Fréttablaðið - 21.06.2022, Blaðsíða 26
Samsöngurinn var
þéttur og einbeittur, og
svo var bara svo falleg
og einlæg tilfinning í
túlkun hvers einasta
lags.
TÓNLIST
Barbörukórinn flutti
íslenska dagskrá
Hafnarborg
sunnudaginn 19. júní
Jónas Sen
Ég sá einu sinni hryllingsmyndina
The Believers. Hún fjallar um Sant-
eria, eins konar vúdútrú á Kúbu og
víðar. Dýrkunin kom með þræl-
unum frá Afríku og blandaðist kaþ-
ólskri trú. Þrælarnir héldu áfram að
tilbiðja guði sína, en dulbjuggu þá
sem dýrlinga. Heilög Barbara var
til dæmis í rauninni þrumuguðinn
Shango. Það var vegna þess að hún
átti að hafa verið líf látin af föður
sínum á þriðju öld fyrir það að hafa
gerst kristin. Eftir voðaverkið skall
á þrumuveður og morðinginn var
lostinn eldingu sem dró hann til
dauða.
Barbara var dýrkuð meira áður
fyrr. Nú er hennar ekki einu sinni
minnst lengur í messum kaþólsku
kirkjunnar, því allsendis er óljóst að
hún hafi yfir höfuð verið til. En vís-
bendingar eru um Barbörudýrkun
hér á landi fyrr á öldum. Ofurlítið
líkneski af henni fannst í fornri
kapellu í Kapelluhrauni til móts við
Straumsvík um miðja síðustu öld.
Barbara mær
Kristján Eldjárn, fyrrverandi þjóð-
minjavörður og forseti, átti heiður-
inn af fundinum. Sonur hans, Þórar-
inn Eldjárn, hefur ort fallegt ljóð til
dýrlingsins, Barbara mær. Það var
tónsett af Huga Guðmundssyni og
gat að heyra á tónleikum á Söng-
hátíð í Hafnarborg á sunnudaginn.
Tónlistin var lagræn án þess að vera
banal. Tóntegundaskiptin voru oft
óvænt og laglínurnar heillandi.
Mjög viðeigandi var að Barböru-
kórinn f lutti lagið. Ekki þarf að
taka það fram að hann er einmitt
kenndur við heilaga Barböru líka.
Kórinn er blandaður og saman-
stendur af sextán manns, fjórum
í hverri rödd. Stjórnandi er Guð-
mundur Sigurðsson. Söngur kórs-
ins var með eindæmum fagur á
tónleikunum. Jafnvægið á milli
raddanna var óvenjugott. Þetta var
til dæmis einhver besti kórbassi
sem ég hef heyrt, svo tær en jafn-
framt þróttmikill. Samsöngurinn
var þéttur og einbeittur, og svo var
bara svo falleg og einlæg tilfinning
í túlkun hvers einasta lags.
Tímalaus tilfinning
Eitt það mest hrífandi var Land
míns föður eftir Þórarin Guð-
mundsson við ljóð Jóhannesar
úr Kötlum. Söngurinn var tignar-
legur og í hárréttu tempói, gæddur
svo mikilli þjóðernisást að maður
komst við. Tilfinningin var tímalaus
og handan við hið hversdagslega.
Þetta var Ísland í þúsund ár – svo
sannarlega.
Efnisskráin samanstóð af nýjum
lögum í bland við eldri. Hrímey
eftir Huga var skemmtileg, og sömu
sögu er að segja um nokkur lög eftir
einn kórfélagann, Auði Guðjohn-
sen. Þau voru ljóðræn, tilfinninga-
þrungin og seiðandi; f læðið í þeim
var afar sannfærandi. Tvö lög eftir
Báru Grímsdóttur og eitt eftir Þóru
Marteinsdóttur voru líka glæsileg.
Of langt mál væri að telja upp
hvert einasta atriði dagskrárinnar,
sem samanstóð af fimmtán lögum.
En ég held að meira að segja Allt í
grænum sjó eða Gamli Nói hefði
komið frábærlega vel út í meðförum
kórsins. Söngur hans var einfaldlega
ekki af þessum heimi. ■
NIÐURSTAÐA: Magnaður söngur,
falleg tónlist.
Stórfenglegur kórsöngur
og flott tónlist
Kórinn er blandaður og samanstendur af sextán manns, fjórum í hverri rödd. MYND/AÐSEND
kolbrunb@frettabladid.is
Sea Lava Circle er sýning í i8 Gall-
eríi Tryggvagötu. Á sýningunni er
úrval verka úr safni þeirra Péturs
Arasonar og Rögnu Róbertsdóttur,
söfnun sem spannar fimm áratugi.
Náið samband þeirra hjóna við lista-
menn varð kveikjan að safni þar sem
finna má skúlptúra, málverk, ljós-
myndir og verk á pappír, en leiðar-
stef söfnunarinnar var mínimalísk
fagurfræði og áhugi þeirra hjóna.
Sýningarheitið Sea Lava Circle er
fengið úr skúlptúr eftir Richard Long
sem er þungamiðja sýningarinnar.
Þeir listamenn sem eiga verk á
sýningunni eru: Alan Johnston,
Alan Uglow, Birgir Andrésson, Car-
sten Höller, Celeste Boursier-Mouge-
not, Donald Judd, Dorothy Iannone,
Gerwald Rockenschaub, Guðmunda
Andrésdóttir, Hörður Ágústsson,
Ingólfur Arnarsson, Jeffrey Vallance,
Jóhann Eyfells, Kristján Guðmunds-
son, Lawrence Weiner, On Kawara,
Richard Long, Roger Ackling, Roman
Signer, Roni Horn, Sarah Lucas og
Sigurður Guðmundsson.
Sýningin stendur til 30. júlí. Opið
er miðvikudaga til laugardaga
12-17. ■
Verk úr safni Péturs og Rögnu
Áhugaverð sýning er í i8.
MYND/AÐSEND
Úttekt hjá ferðaskrifstofu eða verslun að verðmæti 100.000 kr.
1767
2432
5324
8804
10046
10911
13116
13820
15354
15846
17235
17778
17801
18440
19987
21544
23995
28533
31885
32567
32939
33849
33983
34962
36242
36659
39376
42996
43001
44725
45904
49234
50735
50998
51104
52373
54171
54550
54645
55509
56701
57071
59599
61318
62438
62936
64607
65969
66067
67288
69094
70480
72912
73989
74154
75372
76929
77192
77842
78933
79787
82463
85363
86197
87433
88137
88717
89086
89417
91452
91641
92199
93943
95343
96462
96705
97408
97699
100972
101424
103930
104324
104952
105206
106475
108747
109821
111231
115086
115091
116230
117459
117930
121876
122693
123576
124033
125010
125544
127133
128225
129149
129832
130630
131873
131942
132646
132818
135767
136827
138347
139907
141657
142402
142789
143909
144825
145422
145888
146037
146573
148296
149596
149864
152036
152429
153727
154285
154325
154676
156418
156589
156876
157938
158117
B
irt
á
n
áb
yr
gð
ar
Úttekt hjá ferðaskrifstofu eða verslun að verðmæti 200.000 kr.
263
316
1561
1712
4804
9360
9486
11064
14042
15711
16757
16935
20416
20578
22950
23079
25445
26838
28349
30134
30727
30966
31550
31780
31787
32635
32920
33432
35057
35425
37368
38802
39855
39915
41074
41821
42374
43120
43535
47238
47799
49102
49969
50036
50323
52977
54001
54082
55322
55483
57283
58822
59099
61517
63874
65562
67237
68210
68521
70219
73294
78913
79461
79841
80512
82293
84437
84821
85560
88305
88656
89995
90472
96092
98194
99890
101712
102979
104334
105411
107520
110122
112128
113903
114096
114415
114659
115370
116591
117220
118509
121597
122538
122777
122900
126559
133147
135802
140398
140662
144710
145182
150333
151157
153476
156537
157285
157747
158133
159791
Krabbameinsfélagið þakkar landsmönnum veittan stuðning.
Handhafar vinningsmiða framvísi þeim á skrifstofu Krabbameinsfélagsins að
Skógarhlíð 8, sími 540 1900. Byrjað verður að greiða út vinninga þann 4. júlí nk.
RENAULT ARKANA Intens E-Tech Hybrid – 5.690.000 kr.
54811
ÚTDRÁTTUR 17. JÚNÍ 2022
Sumar
happ
drætti
Greiðsla upp í bifreið eða íbúð að verðmæti 1.000.000 kr.
87876 149692
krabb.is
TREK rafmagnshjól Allant+ 7, 2022 – 509.990 kr.
10162
14833
15145
38651
49150
60826
62909
90144
91911
98815
102881
106132
123884
127676
133277
133780
144681
152809
158804
159811
Vinningar
14 Menning 21. júní 2022 ÞRIÐJUDAGURFRÉTTABLAÐIÐMENNING FRÉTTABLAÐIÐ 21. júní 2022 ÞRIÐJUDAGUR