Fréttablaðið - 02.08.2022, Side 1
1 5 5 . T Ö L U B L A Ð 2 2 . Á R G A N G U R f rettab lad id . i s Þ R I Ð J U D A G U R 2 . Á G Ú S T 2 0 2 2
Einleikur sem
síldarstúlka
Leit að íslenskum
Marvel-kaleik
Tímamót ➤ 12 Lífið ➤ 18
Laugavegi 174, 105 Rvk. www.hekla.is/skodasalur
Škoda Kodiaq
Vinsæli ferðafélaginn!
Verð frá 7.590.000 kr. Eigum nokkra lausa bíla á lager!
Fjórhjóladrifinn, mjög vel útbúinn með 2.5 tonna dráttargetu
Þorvaldur Þórðarson eld
fjallafræðingur segir ekki
líkur á eldgosi á Reykjanes
skaga sem ógni mannslífum
en mögulegt sé að skemmdir
verði á innviðum. Það þurfi
að hefja undirbúning svo
skaðinn verði sem minnstur.
gar@frettabladid.is
erlamaria@frettabladid.is
NÁTTÚRUVÁ „Það er langlíklegast
að það gjósi við Fagradalsfjall þótt
það sé ekki útilokað að gjósi við
Svartsengi eða þar,“ segir Þorvaldur
Þórðarson eldfjallafræðingur sem
kveður skjálftahrinuna sem nú
stendur yfir á Reykjanesskaga hluta
af þeirri mynd að hafið sé nýtt gos
tímabil á svæðinu.
Hörð jarðskjálftahrina var um
helgina á Reykjanesskaga. Harðasti
skjálftinn var upp á 5,4 stig í fyrra
dag. Átti hann upptök sín nærri
Grindavík og fór þá ýmislegt úr
skorðum í bænum svo íbúum þótti
nóg um. Fannar Jónasson bæjar
stjóri segir tilhugsunina um gos
ekki þægi lega.
„Það eru auð vitað von brigði að
það skuli vera að taka sig upp jarð
skjálfta hrina, eins öf lug og raun
ber vitni, og við vitum að ef kvikan
er að leita sér að leiðum upp getur
það hugsan lega leitt til þess að
það muni gjósa,“ segir Fannar sem
hvetur Grindvíkinga til að halda ró
sinni en fylgjast vel með ef staðan
skyldi breytast.
„Það er sólar hrings vakt á svæð
inu í kringum okkur. Við treystum
bara á vísinda menn að vakta þetta
vel og ræki lega, og grípa svo til
að gerða á grund velli við bragðs á
ætlana eftir því sem þörf er talin
á,“ segir Fannar.
Þorvaldur segir líklegt að ef að
komi til eldgoss á næstunni verði
meiri aðdragandi að því en nú er
orðinn. Þó geti gosið strax í dag.
Auk Fagradalsfjalls og Svartsengis
svæðisins gæti gosið við Krýsuvík,
Móhálsadal eða Vigdísarvelli.
„En það verður að taka það fram
að ekkert af þessum gosum er lífs
hættulegt. Þau eru ekki að fara
að sprengja allt upp í loft,“ undir
strikar Þorvaldur. „Þetta verða
hraungos og fólk hefur tíma til að
koma sér undan. En ef hraungos
eru nálægt innviðum þá er hætta á
að þeir verði fyrir skemmdum eða
jafnvel eyðileggist. Við erum komin
inn í gostímabil og verðum að gera
allt sem við getum til að draga úr
áhrifum þeirra eldgosa sem verða
í náinni framtíð.
„Mér persónulega líður mjög illa
með þetta. Mér finnst þessi óvissa
svakalega vond,“ segir María Ben
ónýsdóttir, íbúi í Grindavík.
SJÁ SÍÐU 4
Fagradalsfjall er líklegasti gosstaðurinn
Það verður að taka það
fram að ekkert af
þessum gosum er
lífshættulegt. Þau eru
ekki að fara að
sprengja allt upp í loft.
Þorvaldur Þórðarson,
eldfjallafræðingur
Nánar á frettabladid.is
„Ég er fegin að kötturinn var ekki heima,“ segir Elín Ingólfsdóttir í Grindavík en við henni blasti ófögur sjón eftir ferðalag um verslunarmannahelgina. „Það var allt út um allt,“ segir Elín. SJÁ SÍÐU 4
FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR