Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni - okt 2021, Qupperneq 14
Siglfirðingablaðið Siglfirðingablaðið26 27
Að hafa unga fólkið ánægt
Merkilegt við Siglufjörð hvað hefur dofnað yfir íþrótta
lífinu frá því að síldin hvarf. Þá voru allir í tvöfaldri og
þrefaldri vinnu á bryggjunum í síldinni, nótt eftir nótt,
en alltaf hægt að spila fótbolta. Og aðstaðan við völlinn
á þessum árum var engin og við þurftum að fara niður í
barnaskóla í böð. Þetta þarf að vera á staðnum. Aðstaðan
á Hóli er mjög góð.
Það versta við eitt bæjarfélag er ef það skilur ekki, að það
er nauðsynlegt fyrir unga fólkið í bænum að hafa góða
aðstöðu til íþróttaiðkana. Það heldur enginn bæjarfélagi
gangandi nema hafa unga fólkið ánægt. Það byggir enginn
bæjarfélag á gömlu fólki eingöngu. Lítið bara á Húsavík.
Þar eru ekki meiri peningar en á Siglufirði. Þar er grasvöllur,
íþróttahús og hvaðeina og Völsungar í 1. deild.
Þegar knattspyrnumenn sem hafa bara malarvöll koma á
gras þá fá þeir sálrænt áfall. Siglfirskir knattspyrnumenn
hafa ávallt staðið sig með prýði og eru vel komnir að
þessum grasvelli sem nú er í byggingu við Hól.
Ég óska þeim til hamingu.
GT/ÓB
Góðar minningar
Minningarnar eru svo margar. Þetta voru manns bestu ár
og þarna var maður með sínum bestu félögum.
Helgi Sveins spilaði lengi eða þangað til hann brotnaði
illa á skíðum. Jón Þorsteins spilaði með okkur í yngri
flokkum en hætti svo og það var það sem bjargaði honum.
Ég eyðilagði aftur á móti lappirnar á mér. Jón er með
okkur á myndinni sem tekin var hjá steini sem var brotinn
niður og aldrei átti að gera, þar sem Suðurgata 10 er nú.
Þetta var stærðarbjarg sem hrunið hafði úr fjallinu, hálfgert
einkenni fyrir Siglufjörð. Þarna eru Valdi Gosa rakarinn á
Sauðárkróki og Diddi Rúnu, hann var mjög flinkur spilari.
Jónas sekkur sér niður í myndirnar á albúminu sem hann
hefur dregið fram.
Þarna er Siggi Árna, hann er nú dáinn, blessaður, Keli
Ben, Valdi, Dídí, Elli Magg, Eddi dáinn, Siggi Kela, Jón
Þorsteins, Alli King með þetta fína hár, Venni, dáinn, Villi
Sæby... og Berti sem var úrvalsmarkvörður.
Hafliði Guðmundar var góður í vörninni en hann fór alltaf
úr augnkörlunum þegar hann keyrði í þá. Jóhann Möller
var góður en skringilegur spilari. Sjáðu hvað Jóhann er stór
þarna, en svo var það bara búið!
Bragi Magg, geysilega sterkur í vörninni. Jón og Stebbi
Skafta voru gífurlega harðir. Stebbi var alltaf svo æstur, vildi
bara hespa leikinn af, ekkert að tala um það.
Jón var miklu rólegri. Bóbó Theu var gífurlega sterkur,
snöggur og ákveðinn en gallinn var að hann var einfættur.
Og ekki má gleyma Tedda í öskunni. Hann var eins og
lukkutröll fyrir K.S. og lifði sig inn í leikina.
Svo komu yngri strákarnir þegar við þessir eldri fórum
að detta út. Biggi Lauga, Freyr, Sigþór, Bjarni Þorgeirs,
Helgi Magg og þeir.
Uppstrílaðir í keppnisferðalagi. Bragi Magg., Jónas Ágeirsson
og Helgi Sveinsson
KSingar uppstilltir við klettinn þar sem seinna reis Suðurgata 10.
Fyrsta röð: Þorkell Benónýsson, Eldjárn Magnússon og
Jónas Ásgeirsson.
Miðröð: Guðmundur Guðmundsson, Sigurður Árnason
og Jón Þorsteinsson.
Aftasta röð: Rögnvaldur Ólafsson, Guðmundur Jónsson,
Kjartan Friðbjarnarson, Vilhelm Sæby og Sveinbjörn
Tómasson.
Sigurður Þorkelsson, Björn Bjarnason og Jónas Ásgeirsson.
Efri röð frá vinstri: Þórir Konráðsson, Vilhjálmur Sigurðs
son, Sveinbjörn, Tómasson, Björgvin Bjarnason, Jónas Ás
geirsson, Sigurgeir Þórarinsson.
Miðröð frá vinstri: Jón Skaftason, Alfreð Jónsson, Jóhannes
Hjálmarsson, Jóhann Möller.
Neðsta röð frá vinstri : Bragi Magnússon, Jón Engilbert
Sigurðsson, Stefán Skaftason.
KS_ingar 1950
1. röð frá vinstri Gísli Kjartansson, Ásgrímur Ingólfsson, Rögnvaldur Þórðarson
2. röð frá vinstri Haraldur Erlendsson, Hólmgeir Óskarsson, Hallvarður Óskarsson, Sigurður Benóný Þorkelsson
3. röð frá vinstri Eldjárn Magnússon, þjálfari, Páll Ágúst Jónsson, Þröstur Stefánsson, Friðleifur Jóhannsson, Gunnar
Guðmundsson, Jónas Ásgeirsson, þjálfari