Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni - okt. 2021, Blaðsíða 12

Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni - okt. 2021, Blaðsíða 12
Siglfirðingablaðið Siglfirðingablaðið22 23 tveggja stúlkna á þessari mynd, Kamillu og Jóhönnu og samskiptum hennar við kaupmanninn. Frásögnin er gott innlit í skemmtilegan hluta bæjarbragsins. (Birt með leyfi Steingríms.) Einn af þessum föstu viðskiptavinum Gests var kona Jóns Stefánssonar forstjóra Síldarútvegsnefndar, Ásta Guð­ mundsdóttir. Hún er mér minnisstæð vegna góð mennsku hennar. Einnig var eiginmaður hennar einstakur maður. Ásta færði mér ætíð eitthvað góðgæti, súkkulaði, kökur og jafnvel mjólkurglas með þegar ég kom með sendingu til hennar. Alltaf með bros á vör. Gestur Fanndal var sérstakur karakter, mikill frumkvöðull. T.d. varðandi flugsamgöngur sem Siglfirðingar áttu hon­ um miklar þakkir fyrir, þó fáir gerðu sér grein fyrir því hverju hann fékk framgengt í þeim málum. Gestur átti þó einnig sína vankanta eða öllu heldur furðuleg máltæki og uppákomur. Einu atviki tengt Gesti man ég vel eftir og var einmitt einnig tengt Ástu sem nefnd er hér framar. Ásta hafði einstakan áhuga á bakstri, hún pantaði mikið af allskyns hráefni til baksturs miðað við það úrval sem þá var fáanlegt í verslunum á þeim tímum og alltaf fékk ég að smakka þessar kökur og brauð sem hún bakaði þegar mig bar að garði einu sinni til tvisvar í viku stundum oftar. Eitt sinn sem oftar hafði hún pantað heilan helling af vörum, þar á meðal sykur, hveiti og fleira eins og gengur. Gestur gekk sjálfur frá pöntuninni í trékassann sem ég svo setti á bögglaberann og hjólaði af stað. Mikill hluti leiðarinnar var þó það brattur að ég þurfti að leiða hjólið, það er upp að Suðurgötu 46 þar sem Ásta og Jón bjuggu. Heim að dyrum bar ég svo kassann og knúði dyra. Ásta kom brosandi til dyra eins og venjulega og bað mig að koma inn með kassann. Þar raðaði hún innihaldinu skipulega á eldhúsborðið og ég fylgdist með. Ég sá að hún tók kipp og sagði „Hvar er sykurinn?“ Og bætti svo við, „hér er enginn sykur en helmingi meira hveiti en ég bað um.“ Hún horfði á mig og spurði „Tók Gestur þetta til?“ Án þess að bíða eftir svari tók hún símann og hringdi, í síma nr. 65 sem var sími Verslunar Gests Fanndal. „Gestur, það kom enginn sykur en tvöfalt meira af hveiti en ég bað um“ sagði hún. Venjulega þegar Gestur ansaði í síma þá svaraði hann gjarnan með eins atkvæðis orði: „Gestur.“ Það kom undrunarsvipur á Ástu sem síðar hristi höfuðið og lagði á án þess að segja meira. Hvort þeirra það var sem lagði á á undan veit ég ekki en Ásta sagði mér brosandi um leið og hún hristi höfuðið að svar Gests hefði verið stutt og laggott. „Hvað er þetta kona ertu ekki að baka, notarðu ekki hveiti í bakstur? ­ Sykurinn kemur á morgun.“ Svo skellti Gestur á. Sykur hafði ekki verið til og karl setti bara hveiti í staðinn, en sykurinn sendi hann mig með strax daginn eftir til Ástu. Það er æði margt sem hægt er að rifja upp og njótið heilir lesendur góðir. Jóna Möller Steingrímur 12 ára sendill hjá Gesti sem tók myndina. Ásta og Jón Stefáns á glöðum degi með ma.Tomma og Björk. Ljósmyndari Kristfinnur Guðjónsson. Gestur Fanndal á spjalli við Tómas Sigurðsson og Steinunni Gísladóttur. SIGLFIRSK FRÉTTASKOT Þessi tankur var reistur árið 1937 og notaður á olíubirgða­ stöð BP á Siglufirði í nærri 80 ár. Í seinni heimstyrjöldinni höfðu Bandamenn, fyrst Bretar og síðar Bandaríkjamenn, herbúðir í miðjum bænum og á Siglunesi. Var þá tankinn málaður að utan sem íbúðarhús til að villa um fyrir þýskum flugvélum vegna yfirvofandi loftárása þeirra. Lýsistankar svipaðrar gerðar voru hluti af hverri síldarverksmiðju. Árið 2016 var tankinn fluttur á safnsvæði Síldar minja­ safnsins (Skilti við olíutanka á safnasvæði Síldarminjasafnsins) Á árum seinni heimsstyrjaldarinnar voru olíugeymar taldir líkleg skotmörk óvinahers, þess vegna var víða brugðið á það ráð að mála þá í felulitum. Ísland var hlutlaust land á stríðsárunum en var hersetið af Bretum og síðar Bandaríkjamönnum. Ávallt var viðbúið að þýskur her myndi gera árás á landið. Aðferðin við að dylja hlutverk olíugeymanna gat verið ólík og eru tvö þekkt dæmi þess á Íslandi að slíkir tankar hafi verið málaðir eins og um íbúðarhús væri að ræða til að afvegaleiða árásaraðila. Sennilegast er að þetta hafi verið gert vegna þess hve nálægt byggð þessir tankar stóðu og því talið mögulegt að blekkja óvininn á þennan hátt. Tankarnir sem við sjáum á myndinni hér efst stóðu við Skúlagötu í Reykjavík, á Klöpp við enda Klapparstígs þétt við íbúðarbyggð. Þeir voru í eigu Olíuverslunar Íslands, byggðir árið 1928 og stóðu í marga áratugi. Annað dæmi er til um slíka málun frá Siglufirði, þar sem tankur var dulbúinn sem íbúðarhús. Þar var reyndar farið svo langt að mála manneskju við einn gluggann og hurð með tröppum fyrir utan. Sá tankur er nú hluti af safnsvæði Síldarminjasafns Íslands. Væntanlega hafa íslenskir málarar fengið vinnu við að mála tankana, enda sinntu Íslendingar margvíslegum störfum fyrir breska og bandaríska setuliðið á Íslandi á stríðsárunum. Höfundur þessa texta hefur eftir ömmu sinni að faðir hennar sem var málarameistari, hafi farið með hermanni út í Viðey og gefið leiðsögn um hvernig skyldi mála olíutank til að villa um fyrir óvinum. Fáar heimildir eru til um stríðsminjar af þessu tagi þó að þær hafi staðið nærri byggð enda málning ekki jafn varanleg og aðrar minjar s.s. steinsteypt loftvarnarbyrgi eða braggar. Þegar tankarnir hafa verið málaðir að nýju, eða teknir niður, hefur smátt og smátt fennt yfir þessa frumlegu feluaðferð. Villt um fyrir Þjóðverjum í seinna stríði (Tekið af síðu Þjóðminja- safnsins. Kristín Halla Baldvins dóttir).

x

Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni
https://timarit.is/publication/627

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.