Fréttablaðið


Fréttablaðið - 12.07.2022, Qupperneq 11

Fréttablaðið - 12.07.2022, Qupperneq 11
KYNN INGARBLAÐ ALLT ÞRIÐJUDAGUR 12. júlí 2022 starri@frettabladid.is Næsta fimmtudag munu Guð- munda Rós Guðrúnardóttir sagnfræðingur og Sigríður Melrós Ólafsdóttir verkefnastjóri leiða göngu um minnismerki nafn- greindra kvenna í Reykjavík. Gangan er hluti af viðburðaröð sem nefnist Kvöldgöngur en það eru Borgarbókasafn Reykjavíkur, Borgarsögusafn Reykjavíkur, Listasafn Reykjavíkur og Bók- menntaborgin sem standa fyrir henni. Göngurnar fara fram á fimmtudagskvöldum yfir sumar- mánuðina. Eru styttur úrelt fyrirbæri? Guðmunda og Sigríður munu leiða hópinn milli stytta, fjalla um þær og konurnar ásamt því að velta upp þeirri spurningu hvort styttur og minnismerki um nafngreinda ein- staklinga séu úrelt fyrirbæri. Næsta kvöldganga fer fram fimmtudaginn 21. júlí þar sem Becky Fortsythe, verkefnastjóri hjá Listasafni Reykjavíkur, verður með leiðsögn á ensku um listaverk og minnisvarða í miðbæ Reykjavíkur. Gangan á fimmtudag byrjar við Listasafn Reykjavíkur sem staðsett er í Tryggvagötu 17, 101 Reykjavík, og hefst klukkan 20. Ekkert kostar í kvöldgönguna sem tekur um eina og hálfa klukkustund. Nánari upplýsinga má finna á Facebook (Kvöldgöngur). Minnismerki kvenna skoðuð Kvöldgöngur eru haldnar í sumar. AÐSEND/HILDUR INGA BJÖRNSDÓTTIR B Ä S T A I T E S T Bäst-i-Test 2022.s e BESTA SÓLARVÖRNIN 7 ár Í RÖÐ Fæst í Apótekum, Hagkaup, Fríhöfninni og víðar | nánar á evy.is og celsus.is Viima Lampinen segir að það hafi verið mistök hjá Sundsambandi Íslands að styðja nýjar reglur sem banna trans konum að keppa í kvennaflokki á heims- meistaramótum en að það sé hægt að leiðrétta mistökin og Trans Ísland vilji vinna með sambandinu. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI Sorglegt að ekki hafi verið leitað til sérfræðinga í málefninu Sundsamband Íslands hefur mætt gagnrýni fyrir að styðja reglur sem banna trans konum að keppa í kvennaflokki á heimsmeistaramótum. Formaður Trans Ísland segir ákvörðun- ina mistök byggð á þekkingarleysi og að það hefði átt að hafa samráð við trans fólk. 2

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.