Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni - okt. 2021, Blaðsíða 9
Siglfirðingablaðið Siglfirðingablaðið16 17
Brátt kom í ljós að það myndi taka nokkurn tíma að gera við
flugvélina, en Gunnlaugur og Anna vildu gjarnan komast
heim aftur. Þótti nú ráðlegast að þau færu til Parísar og
þaðan til Reykjavíkur með annarri íslenskri flugvél.
Þetta varð úr. En þau komu tíu mínútum of seint á flug
völlinn í París. Fyrir vikið fengu þau að sjá örlítið af
yfirbragði þessarar frægu heimsborgar. En síðan héldu þau
aftur til Kaupmannahafnar, þar sem þau voru nú um sinn
til húsa í Hótel Comsmopolitan.
Eins og ævintýri
Þegar þau Lambaneshjón komu úr Parísarferðinni átti
blaðamaður frá Berlingske Tidende tal við þau og naut þar
milligöngu „elskulegrar, ungrar flugfreyju frá flugfélaginu“.
Þetta hefur verið hreinasta ævintýri, sagði Gunnlaugur í
viðtali við blaðamanninn, og við munum lifa á minning
unum, það sem eftir er ævinnar. Við höfum aldrei fyrr
glaðzt yfir því, að flugvélarmótor skyldi bila. Við ætluðum
að vera hér einn dag, en höfum nú verið átta, og höfum
auk þess fengið að sjá París. Fólk trúir okkur varla, þegar
við komum heim og segjum frá því, sem fyrir okkur hefur
borið. En við höfum keypt fáein póstkort, sem geta sannað
sögu okkar.
Hvort líst ykkur betur á París eða Kaupmannahöfn?
spyr blaðamaðurinn.
-Tvímælalaust Kaupmannahöfn, svarar Gunnlaugur. Það
er dásamleg borg, og við hefðum bókstaflega ekki trúað því,
að það væri svona fallegt í Danmörku. Í gær fórum við í
bíl út á Norður-Sjáland og sáum hvernig landbúnaðurinn,
sem hugur okkar er auðvitað við, er rekinn hér, og úr þeirri
ferð höfum við frá ýmsu að segja, þegar heim kemur.
Hvað er ykkur hugstæðast úr þessari ferð?
-Skógurinn, svarar Gunnlaugur. Við höfum farið út á
Bakka - okkur óraði ekki fyrir því, að það væru til svona
stór tré. Það var fögur sjón.
-Og borgin, sagði þá Anna. Að hugsa sér allar þessar vöru-
búðir og ljósaauglýsingar á kvöldin. Það var dýrðleg sjón.
Hvenær farið þið svo heim? spyr blaðamaður að lokum.
-Það er undir því komið, hvenær flugvélin verður ferðafær.
En okkur er það út af fyrir sig ekkert á móti skapi, þótt
það dragist, svo við getum líka skotizt til Lundúna. Þessi
ævintýraferð hefir ært upp í okkur ferðalöngunina.
Anna og Laugi frá Lambanesi
í Fljótum í Evrópuferð í boði
Loftleiðamanna 1948
-hugfangin af trjánum og ljósauglýsingunum
sem vörp uðu álfaljóma á götur stórborganna
Tíminn 3. nóv. 1948
Það hafa fleiri Íslendingar en fulltrúarnir á allsherjarþingi
Sameinuðu þjóðanna spókað sig í París í haust. Meðal
þeirra eru skagfirsk hjón, Gunnlaugur Kristjánsson og
Anna Guðmundsdóttir frá Lambanesi í Fljótum. Og það
var með talsverðum ævintýrabrag, að þessi Frakklandsferð
þeirra átti sér stað. Kom þar hvort tveggja til, höfðingsskapur
Loftleiða og einkennileg tilviljun.
Flugvélar frá Loftleiðum hafa undanfarin ár tekið þátt í
síldarleit fyrir Norðurlandi. Hafa þessar leitarflugvélar
haft lendingarstað á Miklavatni og eins konar bækistöð
skammt frá Lambanesi í Fljótum, þar sem þau Gunnlaugur
Kristjánsson og Anna Guðmundsdóttir búa.
Tókst fljótt vinátta með flugmönnunum, sem nutu
margvíslegrar aðhlynningar í Lambanesi og hjónum,
sem þótti vænt um gestakomuna. Fyrstu árin voru þeir
Kristinn Olsen og Alfreð Elíasson flugmenn á leitarvélum,
síðar Dagfinnur Stefánsson og Halldór Beck, og nú síðast
Stefán Magnússon, Olav Olsen og Einar Árnason.
Viljið þið skreppa til Kaupmannahafnar?
Nú fyrir nokkru komu Lambaneshjónin til Reykjavíkur
og bar þá fundum þeirra og flugmannanna saman.
Forráðamenn Loftleiða höfðu lengi ætlað að launa þeim
þá vinsemd sem flugmennirnir höfðu orðið aðnjótandi í
Lambanesi, og kom spurningin: Viljið þið skreppa til
Kaupmannahafnar?
Flugvélin átti að fara að morgni, og tvö sæti voru laus. Gert
var ráð fyrir, að hjónin kæmu aftur til Reykjavíkur næsta
dag.
Eins og nærri má geta var þetta rausnarboð þegið með
þökkum. Þau fóru til Kaupmannahafnar eins og þau stóðu
þetta átti ekki að vera nema rösklega sólarhringsferð. En
það fór á aðra leið,
Ferðinni haldið áfram til Paríasar
Þegar lent var á Kastrupflugvelli í Kaupmannahöfn
kom í ljós bilun í vélinni. Hún þurfti viðgerðar við, og
Lambaneshjónunum var fengin vist í gistihúsi á kostnað
Loftleiða.
Anna og Laugi í Lambanesi, á ferð í Kaupmannahöfn í boði
Loftleiða, ásamt Dagfinni, Smára og Jóhannesi.
Hópur Loftleiðaflugmanna kom saman að frumkvæði Snorra
Snorrasonar sem tók myndina, en hann hafði fengið í hendur
nýja mynd eftir breska listamanninn Wilfred Hardy af
Geysi DC4. Myndin er tekin í garðinum hjá Smára og er
í bókinni „Íslenskar flugvélar Saga í 90 ár“ sem Snorri
gaf út 2010. Á myndinni eru þeir frá vinstri talið fremri
röð, Magnús Guðmundsson, Smári Karlsson, Dagfinnur
Stefánsson. Aftari röð Stefán Gíslason, Magnús Norðdal og
Ragnar Kvaran.
Siglfirðingablaðið16
An a og Laugi f La banesi
í Fljótum í Evrópuf r í i
Loftleiðamanna 1948
-hugfangin af trjánum og ljósauglýsingunu
sem vörpuðu álfaljóma á götur stórborganna
Vatnagarðar 14
104 Reykjavík
Sími: 563 6000
litrof@litrof.is