Fréttablaðið - 02.08.2022, Síða 11

Fréttablaðið - 02.08.2022, Síða 11
KYNN INGARBLAÐ ALLT ÞRIÐJUDAGUR 2. ágúst 2022 ALOE VERA MELTING & BÓLGUR 85%VIRKTCURCUMIN www.celsus.is Ásta Kristín Benediktsdóttir  bók- menntafræðingur leiðir gönguna næsta fimmtudag. MYND/AÐSEND starri@frettabladid.is Næsta fimmtudag mun Ásta Krist­ ín Benediktsdóttir bókmennta­ fræðingur leiða göngugesti um miðborgina og bjóða þeim með sér í heimsókn á sögusvið hinsegin bókmennta frá ýmsum tímum. Gangan er hluti af viðburða­ röðinni Kvöldgöngum, auk þess að vera hluti af dagskrá Hinsegin daga sem nú standa yfir. Meðal bóka sem koma við sögu má nefna bókina Mánastein – drenginn sem aldrei var til eftir Sjón, Millu eftir Kristínu Ómars­ dóttur og Man ég þig löngum eftir Elías Mar. Persónur lifna við Ásta mun leitast við að svara spurningum á borð við: Hvar varði drengurinn Máni Steinn, sem aldrei var til, dögum sínum? Vann hin tuttugu og eins árs gamla Milla kannski á Borgarbókasafninu? Hvers kyns ástarsorg hrakti hinn vestfirska Halldór Óskar Halldórs­ son aftur heim til sín eftir skamma Reykjavíkurdvöl? Ásta Kristín er bæði fróð og forvitin um hinsegin bókmenntir og göngugestir ættu ekki að vera sviknir af rabblabbi með henni og sögupersónunum um stræti Reykjavíkur á Hinsegin dögum. Meðan Hinsegin dagar standa yfir verður allur hinsegin bóka­ kostur Borgarbókasafnsins til sýnis í bókabíl á Lækjartorgi. Nánari upplýsingar á Facebook­ síðu og vef Borgarbókasafnsins. n Hinsegin bókmenntaganga Birta Ósk segir að bæði almenningur og stjórnvöld geti gert ýmislegt til að standa með og styrkja stöðu kvára á Íslandi. FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR Kvár eru ósýnileg í íslensku samfélagi Birta Ósk hefur verið að rannsaka félagslega stöðu kvára á Íslandi og segir mikla þörf á vit- undarvakningu um hópinn, sem sé að miklu leyti ósýnilegur. Hán segir að bæði almenn- ingur og stjórnvöld geti gert margt til að sporna við þeim hindrunum sem kvár mæta. 2

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.