Fréttablaðið - 30.04.2022, Blaðsíða 36
Það þarf ekki að
skrá sig í göngurn-
ar en það er gott ef fólk
hakar við hvort það
mætir eða ekki inni á
Facebook-síðu Ferða-
félags barnanna.
Valgerður Húnbogadóttir
Fjallagarpaverkefni fjöl-
skyldunnar á vegum Ferða-
félags barnanna hefst með
göngu á Búrfell í Heiðmörk
næsta miðvikudag. Í maí
verða farnar fjórar göngur á
vegum verkefnisins.
sandragudrun@frettabladid.is
Fjallagarpaverkefni Fjölskyldunn-
ar er verkefni á vegum Ferðafélags
barnanna sem er svo verkefni
á vegum Ferðafélags Íslands.
Göngurnar í ár eru fjórar, sú fyrsta
4. maí og sú síðasta 29. maí.
Fjallagarpaverkefnið hefur það
markmið að skapa skemmtilega
samveru fyrir börn og fjölskyldur
þeirra úti í náttúrunni og uppi
á fjöllum. Verkefnið hefur verið
haldið í nokkur ár en að þessu
sinni stýrir Valgerður Húnboga-
dóttir göngunum ásamt fjölskyldu
sinni.
„Við byrjum á Búrfelli og
Búrfellsgjá í Hafnarfirði og svo
stigmagnast göngurnar í erfið-
leikastigi og enda á Akrafjalli,“
segir Valgerður, en þetta er í fyrsta
sinn sem hún og fjölskylda hennar
stýra ferðunum.
„Næsta ganga eftir Búrfell verður
á Reykjafell í Mosfellsdal, miðviku-
daginn 11. maí. Svo er farið á Hatt
og Hettu í Krísuvík laugardaginn
22. maí og á Akrafjall laugardaginn
29. Laugardagsgöngurnar eru
lengri og akstur að upphafsstað er
líka lengri. Við hugsum þær sem
dagsferðir þar sem er stoppað og
borðað nesti,“ útskýrir Valgerður.
Hún segir mikilvægt að
börnin fái að velja nestið því allar
ferðir í verkefninu eru á forsendum
barnanna.
Ferðafélag barnanna verður
einnig með sumarleyfisferðir í
sumar og miðað er við að börnin
hafi náð 6 ára aldri til að taka þátt
í þeim.
„En göngurnar á vegum Ferða-
Fjallgöngur á forsendum barnanna
Valgerður og
fjölskylda
hennar eru
miklir fjalla-
garpar og verða
leiðsögumenn í
Fjallagarpaverk-
efni fjölskyld-
unnar í ár.
Valgerður hefur gengið mikið á fjöll og tekur fjölskyld-
una oft með. MYNDIR/AÐSENDAR Verkefnið er hvetjandi fyrir fjölskyldur til að ganga á fjöll.
félags barnanna eru opnar öllum
fjölskyldumeðlimum. Það er þá
mat foreldranna hversu ung börn
þau treysta sér til að taka með. Svo
er auðvitað hægt að vera með börn
í burðarpoka,“ segir Valgerður.
„Það þarf ekki að skrá sig í
göngurnar en það er gott ef fólk
hakar við hvort það mætir eða ekki
inni á Facebook-síðu Ferðafélags
barnanna, svo við fáum einhverja
hugmynd um hvað margir ætla
að mæta. Göngurnar eru ókeypis
fyrir fjölskyldur félaga í Ferðafélagi
Íslands, en það er aldrei of seint að
skrá sig.“
Undirbúningur fyrir sumarið
Valgerður er vanur fjallagarpur en
hún bjó lengi í Noregi og stundaði
útvist þar með fjölskyldunni.
„Við bjuggum þar þegar Ferða-
félag barnanna á Íslandi var
stofnað að norskri fyrirmynd. Ég
fór að fylgjast með því á sama tíma
og ég tók þátt í verkefnum systur-
félagsins í Noregi með okkar börn.
Áherslurnar eru mismunandi á
milli þessara landa. Í Noregi er
áherslan á rólega útivist í skóg-
inum og að elda mat á báli en hér
er meiri áhersla á að kynna börn
og fjölskyldur þeirra fyrir fjöllum
og fellum á höfuðborgarsvæðinu
og ferðir á hálendinu á sumrin. Í
sumar erum við til dæmis að fara
að leiðsegja ferð á Víknaslóðir
fyrir Ferðafélag barnanna,“ segir
Valgerður.
Valgerður segir að þátttaka í
fjallagarpaverkefninu hafi verið
góð hingað til en hún hefur tekið
þátt í þeim með sínum börnum
áður þó þetta sé í fyrsta sinn sem
fjölskyldan leiðir göngurnar.
„Þegar við fluttum til Íslands
fyrir fjórum árum þá þurftum
við svolítið að læra hvernig við
áttum að stunda fjallgöngur með
börnunum okkar í Reykjavík.
Okkar leið var að fara með börnin í
Fjallagarpaverkefni fjölskyldunnar
árið 2018 og þá var gríðarlega mikil
þátttaka,“ segir Valgerður og bætir
við að hún og fjölskylda hennar
séu spennt fyrir að fara í fyrstu
gönguna á vegum verkefnisins í ár.
„Ég hugsa þetta líka sem undir-
búning fyrir sumarið. Það er svo-
lítið stórt stökk að fara í göngu á
Laugaveginn eða í fjögurra daga
göngu á Víknaslóðir með börn.
En það er ekki eins stórt stökk ef
maður er búinn að fara í stuttar
göngur á höfuðborgarsvæðinu
fyrst,“ útskýrir hún.
Hún bætir við að lokum að dag-
skrá ferðanna megi finna inni á vef
Ferðafélags Íslands og Facebook-
síðu Ferðafélags barnanna. n
Hlutverk styrkjanna
• Auka við nýsköpun á landsbyggðinni
• Styðja við atvinnulíf og verðmætasköpun sem
byggir á hugviti, þekkingu og nýrri færni
• Stuðla að uppbyggingu vistkerfis fyrir
nýsköpunarstarfsemi og frumkvöðlastarf á
forsendum svæðanna.
Frekari upplýsingar og umsóknarform er að finna á
www.hvin.is
Upplýsingar veitir:
Sigurður Steingrímsson
sigurdur.steingrimsson@hvin.is
N Ý S K Ö P U N A R S T Y R K I R
F YRIR LANDSBYGGÐINA
UMSÓKNARFR
ESTUR ER TIL 11. M
AÍ
2
02
2
Háskóla-, iðnaðar- og
nýsköpunarráðuneytið auglýsir
Lóu - nýsköpunarstyrki fyrir landsbyggðina
4 kynningarblað A L LT 30. apríl 2022 LAUGARDAGUR