnið er söngleikur.
Ru f u s Wa inw r ig ht er
staddur á heimili sínu í
Montreal þar sem hann
býr ásamt þýskum eigin-
manni sínum, listræna
stjórnandanum Jörn Weisbrodt.
Hjónin eiga dótturina Vivu Kather-
ine Wainwright Cohen, með Lorcu
Cohen, dóttur söngvarans Leonards
Cohen.
Viva Katherine svarar í símann og
það er ljóst frá fyrsta augnabliki að
á þessu heimili hrópar fólk á hvert
annað milli herbergja, á sama hátt
og tíðkast gjarnan á íslenskum
heimilum. Undirrituð kynnir sig
og dóttirin hrópar næst á pabba
sinn að einhver í símanum sé að
hringja frá Íslandi. Jörn Weisbrodt
svarar næstur, og kallar síðan á
eiginmanninn, Rufus Wainwright,
að viðtalið sé að hefjast.
Fléttað inn í umhverfið
„Ég hef það gott,“ svarar Rufus og
bætir við að hann sé spenntur fyrir
því að koma til landsins. Þetta sé
vissulega í annað skiptið sem hann
komi, síðast hafi hann verið hér
2008. En þessi Íslandsferð sé hins
vegar einstök.
„Ég hef gert sambærilega hluti
áður, til dæmis á Kúbu, þar sem ég
var ásamt nokkrum aðdáendum
og setti upp nokkra tónleika, sem
urðu þannig meira f léttaðir inn í
umhverfið en ella,“ segir hann.
Aðspurður hvernig tónleikar það
séu, segist hann ekki hafa ákveðið
það alveg. „Símtalið frá þér er upp-
hafið á því ferli hjá mér,“ segir hann
og skellihlær. „Takk fyrir að minna
mig á það.“
Ætlar að skoða Reykjavík
Rufus segist í framhaldinu ætla að
hugsa málið, hvaða efni virki vel á
Íslandi. „Ég mun reyna að finna ein-
hver íslensk númer. Það vantar ekki
góða tónlistarmenn þarna, eins og
Björk og SigurRós. Þú veist. Þannig
að já, takk fyrir að koma mér af stað,“
segir hann.
„Þegar ég kem til Íslands ætla ég að
dvelja þar í smá tíma. Ég held tvenna
tónleika og svo ætla ég líka að skoða
bæinn og litast aðeins um.“
Rufus segist vera mikill aðdáandi
John Grant, sem hitar upp fyrir tón-
leikana í Hörpu. „Ég er spenntur fyrir
því að, vonandi, vinna með honum.
Og fjölda íslenskra listamanna af
öllu tagi.“
Einarður Garland aðdáandi
Hann segir tónleikana verða sam-
þætta umhverfinu. „Svo tek ég fleiri
tónlistarmenn með mér, þannig að
ég mun flytja mín eigin lög, lög af
nýju plötunni – og Judy Garland lög.
Þannig að þetta verður allt mjög sér-
stakt.“
Rufus hefur ekki farið leynt með
aðdáun sína á bandarísku goðsögn-
inni Judy Garland. Rufus does Judy
at Carnegie Hall er sjötta plata, og
jafnframt fyrsta tónleikaplata lista-
mannsins. Platan kom út í desember
2007 og samanstendur af upptökum
af minningartónleikum um leik- og
söngkonuna sem haldnir voru í
Carnegie Hall í júní 2006.
Þakklátur fyrir
frjósama þögn og
hvíld í faraldrinum
Rufus Wain
wright kveðst
vera mikill
aðdáandi John
Grant, sem hitar
upp fyrir tón
leikana í Hörpu.
MYND/GETTY
Nína
Richter
ninarichter
@frettabladid.is
„Í júní ætla ég að fara til New
York og taka Judy Garland lög, til að
heiðra hana á hundrað ára afmæl-
inu,“ segir hann. Með honum eru
tveir tónlistarmenn, gítarleikari og
píanisti, sem hafa unnið með honum
í streymistónleikum í faraldrinum.
Þeir fylgi honum einnig til Íslands í
maí.
Heimsóknin rétt fyrir hrun
Hann minnist síðustu Íslandsheim-
sóknar, að hún hafi verið nálægt
bankahruninu. „Þetta var rosalega
skrítinn tími. Í svona átakaumhverfi
eins og þarna er, með öllum jarðhit-
anum. Mér fannst það viðeigandi
með hliðsjón af því sem heimurinn
var að fara að ganga í gegnum. En ég
naut mín mjög vel.“
Rufus segist halda að Reykjavík
hafi breyst mikið síðan þá, „en samt
ekki,“ bætir hann við.
Tekur eiginmanninn með
„Ég spilaði þarna tónleika og fór svo
í smá ferð um landið. Ég heimsótti
Þingvelli, fyrsta þingið í heiminum
og skoðaði … Geysi? Ég man aldrei
hvernig maður ber það fram,“ segir
hann hugsi. „En ég kynntist fólki úr
SigurRós, við fórum út eitt kvöldið.
Svo skellti ég mér í Bláa lónið.“
Hann segist ætla að þeir sem
heimsæki Ísland í fyrsta sinn geri
yfirleitt svipaða hluti. „En í ljósi
þess að þetta er annað skiptið mitt,
ætla ég að sjálfsögðu að taka mann-
inn minn með, hann hefur aldrei
komið,“ segir Rufus. „Ég hef ákveðið
að kafa aðeins dýpra í þetta sinn,
kynnast samfélaginu og hitta fólk,
vonandi fleiri heimamenn og þann-
ig,“ segir hann.
Söngleikur á leiðinni
Síðustu tvö ár hafa verið krefjandi
fyrir tónlistarfólk og Rufus kveðst
ekki hafa farið varhluta af því. Þó
hafi það ekki verið alslæmt. „Fyrir
utan það að ég tapaði hellingi af
peningum, ég gat ekkert túrað. Og
síðan heilsufarið á ákveðnum vinum
og ættingjum hefur ekki verið gott,
þú veist,“ segir hann og bætir við, að
einnig hafi tíminn verið dásamlegur.
„Ég þurfti að hætta að ferðast í smá
tíma. Ég nýtti þann tíma sem mér var
gefinn, mjög vel. Til að einbeita mér
að dýpri verkefnum,“ segir hann.
Rufus nefnir þar söngleik sem
hann hefur unnið að. Einnig hafi
hann byrjað að teikna mjög mikið
„Og ég fór að eyða miklu meiri tíma
með fjölskyldunni minni, dóttur
minni og eiginmanni mínum,“
segir hann. „Ég græddi líka mikið
á þessu tímabili, þó að ýmislegt
í kjölfarið hafi verið afskaplega
f lókið,“ segir hann og það er ljóst
að honum liggur mikið á hjarta.
„Öll upplýsingaóreiðan og orrustan
um umhverfismálin,“ segir hann og
hikar stutta stund. „Við erum að
byrja ákveðið ferðalag hérna,“ segir
hann. „Við þurftum þessa hvíld.“
Hann segist ekki geta tjáð sig
mikið um söngleikinn á þessum
tímapunkti. „Það verður formleg
fréttatilkynning bráðlega. En ég hef
verið að skrifa mikið fyrir leikhús.“
Rufus segir að hann vinni að
söngleiknum með mjög frægum
leikstjóra. „Ég hef sett allt mitt í
þetta verkefni.“ Hann bætir við að
hann taki ferðalag sitt inn í heim
söngleikjatónlistar mjög alvarlega.
Þögli hlutinn af lífinu
Teikning hafi einnig komið sterk
inn í heimsfaraldrinum. „Það er
mér mikilvægt að teikna. Ég mynd-
skreytti fjölda laga af nýju plötunni
og við notuðum teikningarnar sem
bakgrunn fyrir hluta af efninu.“
Rufus segist þannig hafa haldið
þessum hæfileika við, og vera
þakklátur fyrir að hafa fengið tæki-
færi til þess. „Þetta er svona þögull
hluti af lífi mínu,“ segir hann og
skellihlær.
Rufus segir röddina hafa fengið
kærkomna hvíld í faraldrinum. „Ég
held að ég sé að syngja betur núna
en nokkru sinni fyrr,“ segir hann.
Og talandi um röddina, skyndilega
hefur hann upp raustina og hrópar
upp fyrir sig, á einhvern heimilis-
manna, að hundurinn eigi ekki að
borða þetta. „Vondur, vondur!“
hrópar hann upp yfir sig.
Rufus biðst afsökunar og snýr sér
aftur í afslappaðan viðtalsgír. Hann
spyr hvernig veðrið sé á Íslandi.
Blaðamaður svarar að það sé
skynsamlegt að pakka vetrarföt-
um þó að það sé maí. Sérstaklega
ef hann ætlar sér að ferðast. Það
geti orðið kalt, sérstaklega ef hann
blási. n
32 Helgin 30. apríl 2022 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ