Fréttablaðið - 02.08.2022, Page 32
frettabladid.is
550 5000
RITSTJÓRN ritstjorn@frettabladid.is
AUGLÝSINGADEILD auglysingar@frettabladid.is
PRENTUN Torg ehf.
DREIFING Póstdreifing ehf.
dreifing@postdreifing.is 2022 - 2025
FRÍTT
ALLAN HRINGINN
KAFFI
G E R I Ð G Æ Ð A - O G V E R Ð S A M A N B U R Ð
STILLANLEG
HJÓNARÚM
MEÐ BODYPRINT DÝNU
PANDORA
STILLANLEGUR
HÆGINDASTÓLL
VANDAÐAR
SÆNGUR OG
KODDAR Í
ÚRVALI
EITT MESTA
ÚRVAL AF
HEILSUDÝNUM
Á LANDINU
ÚRVAL AF
VÖNDUÐUM
HEILSURÚMUM
WWW.SVEFNOGHEILSA.IS
ENGJATEIGI 17-19,
REYKJAVÍK
S:581 2233
BALDURSNESI 6,
AKUREYRI
S: 461 1150
OPIÐ:
VIRKA DAGA.......KL. 10:00 -18:00
LAUGARDAGA....KL. 12:00 - 16:00
UMBOÐSAÐILAR:
HÚSGAGNAVAL, HÖFN Í HF.
BARA SNILLD, EGILSSTAÐIR
Svefn heilsa&
VERSLANIR:
Péturs Georgs
Markan
n Bakþankar
Í upphafi sumars átti ég áhuga-
vert samtal um Guð, sem oftar. Að
þessu sinni snerist umræðan um
þennan dæmandi, refsandi Guð
sem birtist okkur í Gamla testa-
menti biblíunnar. Spjallið klifraði
síðan í betra skyggni og vatt sér
yfir í pælingar um þennan alltum-
vefjandi Guð Nýja testamentisins.
Ég var sumsé á hlaupunum með
skokkhópnum þegar umræðan
tókst á flug.
Í framhaldinu dýpkaði umræð-
an og hóf að kryfja sístætt verkefni
guðfræðinnar og heimspekinnar;
breytist Guð?
Kollgátuna í hópnum átti sjálf-
sagt sá sem engu trúir: „Guð getur
aðeins þróast með manninum“
– „og öfugt“. Ég er samt ekkert viss
um að við séum að hugsa þetta
eins. Um leið og gátan var leyst
gall í snjallúrinu hans að „peisið“
væri undir viðmiði og að óbreyttu
næði hlauparinn ekki settu marki.
Kannski Guð búi í snjallúrinu,
amma. Hið dæmandi lögmál er
víða.
Seinna um sumarið var ég
staddur í vinahópi á Ströndum.
Það er bein tenging við undrið að
dvelja í Ófeigsfirði albjarta sumar-
nótt. Sjá himininn veita deginum
bálför guðanna – upplifa sólina
hníga og rísa á fremsta bekk. Það er
bara ekkert eins og þetta.
Mörg undur tilvistarinnar helga
sannfæringuna um tilvist Guðs.
Annað undur er kraftur kærleikans
sem birtist í baráttu hinsegin fólks,
sem hefur breytt öllu samfélaginu.
Guðsmyndin breytist. Kristur er
trans í baráttu trans samfélagsins
fyrir viðurkenningu og mennsku.
Kristur er hommi þegar ýjað er
að kvótasetningu þeirra. Kristur
er útvörður mennskunnar, kær-
leikans og fjölbreytileikans. Enda
fjölbreytileikinn sköpun hennar.
Guð breytist – og í Ófeigsfirð-
inum er hán eins, um aldir alda. n
Um aldir alda