Fréttablaðið - 17.05.2022, Síða 34
Á heildina litið er
Prinsinn betri sýning
fyrir þær spurningar
sem hún ber á borð
heldur en endilega
innihaldið.
LEIKHÚS
Prinsinn
Þjóðleikhúsið og á ferð um
landið
Eftir Maríu Reyndal og Kára
Viðarsson
Leikstjórn: María Reyndal
Leikarar: Kári Viðarsson,
Birna Pétursdóttir, Sólveig
Guðmundsdóttir og Sverrir Þór
Sverrisson
Sigríður Jónsdóttir
Málshátturinn segir að heilt þorp
þurfi til að ala upp barn. Sem er
satt. En sama þorp getur sömuleiðis
hrakið barnið á brott. Sérstaklega ef
um er að ræða ungling sem fer sínar
eigin leiðir. Prinsinn er byggður
á reynslu Kára Viðarssonar sem
unglings og var nýlega frumsýndur
í Frystiklefanum á Rifi. Tjaldað var
til einnar sýningar í Kassa Þjóðleik-
hússins áður en sýningin heldur
aftur út á land. Prinsinn mun síðan
snúa aftur á mölina með haustinu.
Einn góðan veðurdag rétt upp
úr síðustu aldamótum eru vinirnir
Kári og Bjöggi á leiðinni í Spútnik.
Kári fær símtal í GSM-símann sinn
úr GSM-símanum hennar Tinnu,
sem var ekkert grín þegar inneignin
var gulls ígildi og símtölin rándýr.
Tinna tilkynnir Kára að hún sé ólétt
og að hann sé pabbinn en þau áttu
eina nótt saman eftir sjómanna-
dagsball í sjávarplássinu. En ekki
er allt sem sýnist og símtalið er ein-
ungis byrjunin á langri þroskasögu.
Kári er nefnilega að verða pabbi
og þær fréttir fá hann til að rifja
upp reynslu sem hafði mikil áhrif á
hann. Allir eru aðalpersónur í sínu
eigin lífi og staðsetur Kári sig sem
miðpunkt sögunnar. En með sjálfs-
skoðun og samræðum við aðra sem
að málinu koma reynist sannleikur-
inn vera f lókið fyrirbæri, sérstak-
lega tuttugu árum eftir atburðinn.
Kári gerir vel í hlutverkinu og leggur
hjartað á borð fyrir áhorfendur.
Eftirtektarverð leikkona
Kára til halds og trausts er besti
vinur hans Bjöggi leikinn af Sverri
Þór Sverrissyni. Hlutverkið leysir
hann vel en frammistaða hans í
hlutverki Reynis Bjarka er eftir-
tektarverð. Áhorfendur eru hvattir
til að horfa á Reyni Bjarka sem
hrotta, sem hann vissulega virðist
vera, en Sverrir Þór kemur til skila
undir lok sýningar að allir hafa sinn
djöful að draga.
Hver saga getur nefnilega átt sér
fleiri en einn miðpunkt og er Tinna
hinn póllinn í sögunni. Birna Pét-
ursdóttir flaug fram á sjónarsviðið í
Benedikt búálfi á Akureyri og sann-
ar að hér er á ferðinni eftirtektar-
verð leikkona. Hún fangar listilega
örvæntingu unglingsstelpu sem er
að troða marvaðann í eigin lífi, full
sjálfstrausts um að hún sé fullorðin
en algjörlega reynslulaus. Átakan-
legt er að horfa á hana berjast fyrir
sjálfstæði sínu í heimi fullorðinna
sem eru alltaf tilbúnir með sleggju-
dóma.
Tinnu til halds og traust er besta
vinkona hennar Sandra, leikin af
Sólveigu Guðmundsdóttur. Hún
hefur verið á mjög fínni vegferð á
síðastliðnum árum og sýnir hér í
hverju gæði hennar felast. Sandra
er sakleysið uppmálað en að sama
skapi hörð í horn að taka. Það er
þó í hlutverki mæðra þeirra Kára
og Tinnu sem Sólveig undirstrikar
hæfileika sína. Mjög ólíkar konur að
upplagi sem Sólveig gerir mjög góð
skil, bæði göllum þeirra og kostum.
Mikilvæg áminning
Á síðastliðnum árum hefur leik-
stjórinn María Reyndal sérhæft sig
í sjálfsævisögulegum leikritum,
verkum byggðum á raunverulegri
reynslu eða hversdagslegum raun-
veruleika líkt og í Upphafi sem sýnt
var í Kassanum fyrir tveimur árum.
Hún heldur sýningunni lifandi og
persónulegri. Hér er ekki verið að
finna upp hjólið og handritið er
stundum svolítið þunglamalegt.
En María sýnir persónum verksins
alúð. Þó hefði mátt sleppa ferðalagi
Söndru í gegnum áhorfendasætin.
Prinsinn er farandsýning og
hönnunin endurspeglar þörfina
fyrir færanlega leikmynd. Guðný
Hrund Sigurðardóttir og Egill
Ingibergsson hanna leikmyndina
skynsamlega. Áhugavert væri að sjá
Prinsinn í öðru leikhúsi en Kass-
anum var skemmtilega umbreytt
til að henta sýningunni. Áhorf-
endur sátu hverjir á móti öðrum
og leikið var þvert á sviðið. Margt
heppnaðist ágætlega í búninga-
hönnun Guðnýjar Hrundar en
tímabilsbúningar eru afskaplega
f lókið verkefni. Þar má helst nefna
Adidas-skó strákanna, sólgleraug-
un og skopparastemninguna. Þó
var Nokia-símanna saknað en það
gæti bara verið nostalgía.
Úlfur Eldjárn semur og tók vænt-
anlega þátt í að velja tónlistina fyrir
Prinsinn. Hljómheimurinn er fín-
asta blanda af slögurum frá tímabil-
inu og nýjum tónum. Aftur á móti er
frumsamda lagið, Prinsinn, óþarfi.
Þrátt fyrir ágætan texta Vigdísar
Hafliðadóttur og fallega laglínu þá
passar lagið illa inn í sýninguna,
leiksýningar þurfa ekki titillög.
Á heildina litið er Prinsinn betri
sýning fyrir þær spurningar sem
hún ber á borð heldur en endilega
innihaldið. Heimurinn sem birtist
áhorfendum þyrfti að vera skýrari
og handritið örlítið sterkara. En
Prinsinn er mikilvæg áminning um
hversu erfitt það er að vera ungur,
hvað sannleikurinn er hverfull og
að aldrei skuli afskrifa neinn. ■
NIÐURSTAÐA: Prinsinn er hin
fínasta farandsýning og vekur upp
margar forvitnilegar spurningar.
Þegar börn verða foreldrar
Prinsinn er mikilvæg áminning um hversu erfitt það er að vera ungur. MYND/AÐSEND
LICATA u-sófi
Fallegur u-sófi sem hægt er að fá til hægri eða vinstri.
Sófinn er í slitgóðu Kentucky koníak
bonded leðri. 366 x 226 x 82 cm.
Fullt verð: 369.900 kr. Nú 295.920 kr.
12. - 30. maí
SÓFADAGAR
12. - 30. maí
BOGGIE sófi
3ja sæta sófi í bleiku Toro áklæði. Fæst
einnig í fleiri litum. 186 x 77 x 85 cm.
Fullt verð: 119.900 kr. Nú 95.920 kr.
BARCELONA svefnsófi
Vandaður og veglegur ítalskur svefnsófi. Bak er dregið fram á
einfaldan hátt. Svefnflötur. 194x140x13 cm.
Stærð á sófa: 193 x 93 x 100 cm.
Fullt verð: 199.900 kr. Nú 159.920 kr.
Holtagörðum, Reykjavík
Smáratorgi, Kópavogi
Dalsbraut 1, Akureyri
Skeiði 1, Ísafirði
FRÉTTIR, FÓLK &
MENNING
á Hringbraut
14 Menning 17. maí 2022 ÞRIÐJUDAGURFRÉTTABLAÐIÐMENNING FRÉTTABLAÐIÐ 17. maí 2022 ÞRIÐJUDAGUR