Fréttablaðið - 17.05.2022, Side 16
Kiwanis tengir
saman kynslóð-
irnar, tengir saman
löndin, tengir saman
álfurnar, tengir heiminn.
Barna- og unglingageðdeild
(BUGL) er hluti af Landspít-
alanum og samanstendur af
tveimur deildum, legudeild
og göngudeild. Deildirnar
veita börnum upp að 18
ára aldri sérhæfða og þver-
faglega sjúkrahúsþjónustu
vegna geð- og þroskarask-
ana.
Saga BUGL er löng og nær aftur til
ársins 1970 þegar barnageðdeildin
við Dalbraut var stofnuð. „Það
hafa orðið gríðarlegar breytingar á
þjónustu deildarinnar, bæði þekk-
ingarlega og viðhorfslega. Sem
dæmi um þróun undanfarinna
ára og áratuga má nefna hvernig
fjölskyldumiðaðri þjónustu
hefur fleygt fram. Í dag gerum við
ekkert án fjölskyldunnar,“ segir
Sigurveig Sigurjónsdóttir Mýrdal,
deildarstjóri hjúkrunar Barna- og
unglingageðdeildar Landspítala.
„Enn nær okkur í tíma er
þróunin í átt að sjúklingamiðaðri
þjónustu, það er heilbrigðisþjón-
ustu þar sem þjónustuþeginn er
álitinn hluti af eigin teymi og vel til
þess fallinn að stýra eigin meðferð
eins og við á. Þetta er skemmtileg
áskorun, en það er mikið öryggis-
atriði að sjúklingar á sjúkrahúsi
hafi yfirsýn yfir eigin meðferð og
viti að þeir eiga rétt á því að vera
upplýstir. Við höfum fengið þau
börn sem innskrifast á legudeild-
ina til að veita okkur endurgjöf
á þjónustuna og þau hafa komið
með verðmæta leiðsögn og hug-
myndir sem við höfum getað hrint
í framkvæmd. Allt frá því að benda
okkur á það að við þurfum ekki öll,
starfsfólkið, að spyrja hvernig þau
sváfu um nóttina, yfir í að hjálpa
okkur við að innrétta deildina af
húsbúnaði og afþreyingu,“ segir
Sigurveig.
Helstu verkefni
deildarinnar síðustu ár
Covid hefur að sögn Sigurveigar
verið fyrirferðarmikil áskorun
fyrir samfélagið í heild síðast-
liðin ár og BUGL hefur ekki farið
varhluta af því. „Deildirnar héldu
uppi óskertri starfsemi í gegnum
faraldurinn og erum við stolt
af því. Farsóttin olli hins vegar
gríðarlegri sprengingu árið 2021
í fjölda bráðra mála sem leitað
var með á BUGL og átröskunartil-
fella. Því þurfti að flytja fagfólk á
milli teyma innanhúss til að mæta
þörfinni. Uppbygging trans teymis
BUGL er annað dæmi um stórt og
nauðsynlegt verkefni undanfar-
inna ára sem var ekki fjármagnað
sérstaklega og krafði okkur um
útsjónarsemi að koma á fót.
Næstu skref í uppbyggingu
starfsins eru mörg. Við höfum
lagt mikla vinnu í innra skipulag
undanfarið ár sem meðal ann-
ars hefur skilað þeim árangri að
algengasti biðtími eftir þjónustu
göngudeildar BUGL hefur styst um
tvo mánuði.“
Kiwanis ötull bakhjarl BUGL
Kiwanishreyfingin hefur verið
ötull bakhjarl BUGL í gegnum árin
og veitt ómetanlegan stuðning við
bætta aðstöðu og þróun með-
ferðarúrræða. „Eitt af hlutverkum
BUGL er að miðla þekkingu til
samstarfsstofnana og fagaðila í
nærumhverfi barna. Styrkir frá
Kiwanis hafa meðal annars verið
nýttir til þýðinga á fræðsluefni
og til að bjóða samstarfsaðilum
á málþing um sjálfsskaðahegðun
unglinga og mat á sjálfsvígshættu.
Annað dæmi sem má nefna er að
Kiwanis styrkti námskeið fyrir fag-
fólk á BUGL í fjölskyldumeðferð.
Ávinningur af verkefnum sem
Kiwanis hefur stutt er mikill og
stuðlar að bættri geðheilbrigðis-
þjónustu og eflingu á þjónustu í
nærumhverfi og skilar sér þannig í
auknum lífsgæðum fyrir börnin og
fjölskyldur þeirra.“
Áskoranir í dag
Áskoranir BUGL í dag eru marg-
víslegar að sögn Sigurveigar.
„Áskoranir taka oft mið af nær-
umhverfi barna í landinu og
hvernig því gengur að styðja við
þau. Við verðum vör við það þegar
þjónusta í nærumhverfi er öflug.
Eins verðum við vör við það þegar
önnur kerfi glíma við áskoranir.
Sömuleiðis finna önnur kerfi og
fjölskyldurnar fyrir því þegar
eftirspurn eftir þjónustu spítalans
verður meiri en þjónustan sem
hann hefur upp á að bjóða. Þetta
hangir allt saman.
Önnur áskorun sem hefur
verið til staðar til lengri tíma er
það viðfangsefni að laða til starfa
hæft fagfólk sem býr yfir reynslu
og þekkingu til að veita þá heil-
brigðisþjónustu sem þau sem leita
á BUGL þarfnast. Við erum lítið
land og það getur verið vandasamt
að viðhalda sérþekkingu á því
breiða sviði sem barnageðheil-
brigðisþjónusta er. Ekki síst þegar
betur launuð störf bjóðast færum
fagaðilum, þar sem vinnuálag er
jafnvel minna.“
Við eigum öll rétt
á heilbrigðisþjónustu
„Það er ekkert einfalt svar til við
því hvað þurfi að gera í þessum
málaflokkum. En við verðum að
hafa í huga að öll eigum við rétt
á heilbrigðisþjónustu. Til þess að
lífsnauðsynleg heilbrigðisþjónusta
standi öllum til boða verðum við
sem samfélag að sameinast um
að byggja hana upp og viðhalda
henni. Við á spítalanum höfum
svo þá skyldu að standa undir því
trausti sem til okkar er borið og
veita bestu þjónustu sem völ er á
á þeim tímapunkti,“ segir Sigur-
veig. n
Gjöfult samstarf bætir
geðheilbrigðisþjónustu barna
Sigurveig segir uppbyggingu á trans teymi meðal annars hafa verið stórt og nauðsynlegt verkefni hjá BUGL undan-
farin ár. Verkefnið var ekki fjármagnað sérstaklega og krafðist útsjónarsemi að koma á fót. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Styrkir frá Kiwanis
hafa meðal annars
verið nýttir til þýðinga á
fræðsluefni og til að
bjóða samstarfsaðilum á
málþing um sjálfsskaða-
hegðun unglinga og mat
á sjálfsvígshættu.
Til þess að lífs-
nauðsynleg heil-
brigðisþjónusta standi
öllum til boða verðum
við sem samfélag að
sameinast um að byggja
hana upp og viðhalda
henni.
Kristján Gísli Stefánsson,
fyrrverandi forseti Kiwanis
Setbergs Garðabæ, spyr hvað
fái einstakling undir fertugu
til að ganga í áhrifahreyf-
ingu. Hvað með hreyfingu
sem er með meðalaldur
yfir sextugt? Það er fyrst og
fremst vilji til að láta gott af
sér leiða, vilji til að hafa áhrif
á nærumhverfið og heiminn.
„Það eru mörg frábær verkefni sem
koma upp í hugann en ég skoðaði
sérstaklega þá starfsemi sem hefur
forgang hjá börnum og ungmenn-
um. Kiwanis eru að mínu mati
fremstir þar í f lokki. Það er leikur
einn að fræðast um sögu og starf
Kiwanis hér á landi og erlendis og
því mun ég einbeita mér að sögu
minni innan Kiwanis og hvað ég
hef gefið af sjálfum mér og því sem
ég hef fengið í því starfi.
Þegar ég byrjaði í Kiwanis vissi
ég ekki hversu mikið starfið myndi
hafa jákvæð áhrif á mig.
Mesta endurgjöfin er án efa að
sjá gleði í andlitum barna þegar við
afhendum hjálma til 1. bekkinga.
Að sjá spenninginn í augum gest-
anna á tónleikunum sem nokkrir
klúbbar á höfuðborgarsvæðinu
halda fyrir ungmenni með hreyfi-,
skyn- og þroskahamlanir. Að
afhenda ný húsgögn inn á heimili
sem þurfa þess. Það er ómetanlegt.
Síðan kemur að alþjóðlega sam-
starfinu, þá sérstaklega því sem er
í Evrópu. Árið 2019 var ég valinn
ásamt þrennu öðru ungu Kiwanis-
fólki frá Íslandi til þess að ferðast
og hitta önnur ungmenni frá Kiw-
anishreyfingunni í Evrópu.
Það var ómetanleg upplifun að
tengjast öðru fólki frá löndum eins
og Rúmeníu, Frakklandi, Noregi og
fleirum sem eru tilbúin til þess að
gefa af sér til nærsamfélagsins og
barna. Sú tenging gaf mikið af sér
og gefur enn. En það var ekki eina
gjöfin þar, þar var stunduð mikil
kennsla í uppbyggingu klúbba og
styrkingu þeirra. Þar voru lögð
drög að árlegum fundi Ungra
Kiwanis í Evrópu til styrkingar
hreyfingarinnar, en þá kom Covid
svo lítið varð úr þessu næstu tvö
árin á eftir.
Dagana 6.–8. maí 2022 var haldin
ráðstefna númer tvö og fór ég aftur
fyrir hönd Íslands ásamt tveimur
öðrum ungum Kiwanismönnum,
einn var til dæmis nýorðinn tví-
tugur. Sú ferð veitti ekkert minni
innblástur. Þar tók á móti okkur
fjöldinn allur af frábæru fólki í
Kiwanishreyfingunni í Evrópu
ásamt starfsfólki og leiðbein-
endum sem höfðu öll áhrif á mig á
mismunandi hátt. Að kynnast fólki
sem hefur að leiðarljósi betrum-
bætur samfélagsins og heimsins er
sálarnærandi. Það er upplyftandi
og veitir manni sáluhjálp á þannig
hátt að þú hafðir ekki hugmynd
um að þú þyrftir þess.
Kiwanis tengir saman kynslóð-
irnar, tengir saman löndin, tengir
saman álfurnar, tengir heiminn.
Eitthvað sem mig hafði ekki órað
fyrir að ég sem einstaklingur þyrfti
eða þráði. Kiwanis veitir mér
hjálp. Ef þú vilt gefa af þér, gefa af
þér góða strauma til samfélagsins,
kynnast nýju fólki, vera treyst til
verka, hafðu þá samband við Kiw-
anis og við tökum á móti þér með
opinn faðminn.“ n
Kiwanis
fyrir mig
og þig
Kiwanis er skemmtilegur félagsskapur.
Kristján Gísli Stefánsson.
4 17. maí 2022 ÞRIÐJUDAGURLYKILL AÐ LÍFI