Fylkir


Fylkir - 01.12.2021, Síða 7

Fylkir - 01.12.2021, Síða 7
FYLKIR - jólin 2021 ° ° 7 1908 til Danmerkur ásamt Högna Sigurðssyni frá Vatnsdal, íshús- verði Ísfélagsins, en Högni átti að læra á vélarnar. Í Danmörku keypti Gísli af Sabroe frystivélarnar, en varð að fara alla leið til Þýska- lands, síðan Hollands og þaðan til Englands til að kaupa aflvélar (sog - gasvélar) fyrir frystivélarnar. Undir forystu Gísla, var fyrsta vél- frystihús landsins byggt á Íslandi, hér í Eyjum. Var þessu fyrsta frysti- húsi landsins valinn staður sem kallaður var Nýjabæjarhella. Fornt uppsátur austan við Andersarvík, vík sem var austur af Tanga. Högni Sigurðsson varð síðan fyrsti vél- frystihúsvörður á Íslandi, og rækti það starf af miklum ágætum í 28 ár samfleytt. Sumir töldu þetta framtak Gísla fjárglæfrar og fullyrt var að frystihúsið ætti sér enga framtíð. 120 árum síðar er Ísfélag Vestmannaeyja enn í rekstri og orðið eitt öflugasta sjávarútvegs- fyrirtæki Íslands. Eyjamenn fóru fram á það við landsstjórnina að komast í síma- samband við fastalandið. Því var umsvifalaust hafnað. Enginn vildi hætta fjármunum í svo vonlaust fyrirtæki, því að það gat aldrei skil- að arði, varð niðurstaðan. Synjun þingmanna var m.a. rökstudd með því ,,að brimhljóð væri svo mikið við Eyjar og Landeyjasand, að ekki myndi heyrast mannsins mál fyrir því í símanum!!!!!” Gísli sætti sig ekki við þessa niðurstöðu og tók málið í sínar hendur. Undir forystu hans var Rit- og talsímahlutafélag Vestmannaeyja stofnað. Eyjamenn tóku ákvörðun um að leggja sjálfir síma milli lands og Eyja. Eyjamenn keyptu hlutabréf í Rit- og talsímahlutafélagi Vest- mannaeyja ásamt annarri fjársöfn- un. Eyjamenn lögðu sjálfir síma milli lands og Eyja haustið 1911. Ári seinna, þegar ljóst var að félag- ið skilaði arði, tók Landssíminn við rekstri þess. Fyrsta símstöðin var til húsa í Boston, sem var rifið fyrir gos. Þar hóf annar framtakssamur maður sinn verslunarrekstur, Einar Sigurðsson. Margt spaugilegt gerðist í sam- bandi við komu símans, og fleiri fávísir um náttúru hans, en þing- mennirnir. Karl einn upp á landi sagði, þegar hann sá símskeyti frá Vestmannaeyjum: ,,Það má telja mér, fáfróðum almúgamanninum, trú um allan andskotann, en að þetta skraufþurra skeyti sé komið hingað alla leið frá Vestmannaeyj- um – nei, fari það í bölvað.“ ,,Ég tók að mér að leggja símann og taka jafnvel ábyrgð á brimhljóðinu,!“ sagði Gísli. Gísli kom á fót í Vestmannaeyjum fyrstu gufubræðslu lýsis á Íslandi. Fyrsta tilraun sem gerð var í heim- inum með að nota skilvindu til lýs- isvinnslu, heppnaðist hjá Gísla árið 1912. Sýndi Gísli ,,skilvindu” lýsið á alþjóðasýningu í Kaupmannahöfn árið 1912 og fékk heiðursverðlaun fyrir vörugæðin. Erlent skilvindu- fyrirtæki sá þetta á sýningunni og í framhaldinu hófst framleiðsla á rafknúnum skilvindum sem not- aðar voru í þessu skyni. Árið 1912 verður Gísli afgreiðslu- maður Bergenske skipafélagsins og 1915 Sameinaða gufuskipafé- lagsins. Gísli hafði alltaf unnið að bættum samgöngum við Vest- mannaeyjar. Fékk Gísli því fram- gengt að skip félaganna kæmu við í Vestmannaeyjum á leið sinni til og frá meginlandinu. Vestmanna- eyjar urðu þar með betur settar um samgöngumál en flest önnur sjávarþorp landsins. Fyrir Gísla vakti, að veita nýju lífi frá umheim- inum inn til Eyjamanna. Til þess voru bættar samgöngur örugg- asta leiðin. Gísli lét framkvæma rannsóknir á hagnýtingu fiskiroðs, en það leiddi ekki til jákvæðrar niðurstöðu. Sú venja hafði ríkt í Vestmannaeyjum eins og annars staðar, að öllum fiskúrgangi var fleygt. Á ferðum sínum, einkum til Englands, hafði Gísli séð fiskimjölsverksmiðjur. Árið 1913 stofnaði Gísli fyrstu fiskimjölsverksmiðjuna á Íslandi í Vestmannaeyjum, í samstarfi við enskt félag í Grimsby. Þessi fiski- mjölsverksmiðja er enn í rekstri, (Gúanóið – FIVE). Ekki höfðu allir trú á þessari fiskimjölsverksmiðju Gísla. Einn bílstjórinn sem átti að keyra fiskúrgangi í verksmiðjuna, sturtaði úrganginum í sjóinn. Bíl- stjórinn sagði þessa fiskimjöls- verksmiðju vera helbera vitleysu og betra að spara gúmmíið á bíln- um. Fiskúrgangur væri auðvitað einskis virði, og hann tæki ekki þátt í þessari vitleysu hjá Gísla! Gísli fylgdist með af áhuga upp- finningu Thomas Edisons við að nota glóðarlampa til lýsingar. Árið 1912 óskar hann eftir áliti sýslunefndar á hvort hún sé meðmælt því að tekin verði upp rafljós til götulýsingar í þorpinu. Sýslunefnd tók vel í hugmynd Gísla, í framhaldinu var Rafveita Vestmannaeyja stofnuð, 25. ágúst 1915. 14. september 1912, sendir Gísli bréf til sýslumannsins í Vest- mannaeyjum og sækir um leyfi til að stofna vatnsveitu í Vestmanna- eyjum. Gísli ætlaði að leita að vatni og leggja vatnspípur í aðalgötur bæjarins, á eigin kostnað. Einnig ætlaði Gísli að setja upp í bænum drykkjarþró, fyrir verkamenn og aðkomumenn á hentugum stað. Ef vatn fyndist vildi Gísli fá einkaleyfi á vatnssölu til 35 ára. Að öllum líkindum hefur beiðni Gísla verið hafnað, því 2. september 1918, sækir Gísli aftur um einkaleyfi til vatnsleitar og vatnssölu. Í bréf- inu lýsir Gísli þeim vandræðum sem fyrirtæki og heimili eiga við að etja vegna vatnsskorts. Kemur fram að Gísli lét leita að vatni, eftir fyrirsögn Jóns landverkfræðings Þorlákssonar, en sú leit bar ekki árangur. Gísli stóð allan straum af kostnaði við leitina. Gísli fór fram á leyfi til vatnsleitar, ætlaði að leggja vatnspípur um allt þorpið, reisa vatnsturn og selja aðkomubátum vatn. Ekkert varð að þeim fram- kvæmdum. 50 árum seinna varð vatnsveita að veruleika í Eyjum. Árið 1915 útvegaði Gísli fjármagn til byggingar nýs fullkomins barn- skóla í Vestmannaeyjum ásamt Birni H. Jónssyni skólastjóra. Í fyrsta sinn á Íslandi var notast við steypuhrærivél sem Gísli útvegaði. Árið 1917 keypti Gísli svokallaða Östlundsprentsmiðju og flutti til Vestmannaeyja. Prentsmiðjan var til húsa upp á lofti í Edinborgara- húsinu. Hún var fyrsta og lengi eina prentsmiðjan í Eyjum. Gísli gaf út fyrsta prentaða blaðið sem gefið var út í Eyjum og hét það Skeggi. Blaðið flutti almennar fréttir og ræddi bæjarmálin og var Eyjamönnum til ánægju og menn- ingarauka. Eitt af vandamálum útgerðarinn- ar hér, eftir að vélbátarnir komu, var olíuleysi. Olía var allt til 1919- 20 flutt hingað í trétunnum, velta varð olíutunnunum langar leiðir í bátana. Oft kom það fyrir að bátar komust ekki á sjó í blíðviðri vegna þess að ekki voru til olíutunnur. Gísli sá að þetta gengi ekki, keypti olíugeyma í Englandi og lét koma þeim upp á Nausthamri, austan við Edinborgarbryggjuna. Voru þetta fyrstu olíugeymar á Íslandi sem reistir voru. Seinna var Olíu- samlag Vestmannaeyja stofnað. Árið 1919 fær Gísli til liðs við sig kunnan sægarp og dugnaðarfork Gísla Magnússon kenndan við Skálholt, í tilraunaverkefni. Þeir félagar kaupa mótorskipið Ægi frá Hafnarfirði til að hefja dragnóta- veiðar. Eyjamenn urðu þar með fyrstir til þess að hefja dragnóta- veiðar hér við land. Sparisjóður Vestmannaeyja (hinn eldri) var stofnaður 1893, og var engan veginn nógu burðugur til að fjármagna útgerð og hús- byggingar í Eyjum. Stjórn Spari- sjóðsins fékk Gísla til að taka að sér formennsku sjóðsins, með það að markmiði að sameina hann stór- um banka sem gæti þjónað Eyja- mönnum. Gísli leysti þetta verk- efni vel af hendi, og sameinaðist Sparisjóðurinn Íslandsbanka (síð- ar Útvegsbanki Íslands). Fyrsta bankaútibúið var opnað í Eyjum 30. okt. 1919. Fyrstu bæjarstjórnar­ kosningarnar Árið 1918 varð Vestmannaeyjar kaupstaður að nafninu til en lög- in öðluðust gildi 1. janúar 1919. Í fyrstu bæjarstjórnarkosningunum, er fóru fram 19. janúar 1919 var Gísli í fyrsta sæti C listans og hlaut kosningu.. ,,Ég var í stjórnamála- flokkum, en hef líklega alltaf þótt lélegur flokksmaður, því að ég hef veitt hverju því máli lið, sem ég hef talið horfa til heilla, en spyrnt gegn hinum, án tillits til þess hvaða stjórnmálaflokkar hefðu þar hagsmuna að gæta”, sagði Gísli. Hann bætti ennfremur við: ,,Þess vegna varð ég aldrei einn hinna útvöldu forystumanna flokkanna og uni því vel.” Framfarasinninn Árið 1919 stofnaði Gísli ásamt fleirum hlutafélagið ÍSAGA. Til- gangur félagsins var að framleiða acetylengas fyrir ljósvita lands- ins, einnig gas og súr til logsuðu. Þetta fyrirtæki er enn í blómlegum rekstri undir sama nafni. Núver- andi eigandi er sænska fyrirtækið AGA. Árið 1924 lét Gísli reisa stærsta fiskaðgerðarhús landsins, sem hlaut auðvitað nafnið – Eilífðin – vegna þess hversu stórt hús- ið þótti. Fiskaðgerð fór nú fram innanhúss, matstofa, salerni og þvottaskálar með rennandi vatni fyrir verkafólk. Var Gísli gagnrýnd- ur fyrir þessa stóru byggingu, og töldu margir að aldrei yrði hægt að fylla hana. Á næstum árum varð slíkur landburður af fiski í Eyjum að húsfyllir varð oftar en nokkrum datt í hug og hefði orðið svo þó stærra hefði húsið verið. Þarna sýndi Gísli enn einu sinni stórhug sinn og framtíðarsýn.Edinborgarabryggja sem Gísli lét byggja 1907 og fiskaðgerðarhúsið sem fékk nafnið „Eilífðin“ Árið 1913 stofnaði Gísli fyrstu fiskimjölsverksmiðjuna á Íslandi í Vestmannaeyjum, í samstarfi við enskt félag í Grimsby. Þessi fiskimjölsverksmiðja er enn í rekstri, (Gúanóið – FIVE). Ekki höfðu allir trú á þessari fiskimjölsverksmiðju Gísla. Einn bílstjórinn sem átti að keyra fiskúrgangi í verksmiðjuna, sturtaði úrganginum í sjóinn. Bílstjórinn sagði þessa fiskimjölsverksmiðju vera helbera vitleysu og betra að spara gúmmíið á bílnum. Fiskúrgangur væri auðvitað einskis virði, og hann tæki ekki þátt í þessari vitleysu hjá Gísla!

x

Fylkir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fylkir
https://timarit.is/publication/878

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.